Morgunblaðið - 13.11.1997, Side 57

Morgunblaðið - 13.11.1997, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 13. NÓVÉMBER 1997 57 FRETTIR Lögreglan leitar stolinna bíla Ökutækin eru þessi: G-10085 Honda CM250 árg. 1983 svart bifhjól stolið 3/10 ’97 KG-030 Jeep Cherokee árg. 1990 hvítur 23/10 ’97 E-538 Chervoiet Monsa árg. 1986 hvítur 30/10 ’97 G-228 Daihatsu Charade árg. 1982 rauður 2/11 ’97 JI-357 Suzuki Fox árg. 1985 blár upphækkaður 2/11 ’97 YJ-947 Hero Gizmo árg. 1995 rautt, létt bifhjól 9/11 ’97 R-52458 SAAB 900 árg. 1992 blár 9/11 ’97 Y-14159 SAAB 99 árg. 1983 hvítur 10/11 ’97 JÓLAKORT Barnaheilla árið 1997. Jólakort Barnaheilla „EINS og undanfarin ár gefa Barnaheill út jólakort til styrktar starfi samtakanna, en sala á jóla- kortum er orðin ein helsta tekju- öflunarleið samtakanna. Með því að kaupa jólakort Barnaheilla er verið að styrkja starf í þágu barna á Islandi, en markmið Barnaheilla er að vera málsvari allra barna og hafa frumkvæði að málum er varða réttindi þeirra og velferð. Starf samtak- anna hefur aukist mjög að um- fangi undanfarin ár, en sem dæmi um verkefni Barnaheilla má nefna kaup á íbúð fyrir að- standendur veikra barna af landsbyggðinni sem þurfa að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi í Reykjavík, og forvarnarstarf gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum sem hleypt var af stokk- unum í haust. Jólakortin verða send öllum félögum og styrktaraðilum sam- takanna en fyrirtæki og aðrir velunnarar geta nálgast þau á skrifstofu Barnaheilla að Sóltúni 24 í Reykjavík," segir í fréttatil- kynningu Barnaheilla. LÖGREGLAN í Reykjavík leitar nokkurra ökutækja sem stolið hefur verið síðustu daga og vikur. Óskar hún þess að þeir sem verða varir Tæknisýning í Perlunni SÝNINGIN Tækni-Lífsstíll ’97 verður haldin í Perlunni dagana 14. til 16. nóvember næstkom- andi. Markmið sýningarinnar er að gefa fólki kost á að kynnast fjölbreyttum notkunarmöguleikum heimilistölvunnar, upplýsingamiðl- un og margs konar þjónustu á al- netinu. Sýningunni er einkum ætl- að að höfða til heimila og fjöl- skyldna. Að sýningunni standa 12 fyrir- tæki og í fréttatilkynningu segir að þar megi meðal annars sjá tölv- ur og tölvubúnað til heimilisnota, fræðast um samskipti á alnetinu, kynnast samnetinu, skoða nýjung- ar á sviði stafrænna myndavéla og myndvinnslu, sjá fræðsluefni á tölvutæki formi og kynnast mis- munandi tölvufræðslu sem í boði er fyrir ólíka aldurshópa. Þá gefst gestum sýningarinnar kostur á að fara inn á alnetið, ferðast um það og fræðast um þá þjónustu sem hægt er að nálgast þar. Fyrirtæki sem taka þátt í sýn- ingunni eru: Tæknival hf., Islandia Internet, Póstur og sími hf., Hans Petersen hf., Toyota, Landsbanki Islands, Búnaðarbanki Islands, Is- landsbanki hf., Rafiðnaðarskólinn, Viðskipta- og tölvuskólinn, Fram- tíðarbörn og Námsgagnastofnun. Sýningin hefst klukkan 14, föstudaginn 14. nóvember ogverð- ur opin til klukkan 20. Á laugar- daginn 15. nóvember og sunnudag- inn 16. nóvember verður sýningin opin frá klukkan kl. 10-18. Fræðsluerindi í Vídalínskirkju SR. HANS Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Vídalínskirkju flyt- ur fræðsluerindi um samskipti for- eldra og barna er nefnist „Ungl- ingsárin" iaugardaginn 15. nóvem- ber kl. 15. I fyrirlestrinum verður m.a. rætt um afleiðingar þess þegar sam- skipti rofna á þessum viðkvæmu árum og hvað má gera til þess að koma í veg fyrir það með styrkingu fjölskyldunnar. Mikilvægi góðra tengsla á milli skóla og heimila verður undirstrikað. Einnig verður komið inn á þá vá sem fíkniefnin valda á þessum tímamótum hjá unga fólkinu. Fundur um fisk- veiðisljórnun HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, heldur fund um fiskveiðistjórnun með þingmönnunum Pétri Blöndal og Einari Oddi Kristjánssyni í dag, fimmtudag. Tilefni fundarins er tillaga Péturs Blöndal um almenna eignaraðild á fiskveiðiheimildum. Fundurinn hefst kl. 17.15 á efri hæð kaffihúss- ins Sólons íslandus á horni Banka- strætis og Ingólfsstrætis. við þessi ökutæki eða vita hvar þau eru geri henni viðvart á næstu lög- reglustöð. Steinar Waage Skóverslun 40 ára Á ÞESSU ári eru liðin 40 ár frá því að Steinar Waage Skóverslun hóf rekstur. „í upphafi var um að ræða lítið verkstæði með ort- hopediskar skó- og innleggjasmíð- ar sem aðalrekstur. En fljótlega hóf Steinar Waage innflutning á skóm sem hentuðu vel fyrir börn sem áttu við fótamein að stríða. Reksturinn vatt upp á sig og núna rekur fyrirtækið þrjár skóverslan- ir. Tvær með nafni Steinar Waage skóverslun og eina undir nafninu Toppskórinn við Ingólfstorg, einn- ig rekur fyrirtækið Tískuverslun- ina Cöru í Kringlunni. Hver versl- un hefur sína sérstöðu. í Skóversl- un Steinars Waage í Domus Medica er meiri áhersla lögð á börnin og eldri borgarana. I Skó- verslun Steinars Waage í Kringl- unni er sama úrvalið og í Domus en þar er aftur á móti meira úr- val af tískuskóm fyrir unglinga og hátískuskóm frá heimsþekkt- um merkjum. Toppskórinn við Ingólfstorg er með gott úrval af skóm á góðu verði. Cara tísku- verslun í Kringlunni er með vand- aða vöru frá þekktum þýskum merkjum, og geta jafnt ungar sem eldri konur fundið eitthvað við sitt hæfi þar. í tilefni af því að fyrirtækið fagnar þessum tímamótum, mun- um við gefa viðskiptavinum okkar óvænta gjöf þessa vikuna,“ segir í fréttatilkynningu frá versluninni. Fyrirlestur um íslenskar lækningajurtir SIGMUNDUR Guðbjarnason pró- fessor heldur fyrirlestur á vegum Líffræðistofnunar Háskólans sem nefnist „Leit að líffræðilega virkum efnum í lækningajurtum" föstudag- inn 14. nóvember. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Líffræðistofnunar, Grensásvegi 12 { stofu G-6 kl. 12.20. Öllum er heimill aðgangur. Útgáfutón- leikar Bubba Morthens KOMIN er á markaðinn nýjasta tónlistarafurð Bubba Morthens, Trúir þú á engla. í tilefni af útkomu hennar heldur Bubbi útgáfutónleika í Borgarleikhúsinu mánudaginn 17. nóvember og heijast þeir kl. 21.00. Honum til halds og trausts verða Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Gunnlaugur Briem á trommur, Jak- ob Smári Magnússon á bassa, Guð- mundur Pétursson á gítar og Eð- varð Lárusson á gítar. Forsala aðgöngumiða hefst á fimmtudaginn í öllum verslunum Skífunnar. Miðaverð er kr. 1.500. Málþing um geðlæknisfræði GEÐLÆKNAFÉLAG íslands held- ur málþing á Hótel Loftleiðum dag- ana 14. og 15. nóvember til heiðurs Tómasi Helgasyni prófessor, en hann verður gerður að heiðursfé- laga Geðlæknafélagsins í tengslum við þingið vegna forystu og braut- ryðjandastarfa á sviði geðlækninga á íslandi. Þingið er ætlað læknum, sálfræðingum og öðrum heilbrigðis- stéttum. Fjallað verður um faraldsfræði- legar rannsóknir i geðlæknisfræði og forgangsröðun í heilbrigðisþjón- ustu. Fjórir erlendir fyrirlesarar eru hér í boði félagsins: Dr. James C. Anthony, prófessor frá John Hopk- ins háskólanum í Baltimore, ræðir um fyrsta stigs forvarnir gegn vímuefnamisnotkun, vettvangur foreldra og heimilislækna; dr. David Goldberg frá Institute of Psychi- atry, London, ræðir um þróun rann- sókna í faraldsfræði geðsjúkdóma; dr. Heinz Háfner frá Þýskalandi ræðir um geðklofa sem lífstíðar- sjúkdóm og dr. Povl Munk-Jörgen- sen ræðir um vægari geðraskanir og þýðingu þeirra í geðlæknisfræði. Nokkrir innlendir fræðimenn kynna nýlegar rannsóknir gerðar hérlendis; Hallgrímur Magnússon fjallar um mismun á tíðni og ein- kennum þunglyndis í Evrópulönd- um; Högni Oskarsson um vetrar- þunglyndi á íslandi; Kristinn Tóm- asson um geðraskanir hjá fíkniefna- neytendum; Jón G. Stefánsson um greiningaraðferðir í faraldsfræði og Þórólfur Þórlindsson um reykingar íslenskra ungmenna. Fyrirlestur um eðlisfræði EÐLISFRÆÐIFÉLAG íslands stendur að fyrirlestraröð þar sem ungir eðlisfræðingar kynna við- fangsefni sín. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir. Fimmtudaginn 13. nóvember heldur dr. Páll Ólafsson erindi sem nefnist „Líkan fyrir eiginleika ál- melma“ í Lögbergi, stofu 101, kl. 16.15. Fyrirlesturinn fjallar um líkan fyrir eiginleika álmelma, til notk- unar við hönnun nýrra efna. Ástandi álmelma er lýst með varmafræðilegum lögmálum. Sýnt er fram á að styrkur álmelma er að mestu leyti háður magni herð- andi agna í samræmi við fræðileg- ar kenningar. Líkani er því lýst til að reikna út styrk ALMgSi- álmelma sem fall af efnasamsetn- ingu. Með því að endurbæta fyrri líkön fyrir hitameðhöndlunarferla er líkanið notað til að reikna styrk álmelma sem fall af efnasamsetn- ingu og hitastigi og tíma við hita- meðhöndlun. Samband seiglu við styrk og efnasamsetningu er rætt. Fyrirlestrar um kristið siðferði í ÁRBÆJARKIRKJU verða fluttir fyrirlestrar um spurningar er varða kristið siðferði. Fyrsti fyrirlesturinn í þessari röð verður fluttur í dag, fimmtudag kl. 20.30. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur flyt- ur fyrirlesturinn en að honum lokn- um gefst tækifæri til umræðna yfir kaffibolla um efnið. í kjölfar þessa fyrirlestrar verður fyrirlestur um hjónabandið 20. nóv- ember. 27. nóvember verður fyrir- lestur sem Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ flytur og nefnist hann Ábyrgð gagnvart ná- unganum. Síðasti fyrirlesturinn í þessari röð verður síðan 4. desem- ber og nefnist Grundvöllur kristins siðferðis og er hann í umsjá dr. Siguijóns Árna Eyjólfssonar. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og aðgangseyrir enginn. ■ KEPPNI í drengja- og telpnaflokki (fædd 1982 og síð- ar) á Skákþingi Islands verður dagana 15. og 16. nóvember. Tefldar verða níu umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunar- tími 30 mín. á skák fyrir keppanda. Umferðartafla er þannig: Laug- ardag kl. 13-18, 1., 2., 3., 4. og 5. umferð. Sunnudag kl. 13-17, 6., 7., 8. og 9. umferð. Teflt verður í Faxafeni 12, Reykjavík. Þátttökugjald er kr. 800. Innritun fer fram á skák- stað laugardaginn 15. nóv. kl. 12.30-12.55. ■ STARFSMENN Ingvars Helgasonar, Bílheima, Bílahúss- ins og heildverslunarinnar Bjarkeyjar leggja af stað í árshá- tíðarleiðangur á fimmtudagskvöld- ið. Fyrirtækin öll að Sævarhöfða 2 verða því lokuð á föstudag og hefðbundnar bílasýningar um helg- ina falla niður. Neyðarþjónusta fyrir varahluti verður veitt þessa daga. Starfsemin hefst aft- ur á mánudag. Námskeið um umönnun fjölfatlaðra STYRKTARFÉLAG vangefinna stendur fyrir námskeiði þriðjudag- inn 18. nóvember nk. frá kl. 9 til 16 í Lykilhótel Cabin, Borgartúni 32. Námskeiðið beinist að því hvernig hægt er að þjálfa og virkja fjölfatl- aða. Sýnt er hvernig vinna má með mismunandi færnisvið og hvernig nýta má mismunandi hjálpartæki til að ná fram einstaklingsbundnum lífsgæðum. Dæmi um aðferðir verða sýnd á myndböndum og hjálpar- gögn og bæklingar verða til sýnis á staðnum. Fyrirlesarar eru nokkrir sérfræð- ingar, Svein Lillestolen sérkennari, Espen Ursin sérkennari og Knut Slátta sálfræðingur. Námskeiðsgjald er kr. 2.500 fyr- ir starfsfólk, en 1.500 fyrir foreldra og aðstandendur fjölfatlaðra. Þátt- taka tilkynnist til skrifstofu Styrkt- arfélags vangefinna. LEIÐRÉTT „Ekki“ ofaukið ÞAU mistök urðu í frétt í Verinu í gær, miðvikudag, um samþykktir Vélstjóraþings, að orðinu ekki var ofaukið á einum stað. Fyrir vikið' var samþykktinni snúið við. í frétt- inni sagði að þingið tæki ekki und- ir orð menntamálaráðherra um að hluti vélstjóranáms skuli færður á háskólastig. Hið rétta er að þingið tók undir þau orð menntamálaráð- herra að hluti náms vélstjóra yrði fluttur á háskólastig. Beðizt er vel- virðingar á mistökum þessum um leið og þau eru leiðrétt. Rangt nafn í FRÉTT um haustskýrslu Seðla- ■' banka íslands var rangt farið með nafn aðalhagfræðings bankans. Hann heitir Már Guðmundsson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Zoom gerði myndina BIRT var tölvumynd í Morgunblað- inu í gær af væntanlegri nýbygg- ingu Kringlunnar og í texta sagði ranglega að teiknistofa Halldórs Guðmundssonar arkítekts hefði gert myndina. Myndin var hins veg- ar gerð af fyrirtækinu Zoom ehf. samkvæmt teikningum Halldórs Guðmundssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.