Morgunblaðið - 31.10.1997, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
] 'WIECÞIÍ/NPAHATI^
Dagskrá
■■ Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Föstudagur 31. október
Regnboginn
KL 5 og 9 Swingers (Djammið), leikst. Doug Liman,
Cosi leikst. Mark Joffe.
Kl. 7 Driftwood (Rekaviður) leikst. Ronan O'Leary,
SubUrbia (Úthverfi) leikst. Richard Linklater.
Kl. 11 Paradise Road (Paradísarvegur) leikst. Bruce Beresford,
Substance of Fire (Fjölskylda á krossgötum)
leikst. Daniel Sullivan.
Stjörnubíó
Sýningar á Touch (Snerting), leikst. Paui schrader,
hefjast fljótlega.
Sambíóin/Bíóborgin
Twelfth Night (Þrettándakvöld) leikst. Trevor Nunn.
Sjá bíóauglýsingar.
Laugarásbíó
Kl. 5 Drunks (Byttur) leikst. Peter Cohn.
Kl. 7 Winner (Sigurvegarinn) leikst. Alex Cox.
Kl. 9 og 11 La tréve (Sáttmálinn) leikst. Francesco Rosi,
End of Violence (Endalok ofbeldis) leikst. wim wenders.
Háskélabíó
Kl. 5.15 Carla's Song (Söngur Körlu) leikst. Ken Loach.
Kl. 9 og 11 Gridlock'D (Á snúrunni) leikst. vondie Curtis Haii.
Kl. 9 og 11 Georgia (Georgia) leikst. uiu Grosbaard.
Sjá nánar í blaði Kvikmyndahátíðar og DV.
6^
Veltíngahúsið
Artun
Vagnhöfða 11. S: 567 4090 Fax: 567 4092
Dansleikur
Dansbandið leikur
gömlu dansana
Húsið verður opnað kl. 22.00
Blönduð tónlist á laugardagskvöld
í kvöld.
Greatest Hrts
Millarnir + Páll óskar
Laugardagskvöld
H1jómsveitin Casino
Dj Tommi
X rjtsjafa 8 - K) C Jhnl 562 68/0 23 ára alJurslalmarí
FOLK I FRETTUM
Grænt og ilmandi
gítarrokk
MYNDBOND
Ljúf
vega-
mynd
Ruby Jean og Joe
(Ruby Jean and Joe)
II r a in a
-k-kVz
Framleiðandi: Walter Shenson.
Leikstjóri: Geoffrey Sax. Handrits-
höfundur: James Lee Barret. Kvik-
myndataka: James L. Carter. Tón-
list: Stephen Graziano. Aðalhlut-
verk: Tom Selleck, Rebekah John-
son, JoBeth Williams, Ben John-
son. 112 mín. Bandaríkin. Háskóla-
bíó 1997. Útgáfudagur: 21. októ-
ber. Myndin er öllum leyfð.
BANDARÍKJAMENN hafa
ávallt litið á villta vestrið með
glampa í augum. Þar var náttúran
ótamin og menn-
irnir munduðu
karlmannlega
hólka sína í götu-
einvígum á há-
degi. Kúrekinn er
stór hluti af
menningu Banda-
ríkjanna og haíá
vinsældir hans
tekið töluverðan
fjörkipp á síðustu áram, en nú eru
þessir menn gresjunnar settir inn í
ys og þys nútímanns og oftar en
ekki drekkir vélknúið samfélagið
þeim. Joe Wade (Tom Selleck) er
enn eitt dæmið um kúreka sem
hefur fortíð og reynir að gleyma
henni með því að stara sem mest á
botninn á viskýglasinu. Hann
þvælist frá einni óhemjureiðinni til
annarrar og virðist ekki eiga neitt
líf fyrir utan það. Það er ekki fyrr
en að hann tekur upp í bifreið sína
unglingsstúlkuna Ruby Jean, að
þessi útjaskaði kúreki finnur aftur
tilgang með lífinu.
Ruby Jean og Joe segir sögu
þessara ólíku einstaklinga, sem
jbola varla annað í byrjun en brátt
taka aðrar tilfinningar við, sem
sagt mjög dæmigert. Leikur
Rebekah Johnson og Tom Selleck
heldur myndinni nær algerlega
uppi. Þau eru mjög skemmtileg í
hlutverkum sínum og sýna margar
hhðar á vel skrifuðum persónum
Ruby og Joe. Aðrír leikarar standa
sig allir ágætlega þótt flestir
staldri stutt við vegna frásagnar-
forms myndarinnar, sem er vega-
mynda formið. Myndin er aldrei
væminn en hefði mátt vera aðeins
styttri því undir lokin er hún farin
að teygja lopann töluvert.
Ottó Geir Borg
TOfVIJST
Gcisladiskur
ÁSTÆÐAN FUNDIN
Smágeislaplata hljómsveitarinnar
Soðinnar fiðlu, sem skipuð er Gunn-
ari Erni Svavarssyni á bassa, Arnari
Snæ Davíðssyni gítarleikara og
söngvara, Agli Tómassyni gítarleik-
ara og söngvara og Ara Þorgeiri
Steinarssyni sem leikur á trommur
og slagverk. Upptökustjórn, hljóð-
blöndun og aðstoð við útsetningar:
Jón Þór Birgisson. Smekkleysa gefur
út. 999 kr. 25 mín.
ÞEIR SEM voru svartsýnir fyrir
hönd íslenskrar popptónlistar fyrh-
nokkrum misseram geta ekki rétt-
lætt þá tilfinningu lengur. Hljóm-
sveitir hafa ýmist verið að springa
út í frábærri sköpunargleði eftir
langt starf eða komið fullmótaðar
fram á sjónarsviðið. Eg leyfi mér að
fullyrða að gróskan hafi sjaldan ver-
ið meiri.
Soðin fiðla var stofnuð rétt fyrir
Músíktilraunir, sem hún sigraði síð-
an. Núna, nokkrum mánuðum
seinna, er fyrsta afurðin komin út,
stuttgeislaskífan Astæðan fundin.
Óhætt er að segja að platan sú arna
svíkur ekki.
Maður hefur á tilfinningunni að
fyrsta lagið, Grænn, sé einnig það
nýjasta. Sjarmerandi gítarlag sem
minnir um margt á Bandaríkin, há-
skólarokk í anda Sebadoh. Slíkt
heyiúst ekki á hverjum degi hér á
landi en er að sama skapi kærkomin
tilbreyting. Vala Gestsdóttir leikur
á soðnar fiðlur (og víólur ef mér
misheyrist ekki) og ljær laginu sí-
gildan anda. Yndislegt, gi-ípandi og
ferskt lag.
Vala fær að leika lausum hala í
næsta lagi, Soðin fiðla, þar sem fiðl-
urnar berjast um í pottinum og um-
vefja hver aðra í óskipulegum en
bragðgóðum tónalegi.
Titillagið er númer þrjú og það er
af sama toga og Grænn, þótt gítar-
inn sé ekki jafn áberandi í útsetn-
ingunni. Sennilega besta lag plöt-
unnar, hreint hnossgæti. Ef Astæð-
an fundin og Grænn era til marks
um stefnu sveitarinnar í framtíðinni
þarf hún engu að kvíða.
Jón Þór Bírgisson úr hljómsveit-
inni Sigur Rós syngur næsta lag,
Opinn, á sinn sérstæða hátt. Lagið
er í Sigur Rósar-stíl, reyndar gæti
óreyndur haldið að þar væri Sigur
Rós komin. Lagið er draumkennt
og minnir undirritaðan á eitthvað
sem hann man ekki alveg hvað er,
gott ef ekki Smashing Pumpkins.
Og þó.
Með laginu Fyiúrmynd fer hins
vegar aðeins að halla undir fæti.
Lagið er að vísu ágætt, en það er
gerólíkt hinum lögunum og minnir á
íslenskt nýbylgjurokk fyrir á að
giska fjórum árum. Helst til venju-
legt.
Síðasta Iagið, Of langt, ber ekki
nafn með rentu þótt það sé á sjö-
undu mínútu. Það er kaflaskipt;
fyrri hlutinn sunginn en hljóðfærin
fá að njóta sín í seinni hlutanum.
Báðir kaflar eru góðir, sérstaklega
sá hinn fyrri, sem hefði mátt vera
aðeins lengri. Rúsínan í pylsuend-
anum.
Þátttaka Jóns Þórs Birgissonar í
upptöku plötunnar er kapítuli útaf
fyrir sig. Hann nær mjög góðum
hljómi, sérstaklega í Grænum og
Ástæðan fundin. Skyldi íslenski
þunnildishljómurinn vera allur?
Undirritaður spáir að Jón eigi eftir
að vera eftirsóttur sem upptöku-
stjóri hjá íslenskum sveitum í fram-
tíðinni.
Hljóðfæraleikur er svo að segja
óaðfinnanlegur, textagerð einföld
og ágæt, en nokkuð er um stafsetn-
ingaivillur í bæklingi („tilfinningar
reyka“, „leggðu dröginn") og það er
alltaf bagalegt. Bæklingur er ann-
ars vel unninn og útlítandi.
Soðin fiðla er heil vika í vori ís-
lenskrar tónlistar. Til að finna ilm-
inn af nýútsprungnum páskaliljum
er nauðsynlegt að eignast Astæðan
fundin.
ívar Páll Jónsson
Nýju litirnir komnir
Spennandi nýjungar
NO
NO NAME
.......- COSMETICS
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík:
Spes Háaleitisbraut, Ingólfsapótek Kringlunni, Verslunin 17, Laugavegi,
Oculus, Primadonna, Snyrtistofan Paradls, Garðabæ, Hár og Útlit, Rún
Hafnarfirði, Versl. Dísolla Firðinum, Gott útlit hárgreiöslustofa, Hárgreiðslust.
Lottleiðum, Hárþing, Heilsa og Fegurð, Síðumúla.
Keflavík: Smart, Akureyri: Betri líðan og Snyrtivöruv. Ilmur, Borgarnes:
K-2, Vestmannaeyjar: Farðinn, Grindavík: Hárhöllin, Húsavík: Hilma,
ísafjörður: Snyrtihús Sóleyjar, Dalvík: Snyrtist.Tanja, Sauðárkrókur:
Snyrtist. Táin, Skagfirðingabúð, Selfoss: Snyrtist. Ólafar, Höfn: Snyrtist.
Ólafar, Neskaupstaður: Snyrtist. Rakel, Patreksfjörður: Patreks apótek,
Vopnafjörður: Lyfsalan, Grundarfjörður: Hársnyrtistofa Eyglóar, Egilsstaðir:
Snyrtist. Ragnheiðar, Hvolsvöllur: Snyrti- og sólbaðsstofan Ylur.
Snyrtivörukynning laugardaginn 1
Laugavegi kl. 14-17.
nóv. í
Helga Sæunn, förðunarfræðingur kynnir nýju litina.
NAME förðunarskóli og studio Hverfisgötu 76, sími 561 6525.