Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 53

Morgunblaðið - 13.11.1997, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1997 53 ) ) ) ) I I í I I I > I I 3 I I I I j I I 3 I I I rL lengi minnzt sem málfræðings og háskólakennara, mun framlag hans til kynningai- á íslenzkum bók- menntum og þá einkum þýðingar hans á íslenzkum fagurbókmennt- um á þýzku ekki síður halda nafni hans á lofti um ókomin ár. Bruno Kress hóf þýðingarstarf sitt á sjötta áratugnum, skömmu eftir að hann hlaut fasta stöðu við háskólann í Greifswald. Fyrsti text- inn, sem hann þýddi, var smásagan „Vordraumur" eftir Gest Pálsson, og var hún eina íslenzka sagan, sem prentuð var í stóru safni ástarsagna frá Norðurlöndum. En Bruno Kress var ekki lengi að rétta hlut Islands í þeim efnum; hann fékk Kristin E. Andrésson í lið með sér til að velja og gefa út umfangsmikið safn af íslenzkum smásögum, en þýðingarnar gerði hann sjálfur. Ár- ið 1963 kom safnið út á prenti, smá- sögur eftir 26 íslenzka höfunda, sem flestir höfðu áður ekki fengið neitt þýtt eftir sig á þýzku. Um þær mundir var hætt að þýða bækur Halldórs Laxness á þýzku. Var ástæðan sú, að höfund- urinn sætti sig ekki lengur við, að bækurnar væru þýddar eftir sænskum eða dönskum útgáfum í stað þess að þýða þær úr frummál- inu, en þetta hafði verið látið við- gangast fram að þessu. En nú kom Bruno Kress til skjalanna, þýddi beint úr íslenzku, - og það vel! Þýðing hans á Sjálfstæðu fólki kom út árið 1968 og vakti verðskuldaða athygli. Síðan fylgdu Paradísar- heimt, Kristnihald undir Jökli, Gerpla og Guðsgjafaþula í kjölfarið. Allar þessar þýðingar Brunos Kress fengu frábærar viðtökur enda gerðar af stakri vandvirkni og nákvæmni. Hæst rís þó Gerpluþýð- ing Brunos Kress, en þar tekst honum að koma fornsagnastfl bók- arinnar til skila á þýzku með snilld- arlegum hætti. I því efni nýtur þýð- andinn víðtækrar málsögukunnáttu sinnar og bókmenntaþekkingar auk öruggs valds á málinu, sem þýtt er úr. Bruno Kress hélt áfram að þýða úr íslenzku fram á efri ár. Hann þýddi m.a. skáldsöguna Seiður og hélog eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, og kom bókin út árið sem þýðand- inn varð áttræður. Samstarf okkar Brunos Kress hófst um þær mundir, m.ö.o. fyrir réttum áratug, en þá var verið að hleypa af stokkunum nýrri röð þýzkra þýðinga á ritum Halldórs Laxness, sem mér var falið að rit- stýra. Þótti sjálfsagt að taka hinar ágætu þýðingar Brunos Ki-ess til endurútgáfu í röðinni. Öll þessi ár hafa samskipti okkar verið hin ánægjulegustu. Að leiðarlokum votta ég fjöl- skyldu Brunos Kress bæði á Islandi og hér í Þýzkalandi dýpstu samúð mína. Hubert Seelow, Erlangen. Crfisdrvkkjur GAft-mn Sími 555-4477 pTIIIIIIXIfl hP H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H Sími^562 0200 ,, LIIIITTHIIXj SIGURÐURINGI JÓNSSON + Sigurður Ingi Jónsson var fæddur í Reykjavík 19. júní 1917. Hann lést á Landspítalan- um 30. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Tómasdóttir og Jón Snorri Jónsson. Systkini hans voru: Magnús, Bjöm, Þor- leifur, Bergur, Ás- geir, Þórir, Láms, Kristín og Kristjana. Fósturforeldrar hans vom Guðbjörg Árna- dóttir og Vilhjálmur Ólafsson. Sigurður kvæntist Ingibjörgu Ólafsdóttur og eignuðust þau átta börn. Þau em: Ólafía Krist- ín, Vilborg, Kjartan Leifur, Ólaf- ur Kristinn, Hlöðver, Valdimar, Sigríður og Jón Snorri. Síðari eiginkona Sigurðar var Heiður Aðalsteinsdóttir. Útför Sigurðar Inga fór fram frá Digraneskirkju hinn 6. nóv- ember. Þegar ég heyrði að Sigurður afí minn væri látinn, rifjuðust upp fyrir mér skemmtilegar sögur og vísur sem hann hafði sagt mér í gegnum tíðina og einnig mikill söngáhugi hans. Það lá reyndar beint við að slíkt kæmi fyrst upp í hugann á þeirri stundu, því frásagnargáfan, hagmælskan og söngurinn voru að- alsmerki þessa skaplétta manns. Þegar litið er yfir lífshlaup afa míns, þá hófst það í stórum hópi systkina, þar sem hann var yngstur. A fyrsta aldursári fór hann í fóstur að Múla í Vestmannaeyjum þar sem hann ólst upp hjá fósturforeldrum sínum. Þegar afí var á fermingar- aldri lést fóstra hans og hann flutti aftur til kynforeldra sinna. Sigurður afí minn lét lífið ekki bíða eftir sér og aðeins 17 ára gam- all var hann búinn að fínna sér konuefni. Ári síðar áttu þau Ingi- björg amma mín sitt fyrsta bam, en þau slitu síðan samvistir ár- ið 1951. Löngu síðar kvæntist afí á ný, Heiði Aðalsteinsdóttur. Heið- ur eftirlifandi eigin- kona afa veitti honum hamingju, sem hann naut til æviloka, eins og innilegt samband þeirra bar með sér. Sigurður nam prent- iðn og starfaði sína ævi að mestu við það fag, en var tímabundið við vertíðarvinnu og einnig við smíði skartgripa þar sem hag- leikni hans naut sín vel. Þó brauð- stritið tæki sinn tíma þá vannst æv- inlega tími til að koma fólki í gott skap og alltaf var rúm fyrir hans hjartans áhugamál, sönginn. Hann hafði mikia og fallega söngrödd og aðeins átján ára að aldri var hann 'orðinn félagi í Karlakór Reykjavík- ur, varð síðar heiðursfélagi í þeim kór og söng seinast með eldri félög- um kórsins. Á opinberum vettvangi söng Sigurður einnig í kvartettinum KIBS, á árunum fyru- seinni heims- styrjöldina. Kvartettinn dró nafn sitt af upphafsstöfunum í nöfnum þeirra félaga og undirleikari þeirra var Carl Billich. Minningin um afa verður fyrst og síðast sú að þar fór afburða skemmtilegur maður, en slíkt vega- nesti er ekki hverjum manni gefið. Eftirlifandi konu hans, Heiði Aðal- steinsdóttur, sendi ég innilegar samúðarkveðjur. M situr einn 8g syrgir liðna tíð, er sólin bjartast þér á himnum skein, þú syrgir ungdómsárin björt og blíð, er burtu liðu og hurfu bakvið stein. Ennþá líða árin allt of stríð, óðum bognar lífs þíns sterka gi-ein. Fyrr en varir fellur nóttin á, þú fólnar, deyrð og lokar þreyttri brá. (Sigurður Ingi Jónsson.) Jóhannes Sturlaugsson. Ástkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN SKÚLADÓTTIR, Fossi á Siðu, verður jarðsungin frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 15. nóvem- ber kl. 14.00. Jón Kristófersson, Sigfríð Kristinsdóttir, Bjarni Kristófersson, Helga Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda- faðir, afi og bróðir, HARALD G. HALLDÓRSSON fyrrverandi tæknifulltrúi hjá Pósti og síma, Stangarholti 24, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Katrín M. Þórðardóttir. Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 ■ ■ L iHomtonmM 3 * I C(Cií *< ÁJ 4á J i *Kt Mí Qj Tr £E lL S5 *• ———-— ------ + Ástkær eiginmaður minn og sonur, SIGURÐUR JÓN HALLDÓRSSON frá Halldórsstöðum, Smáragrund 9, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laug- ardaginn 15. nóvember kl. 14.00. Jarðsett verður í Glaumbæ. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Minningarsjóð Guðrúnar Sigurðardóttur frá Halldórsstöðum eða krabbameinsfélögin. Kristín Jóhannsdóttir, Halldór Gíslason, og fjölskylda hins iátna. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMANN ADOLF GUÐMUNDSSON vélstjóri, Sandprýði, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 15. nóvember kl. 14.00. Guðfinnur Guðmannsson, Eyrún Sæmundsdóttir, Fjóla Guðmannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, OLGU KRISTJÁNSDÓTTUR, Hlíðarendavegi 1a, Eskifirði. Kristján V. Kristjánsson, Sigríður K. Sigurgeirsdóttir, Páll E. Kristjánsson, Guðný K. Böðvarsdóttir, Þórunn G. Kristjánsdóttir, Gunnar Jónsson, Kristján Kristjánsson, Ingibjörg R. ívarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MATTHÍASAR GUÐMUNDSSONAR húsasmíðameistara, Hringbraut 104, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grensásdeildar og bráðamóttöku Sjúkra- húss Reykjavíkur. Friðbjörg Ólína Kristjánsdóttir, Sigurður Sævar Matthíasson, Hafdís Matthíasdóttir, Sigbjörn Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabarn. + Kærar þakkir færum við þeim, sem heiðruðu minningu okkar hjartkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS EIRlKSSONAR fyrrv. skattstjóra, Akranesi, og sýndu okkur samúð og hlýju við andlát hans og útför. Bergþóra Guðjónsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir, Símon Ólason, Sigrfður Jónsdóttir, Björn Lárusson, Halldóra Jónsdóttir, Valentínus Ólason, Guðjón Jónsson, Sigurlaug Vilhelmsdóttir, Eiríkur Jónsson, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.