Morgunblaðið - 19.11.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 13
FRÉTTIR
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna á íslandi
STJÓRN Sjávarútvegsskóla Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna hefur
ákveðið að ráða dr. Tuma Tómasson
fiskifræðing í stöðu forstöðumanns
skólans. Samningur mílli Háskóla
Sameinuðu þjóðanna í Tókýó, utan-
ríkisráðuneytisins og Hafrannsókna-
stofnunarinnar um stofnun skólans
hér á landi var undirritaður í júní
síðastliðnum.
Staða forstöðumanns skólans var
auglýst laus til umsóknar í ágúst sl.
og var umsóknarfrestur til 15. sept-
ember. Níu umsóknir bárust um
stöðuna en ein var dregin til baka
áður en fresturinn rann út og því
fjallaði stjórnin um átta umsóknh-.
Umsækjendur voru þeir Friðrik
Sigurðsson, Pétur Bjamason, Rögn-
valdur Ólafsson, Tryggvi Felixson,
Tumi Tómasson ráð-
inn forstöðumaður
Viðar Helgason, Þorsteinn
Þorsteinsson og Þór Gunn-
arsson, auk Tuma Tómas-
sonar.
Tumi er sem stendur í
Afríku á vegum Þróunar-
samvinnustofnunar Is-
lands, þar sem hann mun
m.a. nýta ferðina til að und-
irbúa val á fyrstu nemend-
um skólans, að sögn Jakobs
Jakobssonar, formanns Tumi
stjómar skólans. Hann seg- Tómasson
ir gert ráð fyrir að skólinn
taki til starfa á næsta ári.
Ekki sé alveg ljóst hvenær,
en þó verði það ekki seinna
en um mitt árið.
Þjálfun komi að notum
þegar heim kemur
Skólinn mun hafa aðset-
ur innan veggja Hafrann-
sóknastofnunar og er
námstíminn 6 mánuðir,
bæði kennsla og verkleg
þjálfun. Að sögn Jakobs er námið
eingöngu ætlað þeim sem þegar hafa
lokið háskólaprófi, a.m.k. BS-prófi, á
einhverju sviði sjávarútvegsfræða.
Nemendur, sem fyrst um sinn verða
í hæsta lagi átta talsins, verða valdir
með tilliti til þess að þjálfun þeirra
hér á landi muni koma að notum
þegar þeh- snúa heim aftur. Jakob
tekur fram að þó að skólinn muni
hafa aðsetur hjá Hafrannsóknastofn-
un, lúti námið ekki eingöngu að haf-
rannsóknum heldur einnig að út-
gerðarstjórn og hvers konar sjávar-
úfyegsfræðum.
I stjórn skólans sitja, auk Jakobs,
Björn Dagbjartsson, Guðbrandur
Sigurðsson, Guðnín Pétursdóttir,
Hjörleifur Einarsson og Jón Þórðar-
son.
Bifreið
valt á
Grinda-
víkurvegi
BÍLL valt við Melhól á
Grindavíkurvegi, skammt
norðan við bæinn í gærmorg-
un. Hálka og ísing var á veg-
inum.
Hjón með tvö börn voru í
bílnum og hlutu þau minni
háttar meiðsli og fór því betur
en á horfðist, að sögn lögregl-
unnar í Grindavík.
Reykjavfk
menningarborg
Nýr stjórn-
andi ráðinn
ÞÓRUNN Sigurðardóttir leikstjóri
hefur verið ráðin stjórnandi verkefn-
isins „Reykjavík - menningarborg
Evrópu árið 2000“, en Þorgeir Ólafs-
son listfræðingur hefur látið af störf-
um.
Þórunn útskrifaðist sem leikari ár-
ið 1967 og var við framhaldsnám í
Stokkhólmi
1970-71. Hún
hefur síðan unn-
ið sem leikari,
leikstjóri og leik-
ritahöfundur hjá
Leikfélagi
Reykjavíkur,
Þjóðleikhúsinu,
Sjónvarpinu,
Ríkisútvarpinu
og víðar. Þórunn
var blaðamaður
á Vísi og síðar Þjóðviljanum um ára-
bil og fararstjóri á Spáni sumrin
1987-89. Hún hefur kennt við Fóst-
urskólann, Kennaraháskóla Islands
og Leiklistarskóla Islands. Þórunn
átti sæti í þjóðhátíðarnefnd
1978-83, var í ritstjórn Nordic
Theatre Review, fulltrúi Islands í
Norræna leikstjóraráðinu og for-
maður barnamenningarnefndar
menntamálaráðuneytisins 1989-91.
Hún var verkefnastjóri hjá Barna-
heillum árið 1996 og hefur séð um
útvarps- og sjónvarpsþætti, ráð-
stefnur, afmælishald og hátíðahöld
af ýmsu tagi. Loks var Þórunn vara-
formaður framkvæmdastjómar
Listahátíðar í Reykjavík 1996 og for-
maður frá hausti 1996.
--------------
Borgarráð
Lagst gegn
nýjum
tekjuskatti
BORGARRÁÐ leggst alfarið gegn
samþykkt frumvarps til nýrra laga
um tekju- og eignarskatt en í um-
sögn borgarlögmanns kemur fram
að samkvæmt frumvarpinu þyrfti
borgarsjóður að greiða um 372 millj-
ónir í eignarskatt. Ljóst sé að slíkum
álögum yrði að mæta með beinni
skattheimtu sveitarfélagsins, að mati
borgarlögmanns.
í umsögninni kemur fram að eign-
ir borgarinnar séu fyrst og fremst
tilkomnar vegna lögbundinna verk-
efna sveitarfélaga og að verulegur
hluti eigna borgarsjóðs sé lóðir sem
borgin leigir borgurunum en lóðar-
matið sé jafnframt eignarskattsstofn
hjá einstaklingum og fyrirtækjum.
Þá segir að samkvæmt samstæðu-
reikningi borgarinnar sé nettóeign
106,4 milljarðar. Miðað við 0,35%
eignarskatt sem frumvarpið gerir
ráð fyrir þyrftu borgarsjóður, stofn-
anir hans og fyrirtæki að greiða um
372 milljónir í eignarskatt. Ljóst sé
að slíkum álögum yrði að mæta með
beinni skattheimtu sveitarfélagsins.
Þórunn
Sigurðardóttir
„uCeinnig að skrö sænska keanitolu
nóttakanda.
leyfilegt verðmœti er misjafnt eftir
stöðum:
Til Árósa - 360 danskar krónur fynr
hverja sendingu-
►Til Kaupmannahafnar - engin
ákveðin upphæð.
skrifa skal fjölda fjölskyldumeðhma
utan á kassann.
*Til Fredrikstad - 200 norskar krónur
fyrir hverja sendingu.
yá-Til íslands - allt að 3-000 kr.
(eða 33 SDRJ-
Áríðandi er að pökkum sé skilað til vöruafgreiðslu í
viðkomandi höfn a.m.k. 2 dögum fyrir brottför skips.
Afhendingarstaður
Útflutningur - Sundahöfn, hlið nr. 2.
Tekið verður á móti pökkum 28. nóvember, 1. og 2. desember
frá kl. 10.00 til 14.00. Brúarfoss fer frá Reykjavík 5. desember 1997.
Komudagar: Árósar-10. des.
Kaupmannahöfn - ll.des.
Helsingborg -11. des.
Gautaborg - 12.des.
Fredrikstad - 12.des.
Látið móttakendur vita um komudag skips
því sækja þarf pakka þann dag í samráði við skrifstofu eða
umboðsmann Eimskips í viðkomandi iandi.
Frá Norðurlöndiim til íslands
Brottför skipsfrá:
Árósum - 10. des. • DFDS, sími 89 347474
Kaupmannahöfn -11. des. • DFDS, sími 43 203040
Helsingborg - 11. des. • Anderson Shipping, sími 42 175500
Gautaborg - 12.des. • Eimskip Svíþjóð, sími 31 7224545
Fredrikstad - 12. des. • Anderson & Morck, sími 69 358500
Komudagur til Reykjavíkur -17. des.
Nánari upplýsingar veita Viðskiptaþjónusta
Eimskips í Sundakletti, sími 525 7700,
láx 525 7709 og skrifstofur Eimskips erlendis.
EIMSKIP