Morgunblaðið - 19.11.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 19.11.1997, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 264. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fjöldamorðin í Lúxor fordæmd af íransstjórn og Hamas-samtökunum jafnt sem Vatíkaninu Ferðamenn yfírgefa Egyptaland London. Reuters. FERÐASKRIFSTOFUR hófu í gær brottflutning mörg hundruð ferðamanna frá Egyptalandi eftir að herskáir heittrúarmenn myrtu rúmlega 60 evrópska og japanska ferðamenn við Lúxorhofið, einn helsta ferðamannastað landsins, á mánudag. Hassan el-Alfy innanríkis- ráðherra Egyptalands sagði af sér í kjölfar tilræðisins enda hafði Hosni Mubarak, forseti landsins, harðlega gagnrýnt öryggisgæslu á svæðinu. Um tvær milljónir ferðamanna koma árlega til Lúxor til þess að skoða hofið og hvelfingar í nágrenni þess. Margir, sem vinna við ferðaþjónustu í Egyptalandi, lýstu í gær yfir þeirri von að þessi atburð- ur yrði ekki til þess að fólk hætti við að koma til landsins. Mörg þúsund ferðamenn í Evrópu og Japan hættu hins vegar við að fara til Egyptalands í gær og nýttu sér tilboð Rrðaskrifstofa um að breyta áætlunum eða fá endur- greiðslu. Sjö flugvélum var flogið tómum frá Bretlandi til Lúxor í gær til þess að flytja heim breska ferðamenn sem hættu við frekari dvöl, og búist var við að fjórar vélar yrðu sendar til viðbótar, sömu er- irida. „Fólk vill fara í frí, en ekki á vígstöðvar," sagði Johannes Zur- neiden, framkvæmdastjóri þýsku ferðaskrifstofunnar Phoenix, en fyr- ir hádegi í gær afpöntuðu 182 viðskiptavinir hennar ferðir. Hópur Islams, sem lýst hefur sig ábyrgan fyrir tilræðinu á mánudag, lýsti því yfir að hann myndi halda áfram hermdarverkastarfsemi sinni og baráttu fyrir stofnun íslamsks ríkis og hvatti ferðafólk til þess að halda sig fjarri. Rúmlega helmingur fórnarlambanna á mánudag var frá Sviss; átta eða tíu voru Japanir, meirihlutinn ung hjón í brúðkaups- ferð; sex voru Bretar og talið var að fjórir hefðu verið Þjóðverjar og einn Frakki. Fordæming á fjöldamorðunum á mánudag hefur borist úr öllum heimshornum. Stjómvöld í íran sögðu að atburðirnir myndu draga úr stuðningi við málstað múslíma og araba. Egyptar hafa ásakað írani um að styðja herskáa múslíma er berjast gegn egypskum stjómvöld- um, en íranir neita því og segja uppreisnarmenn hafa sótt innblást- ur til byltingarinnar er múslímar gerðu í Iran árið 1979. I samúðaryfirlýsingu frá Vatíkan- inu í gær segir að Jóhannes Páll páfí biðji Guð að veita öllum sem trúa „vilja og hugrekki til þess að feta skilyrðislaust stigu friðar og samræðu og hafna öllu ofbeldi, sem leiði ekki til neins nema af- skræmingar á hinu mennska". Yasser Arafat, forseti heima- stjómar Palestínumanna, fordæmdi tilræðið, og Hamas-samtök her- skárra múslíma tóku í sama streng. „Við höfnum tilræðum við útlendinga sem hafa beðið um leyfi og öryggi til þess að koma til landa okkar,“ sagði Sheikh Ahmed Yassin, stofnandi Hamas, í samtali við Reuters. ■ Snúið við/6 ■ Heittrúarmenn/18 Netanyahu gagnrýnir uppreisnar- menn Jenísalem. Reuters. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, sem stendur frammi fyrir uppreisn innan Likud- bandalagsins, gagnrýndi and- stæðinga sína í gær. Skýrt var frá því á mánudag að „mjög atkvæða- miklir“ stjómmála- menn í Likud- bandalaginu hefðu fengið sig fullsadda á forystu Net> anyahus og ynnu nú að því að hrekja hann frá völdum. „Enginn hefur sagt að það sé auðvelt að vera forsætisráðherra Israels,“ sagði Netanyahu og virtist áhyggjufullur þegar hann ræddi við ísraelska blaðamenn, sem hafa fylgst með ferð hans til Bandaríkjanna og Bretlands. „Það er ekkert leyndarmál að ákveðnir menn í stjórnarflokkun- um ... eru ekkert sérlega hrifnir af mér, þeir hafa sínar skoðanir, sinn metnað og þetta er ekkert nýtt,“ bætti Netanyahu við. Hann kvaðst þó telja að „algjör meirihluti“ þing- manna og ráðherra stjórnarinnar myndi bregðast við „með ábyrgum hætti en ekki óábyrgum eins og ákveðnir menn gerðust sekir um þeg- ar forsætisráðherrann var erlendis". Netanyahu fór frá Bandaríkjunum á mánudag, fyrr en ráðgert hafði verið, og hélt til viðræðna við Hussein Jórdaníukonung í London. ■ Ilörð gagnrýni/18 Saddam reiðubúinn til að taka tillit til allra deiluaðila Irakar vilja fínna póli- tíska lausn deilunnar Reuters TEREQ Aziz, aðstoðarforsætisráðherra íraks, hitti Boris Jeltsín Rússlandsforseta í Moskvu. Moskvu, London, Genf. Reuters. JEVGENÍ Prímakov, ut- anríkisráðherra Rúss- lands, sagði í gær að Saddam Hussein, forseti Iraks, hefði sent Borís Jeltsín Rússlandsforseta bréf þar sem hann lýsti sig reiðubúinn til að vinna að pólitískri lausn á deilu Iraka og Sameinuðu þjóðanna og taka mið af hagsmunum allra deiluaðila. Þá sagði hann Jeltsín hafa sent Saddam bréf sem innihéldi áætlun um það hvernig hægt væri að leysa deiluna án vald- beitingar. Prímakov gaf út yf- irlýsingu þessa efnis eftir að Tereq Aziz, aðstoðar- forsætisráðherra Iraks, fór óvænt til Moskvu í gær og átti þar viðræður við rússneska ráðamenn. Áður hafði Bandaríkja- stjórn beint því til stjórnvalda í Rússlandi og Frakklandi að þau notfærðu sér gamalgróin stjórn- málatengsl við Irak til að vinna að lausn deilunnar. Mikil spenna hefur verið í sam- skiptum Iraks og SÞ frá því yfir- maður vopnaeftirlits stofnunarinn- ar sendi alla menn sína frá Irak í kjölfar þess að írakar sökuðu bandaríska eftirlitsmenn um njósnir og ráku þá úr landi. Prímakov kvaðst vera í reglulegu sambandi við utanríkisráðhen-a Bretlands, Frakklands og Banda- ríkjanna og sagði líklegt að hann myndi hitta þá á næstunni en rætt hefur verið um að utanríkisráðherr- ar þessara fjögurra af fimm aðildar- ríkjum öryggisráðs SÞ komi saman til fundar í Genf á fimmtudag. Bandaríkjainenn auka herstyrk sinn Bill Clinton Bandaríkjaforseti gaf fyrirmæli um það í gær að 45 bandarískar herflugvélar yrðu fluttar til Mið-Austurlanda. „Við erum að reyna að leysa málið á friðsamlegan hátt en það breytir því ekki að stjórnarerindrekar okkar þurfa að hafa herstyrk á bak við sig,“ sagði forset- inn. Sandy Berger, ráðgjafi hans í þjóðaröryggismál- um, sagði ákvörðunina ekki standa í neinu sam- bandi við eftirlitsflug bandarísks flugmanns yfir Irak fyrr um daginn en Ken Bacon, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, sagði ráðstafanirnar gerðar vegna þess hversu sterkar loftvarnir Iraka væru. Umræddar flugvélar munu koma til viðbótar við þær 120 orustuþotur sem Bandaríkjamenn hafa þegar á svæðinu. Að auki eru tvö bandarísk flugmóðurskip á leið þangað, hvort um sig með 70 herflugvélar um borð. Colin Powell, sem var helsti yfir- maður Bandaríkjahers í Persaflóa- stríðinu, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að aðgerðir Iraka hefðu greinilega miðað að því að sundra einingu öryggisráðs SÞ. Aðildarþjóðir ráðsins hefðu hins vegar lagt mikla vinnu í það að und- anfórnu að samræma aðgerðir sín- ar og sú vinna væri nú að skila sér. Tilgangs- laust að þrýsta á Jeltsín Moskvu. Reuters. STJÓRNVÖLD í Kreml gerðu rússneska þinginu það ljóst í gær að tilgangslaust væri að reyna að þvinga Borís Jeltsín Rússlandsfor- seta til að víkja Anatólí Tsjúbajs, aðstoðarforsætisráðherra og helsta ráðgjafa hans í efnahagsmálum, frá. Kommúnistum er í nöp við Tsjú- bajs, einn af höfundum umbóta- stefnunnar, og hafa reynt með öll- urn ráðum að koma honum frá. Á mánudag sögðust kommúnistar ekki einu sinni myndu ræða fjár- lagafrumvarp stjórnarinnar fyrir næsta ár meðan Tsjúbajs væri fyrsti aðstoðarforsætisráðherra og fjármálaráðherra. í gær drógu þeir aðeins í land og féllust á að taka frumvarpið fyrir á föstudag. Tsjúbajs komst naumlega hjá afsögn í síðustu viku er upp komst að hann og nokkrir bandamenn hans í stjórnmálum hefðu þegið há- ar fyrirframgreiðslur fyrir bók sem ekki er enn komin út. Bauðst Tsjú- bajs til að segja af sér en Jeltsín féllst ekki á afsagnarbeiðni hans. Búist er við því að Dúman, neðri deild þingsins, muni í dag ræða ályktun þar sem Jeltsín er hvattur til að fallast á afsagnai’beiðni Tsjúbajs. Á fimmtudag verða tekin til umræðu drög að skattareglum, sem eru grunnurinn að fjárlagafrum- varpi stjórnarinnar en sjálft frum- varpið verður tekið fyrir á föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.