Morgunblaðið - 12.10.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 57
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBÖNP
s
Astarsaga
af hælinu
Við jaðar sakleysisins
(On the Edge of Innocence)_
Drama
★%
Framleiðendur:. Lcikstjóri: Peter
Werncr. Handritshöfundur: Maxine
Herman. Kvikmyndataka: Neil
Roach. Tónlist: Dana Kaproff. Aðal-
hlutverk: Kellie Martin, James Mars-
den, Karen Young, Lisa Jakub, Jamie
Kennedy, Terry O’Quinn. 87 mín.
Bandaríkin. Cic Myndbönd 1997.
Utgáfudagur: 7.október.
Myndin er öllum leyfð.
SÖGUHETJUR þessarar myndar
eru tveir unglingar sem eiga það
sameiginlegt að vera lokaðir inni
á geðsjúkrahúsi. Hún er þung-
lyndissjúklingur sem sífellt er að
ögra móður sinni og hann reynir
aftur og aftur að lenda í slagsmál-
um við ókunnuga til að misbjóða
föður sínum. Eins og greinilegt er
frá upphafsmínútum þessarar
myndar verða þessar tvær trufl-
uðu sálir ástfangnar, en læknarn-
ir á sjúkrahúsinu og hinir óskiln-
ingsríku foreldrar gera allt til að
halda þeim í sundur. En anda sem
unnast fær ekkert aðskilið og þau
flýja af sjúkrahúsinu með fríðu
foruneyti.
Það er Kellie Martin sem leikur
aðalhlutverkið í þessari mynd, en
hún er betur þekkt sem Rebekka
systir Corky í þáttunum „Life
goes on“, sem vættu augu hús-
mæðra í vesturbænum íyrir
nokkrum árum. Martin er ekki
sem verst sem hin þunglynda Zoe,
en hún er ekki enn búin að losa sig
við þá „Life goes on“-væmni sem
hefur loðað við hana. James Mars-
den er einnig fínn sem hinn upp-
stökki kærasti hennar, en persóna
hans er ekki nægilega vel skrifuð.
Aðrir leikarar standa sig misjafn-
lega vel og bestur af þeim er Terry
O’Quinn („The Stepfather") sem
leikur föður Marsden. Tæknilega
er myndin ekkert sérstaklega vel
unnin og fáir góðir sprettir eru í
tónlist og kvikmyndatöku. Helsti
gallinn við myndina er að áhorf-
andinn fær aldrei nægilega samúð
með persónunum Martin og Mars-
den, en það leiðir til þess að áhrifa-
máttur myndarinnar glatast nær
algerlega.
Ottó Geir Borg
Merkismynd
Horfínn heimur
Lost World - 1925
NÚ TIL dags kalla bíófarai- ekki
allt ömmu sína þegar illmenni,
skrímsli og aðrar ófreskjur birtast
þeim á hvíta tjaldinu. A þögla tíma-
bili kvikmyndanna var það skrímsli
sem mest áhrif hafði á áhorfendur
gert úr gúmmíi sem vafið var utan
um fímmtán sentimetra háa beina-
grind úr vír. Þegar það birtist á
tjaldinu var það orðið að risavxinni
þórseðlu eða „brontosaurus" sem
ruddi niður Tower Bridge í Lund-
únum.
Þessi fyrsta útgáfa af
„Horfnum heimi“ var
byggð á sögu eftir sir
Arthur Conan Doyle,
höfund bókanna um
Sherlock Holmes. Þar
segir frá prófessor
Challanger sem fær
styrk til að rannsaka
hásléttu nokkra í
Amazon. Meðal annarra
dýra sem leiðangurs-
menn hitta fyrir er ap-
inn Bull Montana. Þessi
týndi hlekkur, sem leik-
inn var af glímumanni,
er einna merkilegastur
fýrir að vera forveri
King Kongs nokkurs, en
sömu kvikmyndagerð-
armenn gerðu einnig
fyrstu myndina um
þann risavaxna apa átta
árum síðar.
Hvorki þykja leikur
né leikstjóm neitt til að hrópa húrra
fyrir í þessari mynd, en hins vegar
var öll myndataka og brellurnar
þær bestu sem sést höfðu í
Hollywood til þessa. Til að koma
mönnum og gúmmíbrúðu saman á
mynd og til að virka sannfærandi
tvítóku þeir á sömu filmuna.
Já, Steven Spielberg er ekki einn
um að hafa fallið íyrir sögunni um
hinn horfna heim. Myndin var líka
endurgerð árið 1960 og árið 1993.
Nýkomin sending af
Einnig
soíasett 3+Z
Vönduð gæéohúsgegn
á góðu verðii
et
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísuná staðgreiðslu
usqogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Sími 581-2275 e 560-5375 a Fax 568-5275
og áklæði
Leðursófasett
Verð frá kr. 179.000
Iðbaddari
Shemmtun vetrarins
T Súlnasal
Það er
franskt jjör
á laugardagskvöldum
í Súlnasal.
Skemmtikraftarnir
Egill Ólajsson,
Sigrún Eva Armannsdóttir,
Rósa Ingólfidóttir ogfulltrúar frá hinni óborganlegu
Spaugstofiu ÖmÁmason og KarlÁgúst Úlfison nueta
ásamt Tamlasveitinni. Dansarar sýna can can og önnur
frönsk spor undir stjórn Helenu Jónsdóttur.
Tónlistarstjóri er Jónas Þórir.
Aggi Sbe og Tamlasveitin ásamt Sigrúnu Evu
leika jyrir dansi til kL 3.00.
Þríréttuð kvöldmáltíð að frönskum heetti.