Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
FLÓTTINN AF
L ANDSB Y GGÐINNI
NÚ NÝVERIÐ birti
Hagstofa íslands bráða-
birgðayfirlit yfir byggða-
-**Í»róun fyrstu níu mánuði
þessa árs. Af yfirlitinu
má greina að fólki á
landsbyggðinni fækkar
um samtals 1.432 á þessu
tiltekna tímabili, eða sem
svarar liðlega einni vísi-
tölufjölskyldu fyrir hvern
dag ársins. Miðað við
fyrri yfirlit er þróunin á
þessu ári í takt við þá
þróun sem verið hefur
undanfarin ár og er nú
svo komið að á sumum
stöðum stefnir í eyðingu
byggðar innan ekki svo
langs tíma.
Flóttinn af landsbyggðinni er þó
7*3Ísmikill eftir svæðum. Hlutfalls-
lega er hann mestur af Vestfjörð-
um, Austfjörðum og Norðurlandi
vestra, en minnstur er hann frá
Reykjanesi og af Suðurlandi.
Fækkunin á Reykjanesi nemur
0,96% þegar frá er talin íbúaþróun í
sveitarfélögunum næst Reykjavík
og fækkunin á Suðurlandi er 0,42%
ef frá er talin breyting á íbúafjölda í
Vestmannaeyjum.
Hverjar eru ástæðurnar fyrir
þessari þróun ?
Svarið við þessari spurningu er
vafalaust margbrotið og flókið og
hugsanlega á tíðum getur „rétta“
svarið tekið á sig margbreytilegar
myndir. Með breytingu á Matölu
er verið að mæla fjölda einstaklinga
sem flytjast á milli svæða, einstak-
linga sem taka sjálfstæðar ákvarð-
anir um eigin staðsetningu sem
byggir á hag þeirra í nútíð og þeim
væntingum sem þeir hafa um breyt-
ingar á sínum framtíðarhag. Svarið
við ofangreindri spurningu byggist
því væntanlega að miklu leyti á
hvernig hagur einstaklinganna er í
samanburði við hagsæld á öðrum
svæðum og hvers þeir vænta af
Jpamtíðinni. Ef þetta er rétt dregin
al.yktun, má ætla að að meðaltali ein
vísitölufjölskylda taki sig upp dag-
lega þar sem hún telji hag sínum
betur borgið utan landsbyggðarinn-
ar í nútíð og til framtíðar.
Hagsæld einstaklinganna er flók-
ið og ekki auðmælt fyrirbrigði.
Hagsæld einstaklinganna byggir
m.a. á framboði og fjölbreytileika
atvinnutækifæra, framboði og verði
neysluvara, húsnæði sem til boða er
og rekstri þess, þeirri menntun sem
í boði er ásamt aðgengi að annarri
„Iss, við rúllum
ykkur upp“
á myndbandi
opinberri þjónustu og
möguleikum einstak-
linganna til að eyða
frítíma sínum.
í byggðaáætlun frá
1994 sem Byggða-
stofnun starfar eftir
er eitt af markmiðum
stofnunarinnar „að
stuðla að byggð þar
sem hún er þjóðhags-
lega hagkvæm". En
með þjóðhagslega
hagkvæmri byggðaá-
ætlun má hugsanlega
nýta betur þá fjár-
festingu sem til stað-
ar er, þ.e.a.s. hús-
næði, atvinnutæki,
opinbera þjónustu og síðast en ekki
síst ýmsar náttúrulegar auðlindir
sem hagkvæmt er að nýta við nú-
verandi skilyrði, sem yrðu við frek-
ari fækkun íbúa illa nýtanlegar eða
jafnvel ónýtanlegar. Þannig gæti
t.d. nýting ýmissa fiskistofna orðið
erfiðari og hugsanlega mun dýrari
fyrir heildina legðist byggð t.d. af á
stóru svæði á Austfjörðum. Slíkt
væri dæmi um þjóðhagslega hag-
kvæma byggð úti á landi. En þjóð-
hagslega hagkvæm staðsett byggð
þarf ekki endilega að fara saman við
væntingar einstaklinganna um sinn
eigin hag. Hagsmunir einstakling-
anna gætu því gengið þvert á mark-
mið Byggðastofnunar og það sem
hagkvæmt teldist fyrir heildina.
Flutningur fólks í stóru mæli af
landsbyggðinni verður því að teljast
verulegt áhyggjuefni sem gæti, ef
héldi fram sem horfír, rýrt hag allra
landsmanna.
Bein framlög og stuðningur
við landsbyggðina
í nýlegri skýrslu sem gerð var að
frumkvæði Aflvaka hf. og Atvinnu-
og ferðamálaskrifstofu Reykjavíkur
um framlög ríkisvaldsins til lands-
byggðarinnar annarsvegar og höf-
uðborgarsvæðisins hinsvegar kem-
ur fram að „Framlög til lands-
byggðarinnar hafa að jafnaði numið
32 milljörðum króna á tímabilinu
1991 - 1995. Beinir styrkir í gegnum
starfsemi Byggðastofnunar, Fram-
kvæmdasjóðs, Atvinnutryggingar-
deildar Byggðastofnunar og land-
búnaðarkerfi, til hafnarmála, fjár-
stuðnings hótela á landsbyggðinni,
niðurgreiðslna á raforkuverði og
dreifikerfi auk jöfnunargjalda hafa
að jafnaði numið tæpum 13 milljörð-
um króna á umræddu tímabili." Þá
veitir ríkisvaldið og 45 milljarða
króna til stofnana, án B-hluta fjár-
laga, á höfuðborgarsvæðinu.
Er stoðkerfi atvinnulífsins
nægjanlega skiivirkt ?
Atvinnuþróunarsjóður Suður-
lands og verkefnahópurinn „Suður-
land - 2000“ eru ásamt Iðnþróun-
arfélagi Norðurlands vestra,
ByggðnpPnun, Háskóla íslands og
Rannsóknarþjónustu Háskólans
þátttakendur í svokölluðu „RITTS-
verkefni“ þar sem unnið er að út-
tekt á stoðkerfi atvinnulífsins.
Verkefnið er stutt af Evrópusam-
bandinu og hafa hollensk og írsk
ráðgjafafyrirtæki komið að þessari
vinnu. Undirbúningur að verkefn-
inu hófst í byrjun árs 1996 en vinn-
an með erlendu ráðgjöfunum hefur
staðið í tæplega eitt ár. Formlegar
niðurstöður úr þessu verkefni liggja
enn ekki fyrir en ýmislegt virðist
benda til þess að stoðkerfi atvinnu-
lífsins hér á landi sé ekki nægjan-
lega „gegnsætt“, aðgerðir opin-
berra aðila ómarkvissar og oft og
tíðum erfítt fyrir fyrirtæki og ein-
staklinga að átta sig á því hvaða
þjónusta standi til boða eða hvaða
Flutningur fólks í
miklum mæli af
landsbyggðinni verður
að teljast verulegt
áhyggjuefni og telur
OIi Rúnar Astþórsson
að þetta gæti rýrt hag
allra landsmanna.
þjónustu verið sé að veita notandan-
um hverju sinni.
Sé þetta rétt lýsing á raunveru-
leikanum, má gera ráð fyrir að töl-
verðir fjármunir fari forgörðum í
því óhagræði sem leiðir af kerfi þar
sem meginþorri notenda þarf að
kaupa sér aðstoð sérfræðinga við að
útbúa umsóknir um aðstoð frá stoð-
kerfi sem þjóna á atvinnulífinu.
Mín skoðun er sú að ein skýringin
á þeim vanda sem við höfum staðið
frammi fyi-ir varðandi fólksflótta af
landsbyggðinni séu m.a. þetta óhag-
ræði og jafnframt ómarkviss vinnu-
brögð opinberra aðila við að beita
stoðkerfinu til framdráttar fyrir at-
vinnulífið hér á landi. Gáttir stoð-
kerfisins hafa verið opnaðar ómark-
visst, ekki hefur örlað á sýnilegri
stefnu, heldur virðist tilviljunar-
kennt hafa verið stofnað til fjölda
svokallaðra stuðningsverkefna,
verkefna sem bera mismunandi
nafngiftir og flest hver eru gleymd
og hafa líklega mörg hver litlu sem
engu skilað. Dreifing fjármuna á
handahófskenndan hátt þar sem
notast hefði verið við jafnódýrt og
réttlátt kerfi og þorri landsmanna
fylgist með þegar dregið er í Lottó-
inu, hefði hugsanlega skilað betri
árangri.
Forræðið á að vera heima fyrir
Að mörgu leyti minnir stór hluti
stoðkerfisins og hvernig það vinnur
á þá tíma þegar flest stærri fyrir-
tæki úti á landi voru rekin af
„kommisörum" og bankastjórum.
Eg minnist þess ekki, hversu hæfir
sem þessir menn voru á sínu sviði,
að þeir hafi getað skilað þeim ár-
angri í rekstri þessara fyrirtækja að
þau hafi skilað nægjanlega miklum
hagnaði til að standa undir eðlilegri
endurnýjun, hvað þá að geta greitt
eigendum sínum einhvern arð.
Þvert á móti fór mikið fjármagn for-
görðum i starfsemi sem tók til sín
fjármagn vegna viðvarandi halla-
reksturs.
Á þessu hefur orðið sem betur fer
mikil breyting eins og allir vita.
Flest fyrirtækjanna eru orðin að al-
menningshlutafélögum sem sótt
hafa í ríkara mæli eftir fjármögnun
í gegnum almenn hlutafjárútboð.
Forræði og dagleg stjórnun fyrir-
tækjanna er í höndum stjórnenda
heima í héraði sem flestir hverjir
hafa skilað góðum árangri við rekst-
ur þeirra. Að mínu mati eigum við
að taka á byggðamálunum á svipað-
an hátt. Forræðið á að vera heima
fyrir og betri aðgangur að stoðkerf-
inu sem næst notandanum.
í þá tæplega tvo áratugi sem At-
vinnuþróunarsjóður Suðurlands
hefur starfað hefur hann með starf-
semi sinn getað byggt upp fjárhags-
lega getu til að takast á við verkefni
sem önnur atvinnuþróunarstarf-
semi annars staðar á landinu á erf-
iðara með að ráða við. Held ég að
það verði að teljast vera gæfa okkar
Sunnlendinga í þessum efnum að
flest sveitarfélögin á Suðurlandi eru
aðilar að sjóðnum og greiða í hann
árlega 1% af tekjum sínum. Þá hef-
Óli Rúnar
Ástþórsson
Nýtt svæðisbundið nýsköpunarumhverfi
- Tengslakort -
Sciú rlðfijöf
Lcigð aðilaöa
Lcigður búnuOur
Nimjkcið
Svcilarfólðg
ByggðaMofnun
Af fjáriögum
Fjárfcsiar
(Lífcyrissj.fyrirtwki, cinstakiinfiar)
Byggöasiofnun
FjárfcMingabanki
Svcilarfílóg
AÞS
ur sjóðurinn í dag stóran hluta
tekna sinna af fjármagnstekjum
vegna útlána. Ekki má gleyma nýj-
um atvinnuþróunarsamningi við
Byggðastofnun sem gengið var frá í
apríl 1996. Samningurinn við
Byggðastofnun var fyrsti samning-
urinn í röð atvinnuþróunarsamn-
inga sem stofnunin hefur síðan gert
við aðra landshluta. Með samningn-
um var lögð áhersla á, að svæðis-
bundin atvinnuþróun gerist með
virkari þátttöku heimamanna en
verið hafði áður. Samningurinn er
forsenda fyrir því að Atvinnuþróun-
arsjóður Suðurlands hefur getað
haldið úti öflugu ráðgjafastarfi.
Frá því að samningurinn við
Byggðastofnun var undirritaður og
til liðinna mánaðamóta hefur sjóð-
urinn staðið með beinum eða óbein-
um hætti að stofnun á þriðja tug
fyrirtækja sem hafa skapað eða
munu skapa á annað hundrað störf
á svæðinu. Fjárfestingar vegna
þessara nýju fyrirtækja innan
svæðis eru taldar vera liðlega 500
mkr.
Hefði Atvinnuþróunarsjóður Suð-
urlands ekki haft jafn sterkt eigið
fjárhagslegt forræði og möguleika
til að fjárfesta og koma að áhuga-
verðum verkefnum, tel ég að mögu-
leikar okkar til að koma á fót nýrri
starfsemi með beinum eða óbeinum
hætti væru mun minni en ella. I
sumum tilfellum nánast hverfandi.
Fjárhagslegt forræði heima fyrir og
möguleikar til að takast með bein-
um hætti á við fjárfestingar í nýjum
atvinnutækifærum eru að mínu
mati ein af grundvallarforsendum
þess að byggð eflist á landsbyggð-
inni.
Hugmyndir um svæðisbundið
nýsköpunarkerfi
Á undanfórnum mánuðum hefur
Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands
unnið að endurskilgreiningu á þeirri
hugmyndafræði sem sjóðurinn hef-
ur starfað eftir. Takist vel til í þess-
ari vinnu og fáist stuðningur eig-
enda er ætlunin að reyna að hrinda
breytingum í framkvæmd á næstu
mánuðum. Með endurskilgreining-
unni er stefnt að því að (a) Koma á
fót þróunarsetri þar sem lögð yrði
áhersla á byggingartækni, jarðefna-
notkun og jarðskjálftavarnir, (b)
Koma á fót skilvirkri starfsemi sem
sinnir eða getur leiðbeint fyrirtækj-
um og einstaklingum í rekstri um
alla þá rekstrar- eða tækniráðgjöf
sem þörf er hverju sinni og (c)
Stofnun sérstaks fjárfestingarfé-
lags í almenningseign sem rekið
verður samhliða Atvinnuþróunar-
sjóði Suðurlands.
Ástæðurnar fyrir endurskilgrein-
ingu á hugmyndafræði sjóðsins eru
einkum fimm:
1. Við teljum að atvinnulífið hafi
mikla og vaxandi þörf fyrir góðan
aðgang að skilvirku stoðkerfi.
2. Við teljum að stoðkerfi sem
sinnir vel þörfum atvinnulífsins
leggi jafnframt sterkari grunn að
þróun byggðar hér á landi.
3. Við teljum að stoðkerfi at-
vinnulífsins eigi eftir að taka frekari
breytingum á komandi árum og við
bindum jafnframt miklar vonir við
Nýsköpunarsjóðinn og nýja Fjár-
festingarbankann.
4. Við teljum að fjárhagslegt for-
ræði í héraði og fjárhagsleg geta
heima fyrir til að takast á við
áhugaverð verkefni, efli byggðir
landsins.
5. Við teljum að með auknum fjöl-
brejítileika í framboði atvinnutæki-
færa aukist hagsæld einstakling-
anna.
Eins og sjá má á tengslakortinu
eru hugmyndir okkar um nýtt ný-
sköpunarkerfí byggðar á fjórum
megin stoðum. I fyrsta lagi At-
vinnuþróunarsjóðurinn sem slíkur
(AÞS) sem gegnir rekstrarhlutverki
í þessari hugmynd. Tengslakass-
arnir við hann eru þrír: Fjárfesting-
arfélagið Atgeii' hf., nýsköpunar-
hluti og þróunarsetur. I öðru lagi
ganga hugmyndir okkar út á það að
útvíkka starfsemi Atgeirs ehf. sem í
upphafi þessa árs var stofnað utan
um kaup sjóðsins á Max ehf. Hugsa
mætti sér m.a. að hlutur Atvinnu-
þróunai’sjóðs Suðurlands og hlutur
sveitarfélaga á Suðurlandi í fyrir-
tækjum rynnu inn í hið nýja fjár-
festingarfélag. Þá yrði áhugavert að
slíkt félag hefði góð tengsl við
Byggðastofnun og ynni í nánu sam-
starfi við hinn nýja Fjárfestingar-
banka. Með útvíkkun Atgeirs ehf. í
félag sem yrði skráð á markaði yrðu
til nýir fjárfestingarvalkostir fyrir
fjárfesta af svæðinu og utan þess. í
þriðja lagi eru hugmyndir sjóðsins
þær að nýsköpunarþáttur starfsem-
innar verði aukinn. Aukið fjármagn
verði veitt til nýsköpunar og leitað
verði eftir samstarfi við aðila sem
sjóðurinn hefur hingað til aðeins
verið í óbeinu sambandi við. I fjórða
lagi ganga hugmyndir okkar út á
stofnun sérstaks þróunai’seturs þar
sem vista mætti sértæka rannsókn-
arvinnu, tengsl við atvinnugreina-
stofnanir, tengsl við æðri mennta-
stofnanir og þá faglegu ráðgjöf sem
atvinnuvegirnir þurfa á að halda.
Lokaorð
Hugmyndir sjóðsins um nýtt
kerfi sem veitir atvinnuvegunum
betri þjónustu og stuðlað getur að
öflugri byggð, byggist á því að slíkt
kerfi sé opið og gegnsætt þar sem
tvinnað er saman þekkingu, áhættu-
fjármagni („seed capital") og at-
vinnufjárfesti. Því má að ýmsu leyti
líkja þessu við þríhyrning þar sem
hugmynd gæti verið þróuð og út-
færð í þróunarsetrinu, hún fengi
fjárhagslegan styrk í gegnum ný-
sköpunarhlutann og yrði hugmynd-
in að veruleika mætti að hluta fjár-
magna hana í gegnum Fjárfesting-
arfélagið Atgeir hf.
En frumkvæðið að slíku verður
að koma frá heimamönnum. Þeir
sjálfir verða að leggja hönd á plóg-
inn við að skilgreina og fjármagna
að miklu leyti það kerfi sem þeir
telja að henti til að tryggja eðlilegan
vöxt og viðgang þjóðhagslega hag-
kvasmra byggða úti á landi. Frum-
kvæðið kemur ekki frá stofnunum
og stjórnmálamennirnir munu of
seint koma sér saman um aðgerðir.
Frumkvæðið að eflingu byggðai’inn-
ar á að koma frá fólkinu sem býr og
vill búa á landsbyggðinni.
Höfundur er liagfræðingvr og
framkvæmdastjóri Atviiuiuþróunar-
sjóðs Suðurlands.