Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Fáfræði háskólanema? Ófeigur Friðriksson ER hagsmunum íslendinga best varið með því að halda umræðu um Evrópusambandið (ESB) niðri og þar af leiðandi að koma í veg fyrir að almenningur myndi sér skoðun á þessu mikilvæga máli eða viti um hvað það snýst? Islensk stjórn- völd hafa varið litl- um fjármunum, miðað við margar aðrar þjóðir, í gerð úttektar um kosti þess og galla ef íslendingar myndu ganga í ESB, og má því álykta sem svo að áhugi stjórnvalda á ESB sé lítill, en aðeins einn stjórnmála- flokkur af sex hefur lýst yfír vilja sínum að ganga í sambandið, þ.e. Alþýðuflokkurinn. Hér á landi hefur ekki eins mikið verið fjallað um ísland og Evrópusambandið miðað við í ná- grannalöndum okkar, t.d. í Nor- egi, og þar af leiðandi er erfiðara *^*ð segja til um hvort þjóðin vilji almennt ganga í sambandið eða ekki. En þó koma upp mál sem talsvert er fjallað um í fjölmiðlum, sbr. umræðan um sameiginlegan gjaldmiðil upp á síðkastið. Hugmyndin um alþjóðlegt sam- bandsríki var vinsæl eftir síðari heimsstyrjöld, þar sem margir vildu kenna þjóðríkinu um ófriðinn í Evrópu, og árið 1949 var sam- starfsvettvangi meðal Evrópuþjóða komið á fót með stofnun Evrópu- ráðsins. Efnahagsbandalagi Evr- Halldór Jón Garðarsson ópu var svo komið á laggimar árið 1957 á grundvelli Rómarsamn- ingsins, en markmið þess var og er enn í dag að bæta lífskjör og skapa náin tengsl milli ríkjanna með því að mynda sameiginlegan markað og samræma smám saman stefnu þeirra í efnahagsmálum. Þann 1. nóv. 1993 var Evrópusam- bandið svo stofnað þegar Maast- richt-samningurinn var staðfestur af 12 aðildarríkjum. Ríki sam- bandsins eru nú 15 talsins. I dag eru íslendingar aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og hafa þar með hlutdeild að innri markaði ESB og má vera að bæði stjómvöldum og almenningi finnist það nóg fýrir þessa litlu þjóð og vilji þar með ekki ganga lengra í samstarfi sínu við sambandið. Hugsanlega líta margir íslending- ar á ESB sem of mikið bákn þar sem stóru ríkin komi til með að verða allsráðandi og muni þar af leiðandi ekki taka tillit til hags- Ótrúlegt hausttilboð /r vou Kringlunni Jakkaföt nú 7.900 áður lSr900 Jakkaföt m. vesti nú 9.900 áður Herraskór Stakar buxur Kringlunni, sími 5331720 Laugavegi 91, sfmi 5111718. muna litlu þjóðanna. Þjóðemisvit- undin er þar að auki mjög sterk meðal íslensku þjóðarinnar sem hefur tiltölulega nýlega hlotið sjálf- stæði miðað við önnur Evrópuríki og ekki er heldur langt síðan ís- lendingar háðu stríð við Breta til að beijast fyrir auðlindum hafsins, og hefur þessi barátta myndað mikla samkennd meðal þjóðarinn- ar. Hér á eftir verða birtar nokkrar niðurstöður spurningakönnunar sem undirritaðir gerðu í október 1996 á meðal nema á fyrsta ári í félagsfræði, sálarfræði og stjórn- málafræði í Háskóla íslands. Þess ber að geta að Sverrir Þór Sævars- Framhaldsskólastigið er að mati Halldórs Jóns Garðarssonar og Ofeigs Friðrikssonar, skyldugt til að fræða nemendur um málefni _________íslands á_________ alþjóðavettvangi. son, nemi í sálarfræði, vann einn- ig við gerð þessarar könnunar. í könnuninni kom margt merki- legt í ijós sem bendir annað hvort til áhugaleysis íslendinga á al- þjóðamálum eða til þess að fjöl- miðlar og íslenska menntakerfíð standi sig ekki við að upplýsa þjóð- ina! Ekki ætlum við að setja okkur í dómarasæti til að meta hvort atriðið vegi þyngra, en hins vegar teljum við að bæði fjölmiðlar og menntakerfið séu skyldug að vekja áhuga og upplýsa þjóðina um þessi mikilvægu mál. A meðal niðurstaðna könnunar- innar kemur fram að 9,9% þátt- takenda héldu að ísland væri að- ili að Evrópusambandinu og 12,8% svöruðu ekki spurningunni um hvort ísland væri aðili. Út frá þessu má álykta að um 23% þátt- takenda viti ekki hvort ísland er aðili að ESB eða ekki. Hvað varð- ar Noreg þá voru það 17,7% þátt- takenda sem héldu að Noregur væri í ESB og 19,9% svöruðu ekki þessari spurningu. Það voru hins vegar aðeins 5% þátttakenda sem svöruðu því rangt að Svíþjóð væri ekki aðili að ESB, en 28,4% þátt- takenda svöruðu ekki þessari spurningu. Af þessu má sjá að þátttakendur könnunarinnar eru ekki mjög fróðir um þessi mál, og greinilegt er því að þau hafa ekki verið nægilega mikið í um- ræðunni. Hugsanlegt er þó að þátttakendur hafi ekki mikinn áhuga á Evrópumálunum, en hins vegar teljum við að með meiri umræðu skapist meiri áhugi. Hver hefur áhuga á að tjá sig um mál sem hann hefur ekki þekkingu á? „ísland úr NATO, herinn burt?“ Svör við tveimur öðrum spurn- ingum i könnuninni vöktu sérstak- lega athygli okkar og fjalla þær um aðild Islands að Atlantshafs- bandalaginu (NATO) og Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Fyrir- fram gerðum við ráð fyrir því að langflestir, ef ekki allir, vissu að ísland væri aðili að NATO, meðal annars vegna hinna sögulegu at- burða sem gerðust hinn 30. mars 1949 þegar einu „alvarlegu" götuóeirðirnar á íslandi urðu þegar Alþingi samþykkti aðildina að bandalaginu. Það kemur í ljós að niðurstöðurnar eru ekki í samræmi við það sem búist var við, því 18% þátttakenda vissu ekki að ísland er aðili að NATO sem er gífurlega hátt hlutfall. Fyrirfram gerðum við ráð fyrir að e.t.v. 10-15% þátttakenda myndu ekki vita að Island væri aðili að EES og byggðum við það á því að hugsanlega gætu einhveij- ir ruglað saman öllum þessum skammstöfunum, þ.e.a.s. EES, ESB og EFTA, en hins vegar kem- ur í ljós að tæp 50% eða um helm- ingur þátttakenda veit ekki að ís- land er aðili að EES sem er stærsti viðskiptasamningur sem ísland hefur gert (hvað ætli Jón Baldvin segði við þessu?). Frekari könnun nauðsynleg Það er ekki ætlun okkar að al- hæfa með þessum niðurstöðum um alla þjóðina, en hins vegar væri fróðlegt að gera könnun um þessi mál á öllu landinu. Það breytir því hins vegar ekki að niðurstöðurnar eru mjög sláandi. Við spyijum okkur hvort menntakerfið sé að bregðast og um leið upplýsingaskylda fjöl- miðla svo ekki sé minnst á stjórn- völd. Framhaldsskólastigið er að okk- ar mati skyldugt til að fræða nem- endur um málefni íslands á al- þjóðavettvangi. En þetta er ef til vill einn liður í því að það er löngu orðið tímabært að stokka upp í hinu íslenska menntakerfi sem beðið hefur mikinn álitshnekki undanfarin misseri. Fjölmiðlar hafa sýnt málefnum íslands varðandi ESB lítinn áhuga þó svo að Morgunblaðið hafí verið að taka sig nokkuð á í þeim efnum undanfarið. Hvað stjórnvöld varðar er löngu orðið tímabært að gera alls- herjar úttekt á því hvort aðild að ESB sé hagkvæm eða óhagkvæm fyrir ísland. Árið 1995 var reynd- ar gefin út skýrsla á vegum Al- þjóðamálastofnunar Háskóla ís- lands en skammur tími var gefinn til verksins sem bitnaði á útkom- unni, auk þess sem lögfræðileg úttekt var ekki gerð. Við lítum því svo á að viðunandi úttekt hafi aldrei verið gerð. Hennar er þörf svo fólk geti myndað sé skoð- anir um hvort ísland eigi að ganga í ESB eða ekki. Höfundar eru nemar í stjórnmálafræði við HÍ. Hundakofi eða höll Húsnæðismál Sjómannaskólans VIÐ íslendingar höfum alla tíð verið stoltir af sjómönnunum okkar, enda full ástæða til. Einnig höfum við viljað telja okkur flestum þjóðum, og þá sérstak- lega Norðmönnum, fremri hvað varðar gæði og þekkingu í sjó- mennsku. Norðmenn gera sínum sjómönn- um og þeim sem vilja mennta sig í þeirri grein hátt undir höfði, t.d. er Stýrimannaskól- inn í Osló voldug og glæsileg bygging sem gnæfir á hömrum við innsiglinguna að borginni. Benedikt Sævar Magnússon Það að núverandi húsa- kynni séu illa farin og varla hæf til kennslu og að það kosti um 300 milljónir að gera við bygginguna. Einn- ig henti húsnæðið á Höfðanum betur undir þessa starfsemi og gefi fleiri möguleika til stækkunar og auk- innar tæknivæðingar. Það er óhætt að fullyrða að ekkert hús- næði á höfuðborgar- svæðinu hentar betur undir þessa starfsemi en núverandi húsnæði Sjómannaskólans, sama má segja um Sjómannaskóla- bygginguna í Reykjavík, þama er glæsileg bygging efst á Rauðarár- holti sem rís hátt yfir umhverfí sitt og er um leið stolt, og að sumra mati sameiningartákn þeirra sem sjómennsku stunda. En nú skal breyta, Sjómanna- skólinn á að flytja upp á Ártúns- höfða í lágreist, og með fullri virð- ingu fyrir arkitektum hússins, ljótt hús og tilvonandi uppeldisháskóli á að nýta sér Sjómannaskólabygg- inguna. Helstu rök menntamálaráðherra fyrir þessum hugmyndum eru þau enda byggingin hönnuð sérstak- lega fyrir Vél- og Stýrimanna- skóla. Vissulega er talsverðra úr- bóta þörf á aðstæðum nemenda en flutningur í annað húsnæði er ekki lausnin. Húsnæðisþörf skól- anna sem þarna em til húsa er um 4.000 fm en núverandi hús- næði er 5.000 fm að flatarmáli og það húsnæði sem um rætt er um að flytja í er 5.300 fm þannig að þar eru ekki miklir stækkunar- möguleikar umfram þá sem eru í dag. Það má líka spyija sig að því hvort ekki þurfi að gera við bygg- inguna ef uppeldisháskóli flytur þarna inn, eða geta tilvonandi nem- endur þess skóla stundað sitt nám í húsnæði sem varla er hæft til kennslu nú? Á deiliskipulagi fyrir Rauðarár- holt er gert ráð fyrir stækkun Sjó- mannaskólans og umtalsverðri Bandalag íslenskra sér- skólanema skorar á menntamálaráðherra, segir Benedikt Sævar Magrmsson, að reyna að bæta aðbúnað Sjó- mannaskólans í núver- andi húsakynnum. stækkun Kennaraháskólans og að byggingar KHÍ muni hýsa tilvon- andi uppeldisháskóla. Einnig er gert ráð fyrir að Byggingafélag námsmanna reisi á svæðinu 64 íbúðir, dagheimili, félagsaðstöðu og mötuneyti þannig að sú mötu- neytis- og félagsaðstaða sem nú er í skólunum gæti flust yfir í þær byggingar og þar með skapast pláss undir aðra starfssemi. Bandalag íslenskra sérskóla- nema skorar á menntamálaráð- herra að taka þessar hugmyndir til gagngerrar endurskoðunar og reyna frekar að bæta aðbúnað Sjó- mannaskólans í núverandi húsa- kynnum hans. Höfundur er formaður Bandalags íslenskra sérskólanema.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.