Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 4ir
Pólitískur
raunveruleiki
HINN 9. nóvember
síðastliðinn birtust í
Morgunblaðinu skrifleg
svör heilbrigðisráð-
herra við spumingum
sem blaðið beindi til
hans. Þar kemur m.a.
fram að á fundi ríkis-
stjómar, hinn 3. nóv-
ember, hafi verið sam-
þykkt að halda áfram
vinnu að skipulagsat-
hugun sjúkrahúsanna í
Reykjavík. Framtíðar-
sýnin felur í sér öflugt
háskólasjúkrahús sem
byggist á samþættu
sjúkrahúskerfi í
Reykjavík í samræmi
við tillögur VSÓ-ráðgjafar.
Eins og flesta rekur minni til
vom niðurstöður VSÓ að sjúkrahús-
in í Reykjavík stæðust fyllilega
samanburð við það sem best gerðist
í nágrannalöndunum, einkum hvað
varðar afköst og gæði þjónustunn-
ar.
Kjaminn í tillögum VSÓ-ráðgjaf-
ar var að fækka mætti starfsfólki
á Landspítala og Sjúkrahúsi
Reykjavíkur um meira
en 500 manns, sam-
eina ætti spítalana og
á rústum sameiningar-
innar skyldi rísa öflug-
ur háskólaspítali.
Þessar tillögur eru í
takt við fullyrðingar er
fram koma í áður-
nefndu viðtali, að í tíð
núverandi ríkisstjómar
hafi ekki verið of hart
gengið fram í aðhaldi
og samræmingu
sjúkrahúsanna á höf-
uðborgarsvæðinu.
Greinilegt er að ráða
skal bót á þessu hið
skjótasta. Öllum sem
starfa á sjúkrahúsunum í Reykjavík
er ljóst að mikils aðhalds hefur ver-
ið gætt þar um árabil. Þrátt fyrir
aukna starfsemi á flestum sviðum
hafa íjárveitingar ekki aukist og
samkvæmt línuriti, sem birt er með
svömm ráðherra má glöggt sjá að
opinber útgjöld til heilbrigðismála
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu hafa minnkað síðustu 10
árin. Útgjöld til sjúkrahúsanna hafa
Tómas
Zoéga
Mikið væri gott, segir
Tómas Zoega, ef heil-
brigðisráðuneytið tæki
mið af pólitískum raun-
veruleika.
minnkað enn frekar, mælt á sama
mælikvarða. Allir sem augu hafa
og skilning á rekstri sjúkrahúsa
gera sér grein fyrir að mörg hund-
ruð milljónir króna vantar svo að
rekstur sjúkrahúsanna i Reykjavík
sé í jafnvægi. Skiptir þá ekki máli
hvort þau eru sameinuð eða sjálf-
stæð. Stöðug og langvarandi óvissa
um framtíð sjúkrahúsanna skapar
kvíða og óróa meðal starfsfólks og
sjúklinga. Slíkt ástand leiðir til verri
þjónustu á öllum sviðum. Óviðun-
andi er að framlengja óvissuna frek-
ar. _
Ákvörðunin um að sameina
sjúkrahúsin er og verður pólitísk.
Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokks-
ins hefur skýrt og skorinort lýst
yfír skoðun sinni á sameiningarmál-
um. Flokkur forsætisráðherra hefur
því mótað stefnu sína í málum þess-
um. Mikið væri gott ef heilbrigðis-
ráðuneytið tæki mið af pólitískum
raunveruleika.
Höfundur er yfirlæknir á geðdeild
Landspítala.
Að einkavæða einokun
DANSKUR kunningi
minn sagði mér eftir-
farandi sögu frá landi
sínu: Peningamenn
eignuðust meirihluta
eignar í raforkuveri,
sem sá ákveðnu land-
svæði fyrir rafmagni.
Fljótlega fóru raf-
magsnreikningamir að
hækka. íbúarnir voru
varnarlausir, ekki gátu
þeir verið án rafmagns
og ekki gátu þeir fengið
rafmagn annars staðar
frá. Martröð íbúanna
endaði með því að ríkið
varð að frelsa þá úr
gíslingunni með því að
kaupa hlutabréfin af peningamönn-
unum, að sjálfsögðu á uppsprengdu
verði.
Þessi litla en lærdómsríka saga
rifjaðist upp fyrir mér við nýlega
„gjaldskrárbreytingu" Pósts og
síma. Þar fengu landsmenn for-
smekkinn að því sem verða vill.
Samgönguráðherra segist von-
ast til þess að eigendur Landsím-
ans verði að megin-
stofni íslenskur al-
menningur. Það er
alltaf hægt að vona,
en ætli það sé nú ekki
sennilegra að það
verði aðrir en skuld-
settir íslenskir neyt-
endur sem eignist
hlutabréfin. Reyndar
er það íslenskur al-
menningur, sem á
Landsímann í dag og
getur beitt áhrifum
sínum í gegnum lýð-
ræðislega kosna full-
trúa sína á Alþingi,
eins og kom á daginn,
þegar fyrirtækið
neyddist til þess að draga úr fyrir-
huguðum hækkunum. A hinn bóg-
inn, þegar Landsíminn kemst í
hendur fjármagnseigenda, eins og
áformað er af hálfu ríkisstjómar-
innar, þá verður það engin elsku
mamma (eða elsku Davíð) sem
kemur til bjargar, er gjaldskráin
hækkar til þess að mæta kröfum
peningamannanna um aukinn arð.
Einkavæðing ríkisfyrir-
tækja með heilbrigðri
samkeppni er hið besta
-----------9—
mál, segir Asta B. Þor-
steinsdóttir, en í einok-
unaraðstöðu er hún sem
snara um háls neytenda.
Einkarekstur þar sem samkeppni
tryggir hagkvæman rekstur og hag
neytenda er sannarlega af hinu
góða. Á sama hátt er einkavæðing
ríkisfyrirtækja, þar sem heilbrigðri
samkeppni verður vel við komið,
hið besta mál. En einkavæðing fyr-
irtækja í einokunaraðstöðu er snara
um háls neytenda.
Höfundur er varaformaður
Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands.
Ásta B.
Þorsteinsdóttir
Áhrifarík heilsuefni
Bio-Qinon Q 10
eykur orku og úthald
í skammdeginu
Bio-Biloba skerpir athygb
og einbeitingarhæfni
Bio-Selen Zink er áhrifaríkt
alhliða andoxunarheilsuefni
BIO-CAROTEIV BIO-CHRÓM
BIO-CALCHJM RIO-CLANDÍN-25
BIO-E-VÍTAM. B10-FIBER-80
BIO-IIVlTLALKLR rio-zink
BIO-MAGNESÍUM BIO-MARIN
ÞÚ GETUR TREYST
HEILSUEFNUM FRÁ
PHARMA NORD 100%
Fæst í mörgum heilsubúðum,
apótekum og mörkuðum.
BIO-SELEN UMB. SÍMI 557 6610
r
f ybpptilboð
■\
WOODSTOCKj
Kuldaskór
Teg: 3179
Litur: Svartir, brúnir
Stærðir: 36—41
Verð áður
Verð
nu
2.995
Ath: Grófur gúmmisóli. Gott leður. Loðfóðraðir
Póstsendum samdægurs
i h*. [oppskórinn Lveltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212 ^
Orðabanki
*
Islenskrar
málstöðvar
ÍSLENZK málstöð,
skrifstofa og fram-
kvæmdastofnun ís-
lenskrar málnefndar,
hefur komið á fót orða-
banka á Netinu og mun
Bjöm Bjarnason
menntamálaráðherra
opna orðabankann
formlega á málræktar-
þingi Islenskrar mál-
nefndar 15. nóvember
nk. Veffang orðabanka
íslenskrar málstöðvar
verður:
http://www.ismal.hi.i-
s/ob/.
Meginhlutverk orða-
banka íslenskrar mál-
stöðvar er að safna saman hvers
kyns tækni- og fræðiheitum og veita
yfírsýn yfír íslenskan íðorðaforða
og nýyrði sem eru efst á baugi.
Jafnframt veitir orðabanki mál-
stöðvarinnar greiðan aðgang að ís-
lenskum þýðingum á erlendum íð-
orðum. Þessi orðabanki getur því
gagnast vel öllum þeim sem fjalla
um sérfræðileg efni, þýðendum,
kennurum, nemendum, íjölmiðla-
fólki, orðabókarhöfundum, opinber-
um stofnunum, fyrirtækjum og ein-
staklingum. í kynningarskyni verð-
ur orðabankinn fyrst um sinn opinn
á Netinu án endurgjalds. Fyrstu
söfnin í bankanum verða m.a. á
eftirtöldum efnissviðum: tölvumál,
uppeldis- og sálarfræði, flugmál,
tölfræði, efnafræði, stjörnufræði,
iðjuþjálfiin, bílamál, plöntur, sjávar-
dýr, landfræðilegar upplýsingar.
Umfangið eykst fyrirsjáanlega mjög
mikið á næstu mánuðum og efnis-
sviðum fjölgar.
íslensk málstöð á mikið og gott
samstarf við fjölmargar orðanefndir
og aðra höfunda orðasafna í sér-
greinum og aðstoðar þá eftir bestu
getu. Segja má að orðabanki mál-
stöðvarinnar verði í senn ávöxtur
þessa samstarfs og grundvöllur til
að byggja á. Höfundar orðasafna fá
aðgang að sérhæfðu kerfí í orða-
bankanum til skráningar og vinnslu
orðasafna og tilbúin orðasöfn verða
svo hluti af því efni sem almennir
notendur orðabankans geta leitað í.
Hugmyndin um tölvuvæddan ís-
lenskan íðorðabanka á
vegum íslenskrar mál-
nefndar kom fyrst fram
fyrir 18 árum og hefur
henni síðan verið hreyft
öðru hveiju. Tilkoma
Netsins gerði til muiiæ
einfaldara tæknilega að
hrinda verkefninu í
framkvæmd þannig að
öll fyrirtæki, stofnanii
og einstaklingar, hvai
sem er í heiminum,
gætu nýtt sér slíkan
orðabanka, og með
framlögum úr Lýðveld-
issjóði og Málræktar-
sjóði undanfarin tvö ái
tókst að gera hugmynd-
ina að veruleika.
Ríkisstjómin samþykkti fyrii
tæpum tveimur ámm, að tillögu
menntamálaráðherra, að 16. nóvem-
Laugardaginn 15.
nóvember kynnir Is-
lensk málstöð, að sögn
Ara Páls Kristinsson-
ar, Orðabanka, sem
komið hefur veríð á fót
á Netinu.
ber ár hvert, fæðingardagur Jónasai
Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskr-
ar tungu og helgaður rækt við hana.
Markmiðið er að beina athygli þjóð-
arinnar þennan dag að stöðu tung-
unnar, gildi hennar fyrir þjóðarvit-
und okkar og alla menningu. Dags-
ins var minnst í fyrsta sinn 1996
og tókst einkar vel eins og margii
muna. Islensk málnefnd efnir nú 1
ár, í annað sinn, til málræktarþings
undir merkjum dags íslenskrai
tungu. Þingið í ár verður raunai
haldið nk. laugardag, 15. nóvember,
og þar verður orðabanki íslenskrai
málstöðvar formlega opnaður sem
fyrr segir.
Höfundur er forstöðumaður
íslenzkrar málstöðvar.
Ari Páll
Kristinsson
ÚtsölustaÖir um land allt: ____________________________________________________________________________
Dropinn, Keflavík • Kvlstur, Hveragerði • S.G. Búöin, Selfbssi • S.C. Búöin, Hvolsvelli • Reynisstaöur, Wstmannaeyjum • Klakkur,
Vík • KASK, Hðfn ■ KASK, DJúpavogi • Hermann Nielsson, Egllsstööum • Nýung, EskifirÖi • Byggt & FluU. NeskaupstaÖ • Ingólfur - ,,
Arason, NtopnafirÖi • K.Þ. SmiÖjan, Húsavík • Metró, Akureyri • Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi • Kaupfélag V-Húnvetninga, ^ '
Hvammstanga • Metró. (safiröi • Hamrar, Grundarfirðl • Utabúðin, Óiafsvik • Utaland, Akureyri • Metró, Borgarnesl • Metró, Akranesl
. TILBOÐ!
| mánabarins
nóvember: i
Skrautlistar* ■
20% afsl.
*Gildir um fjórar algengustu
tegundir lista: A2, D, E og F.
Metraverð á listum:
A2, áður 130 kr. Nú 104 kr.
D, áður 1 20 kr. Nú 96 kr.
E, áður 60 kr. Nú 48 kr.
F, áður 90 kr. Nú 72 kr.
SKEIFUNNI 8 • S: 581 3500 • 568 7171