Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 52

Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Bruno Kress fæddist í Selz í Elsass 11. febrúar 1907. Hann lést á heimili sínu í Greifswald í Þýska- landi 15. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Karl Kress, járn- brautarstarfsmaður, og Emma Kress, f. Friedrichs. Var Bru- no næstyngstur sex systkina sem öll eru látin. Hann ólst upp í borginni Metz þar til Elsass var sameinað Frakklandi eftir fyrri heimsstyijöld og Þjóð- verjum vísað úr landi. Fluttist fjölskyldan þá til Berlínar og átti þar heima síðan. Bruno lagði stund á þýska og norræna mál- fræði við Háskólann í Berlín og árið 1932 fór hann til íslands í stúdentaskiptum. Hann bjó á heimili Sigurðar Thoroddsen, landsverkfræðings og yfirkenn- ara við Menntaskólann í Reykja- vík, og Maríu konu hans, f. Claes- sen. Sumarið 1935 varði hann doktorsritgerð sína um íslenska hljóðfræði í Berlín en kom aftur til fslands og kvæntist árið 1936 Bruno Kress, prófessor í Greifswald, andaðist á heimili sínu þar í bæ 15. október sl. Hann var fæddur í Metz í Elsass, sem taldist þá til Þýskalands, en ólst upp í Berlín frá 12 ára aldri. Þar lagði hann stund á háskólanám í norræn- um fræðum og hljóðfræði 1926- 1932, en hélt þá til íslands til að rannsaka íslenskan framburð. Hljóðfræði var þá ung vísindagrein, og fáir höfðu á þessum tíma stund- að rannsóknir á íslenskum fram- burði. Bruno Kress kom fast á hæla þeirra sem teljast mega helstu brautryðjendur hér á því sviði, Jóns Ofeigssonar og Stefáns Ein- arssonar. Upp úr þessum rann- sóknum samdi Bruno Kress dokt- orsritgerð sína, Die Laute des modernen Islándischen, sem kom út í Berlín 1937 og hefir jafnan ver- ið talin eitt af helstu ritunum um ís- lenska hljóðfræði. Þessa unga fræðimanns beið nú allsérstakur æviferill eins og margra landa hans af sömu kyn- slóð. Bruno Kress ílentist hér nokk- uð að loknu doktorsprófi og kvænt- ist 1936 íslenskri konu, Kristínu Thoroddsen kennara. Þau eignuð- ust tvær dætur. Önnur þeirra dó óskírð, hin er Helga Kress prófess- or. Þau Kristín skildu eftír fárra ára sambúð. Á þessum árum var Bruno um skeið kennari í Mennta- skólanum í Reykjavík og safnaði þá miklu efni til íslenskrar málfræði, en það fór forgörðum. Skömmu eftir að heimsstyijöldin skall á voru menn af þýskum upp- runa á Islandi teknir höndum og fluttir til Bretlands. Bruno Kress var einn af þeim og sat í haldi á eynni Mön nær öll stríðsárin, eða 'frá 1940 og fram á mitt ár 1944. Þann tíma notaði hann til að semja drög að íslenskri málfræði hjálpar- gagnalaust og endurbætti síðan og gaf út undir heitinu Laut- und For- menlehre des Islandischen 1963. Þetta varð þó rækilegasta hljóð- og beygingarfræði íslensks nútíma- máls sem samin hafði verið á þýsku. Fyrir þetta rit fékk Bruno Kress hina æðri doktorsgráðu og hæfnisdóm til að taka við prófess- orsembætti í Þýskalandi. Fyrst eftir stríðið gegndi hann einkum skólastjórastörfum í heima- landi sínu (1945-1956), en þegar hann var orðinn háskólakennari jók hann enn allmiklu við verk sitt, og upp úr því samdi hann þriðja höfuð- rit sitt, Islándisehe Grammatik, sem kom út 1982. Það er líklega efnismesta yfirlitsrit sem til er um málfræði íslensks nútímamáls. Auk þessara heildarverka liggja eftir Kristínu Önnu Thor- oddsen, f. 4. des. 1904, d. 15. júní 1988, hús- mæðrakennara, og stofnuðu þau heimili í Reykjavík. Þau eign- uðust tvær dætur, aðra andvana fædda, 17. sept. 1937, og Helgu, f. 21. sept. 1939, prófessor við Háskóla Islands. Börn hennar eru Már Jóns- son, f. 19. jan. 1959, sagnfræðingur, kvænt- ur Margréti Jónsdótt- ur, f. 6. mars 1966, lektor í spænsku við Háskóla ís- lands; og Kristín Anna, f. 7. júlí 1969, nemi í Þroskaþjálfaskólan- um. Barnaböm Helgu eru fimm, Ari, Bergþór og Snorri Mássynir; og Gunnar Jón og Helga María Kristinsbörn. Á ámm sínum í Reykjavík vann Bmno í Landssmiðjunni, var þýskukennari við Menntaskólann og kenndi í einkatímum. Tveimur mánuðum eftir að Bretar hernámu Island vorið 1940 var hann tekinn fastur á heimili sínu og fluttur til Bretlands ásamt öðmm þýskum ríkisborgumm sem vora búsettir hér á landi. Hann var í rúmlega hann margar ritgerðir um íslenska hljóðfræði, setningafræði og orð- fræði, þar á meðal um erlend áhrif á íslenskan orðaforða. Bruno Kress réðst til háskólans í Greifswald í Austur-Þýskalandi (Emst-Moritz-Amdt-Universitát Greifswald) 1956. Þar varð hann einn af fyrstu forstöðumönnum norrænustofnunar háskólans. Hon- um voru falin margvísleg skipu- lags- og endurbótastörf auk rann- sókna og kennslu. Hann varð pró- fessor í norrænum fræðum 1963 og gegndi því embætti til 1972. Af stjórnarfarsástæðum voru sáralítil samskipti milli Greifswalds og Islands um langa hríð, en allan tímann helgaði Bruno Kress krafta sína íslensku máli og bókmenntum. Auk fræðistarfa vann hann stór- virki sem túlkur og þýðandi. Hann þýddi m.a. bækur eftir Halldór Laxness, Ólaf Jóhann Sigurðsson, Halldór Stefánsson og Tryggva Emilsson og hlaut mikið lof fyrir þýðingar sínar. Síðast en ekki síst var Bruno Kress áhrifamikill íslenskukennari. Um það vitna nemendur hans á glæsilegan hátt. Nokkrir þeirra hafa komið hingað til Islands altalandi á íslensku sem þeir lærðu við fótskör meistara síns í Þýska- landi. Þvflíkan árangur hefi ég ekki vitað af íslenskukennslu í neinum öðrum háskóla þar sem nemendur hafa ekki átt kost á daglegri um- gengni við íslenska menn. Eg hefi með sjálfum mér kallað þetta „und- rið í Greifswald". Nú er mikill hug- ur í eftirmönnum Kress og nem- endum hans að halda uppi merki hans og gera veg íslensku og ís- lenskra fræða sem mestan í háskól- anum þar. Eins og allt var í pottinn búið var þess ekki að vænta að ég hefði mik- il persónuleg kynni af Bruno Kress, en ég á samt um hann góða minn- ingu. Hann var mér bæði hlýr og vinsamlegur og kunni vel að gera að gamni sínu. Þegar við hittumst fyrst iyrir um það bil aldarfjórð- ungi, áttum við stund saman yfir kaffibolla hér á Hótel Sögu. Þá sagði hann mér í léttum tón frá því hvemig bókin sem ég gat um áðan, Laut- und Formenlehre des Islánd- ischen, varð til og bætti svo við: „Eg var að hugsa um að tileinka hana Elísabetu Englandsdrottn- ingu með þakklæti fyrir gestrisn- ina. Eg hefði aldrei skrifað þessa bók ef ég hefði ekki setið svo lengi í fangelsi hennar hátignar." Síðan sagði hann mér frá því að hann var sendur til Þýskalands þegar hann var leystur úr prísund- fjögur ár í fangabúðum Breta, lengst í Ramsey á eyjunni Mön. I lok ágústmánaðar 1944 var hann látinn laus í fangaskiptum og sendur til Þýskalands þar sem hann var síðustu mánuði stríðs- ins. Hann átti ekki afturkvæmt til fjölskyldu sinnar á Islandi og þau Kristúi skildu árið 1950. Á ámn- um 1945 til 1956 var Bruno kenn- ari á ýmsum stöðum við Eystra- salt og skólastjóri í bænum Redewisch, en sfðan prófessor í norrænum fræðum við Háskólann í Greifswald þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Hann kvæntist öðm sinni Margarete, f. Peetske, f. 1916. Dætur þeirra em Elke, f. 25. mars 1950, og Anke, f. 9. nóv. 1951. Sonur Marg- arete af fyrra hjónabandi er Wolfhard Machmúller, f. 12. nóv- ember 1939. Bmno Kress helgaði íslandi starfskrafta sína. Hann ritaði mikið um íslenskt mál og þýddi fjölda íslenskra bók- menntaverka á þýsku, m.a. eftir Halldór Laxness, Ólaf Jóhann Sigurðsson, Tryggva Emilsson og Svövu Jakobsdóttur. Hann kom nokkmm sinnum i heimsókn til Islands á síðari ámm, var sæmd- ur riddarakrossi hinnar islensku fálkaorðu árið 1978 og heiðurs- doktorsnafnbót við heimspeki- deild Háskóla íslands árið 1986. Bálför Branos var gerð í Greifswald 21. október síðastlið- inn og verður aska hans jarðsett þar f dag. inni og lenti í þeim hluta landsins, sem síðar varð Austur-Þýskaland. Ekki meira um það. En handritið að bókinni, var af einhverjum ástæðum látið fara til Islands. Þannig varð höfundurinn viðskila við verk sitt. Löngu síðar barst honum sending frá Islandi og hafði þá legið mánuðum saman í tollvöru- skemmu í Hamborg. Þar var þá handritið komið, og ekki einsamalt. Einhver heima á Islandi, sem hugs- aði hlýtt til höfundar, hafði af um- hyggjusemi látið lítils háttar glaðn- ing fylgja, svo sem einn eða tvo kaffipakka og eitthvað af harðfiski. Þetta var auðvitað kærkomin send- ing, en viðtakandinn hafði sérstak- lega gaman af því, að handritið var orðið breytt síðan hann skildi við það í Bretlandi; nú angaði það af harðfiski upp frá þessu. Baldur Jónsson. Nafn þessa manns rakst ég fyrst á þegar ég fletti gömlu Skólablaði úr Menntaskólanum í Reykjavík frá árinu 1940. Það var kennara- brandari um málfar. Þýskukennar- inn Bruno Kress átti að hafa skilið tiltekið orðalag svo, að piltur og stúlka töluðu ekki saman í einrúmi, heldur í einu rúmi. Tæpum áratug seinna benti mál- fræðikennari í Háskólanum okkur á litla bók um hljóðfræði eftir sama mann, og eftir fáein ár í tilbót var Helga dóttir hans komin í íslensku- deildina. Um líkt leyti fréttist að hann væri orðinn forstöðumaður norrænnar deildar við háskólann í Greifswald í Austur-Þýskalandi og bjástraði við að koma þar á ís- lenskukennslu. Vorið 1961, þegar ég var tæplega þrítugur og hafði nýlokið prófi í ís- lenskum fræðum, komu þrír menn að máli við mig um sama erindi: hvort ég vildi prófa að gerast sendi- kennari í íslensku hjá prófessor Bmno Kress í Greifswald. Þetta voru Alexander Jóhannesson fv. háskólarektor, Bjöm Sigfússon há- skólabókavörður og Einar Olgeirs- son alþingismaður. Þar sem þá var ekki komið stjómmálasamband milli Austur- Þýskalands og íslands, fór Brano þá leið að skrifa fyrrum kennara sínum, skólafélaga, og síðan þeim manni sem öðrum fremur hafði annast milligöngu við þetta ríki í stað stjórnvalda, og spyrja: Vitið þið um ungan íslenskufræðing sem kynni að vilja spreyta sig á þessu verkefni? Eftir talsverðar vanga- veltur sló ég til um haustið og kenndi við háskólann í Greifswald fi-am undir jól næsta ár. Bretar handtóku Brano eins og flesta Þjóðverja vorið 1940. Sagt var að Pálmi rektor hefði í fyrstu vísað hermönnunum burt þegar þeir komu upp í Menntaskóla að sækja hann. Hann sat í fangabúð- um Breta á eynni Man fram á mitt árið 1944. Þá var hann ásamt ýms- um öðram látinn laus í fangaskipt- um. Eg undraðist að heyra hann segja, að samkvæmt reglum Rauða krossins um stríðsfanga hefði hann ekki verið sendur á víglínuna, held- ur látinn vinna við birgðaflutninga að baki hennar. Að menn virði þessháttar Ordnung í hernaðarsið- ferði í miðjum blóðugum hildarleik er íslendingi heldur framandi. Eg hafði heyrt misjafnlega látið af Brano áður en ég fór. Sumir sögðu að hann hefði verið bölvaður nasisti fyrh- stríð, en væri nú orðinn enn bölvaðri kommúnisti. Að minni hyggju vora stjórnmál lítið annað en nauðsynlegt aukaatriði fyrir Brano. Mér er nær að halda að hann hefði aldrei gengið í stjórn- málaflokk, ef hann hefði ekki talið sig tilneyddan vegna þeÚTar póli- tísku þrúgunar sem hann þurfti við að búa alla starfsævi sína. Ungur maður sem ætlaði sér einhvern frama á fjórða áratug, varð amk. að þykjast vilja ganga í nasistaflokk- inn, og nokkumveginn hið sama átti við um sósíalíska Einingar- flokkinn á sjötta áratug. Málfræði og bókmenntir vora hans yndi, og hann mun ekki frekar en Galilei hafa talið eftir sér opin- berar játningar, ef það mætti verða til þess að hann gæti stundað hugð- arefni sín í sæmilegum friði. Við sem aldrei höfum kynnst beinum terror á eigin skinni, ættum að fara varlega í að setja upp heilagan vandlætingarsvip og úthrópa slíka menn sem tækifærissinna. Ekki er víst að við hefðum staðið okkur hót- inu betur. Aldrei viðurkenndi hann að vísu pólitískar efasemdir sínar beram orðum í mín eyra, en hann átti til að gera tvíræðar og kald- hæðnislegar athugasemdir, ekki síst á íslensku og undir fjögur augu. Á minni tíð stóð hann í ströngu við bæði undirmenn sína og yfir- völd menntamála. I honum toguð- ust á metnaður embættismannsins og ástríða vísindamannsins. Hann var fræðimaður af gamla skólanum sem heimtaði reglu og vísindaleg vinnubrögð. Hann vildi að deildin sinnti málvísindum, en hinir litu svo á, að þarna ætti einkum að þjálfa topplið fyrir væntanlega utanríkis- þjónustu á Norðurlöndum, þegar Austur-Þýskaland hefði hlotið við- urkenningu á alþjóðavettvangi. Fæstum verðandi diplómötum fannst mikið til um málvísindi, en Bruno þótti þeir lélegir fræðimenn. Hann varð þó á endanum að beygja sig að mestu. Það var á hinn bóginn þroskandi fyrir mann nýskriðinn frá prófborði að kenna íslensk fræði undir eftir- liti Bruno Kress, og mörg notaleg stund var heima hjá þeim Margréti. Eg þykist hafa lært töluvert af hon- um bæði í þýsku og jafnvel íslensku og búið að því síðan. Hann gat verið næmur á minnsta mállýskumun þegar hann hitti Islendinga, og hann hafði eigin skoðanir á bókum. Honum fannst til dæmis Kristmann Guðmundsson hafa verið vanmet- inn sem sagnamaður, og hann hafði mikið dálæti á skáldinu Jónasi Guð- laugssyni sem ég hafði þá naumast heyrt nefndan. Island, þjóð og tunga vora hans meginástríða. í fangavistinni sagð- ist hann hafa átt það til að skrifa málfræðiathuganir sínar á salernis- pappír, ef skortur varð á öðra bréfsefni. Hann átti einkum sínar Ijúfu stundir þegar honum gafst tóm til að sinna þessum hugðarefn- um, hvort heldur við rannsóknir á málfai'i eða þýðingu skáldverka og fræðirita. Hann var um þetta leyti byrjaður að velta fyrir sér nýrri þýðingu á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness, og þar voru mörg álita- málin. Ærin átti sín von: ekki dugði að nota sögnina „werfen“ eins og áður hafði verið þýtt. BRUNO KRESS Þrátt fyrir hið eindregna vinar- þel var hann engan veginn blindur á suma eiginleika Islendinga þegai' þeir reyndu að ganga á lagið. Um jólin fór ég í heimsókn til samland- anna mörgu suður í Leipzig. „Það held ég verði nú meira svallið“, sagði Brano. Þar vildu menn auð- vitað halda mér langt fram yfir nýár, og Hjörleifur Gutt. sendi Brano skeyti og bað um framleng- ingu á orlofinu vegna „knýjandi fé- lagslegra vandamála“ í nýlendunni. Skeyti kom um hæl: „Eg framlengi leyfið ekki. Prof. Dr. Kress Direkt- or.“ Ekki voram við alltaf sammála um persónur. Eitt sinn skákaði ég því að vinur hans Einar Olgeirsson hefði góða skoðun á tilteknum manni. „Já, þið erað allir góðir hjá honum Einari! En lengi skal mann- inn reyna!“ Hann var í rauninni auðsærður, ekki síst ef honum fannst Islend- ingar ganga fram hjá sér. Ég kom í það mund sem Háskóli íslands hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Brano þótti dapurlegt að háskólinn skyldi ekki hefja sig upp yfir stjórnmálin og bjóða honum að taka þátt í há- tíðinni eins og til dæmis dönskum skólafélaga hans frá Islandi, Chr. Westergaard-Nielsen. Honum var sá heiður því kærkomnastur þegar háskólinn gerði hann loks að heið- ursdoktor á 75 ára afmæli sínu 1986. Honum féll það án efa þungt þeg- ar við fjölskyldan gáfumst upp á vistinni eftir aðeins rúmt ár. Þrem áratugum seinna gat ég rakið það í skjalasafni háskólans hversu hann hafði mátt berjast fyrir því að fá að ráða íslending, og síðan hversu hann þurfti að útskýra, að maður- inn skyldi ekki vilja vera lengur. Enn verra var samt að ég skyldi skömmu síðar gerast sendikennari hjá höfuðóvininum, Freie Uni- versifat í V-Berlín. Fyrram nem- endur okkar sögðu mér löngu seinna að ég hefði þá í Norrænu stofnuninni verið kallaður „svikari við málstað verkalýðsins" og pró- fessor Kress tekið undir það. Ekki var honum láandi. Hvað annað gat hann svosem gert? Hann rifjaði ósjaldan upp gam- anmál frá Islandsdvölinni. Einu sinni gisti hann hjá silfurhærðum bónda sem byrjaði á að spyrja, hvort hann kynni Málið með stór- um staf. Eftir kvöldmatinn dró bóndi fram ættfræðibækur sínar þar sem hann hafði rakið ætt sína til Óðins konungs í Uppsölum: „Ná- granni minn hefur að vísu rakið sína ætt allar götur til Adams og Evu. En það tel ég óvísindalegt,“ sagði bóndi. Þýskir námsmenn á fjórða áratugnum reyndu oft að drýgja naumar tekjur sínar á ís- landi með því að kenna þýsku í einkatímum. Konur sóttu ekki síður í slíka kennslu. Kunningi hans kenndi eitt sinn stúlku af þvílíkum ákafa að legubekkurinn brotnaði undan þeim. „Og hvað gerðirðu þá?“ - „Ég hélt áfram að kenna þýsku.“ Þrír áratugir liðu áður en ég kom aftur til Greifswald. Þá var Brano orðinn 84 ára, næstum blindur og harla þungfær. En umhyggjan fyrir íslensku máli var söm við sig. Ég hringdi strax fyrsta kvöldið til að vita hvort og hvenær ég mætti koma í heimsókn. Þegar hann kom í símann fékk ég þessa dæmigerðu íronísku heilsun: „Komdu sæll, Árni minn, talar þú ennþá ís- lensku?" Ámi Bjömsson. í dag verða bornar til moldar í Greifswald í Þýzkalandi jarðneskar leifar Brunos Kress, fyrrverandi prófessors í norrænum fræðum við háskólann þar. Með Bruno Kress er genginn einn helzti oddviti ís- lenzkrar menningar í Þýzkalandi á þessari öld. Ungur hóf hann rann- sóknir á íslenzkri tungu, og liggja eftir hann merkar bækur og rit- gerðir um það efni, - grundvallar- rit, sem menn munu seint hætta að sækja fróðleik til, bæði hér í Þýzka- landi og annars staðar. En þó að Brunos Kress verði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.