Morgunblaðið - 31.10.1997, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Rympa á
rasla-
haugnumí
Hveragerði
Hveragerði - Barnaleikritið
Rympa á ruslahaugnum verður
frumsýnt hjá Leikfélagi Hvera-
gerðis næstkomandi laugardag
klukkan 15, í Hótel Björk. Höf-
undur leikritsins er Herdís Eg-
ilsdóttir og samdi hún jafn-
framt alla söngva. Leikstjóri
' sýningarinnar í Hveragerði er
Ingunn Jensdóttir. Leikritið
segir frá Rympu, skrýtinni
kerlingu sem býr á ruslahaugn-
um. Rympa hefur verið algjör
útigangur frá barnæsku og
þekkir hvorki venjulegt heimil-
islíf né umgengnisvenjur. A
haugana koma síðan tvö börn
sem strjúka úr skólanum ásamt
ömmu sem strýkur af elliheim-
ili af því enginn má vera að því
að tala við þau og sinna þeim.
Með helstu hlutverk fara Anna
Jórunn Stefánsdóttir, Margrét
Svava Jónsdóttir og Zophonías
Friðrik Gunnarsson. Um undir-
leik sér Teodór Kristjánsson.
Alls koma á milli 30 og 40
manns að sýningunni sem er
bæði litrík og lífleg. Önnur sýn-
ing á Rympu er næstkomandi
sunnudag klukkan 15. Sýningar
verða síðan næstu helgar bæði
laugardaga og sunnudaga
klukkan 15.
FLORENCE Helga Guerin
með nokkur verka sinna.
Listamaður
mánaðarins
í Galleríi
List
í NÓVEMBER er Florence Helga
Guerin listamaður mánaðarins í
Galleríi List við Skipholt 50b og
verður sýning hennar opnuð á
morgun, laugardag.
Florence Helga er fædd í Frakk-
landi 1971. Að loknu stúdentsprófi
í Frakklandi hóf hún fjögurra ára
nám í listaskólanum Evcole Sup-
érieure d’Art Neufville" í París og
útskrifaðist þaðan árið 1995. Hún
málar myndir og hannar ýmsa
muni, s.s. lampa, skartgripi ogjóla-
skraut. Hún hefur sýnt myndlist
sína í París, t.d. í Galerie ARt’s
Factory, Le Bonmarche, Libre
Comme L’art og Sur La Cométe
og einnig hefur hún hannað skart-
gripi fyrir hátískuhús Louis Feraud
og lampa fyrir fyrirtækið Taras Et
Bulba.
Sýningunni lýkur 17. nóvember.
Galleríið er opið virka daga frá kl.
ll-18oglaugardagafrákl. 11-14.
RYMPA verður í Hveragerði næstu helgar.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Rebekka Rán Samper
sýnir í Hafnarborg
EITT verka Rebekku Ránar Sampers í Hafnarborg.
REBEKKA Rán Sam-
per opnar myndlistar-
sýningu í Hafnarborg,
lista- og menningar-
stofnun Hafnarfjarð-
ar, á morgun, laugar-
dag. Á sýningunni
verða þrívíð og tvívíð
verk, unnin í jám, við,
vax, mannshár og
fleiri efni.
Rebekka Rán
fæddist í Reykjavík
5. maí 1967. Að loknu
stúdentsprófi frá MR
lagði hún stund á list-
nám við Háskólann í
Barcelona, Facultat
de Belles Artes de
Sant Jordi. Þar lauk
hún mastersgráðu
árið 1992 og vinnur
nú að doktorsritgerð
í listaheimspeki.
Meðfram námi hef-
ur Rebekka unnið
m.a. við leiktjalda-
gerð, hreyfimynda-
gerð og myndskreyt-
ingar hjá Sjónvarpinu,
myndskreytt bækur,
hannað bókarkápur
og stundað kennslu.
1994-1995 var hún
fastráðin kennari við
lista- og hönnunar-
deildina í Escola de Sistemes In-
formátics í Barcelona, sem er útibú
frá háskólanum í Cambridge á
Englandi, og næsta ár á eftir
kenndi hún í hönnunarskólanum
Escola de Vapor del Rec. Municip-
al í Barcelona. Á síðustu árum
hefur hún haldið nokkrar sýningar
í Barcelona og tvær sýningar í
Seoul í Suður-Kóreu, þar sem hún
dvaldi í eitt ár, 1992-1993, í boði
Hong-Ik listaháskólans í Seoul.
Árið 1991 hlaut Rebekka viður-
kenningu fyrir eitt verka sinna í
skúlptúrsamkeppni Miguel Casa-
blanca og síðustu fjögur ár hefur
hún fengið styrk til
listsköpunar frá lista-
stofnun hins þekkta
myndlistarmanns
Xaviers Corberós í
Barcelona.
Á næsta ári hefur
Rebekku verið boðið á
alþjóðlega listahátíð í
Kurye í Suður-Kóreu,
sem haldin er í sam-
vinnu yfirvalda í
Kurye og listastofn-
unarinnar Art Space
í Seoul. Þar verður
Rebekka eina konan í
hópi tíu listamanna
hvaðanæva úr heimin-
um, sem hefur verið
falið það verkefni að
gera útilistaverk, sem
sett verða upp í lista-
garði á Chiri-Sang
ijalli. Hver þeirra fær
aðstöðu í boði hátíðar-
innar til a.m.k.
tveggja mánaða til að
vinna sitt verk. Á
næsta ári hyggst Re-
bekka einnig þiggja
boð Jonathans Peys-
ers um vinnuaðstöðu
í Brooklyn í New York
en Peyser hefur með
höndum skipulagn-
ingu allra svæða í
New York-borg þar sem útilista-
verkum er komið fyrir.
Sýningin í Hafnarborg, _sem er
fyrsta sýning Rebekku á íslandi,
verður opnuð kl. 14 á morgun,
laugardag. Hún verður síðan opin
alla daga nema þriðjudaga kl.
12-18 og stendurtil 24. nóvember.
Heimsókn
kanadískra
rithöfunda
TVÖ kanadísk skáld, Ray Smith og
Michael Harris, eru væntanleg hing-
að um helgina í boði íslandsdeildar
Norræna félagsins um kanadísk
fræði (The Nordic Association for
Canadian Studi-
es), til að kynna
kanadískar bók-
menntir og lesa
úr eigin verkum.
Báðir kenna þeir
við enskudeild
Dawson College
í Montreal en eru
fyrst og fremst
þekktir sem rit-
höfunaar. Þeir
hafa lesið úr
verkum sínum
víða um heim,
enda báðir miklir
áhugamenn um
að færa bók-
menntir nær
bókmenntaunn-
endum með lif-
andi flutningi.
Kanadísku skáldin
Ray Smith og Mic-
hael Harris.
Ray Smith kemur upphaflega frá
Cape Breton í Nova Scotia. Meðal
helstu skáldverka hans eru smá-
sagnasöfnin Cape Breton is the
Thought Control Centre of Canada
og Lord Nelson’s Tavern, og skáld-
sögurnar Century og Night at the
Opera, en fyrir þá seinni hlaut hann
Hugh MacLennan verðlaunin fyrir
bestu skáldsögu ársins 1992. Hann
hefur birt fjöldann allan af smásög-
um, skrifað leikrit fyrir leiksvið og
útvarp, unnið ýmislegt annað efni
fyrir útvarp og tímarit, auk þess
að birta fræðigreinar um bókmennt-
ir. Ný skáldsaga eftir hann er vænt-
anleg á komandi ári, The Man Who
Loved Jane Austen.
Michael Harris fæddist í Glasgow
í Skotlandi en fór í háskólanám í
Kanada og hefur búið þar síðan.
Meðal helstu verka hans eni ljóða-
söfnin Poems from Ritual, Text for
Nausikaa, Sparks, Grace, Miss Emily
et la Mort, In Transit, og New and
Selected Poems, en svo hefur hann
jafnframt birt fjölda ljóða í kanadísk-
um bókmenntaritum, og unnið til
margra útnefninga og verðlauna fyr-
ir ljóð sín. Hann hefur einnig gefið
út þýðingar úr frönsku og þýðing
hans á verkum Marie-Claire Blais
var útnefnd til verðlauna árið 1985.
í ljóðabókaútgáfu hefur hann verið
leiðandi afl sem stofnandi og rit-
stjóri Signal Editions, og hefur rit-
stýrt nokkrum sýnisbókum, auk
verulegs fjölda af ljóðabókum.
Á mórgun, laugardag kl. 14,
flytja Ray Smith og Michael Harris
opinbera fyrirlestra í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands í há-
tíðasal aðalbyggingar háskólans.
Ray Smith mun bera saman viðhorf
Kanadamanna og Ástrala til stríðs
í erindinu „Canucks and Anzacs:
Perceptions of War in Canada and
Australia,“ en Michael Harris mun
fjalla um kanadísku bókmennta-
stofnunina í erindi sem nefnist
„Canlit’s Loose Canon“.
Sunnudagskvöldið 2. nóvember,
kl. 20.30-22, munu þeir hins vegar
lesa úr eigin verkum á kaffihúsinu
Súfistanum, Laugavegi 18.
Sýningum á Draum-
sólum fer fækkandi
SÝNINGUM á Draumsólir vekja
mig, sem sýnt er í íslenska leikhús-
inu í Hafnarfjarðarleikhúsinu fer
senn að ljúka. Sýningar verða á
morgun, laugardag, og sunnudag
kl. 20. Sunnudaginn 9. nóvember
er síðasta sýning.
Draumsólir vekja mig, eftir
Þórarin Eyfjörð, sem jafnframt er
leikstjóri. Verkið er unnið upp úr
skáldskap Gyrðis Elíassonar og er
að mestu byggt á þremur bókum
Gyrðis: Svefnhjólinu, Gangandi
íkorna og Bréfbátarigningunni.
Leikarar eru: Ása Hlín Svavars-
dóttir, Harpa Arnardóttir, Þorsteinn
Bachmann, Valgeir Skagfjörð, Hin-
rik Ólafsson, Þröstur Guðbjartsson,
Skúli Gautason, Jón Stefán Krist-
jánsson og Alma Guðmundsdóttir.
Leikmynd og lýsing: Egill Ingi-
bergsson. Leikgervi: Ásta Hafþórs-
dóttir. Búningar: Linda B. Árna-
dóttir.
Möffuleikhúsið symr
Snillingana í
MÖGULEIKHÚSIÐ við Hlemm
er nú að hefja að nýju sýningar
á barnaleikritinu Snillingar í
Snotraskógi eftir Björgvin E.
Björgvinsson, en verkið var frum-
sýnt á síðasta leikári.
Leikritið er byggt á samnefndri
bók, sem kom út fyrir síðustu jól.
Þetta er hugljúf saga um Skógar-
mýslu og íkornastrákinn Korna.
Leikstjóri og höfundur leik-
myndar er Bjarni Ingvarsson, tón-
Snotraskógi
list er eftir Helgu Sighvatsdóttur,
útsett af Guðna Franzsyni, bún-
ingar eru eftir Helgu Rún Páls-
dóttur og lýsingu hannar Alfreð
Sturla Böðvarsson. Leikarar eru
Erla Ruth Harðardóttir, Pétur
Eggerz og Bjarni Ingvarsson.
Aðeins verða tvær sýningar á
Snillingum í Snotraskógi í Mögu-
leikhúsinu og verða þær sunnu-
daginn 2. nóvember og sunnudag-
inn 9. nóvember og hefjast kl. 15.