Morgunblaðið - 19.11.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 21
LISTIR
Kolaport mynd-
listarinnar
MYNPLIST
Hafnarhúsið
MYNDLIST ‘97
Opin frá kl. 10-24 til 23. nóvember.
Aðgangseyrir 100 kr.
SÚ óvenjulega staða er komin upp
að hægt er að sjá hátt í 500 listaverk
eftir um það bii 140 listamenn á
þremur samsýningum á sama tíma.
Þarna hlýtur að vera samankominn
stór hluti af starfandi listamönnum í
dag, þannig að það gefst einstakt
tækifæri til að gleypa væna sneið af
íslensku myndlistai’lífi í sig í einum,
eða réttara sagt þremur, bitum. Sýn-
ingai-nar sem hér um ræðir eru sam-
sýning Félags íslenskra myndlistar-
manna í Ásmundarsal, með 167 verk,
haustsýning Listaskálans i Hvera-
gerði með 58 verk, en sýningin sem
slær allt út er „Myndlist ‘97“ í Hafn-
arhúsinu, sem tímaritið Fjölnir
stendur að. Þar eru svo mörg lista-
verk til sýnis að varla verður tölu á
komið, og engin listaverkaski-á fyrir-
liggjandi, en þau munu vera einhvers
staðar á bilinu 250 til 300. Nú er
tækifæri fyrir þá sem hafa ekki ráð-
rúm eða áhuga á að þeytast milli
sýningarsala, en vilja fylgjast með,
að afgreiða íslenskt listalíf á einu
bretti.
Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri
Fjölnis, hefur fengið Hannes Sigurðs-
son listfræðing (einnig titlaður stjóm-
arformaður menningarverktakafyiir-
tækisins art.is), til að smala saman
aragrúa listamanna á sýningu, sem á
greinilega að vera nokkurs konar
kynning á nýútkomnu hefti tímarits-
ins Fjölnis og vettvangur fyrir fundi,
þai’ sem tekin verða fyrir brýn mál-
efni í menningarlífinu. Og það er ekki
að spyrja að því, listamenn hafa svar-
að kallinu og mætt á staðinn með
myndir sínai'.
Eitthvað stórt og nógu mikið
Hér hefur dagskipunin verið sú
sama og á tímaritinu: eitthvað stórt
og nógu mikið af því. Salarkynnin í
Hafnarhúsinu þar sem sýningin fer
fram voru áður gallerí og sýningar-
salur, en eru nú einungis í láni í tak-
markaðan tíma. Salirnir tveir eru
nokkuð rúmgóðir og hátt til lofts,
það er að segja fyrir svona meðal-
sýningu, en 75 listamenn kæmust
varla fyrir þótt þeir stæðu öxl í öxl
upp við veggina. En sýningarstjór-
arnh' hafa ekki látið plássleysi aftra
sér og notfært lofthæðina með því að
stafla myndum frá gólfi, bókstaflega,
og upp í loft, í u.þ.b. fimm metra
hæð. Vegna tímaskorts hefur ekki
gefist ráðrúm til annars en að pússla
myndunum á veggina þannig að allar
kæmust fyrh'. Öllu ægir saman og
verk einstakra listamanna eru dreifð
um salina, ýmist niðri við gólf eða
upp undir loft.
Útkoman er skelfileg, ef miðað er
við eðlilegt sýningarhald, eins og við
eigum að venjast. En samt sem áður
er sýning sem slík hin besta
skemmtun, ef ekki beinlínis fyndin.
Það er gengið svo langt að það verð-
ur nánast kómískt. Enda ríkti kar-
neval-stemmning á opnunardaginn
og sýningarstjórarnir og listamenn-
irnir virtust skemmta sér hið besta.
Mest kemur þó á óvart að innan um
eru listamenn sem maður veit að eru
vandfýsnir þegar kemur að sýning-
araðstöðu og uppsetningu verka, en
líklega hafa þeir engu ráðið. Manni
varð ekki um sel t.d. að sjá málverki
eftir Georg Guðna smellt niður við
steingólfið eins og sóplista. Ef lista-
mennimir vissu ekki hvernig farið
yrði með verk þeirra þá er það
slæmt, en ef það var með þeirra
samþykki þá vekur það spurningar
og heilabrot. Er þeim svo umhugað
um að vera ekki skildir útundan að
þeir eru tilbúnir að láta hvað sem er
yfir verk sín ganga?
En það er ekki eins og uppheng-
ingin hafi verið gerð fyrir einhver
„SÆTAR konur“ matreiddar af Gjörningaklúbbnum.
mistök eða vangá. Sýningunni sem
slíkri er ætlað að tala til okkar og
senda okkur skilaboð. Umgjörðin öll
er vísvitandi and-stofnanaleg, líklega
til að gefa þá mynd af Fjölni og að-
standendum þess að þeir séu hið
sanna mótvægi við rótgrónar stofn-
anir, hin gagnrýna andstaða innan
menningarlífsins, lifandi afl. Ekkert
gallerísnobb og fólsk upphafning á
listinni. I staðinn fyrir auða (og
dauða) hvíta veggi galleríanna, þá
eru hér troðfullir (og iðandi) svai'tir
veggir. Sýningin á að senda þau
skilaboð að allh- listamenn standa
með timaritinu Fjölni og það endur-
spegli viðhorf þeirra. Að sjálfsögðu
er sýningargestum boðið að kaupa
ritið á leiðinni út.
Eitt vekur sérstaka eftirtekt og
hlýtur að teljast nýlunda á íslenskum
myndlistarvettvangi, en það eru hin-
ir nútímalegu viðskiptahættir sem
Fjölnismenn hafa innleitt. Á litla
hvíta miðanum sem merkir hvert
verk er að finna upplýsingar um
nafn höfundar, titil verks og verð
verksins miðað við staðgreiðslu. Þar
fyrir neðan á miðanum koma fram
upplýsingar um hverjar væru mán-
aðarlegar afborganir af verkinu, ef
greitt væri með raðgreiðslum Visa.
Hugmyndin er sú að listamenn muni
komast í betra samband við banka-
reikninga landsmanna ef fólki verði
gefinn kostur á hentugu greiðslufyr-
irkomulagi. Kannski er þetta aðeins
byrjunin á nútímalegum viðskipta-
háttum í listalífinu, næst fáum við að
sjá „sprengitilboð" og „keyptu tvö og
fáðu eitt ókeypis". Hvort hér sé
komin lausnin á vanda listamanna,
skal ég ekki segja, en ég efast um að
þetta sé lausnin á vanda galleríanna,
sem Hannes Sigurðsson gerði að
umtalsefni í blaðaviðtali í síðustu
viku. En viðskipti eru viðskipti, og
sala er sala, þannig að þessi umræða
á frekar heima á viðskiptasíðunum
en í myndlistargagnrýni.
Ótrulega breiður
hópur listamanna
Hvað er að segja um einstaka
listamenn og einstök verk? Helst
vildi ég ekki gera neinum þann óleik
að dæma verk hans af þessari sýn-
ingu, enda er sýningin sett þannig
fram að einstök verk mega sín lítils,
heildin og magnið eru aðalatriðin.
Ef litið er yfir skarann þá verður
að segja Hannesi Sigurðssyni til
hróss að honum hafi tekist af stefna
saman ótrúlega breiðum hópi lista-
manna. Hér eru samankomnir nýút-
skrifaðir, ungir listamenn (eins og
lesendur taka eftir er ég að reyna, á
frekar klaufalegan hátt, að forðast
að nota orðskrípið ,,listspíra“), sem
enginn þekkir, og öðlingar (frekar en
öldungar) íslenski-ar myndlistar,
þeir Kristján Davíðsson og Haf-
steinn Austmann. Þarna inn á milli
er að finna, liggur mér við að segja,
rjómann af íslenskum myndlistar-
mönnúm.
Þeir yngstu og
óþekktustu
Sá hópur sem vakti mesta athygli
mína og forvitni voru þeir yngstu og
óþekktustu. Þeir falla líka einna best
inn í stemmninguna. Gjörninga-
klúbburinn (The Icelandic Love
Corp.) sýnir ljósmyndir af kven-
mannslíkama, fagurlega og girnilega
tilreiddum sem brauðtertu, rjóma-
tertu og súkkilaðitertu. Egill Sæ-
björnsson sýnir skemmtilega ljós-
myndaséríu af „tindáta“ dansandi á
borði innan um borðbúnað. Gabríella
Friðriksdóttir er með verk sem21
heitir „Alví.s“ og er eins og lítil altar-
istafla í laginu eins og skráargat. Svo
má benda á hreinlætis- og þrifnaðar-
myndir Hlínar Gylfadóttur og æp-
andi bleikar og stelpulegar myndir
Halldóru Emilsdóttur. Það má
einnig benda á ljósmyndaverk eftir
Ósk Vilhjálmsdóttur og þrjár stórar
ljósmyndir eftir Spessa, sem allar
heita „Maður“, taka sig vel út í þessu
samhengi. Það myndi æra óstöðugan
að halda upptalningunni áfram og til
lítils að fara út í greiningu á einstök-
um verkum, enda má segja að
stjarna sýningarinnar sé sýningin
sjálf, hún stelur senunni.
Þótt sýningin sé lítið skárri en
hræðileg, er óhætt að hvetja fólk til
að sjá „Myndlist ‘97“, því það getur
áreiðanlega haft gaman af og annað
eins á ekki eftir að sjást um ófyrir-
sjáanlega framtíð.
Gunnar J. Árnason
Með góðu fólki
BOKMEJVJVTIR
Endurininningar
GÓÐRA VINA FUNDUR
Minningar Kristins Hallssonar söngv-
ara eftir Pál Kristin Pálsson. 311 bls.
Útg. Forlagið. Prentun: Grafík hf.
Reykjavík, 1997.
ÞEGAR ég hugsa aft-
ur til æskuáranna
finnst mér sem alltaf
hafi verið sólskin og
blíða á sumrin _ og
mátulegur snjór á vet-
uma, segir Kristinn
Hallsson.
Hann ólst upp í
Reykjavík. Kreppa lá
þá í landi. En fjöl-
skyldan var vel stæð;
átti t.d. eiginn bíl sem
hvergi var títt í þá
daga. Vinir og ætting-
ar vora líka vel meg-
andi. Söngur og glað-
værð setti svip á heim-
ilislífið. Skuggar
kreppunnar sýnast lítt
hafa komið fyrir augu
drengsins. Daglega líf-
ið leið átaka- og mis-
fellulaust. Þegar blíðri
bernsku sleppti tók við
nám í Verslunarskól-
anum, síðan söngnám
erlendis. Eftir að
Kristinn sneri heim að
námi loknu hófst tón-
listarferill sem lengi
varaði. Merkastur er
sá hluti ritsins þar sem
hann segir fi-á þeim
kapítula ævi sinnar.
Athyglisverðar era
einkum frásagnir Kristins af kynn
um hans við aðra listamenn sem
eðli málsins samkvæmt hlutu að
verða bæði langæ og náin. Fátt var
um störf erlendis. En ný tækifæri
buðust hér heima.
Manni skilst að þónokkur vakn-
ing hafi orðið í tónlistarlífínu um
það leyti sem Kristinn hafði lokið
námi. Ungum einsöngvuram fór
fjölgandi. Með þeim tókst sam-
staða og samkennd sem létti þeim
lífið og sætti þá við misjafnar að-
stæður.
Þótt Kristinn skrásetji ekki
þessa sögu sína sjálfur segir hann
frá í fyrstu persónu. Frásögnin er
misfellulaus og notaleg en ekki
sérlega tilþrifamikil. Sums staðar
er frásögnin krydduð með saklaus-
um gamansögum af persónum og
atburðum. Þess háttar léttleiki
nýtur sín vel á góðri stund í glaðra
vina hópi þar sem áheyrendur eru
kunnugir bæði mönnum og mála-
vöxtum. En í þöglum texta þar
sem enginn er til að hlæja og eng-
inn til að taka undir er eins og
gamanið missi lit og líf.
Inn á milli kaflanna er svo skotið
stuttum þáttum þar sem aðrir
listamenn og fleiri segja frá kynn-
Páll Kristinn
Pálsson
Kristinn
Ilallsson
um sínum af Ki-istni jafnframt því
sem þeir láta í ljós álit sitt á
frammistöðu hans. Vera má að
slíkt þyki við hæfi þar sem þekktur
maður á í hlut. Undirritaður verð-
ur þó að vera á annarri skoðun; tel-
ur að skrif af því taginu _ lofsam-
leg að sjálfsögðu _ eigi heima í
minningarriti en tæpast í ævisögu.
Áhugamenn um tón-
listarmál munu vafa-
laust fagna þessum
endurminningum.
Þama koma fyrir nöfn
flestra sem nærri tón-
listarmálum hafa kom-
ið síðustu áratugina.
Sjálfur hefur sögumað-
ur um langa hríð sett
svip sinn á lista- og
skemmtanalífið í höf-
uðstaðnum.
I dómum sínum um
menn og málefni er
Kristinn bæði orðvar
og umtalsgóður. Að
mati undirritaðs hefði
hann sums staðar mátt
segja meira; taka dýpra
í árinni. Allt er þarna
slétt og fellt; vinir
gleðjast, vor kemur á
eftir vetri hverjum,
dæmin ganga upp; eng-
in átök og spenna til að
halda vöku fyrir les-
andanum. Sem sagt:
Geðfelld bók en ekki
mikil á dýptina. At-
hugasemdin um sól-
skinið og góða veðrið í
upphafi segir þannig
útþrykkilega fyiir um
það sem á eftir kemur.
Erlendur Jónsson
Aðalfundur L.Í.V. Reykjavík
verður haldinn í Lundey Hótel Esju miðvikudaginn
19. nóvember 1997 kl. 20.00.
Allir áhugasamir vélsleðamenn
og aðrir snjókarlar eru hvattir
til að mæta. Veitingar í boði
félagsins.
íV. Reykjavík
BANDARIKIN
401
hver mínúta
á nætur- og
kvöldtaxta
POSTUR OG SIMI