Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 65
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
«C;
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 65
Fékk rjómaköku í andlitið
► BARÁTTUKONA gegn notkun
dýrafelda í klæðnað kom skilaboðum
sínum milliliðalaust til Oscars de la
Renta þegar hún klessti „tofu“
rjómaköku í andlitið á honum
síðastliðinn þriðjudag þar sem hann
var að gefa eiginhandaráritanir.
„Skammastu þín fyrir að nota feldi,“
öskraði konan þegar nokkrir
öryggisverðir umkringdu hana.
Tískuhönnuðurinn var að kynna nýja
línu í ilmvötnum í Meir & Frank-
versluninni í Portland. Um 50 manns
biðu eftir eiginhandaráritun þegar
atburðurinn átti sér stað.
„Það var kaka sem fór í andlitið á
Oscar de la Renta,“ sagði Jim Wolf
talsmaður lögreglunnar. „Hann þvoði
sér og hélt svo áfram að gefa
eiginhandaráritanir." Wolf bætti við að
konan yrði ákærð fyrir ósæmilega
hegðun.
Dýraverndunarsamtökin „People for
the Ethical Treatment of Animals“
lýstu sig ábyrg fyrir verknaðinum og
sögðu konuna vera Alison Green frá
Portland. Samtökin voru að mótmæla y
því að Oscar de la Renta notaði
loðfeldi í fatalínu sína.
HAFDÍS Huld, Daníel Ágúst og Magnús Jónsson
í viðtali baksviðs við blaðamann Morgunblaðsins.
2.500-3.000 plötur hafa selst á ís-
landi. Sveitin er fullbókuð fram á
næsta vor, að sögn Baldurs, og svo
verður í mörg horna að líta um sum-
arið. Um haustið verður farið af
stað að nýju til að fylgja næstu
plötu eftir, hún er tekin á Ægisgötu,
„fyrir ofan Kvennakór Reykjavík-
ur,“ bendir Magnús á, með brosi út í
annað enda þreyttur og svangur
eftir tónleika kvöldsins.
Bandaríkin, Mexíkó, Belgía og
Frakkland eru í bili bestu lönd
ífusgus hvað sölu plötunnar og við-
tökur á tónleikum snertir. „En
Bretland er að opnast“ segja hljóm-
sveitarmenn, „andrúmsloftið þar al-
mennt að breytast." Annars segjast
þessir lífsins listamenn oft lítið sjá
af löndunum sem þau ferðast um út
Ertu búinn að
skipta um kúplingsdisk?
Komdu í skoðun
TOYOTA Nýbýlavegi 4-8
Priki'Hiii S. 563 4400
af tónleikum, viðmót heimafólks og
mömmumatur á hverjum stað séu
helstu kennileiti. „Við erum blönduð
hljómsveit með blandaða tónlist,"
segja Magnús og Daníel. „Við höf-
um blendnar tilfmningar og blöndu
af áhrifum úr ýmsum heimshorn-
um; bíómyndir í rútum milli staða,
okkar eigin myndir á sviðinu, mús-
íkina, hoppið og húrra yfir þessu;
segjum bara: þessu verkefni."
NÝ SPARPERA
sem kveikir og slekkur
Electronic 4C
Energy *w
Saver
w
Söluaðilar um land allt
Afmælistilboö