Morgunblaðið - 13.11.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 51
i.
I
I
»
)
)
)
)
)
V
í
)
í
í
.
I
I
V
l
L
ar voru í skúffum og á hillum í
vinnustofu vísindamannsins. í
móanum hnýttum við kransa úr fífl-
um, sóleyjum og geldingahnöppum
og grófum upp birkiplöntur og víði
sem höfðu sáð sér frá görðunum í
kring, Birkibæ og Steinahlíð. Þetta
var yndislegur tími æsku og þroska.
Leiksvæðið var ónumið náttúruríki
og foreldrar okkar gáfu okkur
frjálsræði og tíma til leiks og náms.
Við lærðum og skynjuðum fegurð
íslensks gi’óðurs og fuglaiífs og þá
fundust skeljar og kuðungar í
fjörunni við Elliðaárvoginn, því
stundum var farið í leiðangra niður
að ánum eða í gönguferð á hita-
veitustokkunum. I vondum veðrum
var leikið sér á heimilunum sitt á
hvað. Heimilið í Birkibæ var fyrir
okkur systur heimur annaiTa þjóða
og menningar, danskir og
grænlenskir munir og búningar,
skinnavörur og perlusaumaðir
þjóðbúningar Eskimóa auk
fróðleiks og fagurra muna víða að
úr stórum og ókönnuðum heimi.
Góðu dönsku eplaskífurnar hennar
Syu gleymast ekki, en Stella og
Jens Björn fengu kleinur og
pönnukökur á okkar heimili. Við
nutum þess að kynnast danskri og
franskri matargerðarlist og að
skynja erlenda menningarstrauma
og lífshætti. Málverkin á veggjun-
um af fögrum gróðri og ólíkum
byggingarstíl Danmerkur, verk
danska prestsins og listmálarans,
fóður Syu, voru fyrsti vísir að því að
skynja list og víkka sjóndeildar-
hring okkar. Þetta var heimili
menntunar og menningar hins stóra
heims.
Hjónin í Birkibæ voru að mörgu
leyti ólík, enda alin upp við gjörólík-
ar aðstæður, en þau báru gæfu til
að leyfa hvort öðru að njóta sín sem
best í starfí og áhugamálum. Sya
hafði heillast af þessum unga ís-
lenska manni, sem bai’ist hafði
áfram til náms af dugnaði og vilja-
styrk.
Guðmundur var fróður maður og
ákaflega skemmtilegur og heillandi
í frásögn og framkomu. Hann hafði
brennandi áhuga á starfi sínu og var
sannkallaður eldhugi. í frístundum
samdi hann landafræðibækur og
ferðaðist um landið til að safna jurt-
um og fræðast meira um landið.
Hann bætti nýjum gróðri og fleiri
fagurreitum í garðinn. Hvergi á
Islandi fundust fallegri jarðarber og
stærri en hjá henni Syu og ótrúlega
voru þau góð með sykri og rjóma.
Sya var harðdugleg kona, vel
menntuð og á undan sínum tíma og
vann við hlið manns síns heima og
heiman. Eftir að hagur heimilisins
bættist og betri tímar tóku við, voru
vinnupeningar Syu oft lagðir í
ferðasjóð. Hún ferðaðist víða um
heim fram á níræðisaldur. Við syst-
ur nutum gestrisni og endurfunda í
Danmörku hjá Syu eftir að hún
fluttist frá íslandi. Eins kom hún til
Bandaríkjanna fyrir tveim árum og
dvaldi hjá Björgu með Stellu og
Pálma eftir heimsókn til dóttur og
tengdasonar þeirra í Alabama, þar
sem Lisbet stundar nám í uppeldis-
og félagsráðgjöf.
Sya var léleg til heilsunnar
síðasta árið, en andlega þrekinu og
óbilandi kjarki hélt hún og gat búið
á heimili sínu eins og hún hafði
óskað sér til síðasta dags.
Að leiðarlokum er okkur ofai’lega
í huga þakklæti fyrir hálfrar aldar
einlæga vináttu og órofa tryggð.
Það er ómetanlegt að kynnast strax
í frumbemsku svo góðu og heil-
steyptu fólki sem þau hjón Sya og
Guðmundur vora. Börnin þeirra
hafa svo sannarlega tileinkað sér
þeirra góðu dyggðir.
Einn síðasti stólpinn frá bernsku-
árum okkar systra er horfinn yfir
móðuna miklu. Við þökkum sam-
fylgd og góðar endurminningar og
biðjum henni blessunar í nýjum
heimi.
Björg S. Dranitzke,
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir.
ALFHEIÐUR
ÁSTMARSDÓTTIR
+ Álflieiður Ást-
marsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 7.
mars 1985. Hún lést
á heimili sínu,
Hraunteigi 19 í
Reykjavík, 5. nóvem-
ber siðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Hallgríms-
kirkju 12. nóvember.
Við höfum ekki áttað
okkur enn á því að þú
sért dáin, því fyrir okk-
ur hefur þú alltaf verið
til. Við vissum að það kæmi að þessu
en við misstum samt aldrei vonina að
þér gæti batnað. Nú vitum við að þú
varst orðin svo veik að betra var að
þú fengir að deyja heldur en að þjást
og fínna meira til. Þú varst alltaf
tilbúin að hjálpa öðrum og varst vin-
ur í raun. Alltaf til staðar ef ein-
hverjum gekk illa. Okkur þykir verst
að nú gátum við ekki hjálpað þér, því
okkur þótti mjög vænt um þig. Við
söknum þínum verulega mikið. Okk-
ur þótti leitt að þú náðir ekki að
koma í skólann og hitta okkur oftar í
haust. Við vissum að þig langaði oft-
ar í skólann og vonuðum á hverjum
degi að þú kæmir. Við munum eftir
því þegar einhverjum mistókst við
eitthvað, þá komst þú og klappaðir á
öxlina og sagðir að það kæmi bai-a
næst. Þannig vai-st þú. Við munum
alltaf hugsa til þín þegar við göngum
fram hjá húsinu þínu og þegar við
hittum bróður þinn sem þér þótti svo
vænt um. Við sáum að þú varst
óvenjulega góð stóra systir. Við
minnumst þín líka þegar við erum að
leika okkur í fótbolta. Þú varst dug-
leg í fótbolta og við misstum góðan
varnarmann. Alfheiður okkar, þú
varst svo góð manneskja og vinur
okkar allra. Þú verður áfram hluti af
okkar hóp. Nú ert þú engillinn í
hópnum. Við vonum að guð styrki
mömmu þína og pabba og Björn
bróður þinn í þeirra sorg. Við mun-
um alltaf sakna þín mikið og minnast
þín hvern dag.
Þín bekkjarsystkin,
Arndís, Berglind,
Katrín Þóra, Breki
Mar og Steingrímur.
Það var vorið 1996 að við stöllur
ákváðum að reyna fyrfr okkur sem
knattspyrnuþjálfarar. Við gleymum
seint fyrstu æfingunni okkar á
Þróttaravellinum. Hvorki flefri né
færri en 40 kátar og skemmtilegar
stelpur voru mættar og var Álf-
heiður í þeim hóp. í fyrstu fór lítið
fyrir Álfheiði en brátt kom þó í ljós
að þarna var á ferðinni ákveðin,
metnaðargjörn og hlý stúlka. Hún
var með gríðarlega mikið keppnis-
skap, eins og góðum
Þróttara sæmir, hvort
sem var í fótbolta eða í
lífinu sjálfu. En enginn
vinnur sitt daiiðastríð.
Skarðið sem Álfheiður
skilur nú eftir sig í
Þróttarahópnum
verður seint íyllt en
minningin um góða
stúlku mun lifa í hjört-
um okkar að eilífu.
I ástríkum faðmi
fjölskyldu sinnar
kvaddi Álfheiður þenn-
an heim. Megi^ góður
guð styrkja Ástmar,
Guðrúnu Björgu, Björn
og aðra ástvini í sorginni. Blessuð sé
minning hennar.
Hjördís S. Símonardóttir,
Soffía Ámundadóttir.
Það er mikið áfall er barn deyr.
Álfheiður var nemandi okkar í
Laugarnesskóla. Hún hóf
skólagöngu haustið 1991, þá sex ára
gömul. Hún var ekki há í loftinu en
vegna veikinda bjó hún yfir meiri
lífsreynslu en jafnaldrar hennar.
Álflieiður sýndi það strax að hún
var efnilegur nemandi, rólynd og
vann verk sín af mikilli nákvæmni.
Hún hafði ríka réttlætiskennd sem
kom fram í umgengni við önnur börn
og kennara. Oft reyndist hún okkur
hjálpai’hella þegar ágreiningur kom
upp.
Síðastliðinn vetur þegar Stóra
norræna lestrarkeppnin var í
grunnskólum landsins vakti bókaval
Álfheiðar eftirtekt okkar. Má þar
nefna íslandsklukku Halldórs Lax-
ness sem hún las sér til ánægju,
aðeins 11 ára gömul. Einnig lætur
hún eftir sig athyglisverð ljóð og
sögur, samanber þessa litlu sögu
um sólina sem hún samdi sex ára
gömul:
„Einu sinni var sól sem gat ekki
hætt að brosa. Þegar sólin kom upp
varð fólkið svo glatt, meira að segja
kisan og hundurinn brostu. Skýin
stríddu henni aldrei með því að fara
fyrir hana.“
I haust bar Álfheiður þess merki
að hún gekk ekki heil til skógar.
Dugnaður hennar og kjarkur var
aðdáunarverður.
Við kveðjum Álfheiði með versi
Hallgríms Péturssonar:
Legg ég nú bæði líf og önd,
Ijúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir raér.
Við sendum foreldrum Álfheiðar
og Birni bróður hennar okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Kennarar og starfsfólk
Laugarnesskóla.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN SIGURÐSSON
fyrrv. yfirlæknir
Sjúkrahúss Keflavíkur,
Otrateigi 34,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 9. nóvem-
ber.
Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 14. nóvember
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarfélag Sjúkrahúss Suður-
nesja eða Hjartavernd.
Valgerður Halldórsdóttir,
Hildur Kristjánsdóttir, Ingibjörn Hafsteinsson,
Halldór Kristjánsson, Jenný Ágústsdóttir,
Sigurður Kristjánsson, Anna Daníelsdóttir,
Hjalti Kristjánsson, Vera Björk Einarsdóttir,
Guðrún Þura Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Útför móður okkar og tengdamóður,
KRISTÍNAR DANIVALSDÓTTUR,
Faxabraut 13,
(Hlévangi),
Keflavík,
sem lést sunnudaginn 9. nóvember, fer fram
frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 15. nóvember
kl. 14.00.
Hilmar Pétursson,
Jóhann Pétursson,
Kristján Pétursson,
Páll Pétursson,
Unnur Pétursdóttir,
Ásdfs Jónsdóttir,
Ingibjörg Elíasdóttir,
Ríkey Lúðvíksdóttir,
Halla Njarðvík,
Snorri Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðurbróður minn,
MAGNÚS BJARNASON
skipasmiður,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Svöluhrauni 6,
sem andaðist fimmtudaginn 6. nóvember, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Gunnur Salbjörg Friðriksdóttir.
Útför eiginmanns míns, föður okkar og tengda-
föður,
HALLDÓRS M. SIGURGEIRSSONAR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Norðurbraut 13,
Hafnarfirði,
sem lést laugardaginn 8. nóvember sl., fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 14. nóvem-
ber kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Skilafrestur minningargreina
Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. f miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber-
ast fyiúr hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er
ekld unnt að lofa ákveðnum birtingardegi
+
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Skiphyl,
Leifsgötu 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Akrakirkju á morgun, föstudaginn 14. nóvember,
kl. 14.00.
Þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti Akrakirkju njóta þess.
Elísabet Guðmundsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Margrét Sigurjónsdóttir,
Hrafnhildur Halldórsdóttir,
Jónfríður Halldórsdóttir, Tómas Guðnason,
Margrét Halldórsdóttir, Magnús Jónsson.
+
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN ÓLAFUR SIGURÐSSON
frá Siglufirði,
Æsufelli 6,
Reykjavtk,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 14. nóvember kl. 13.30.
Valdis Ármannsdóttir,
Guðmundur Kr. Jónsson, Halldóra Pétursdóttir,
Sigurður Jónsson,
Björgvin S. Jónsson,
Steinunn K. Jónsdóttir,
Brynja Jónsdóttir,
Salbjörg E. Jónsdóttir,
Elísabet Þorvaldsdóttir,
Halldóra R. Pétursdóttir,
Freyr B. Sigurðsson,
Hallgrímur Jónsson,
Sigurður J. Vilmundsson,
barnabörn og barnabamabörn.