Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.11.1997, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 259. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • * SÞ fordæmir samhljóða andstöðu Iraka við vopnaeftirlit Bann sett við ferðum íraskra embættismanna „ .. Reuters IROSK börn mótmæla við skrifstofur Sameinuðu þjóðanna í Bagdad og láta í ljós stuðning við Saddam Hussein Iraksforseta í deilunni um vopnaeftirlit samtakanna í landinu. Sameinuðu þjóðunum, Bagdad. Reuters. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gærkvöldi ályktun þar sem Irakar eru fordæmdir fyrir að meina Bandaríkjamönnum að taka þátt í vopnaeftirliti alþjóðasam- takanna í Irak. Öryggisráðið setti ennfremur bann við ferðum íraskra embættismanna, sem hafa hindrað eftirlitið, til annarra landa. „Irakar hafna ályktun öryggis- ráðsins og leggja áherslu á að þeir hræðist hana ekki og ætli að halda áfram tilraunum sínum tii að verja lögmæt réttindi sín,“ hafði íraska fréttastofan INA eftir Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráðherra Iraks, eft- ir að ályktunin var samþykkt sam- hljóða í öryggisráðinu. Aziz var staddur í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna en ákvað að ávarpa ekki öryggisráðið, enda vai' Ijóst að hann gæti ekki talið fulltrúum aðildarríkj- anna hughvarf. Ályktunin er svar öryggisráðsins við þeirri ákvörðun Iraksstjórnar 29. október að banna Bandaríkjamönn- um að taka þátt í leit eftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna að gjöreyðing- arvopnum í Irak samkvæmt vopna- hlésskilmálum sem írakar sam- þykktu eftir stríðið fyrir botni Persaflóa 1991. Irakar hafa einnig krafist þess að flugi bandarískra njósnavéla á vegum Sameinuðu þjóð- anna yfir Irak verði hætt og hótað að skjóta þær niður. Sex bandarískir eftirlitsmenn eru nú í Irak og þarlend stjórnvöld höfðu hótað að vísa þeim úr landi ef öryggisráðið samþykkti ályktunina. Árásir ekki heimilaðar I ályktuninni segir að öryggisráðið sé „staðráðið í að grípa til frekari að- gerða sem kunni að vera nauðsynleg- ar“. Stjómarerindi'ekar frá Rúss- landi, Frakklandi og Egyptalandi og fleiri ríkjum lögðu þó áherslu á að ályktunin heimilaði ekki Bandaríkja- mönnum að gera árásir á Irak í refs- ingarskyni, slíkai' aðgerðir þyifti að ræða frekar í öryggisráðinu. „Vald- beiting eða hótanir um að hervaldi verði beitt gætu gert allan árangurinn af starfi okkar að engu,“ sagði Sergej Lavrov, sendiherra Rússlands. Bandai'íkjastjórn hafði beitt sér fyrir því að Irakar yrðu varaðir við þvi að afstaða þeiira gæti haft „al- varlegar afleiðingar" en féll frá því til að full samstaða gæti náðst um ályktunina. Öryggisráðið samþykkti einnig að fella niður reglulega endurskoðun refsiaðgerða, sem gripið var tO gegn Irak árið 1991, þar til í fyrsta lagi í apríl á næsta ári. Ráðið krafðist þess að írakar létu af andstöðu sinni við vopnaeftirlitið og féllust á skilyrðis- lausa samvinnu við eftirlitsmennina, sem eiga að sjá til þess að gjöreyð- ingarvopnum Iraka verði eytt. Irakar höfðu neitað að gefa eftir í deilunni fyrr en öryggisráðið féllist á kröfur þeirra um að vopnaeftirlitið yrði hlutlaust og veitti skýr svör við því hvenær refsiaðgerðum Samein- uðu þjóðanna yrði aflétt. Fyrsti vinnufundur forsætisráðherra íslands og Noregs Vilja láta reyna á samninga , Scan-fotx)/Lars Aamondt DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra og hinn norski starfsbróðir hans, Kjell Magne Bondevik, ræða við fjölmiðla í Ósló í gær. VEL fór á með forsætisráðherrum íslands og Noregs, Davíð Oddssyni og Kjell Magne Bondevik, á fyrsta vinnufundi þeirra sem haldinn var í Ósló í gær. Rædd voru mál sem löndin telja ástæðu til að samræma afstöðu sína í og farið ofan í deilumál þjóðanna. Sagði Davíð að fram hefði komið vilji til að láta reyna á hvort samningar næðust en þó væri ekki hægt að segja að menn hefðu nokkuð í höndunum. „Rætt var um samninga um Smuguveiðar og loðnu og lögðu Norðmenn áherslu á náið samstarf við Rússa. Þá finnst þeim það styrkja stöðu sína að náttúrulegar aðstæður séu óhagstæðar í Smug- unni en við svöruðum því til að það væri aukaatriði þar sem við horfðum til lengri tíma.“ Aðspurður hvort Smugu- og loðnusamningar væru tengd mál, sagði Davíð ekki um bein tengsl að ræða. I grein Aftenposten í dag um fund Bondeviks og Davíðs er hins vegar fullyrt að til gi-eina komi að þjóðimar skiptist á kvótum, m.a. á loðnu og síld fyi'ir þorsk í Smugunni. Aðspurður hvort hann teldi gæta meiri samningsviija hjá nýrri borg- aralegri stjóm í Noregi en stjórn jafnaðarmanna í fiskveiðideilum, kvaðst Davið ekki geta sagt til um það. Hins vegar væri ljóst að hún myndi fyrst og fremst gæta norskra hagsmuna ekkert síður en fyrri stjórn. Rætt um samstarf í Schengen- og Kyoto-málum Davíð og Bondevik ræddu afstöðu landanna til Schengen-samkomu- lagsins sem að sögn Davíðs er áþekk og munu löndin fylgjast að í málinu. „Þá fundum við að því að Norðmönn- um skyldi ekki takast að koma á fundi forystumanna EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins í Strassborg. Nú er unnið að undirbúningi slíks fundar í byi'jun næsta árs.“ Ráðherrarnir ræddu alþjóðlegan samning um loftslagsbreytingar í Kyoto í næsta mánuði. Áhyggjuefni Norðmanna og Islendinga eru svip- uð vegna fundarins og varða þá kröfu þjóðanna að lönd utan ESB geti skipst á „útblásturskvótum" rétt eins og lönd innan ESB. Á fundinum með Bondevik kom hins vegar fram að Norðmenn eru nokkuð bjartsýnir eftir undirbún- ingsfund sem haldinn vai' í Tókýó um síðustu helgi. Teldu Norðmenn að þar hefði gætt meiri skilnings og sveigjanleika gagnvart sjónarmiðum íslendinga og Norðmanna. Á fundinum voru hins vegar ekki teknar ákvarðanh- um hvort íslend- ingar og Norðmenn myndu taka höndum saman um sameiginlega afstöðu á Kyoto-fundinum. Ronnie Biggs ekki framseldur Brasilíuborg. Reuters. HÆSTIRÉTTUR Brasilíu hafn- aði í gær beiðni brezkra stjórn- valda um að framselja Ronnie Biggs, sem hlaut frægð fyrir að hafa skipulagt stærsta lestarrán í sögu Bretlands 1963. Hann slapp úr fangelsi í Lundúnum 1965 og hefur búið í Rio de Janeiro frá 1970. Rétturinn hafnaði fram- salsbeiðninni á þeirri forsendu, að glæpir sem framdir væru fyrir meira en 20 árum teldust fyrndir sam- kvæmt brasilískum lögum. Á sínum tíma var Biggs dæmd- ur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa ásamt vitorðsmönnum sínum rænt peningasendingu úr póst- flutningalest á leiðinni milli Glas- gow og Lundúna. Að núvirði var ránsfengurinn um 3,5 milljarðar króna. Biggs var hnepptur í fangelsi 1964 en slapp úr því 15 mánuðum síðar. í París fékk hann lýtalækni til að breyta and- liti sínu og fór fyrst í stað til Ástralíu, áður en hann fluttist til Brasilíu, þar sem hann hefur lif- að góðu lífi undanfarin 27 ár. Gagnkvæmur samningur um framsal sakamanna gekk í gildi milli Bretlands og Brasilíu í ágúst sl., og höfðu brezk stjóm- völd bundið vonir við að þar með hefði loks opnazt leið til að fá hinn kunna Iestarræningja fram- seldan en þeim varð ekki að þeirri ósk sinni. Fulltrúi brezka innanríkis- ráðuneytisins tók niðurstöðu brasilísku dómaranna með still- ingu. „Augljóslega erum við vonsviknir," sagði hann, en bætti við að árangur af framsalsbeiðn- um væri aldrei tryggður. Ronnie Biggs Borga með símanum Helsinki. Reuters. FINNAR geta nú borgað með farsímanum er þeir hlusta á tónlist í glymskratta og fá sér gos úr sjálfsala. Finnska símafýrirtækið Tele- com Finland býður nú upp á þessa þjónustu og mun að minnsta kosti einn veitingastað- ur í Helsinki hafa útbúið glymskratta með tæki sem skuldfærir á símareikning þess sem velur lag. Svipuðum tækj- um hefur verið komið fyrir á tveim Coca-Cola sjálfsölum, að því er Telecom Finland greinir frá. Farsímanotkun er meiri í Finnlandi en annars staðar í heiminum og nota rúmlega 40% Finna farsíma. Þarlent fyrir- tæki, Nokia, er einn helsti far- símaframleiðandi heims.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.