Morgunblaðið - 12.10.1997, Síða 58

Morgunblaðið - 12.10.1997, Síða 58
 58 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Sekkja- tpillur Góð vara, -ótrúlegt verð Aðeins kr. 7.617.- með vsk. Bruna- slöngu- hjól MARGAR STÆRÐIR OG GERÐIR. EINNIG í SKÁPUM. 1/2", 3/4", 1" 15-20-25-30-35-40-45-50 Mtr slöngur Allar gerðir eldvarnatækja. Þjónustum slökkvitæki. HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA. □ ELDVARNAMIBSTllfllN HF ÓLAFUR GÍSLASON & CO. HF. SUNDABORG 3 SÍMI 568 4800 RÆSTIVAGNAR RÆSTIÁHÖLD Blað allra landsmanna! ffavgiitiÞIafrifr - kjarni málsins! i ;yt.l )or,(f<?r’BykjcJVik .t ;i o ri Eyþór Arnalds opnar kosningaskrifstofu vegna próJJcjörs Sjálfstœðisflokksins í dag, sunnudag, kl. 15:00 í Austurstrœti 10 Stuðning smenn Kosningamiðstöðin Austurstræti Símar: 561 9599/561 9526/561 9527 www. r 'oykjKivík . corri Innritun er hafin! Ný námskeið byrja 20. október FRA TOPPITIL TAAR i Námskeið sem hefur veitt ótalmörgum konum frábæran árangur. Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum, sem beijast við aukakílóin. Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar 5 viku, sjö vikur í senn. Góður matarkúr sem fylgt er eftir daglega með andlegum stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir þar sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig á að bera líkamann og efla sjálfstraustið. FÓLK í FRÉTTUM KÆRULEYSI OG KERSKNI TðNLIST Geilsadiskur EINS OG ÉG VAR MOTTA Stuttgeislaskífa hljómsveitarinnar Bag of Joys, hluti af útgáfuröð Smekkleysu, Skært lúðrar hljóma. 999 kr. 18 mín. SMEKKLEYSA hefur tekið sig til og gefið út geislaplötur úrvals ís- lenskra „neðanjarðarsveita" undir slagorðinu Skært lúðrar hljóma. Þessar hljómsveitir eru að sjálfsögðu misjafnar, sumar frábærar, aðrar síðri. Bag of Joys er í seinni flokkn- um, þótt hljómsveitin sé langt frá því að vera slök. Eins og ég var motta er stuttur diskur, átta lög, að meðaltali rúmar tvær mínútur að lengd. Sum lögin eru örstutt, „We Like to Do It“ að- eins rúm mínúta. Það er ágætt, enda standa sumir í þeim misskilningi að lög megi ekki vera undir þremur mínútum og lenda því í að endurtaka lagakafla að óþörfu. Lögin, tónlistin sjálf, eru flest ekki beysin. Eitt lag, „Lovepotion", er áberandi klisjukennt og fremur leiði- gjarnt áheyrnar. Móður minni líkaði það þó vel. Önnur lög eru ekki klisju- kennd, en ámóta einfaldar lagasmíð- ar sem grípa misjafnlega. Undan- tekning er í berjamó með Bag of Joys; langbesta lag plötunnar. I byrj- un fimmta lagsins, Sappa oj, er sem hljómsveitin Texas Jesús sé lifandi komin. Það lag er reyndar ágætt líka og einnig má hafa gaman af síðustu þremur lögunum, „Le petit gargon", HA 498 og Hakama. Ekki er hægt að kalla lagasmíðarnar metnaðarfullar, enda var máske ekki ætlunin að semja tímamótaverk. Textarnir eru hins vegar margir hverjir smellnir og ágætir. Ljóðið við „Le petit garQon" er tekið upp úr kennslubók í frönsku, sem er vel til fundið og sniðugt uppátæki með ein- dæmum. Spilamennskan er hin ágætasta á plötunni. Bassaleikur er þéttur, gít- arleikur hugmyndaríkur og hljóm- borðsleikur skemmtilegur. Um trommuleik sér Aiesis-hljómborð og ferst þvi hann vel úr hendi. Söngur Lenu Videro er kæruleysislegur, reyndar full kæruleysislegur á köfl- um, en ugglaust á hann ekki að vera neitt stórkostlegur. Takmark sveitarmeðlima virðist fyrst og fremst að skemmta sér og öðrum og það er í sjálfu sér virðing- arvert. Tónlistin hefur hins vegar orðið útundan að mestu leyti. Segja má að fólkið í Bag of Joys, sem er greinilega hæfileikaríkt, hafi einfald- lega ekki verið tilbúið til að senda frá sér geislaplötu núna. Hins vegar verður gaman að hlýða á næstu plötu, þegar gæði tónlistarinnar verða væntanlega mun meiri, eins og lagið I beijamó með Bag of Joys gef- ur von um. Ivar Páll Jónsson Tíkin er best ►ÞEGAR leikarinn Matthew McConaughey kom fyrst fram á sjónarsviðið var hann sagður af sumum mesta kyntáknið sem fram hefði komið í kvik- myndaheiminum síðan Paul Newman var upp á sitt besta. Matthew ákvað hins vegar strax að sýna fram á það að hann væri meira en sætur strák- ur sem myndað- ist vel, og nú leikur hann á móti Jodie Fost- er í Contact, nýjustu mynd leikstjórans Ro- bert Zemeckis, sem frumsýnd var í Sambíóun- um síðastliðinn föstudag. Matthew á enga kærustu og er það tíkin hans Miss Hud sem fær alla hans ástúð; „Miss Hud er mjög kelin og að eyða kvöldinu með henni fyrir fram- an sjónvarpið við að horfa á fótbolta og drekka bjór, er toppurinn á tilverunni," lét hann hafa eftir sér í viðtali fyr- ir stuttu. Miss Hud hefur veitt Matt- hew stuðning á stórum stund- um í lífi hans. Þegar hringt var í hann og honum boðið hlut- verk í hans fyrstu stórmynd Time to KiII var hann að leika í myndinni Lonestar. „Mig byrj- aði að svima, ég datt fram á hnén og fór með bæn. Síðan fór ég heim til Miss Hud og eyddi næstu þremur dögum með henni því ég hafði engan ann- an til að sam- gleðjast mér,“ sagði Matthew ennfremur um þessa góðu vin- konu sina. Við upptökur myndarinnar Time to KiII urðu-Matthew og mótleikkona hans Sandra Bullock góðir vinir. Banda- ríska pressan er búin að gifta þau nokkrum sinnum. Matt- hew segir ekkert á milli þeirra nema mjög sterka vináttu og að þau beri systkinatilfinning- ar hvort til annars. Aðspurður hvort hann ætli ekki að gera eitthvað 1 kvennamálunum sagði hann: „Ég er bara eins og hver annar, að leita að þeirri einu réttu.“ MATTHEW McConaughey er Texasbúi í húð og hár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.