Morgunblaðið - 31.10.1997, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997 55
BREF TIL BLAÐSINS
Um sýnir
Frá Konráði Friðfinnssyni:
í GEGNUM tíðina hafa margar
sagnir verið skráðar um sjáendur,
svokallaða. Og er þá átt við fólk
sem sér hluti sem öðru er ekki gefið.
En er virkilega til í dæminu að
menn geti séð eitthvað sem aðrir
koma fráleitt auga á með náttúru-
legum skynfærum? Eitthvað sem
erfitt getur reynst að útskýra á trú-
verðugan máta fyrir fólki? Eða
sanna með tækjum tækninnar?
Biblían talar dálítið um svona
tilvik, bæði í gamla og nýja testa-
menti. Um hvað erum við nú að
tala? Er Guð að verki þegar menn
sjá eða heyra það sem venjulegum
augum eða eyrum er fyrirmunað
að nema? Tryggingin fyrir návist
Guðs er alla vega ekki örugg, þótt
sýnin sé fyrir hendi.
En hvað gerist þá hjá manni sem
„sér“? Er sjáandinn máske bara
loddari sem fýsir að hafa peninga
af auðtrúa fólki? í mörgum tilfellum
er það raunveruleikinn.
Auðvitað er erfitt að svara svona
spurningum til hlítar. Svo virðist
þó vera að maðurinn sé þannig af
Guði ger að eitthvað innra með
honum bjóði upp á þennan „mögu-
leika“. Einhveijir strengir sem hægt
er að leika á og kalla fram myndir,
sem eru fyrir utan venjulegt skyn-
bragð hans.
Til að mynda kennir Biblían að
heilagur andi starfi innra með oss.
í hjartanu. Á þeim vettvangi kemur
hann fram vilja Drottins.
Biblían greinir líka frá sýnum sem
Guð vildi láta manninn sjá eða heyra.
Að tarna getum við, meðal annars,
lesið um í Postulasögunni, varðandi
Pál. En Sál (síðar Páll) var rakinn
andstæðingur fýlgjenda Jesú í upp-
hafi. Sál þessi var bæði harður og
illur í garð kristinna manna og
hneppti hvern þann í fjötra og fang-
elsi sem hann fann og var þessa
vegar. Eitt sinn er hann var á enn
einni ferðinni tiil að gera atlögu að
hinum kristnu, þá með undirritað
skjal frá sjálfum æðsta prestinum
upp á vasann, verður hann fyrir
reynslu sem breytir afstöðu hans
gagnvart þessu fólki:
„En þegar hann var á ferð sinni
kominn í nánd við Damaskus, leiftr-
aði skyndilega um hann ljós af
himni. Hann féll til jarðar og heyrði
rödd segja við sig: „Sál, Sál, hví
ofsækir þú mig?“ (Post.: 9.3-4).
Það merkilega við söguna er að
einungis Páll heyrði orðin, ekki hin-
ir sem með honum voru á ferðinni.
Þótt þeir féllu allir til jarðar er Ijós-
ið skall á þeim. Þarna talaði Jesú
Kristur persónulega við manninn
og kallaði til starfa. Sem færir okk-
ur vitaskuld heim sanninn um það
að Guð er þess megnugur að tala
við menn án þess að nærstaddir fái
neitt um það vitað. Þetta segir oss
ennfremur að innra með oss býr
ýmislegt sem er erfitt að átta sig
á. Og hindrum við heilagan anda
Guðs í starfi sem honum einum er
fyrirhugað, þá getum við heldur
ekki vitað hvað þar er á ferðinni.
„Húsið“ stendur nefnilega ekki
lengi autt. Og „húsið“ erum við.
Líkami okkar.
Biblían talar líka um Satan. Og
komist hann innfyrir, til að stilla
strengina, verður hljómur þeirra
annar og verri. Þessi óvinur er einn-
ig máttugur. Menn skyldu því forð-
ast að bjóða honum birginn. Hann
er fær um að láta manninn sjá sýn-
ir, fái hann til þess ráðrúm. Og
getur talað til mannsins og sett á
sig Guðs mynd.
Eitt er þó tryggt í málinu. Sem
er: Mæli óvinurinn við menn og í
gegnum þá talar hann ósannindi.
Um þetta atriði segir Kristur á
þessa leið: „Þegar hann lýgur, fer
hann að eðli sínu. Því að hann er
lygari og lyginnar faðir. í honum
er enginn sannleikur.“
Þetta er aflið sem hugsanlega
sjáendur, miðlar og kuklarar eru í
slagtogi við. En ættu að forðast.
Litlar líkur eru á því að sýnir slíkra
manna séu frá Guði komnar.
Þótt Biblían greini nokkuð frá
sýnum sem menn upplifðu, (Opin-
berunarbókin byggir á sýnum Jó-
hannesar), er ekki unnt að gefa sér
það að Guð vinni mikið með mann-
inn á þann hátt. Vegna þess að
Guð, í öllum mætti sínum, er ekk-
ert dularfullur, eða undarlegur, sem
erfitt er að átta sig á. Guð leikur
sér fráleitt með fólk né spilar á
strengi dulúðar og yfirskilvitlegra
hluta. Annað afl en Drottinn er iðn-
ara við það verk.
Hins vegar þráir Drottinn að
nota manninn. Og þá fyrst og
fremst til að útbreiða orð krossins.
Sem fræðir um veg Jesú Krists,
upprisuna, kærleikann og svo fram-
vegis. Þetta eru strengirnir sem
Guð slær á og framkallar hljóm-
kviðu sem tekur öllum öðrum fram
í fegurð. Og Guð er ekki torskilinn,
stilli menn strengi sína og finni
samhljóm við hann.
Og hví að gera hluti flókna og
fikta við verk sem við ekki þekkjum
þegar einfaldleikinn blasir við?
KONRÁÐ FRIÐFINNSSON,
Blómsturvöllum 1, Neskaupstað.
Vegið að
starfsheiðri
Frá starfsfólki Flugleiða í Keflavík:
YFIRLÝSING frá starfsfólki Flug-
leiða í Keflavík vegna ummæla
Árna M. Mathiesen á Alþingi 8.
október 1997:
í umræðum á Alþingi hinn 8.
október sl. staðhæfir Árni M.
Mathiesen að Flugleiðir standi sig
illa við afgreiðslu á farangri ann-
arra flugfélaga. Hér _er rétt að
minna á að ummælum Árna er fyrst
og fremst beint gegn okkur, al-
mennu starfsfólki Flugleiða sem
önnumst þjónustu við ýmis flugfé-
lög engu síður en við Flugleiðir.
Það er mikilvægur hluti af starfi
okkar og starfsöryggi að allir æm
um flugstöðina fara fái sem besta
þjónustu og að ekki sé gert upp á
miili farþega, hvort sem um er að
ræða við innritun, hleðslu á far-
angri eða hvaða aðra þjónustu sem
fram fer á okkar vegum. Jafnframt
skal það tekið fram að við fáum
þau fyrirmæli ein frá okkar yfir-
mönnum að allir farþegar fái sömu
þjónustu hvort sem þeir ferðast með
Flugleiðum eða öðrum flugfélögum.
Ami færir engin rök né heldur
HK handknatt-
leiksdeild
Frá Rögnvaldi Guðmundssyni:
UNDIRRITAÐUR sér sig knúinn
til að senda frá sér grein þessa
vegna umfjöllunar um ólæti sem
áttu sér stað í HK-húsinu, Digra-
nesi, eftir leik HK og KA 15. októ-
ber síðastliðinn.
Til ryskinga kom milli stuðnings-
manna HK og stuðningsmanna KA,
sem betur fer voru þetta ekki alvar-
leg átök en samt viðkomandi aðilum
til skammar, bæði stuðningsmönn-
um HK þar sem um unglinga var
að ræða og einnig stuðningsmönn-
um KA þar sem um var að ræða
fullorðið fólk.
Hver kveikjan var að þessari
uppákomu veit ég ekki enda fer
tvennum sögum af því, og kannski
er það ekki aðalatriði, heldur hitt
að svona á ekki að sjást á leikjum.
Ekki hvarflar að mér að taka upp
hanskann fyrir okkar stuðnings-
menn í þessu máli, enda er búið
að taka á þessu máli hjá okkur og
refsa viðkomandi, en ekki má held-
ur gleyma að í tilfellum sem þessu
þarf alltaf tvo til.
Viðkomandi einstaklingar
(þ.e.a.s. stuðningsmenn HK) eru
búnir að fylgja HK á alla leiki und-
anfarin ár og hefur aldrei neitt líkt
komið upp á fyrr.
Varðandi fréttaflutning þann
sem orðið hefur af máli þessu var
mér farið að ofbjóða, þar sem bein-
línis er um rangfærslur er að ræða.
Hvaðan þessar upplýsingar eru
komnar veit ég ekki, allavega hefur
ekki verið haft samband við HK
varðandi þetta mál og ákaflega á
ég bágt með að trúa að viðkomandi
stuðningsmenn KA hafi látið hafa
þetta eftir sér.
Staðreyndir í máli þessu eru þess-
ar: Eftir að búið var að stilla til
friðar á áhorfendapöllum fór einn
okkar menna með stuðningsmönn-
um KA út úr húsinu til að ræða
við viðkomandi einstaklinga frá
okkur vegna máls þessa, og héldum
við að þar hefði málið verið útkljáð
með afsökunarbeiðnum. Eftir það
var viðkomandi stuðningsmönnum
KA boðið að þiggja kaffi í félagsað-
stöðu okkar sem þeir og þáðu ásamt
leikmönnum beggja liða og stuðn-
ingsmönnum HK. Ákaflega vel fór
á með mönnum þarna eins og ætíð
milli þessara félaga.
Ég vil fýrir hönd HK enn og aft-
ur biðjast afsökunar á atviki þessu
sem ekki á að sjást á kappleikjum,
en ítreka jafnframt að það þarf allt-
af tvo til.
Að lokum, um leið og ég vonast
til að fréttaflutningi af máli þessi
sé lokið, óska ég KA alls hins besta
með von um að mál þetta setji ekki
mark sitt á annars ánægjuleg sam-
skipti þessara félaga.
RÖGNVALDUR GUÐMUNDSSON,
formaður handknattleiksdeildar HK.
Þakkir til
Sjónvarpsins
Frá Gísla Má Gíslasyni:
SJÓNVARPIÐ hefur hafið sýningar
á nýjum flokki náttúrumynda í röð-
inni Friðlýst svæði og náttúruminj-
ar, sem Magnús Magnússon kvik-
myndagerðarmaður hefur gert.
Áður höfðu birst tvær myndaraðir
í sama flokki. íslenskar náttúrulífs-
myndir birtast ekki oft á skjánum
og geri ég því ráð fyrir að áhorfend-
ur, sérstaklega náttúruunnendur,
fagni þessum sýningum. Myndirnar
eru stuttar og vandaðar og texti
þeirra hnitmiðaður og fræðir áhorf-
endur um náttúrulíf þeirra staða
NÝ SPARPERA
sem kveikir og slekkur
sem um er ijallað, auk þess eru
þættimir skemmtilegir. Augljóst er
að mikil vinna liggur í gerð þátt-
anna.
Ég vil þakka Sjónvarpinu fyrir
þessa þætti og óska þess að Sjón-
varpið hafi reglulega kvikmyndir
um náttúru íslands á dagskrá sinni
í framtíðinni.
GÍSLIMÁR GÍSLASON,
prófessor í vatnalíffræði,
Heiðarseli 6, Reykjavík.
nefnir hann dæmi máli sínu til
stuðnings og verða því orð hans
skilin þannig að hann sé aðeins að
vega að starfsheiðri okkar sem
sinnum almennum þjónustu- og
hleðslustörfum í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar.
Hvers vegna Árni M. Mathiesen
kýs að vega að starfsheiðri okkar
er okkur hulin ráðgáta en okkur
þætti vænt um að fá frekari skýr-
ingar á ummælum þessum. Vert
er að geta þess að fjöldi starfs-
manna Flugleiða í Keflavík var 624
í september sl. og eru flestir búsett-
ir í kjördæmi Árna M. Mathiesen.
Það gefur því auga leið að ummæli
Áma eru síður en svo hans einka-
mál.
Allar frekari upplýsingar eru fús-
lega veittar í síma 425 0227.
Keflavíkurflugvelli, 20. október
1997.
F.h. starfsfólks Flugleiða í Keflavík,
ÖRN SÆVAR EIRÍKSSON,
hlaðþjónustu,
JÓHANN BJÖRNSSON,
farþegaafgreiðslu og
farangursþjónustu.
OSRAM
Söluaðilar um land allt
Jafnvel
16
tímum síðar
nýtur þú enn áhrifanna af
ŒLLULAR TIME RELEASE - INTENSIVE
hinum fullkomna rakagjafa.
Lagfærir það sem aflaga fór í gær.
Vörn á nýjum degi.
Húð þín geislar af heilbrigði
við hverja notkun.
Ef þú ættir kost á aðeins
einu kremi veldir þú þetta.
KYNNING
í dag og á morgun,
laugardag.
10% kynningarafsláttur
og fallegur kaupauki.
OWu
H Y G E A
jnyrtivöruverdlun
Laugavegi 23
<zsi/asi/*
/ S6*J? SSSS
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!