Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.11.1997, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ -( J50 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 V JVkSaINI^URENT \ \ & i I YSL sérfræðingur verður í versluninni í dag Ómótstæðilegt tilboð í kremlínunni Fagmennska og þekking í fyrirrúmi Við bjóðum allt sem þig vantar INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI í eldhúsið, barnaherbergið, þvottahúsið og að auki fataskápa í svefnherbergið, bamaherbergið og anddyrið. Vönduð vara á afar hagstæðu verði. Ókeypis teikningar og tilboðsgerð. Cóður magn- og staðgreiðsluafsl. ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR iFOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN 'í í dag gefum við 40% afslátt af þessum barna Moon Boots Domus Medica — Kringlunni Toppskórinn Ingólfstorgi l Verð: 1.495 Verð áður: <2-r495‘- Litir: Svart m/gulu svart m/bláu svart m/rauðu Stærðir: 27—35 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags V ATN SLIT AMYNDIN Bátur í smíðum eftir Gunnlaug Scheving Kynningarmynd um málverk Gunnlaugs Schevings í Listasafni Islands ÞEIR, sem hafa áhuga á að skoða málverk Gunn- laugs Schevings, sem nú er til sýnis í Listasafni ís- lands, ættu ekki að láta fram hjá sér fara 45 mín- útna kvikmynd sem sýnd er í kjallara hússins. Þar er hægt að fá gott yfirlit yfir líf og starf listamanns- ins. Eiríkur Thorsteinsson kvikmyndastjóri gerði þessa mynd upphaflega fyrir sjónvarpið fyrir þrem- ur árum og var hún sýnd þar. Þarna eru fróðleg og skemmtileg viðtöl við ýmsa þekkta listfræðinga og vini Gunnlaugs. Eiríkur fór einnig til Kaupmannahafn- ar og tók viðtal við ekkju Gunnlaugs. Þar kemur greinilega í ljós hvernig fátæktin og baslið varð til þess að hjónin skildu. Myndin er bæði skemmti- leg, fróðleg og áhrifamikil. Sýningar á kvikmyndinni eru daglega (ekki mánu- daga) kl. 12 og 15. Hópar geta pantað sérstakan sýn- ingaitíma. Gestur. Er nokkurtrú sannleikanum æðri? FURÐULEGT er upp- reisnareðli sumra kirkj- unnar þjóna. Nú síðast að braiia með innsetningu verðandi biskups. Að sjálf- sögðu er Dómkirkjan_ í Reykjavík höfuðkirkja ís- lands og okkar stolt. Sum- ar kirkjur eru hins vegar vinsælar, aðallega fyrir myndatökur ferðamanna. Því miður hefur kirkjan verið á undanhaldi vegna mikils og alvarlegs óróa. Þetta verður að stöðva. Kærleikur verður að lærast þar sem hann vant- ar. Hroki og mikilmennska verður aldrei til farsældar. Kæru vinir, höfum bæn- ir og kærleika að leiðar- Ijósi þá mun famast betur fyrir land okkar og þjóð. Er nokkur trú sannleikan- um æðri? Guð gefi okkur öllum blessun sína. Gamall karl með trú sína. Guðrún í Árbæ GUÐRÚN í Árbæ sem keypti af mér gráa Emalj- unga-vagninn. Fann fleira fylgidót. Vinsamlega hafðu samband í síma 554 1054. Guðrún. Tapað/fundið Svart sjal týndist SVART sjal týndist á Skuggabamum 1. nóvem- ber sl. Sjalið hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 555 4013. Fundarlaun. SKÁK Umsjón Margcir Fctursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp í ís- landsflugsdeildinni um síðustu helgi. Jóhannes Ágústsson (2.215), B sveit Taflfélags Reykja- víkur, var með hvítt og átti leik, en Hrannar Baldursson (2.025), Taflfélagi Kópavogs, hafði svart. 22. Hd6! - exd6 23. Dxc6+ - Kf8 24. Dxa8+ Kg7 25. He2 (Með manni meira vinn- ur hvítur örugglega) 25. - Dxa2 26. e6 - fxe6 27. Dc6 - Da3+ 28. Kd2 - Hh4 29. Dxc7+ - Kh6 og svartur gafst upp, því eftir 30. Dd8 er hann al- veg varnarlaus. HÖGNIHREKKVISI „BQ heJd a& afan, þínsuxr bja.lpas: Víkveiji skrifar... KONA nokkur hafði samband við Víkverja og sagði farir sínar í viðskiptum við einn líf- eyrissjóðanna ekki sléttar. Hún sagði: „Við seldum íbúð og keypt- um aðra. Íbúðina keyptum við af dánarbúi og fengum veðleyfi til að flytja yfir 600 þúsund krónur. Einn af eigendum dánarbúsins, sem var ekki heill heilsu, neitaði að skrifa undir veðleyfíð. Þá fór- um við, miðaldra og svo til skuld- laust fólk, á stúfana, til þess að reyna að flytja lán upp á 600 þúsund, sem losa þurfti af íbúð- inni sem við seldum. Við buðum lífeyrissjóðnum verðbréf í trygg- ingu, svo að hægt væri að flytja veðið. Það virðast ekki vera nein- ar leiðir til að losa veð nema fá lánað veð hjá öðrum. Þetta er búið að taka tvær vikur. Eru ekki lög og reglur lífeyrissjóðanna orð- in úrelt, þegar steinsteypa virðist vera eina trygging sem þeir taka gilda? Þessir sömu lífeyrissjóðir eru að ávaxta fjármuni sína í verð- bréfum, þeim sömu og þeir vilja ekki taka við sem tryggingu.“ xxx VÍKVERJI varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í lok síðasta mánaðar að þurfa að fara í smáaðgerð í Sjúkrahúsi Reykja- víkur, sem í raun er ekki í frásög- ur færandi, ef ekki hefði verið fyrir það að móttökurnar sem hann hlaut á þessu ágæta sjúkra- húsi voru svo frábærar, að hann hefði ekki trúað því að óreyndu og miðað við alla þá misjöfnu umræðu, sem verið hefur um spít- ala landsmanna, að þetta um- rædda sjúkrahús væri svo frá- bært, sem raun ber vitni. Nú er það svo að Víkverji hefur þrisvar sinnum áður á alllöngu árabili orðið að gangast undir slíka aðgerð. Þetta var þó fyrsta sinni, sem hún var gerð á honum í Sjúkrahúsi Reykjavíkur, áður Borgarspítalanum. En þessi var gjörólík öllum hinum. Viðmót starfsfólksins gagnvart Víkverja var einstætt og þegar svæfingar- læknirinn kom og ræddi við Vík- veija í upphafi aðgerðarinnar og spurði: „Hvað get ég gert fyrir þig?“ rétt eins og þjónn á 5 stjörnu veitingahúsi, gat Víkveiji af fyrri reynslu við sams konar aðgerð lýst því, hvað honum hefði áður fundizt óþægilegast við aðgerð- ina. „Ekkert mál,“ svaraði læknir- inn, „við skulum sjá um að þú finnir ekki fyrir þessum óþægind- um.“ Og hann stóð við það. Viðhorf lækna og alls hjúkr- unarfólks á þessum ágæta spítala er einstætt að mati Víkverja. Það er allt af vilja gert að gera þá aðgerð, sem framkvæma á, eins þægilega og frekast er kostur og samkvæmt þessari reynslu Vík- veija virðist það liðin tíð, að lækn- ar komi fram eins og einhvers konar almætti, sem ræðst í að gera aðgerðina án þess að ræða við viðkomandi, spyija hann, hvort hann hafi einhverjar sér- stakar óskir o.s.frv. Starfsfólk Sjúkrahúss Reykja- víkur er frábært og kann greini- lega starf sitt til hlítar. Hafi það þökk fyrir góða þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.