Morgunblaðið - 19.11.1997, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.11.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ _________________________________________MIBVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 27 BLAÐAMANNAFÉLAG ÍSLANDS ALDARGAMALT ég ekki betur séð en það væri al- menn ánægja í félaginu með hvern- ig okkur hefði miðað og að við vær- um á réttri leið. Blaðamannafélagið verður aldrei sterkara fagfélag og stéttarfélag en þátttaka félaga í starfinu gefur til kynna. Það sem hefur verið að breytast er að fag- legi áhuginn hefur stóraukist á síð- ustu árum. Síðustu 1-2 áratugi hefur verið að koma ný kynslóð í þessa stétt sem ætlar að gera þetta að ævistarfi. Það er breyting frá því sem var þegar minnihluti blaða- manna entist lengi í starfi. Þessi þróun kallar á breyttar áherslur innan félagsins og kröfur um meira starf á faglegum nótum. Það má segja að áður hafi fag- lega starfið fyrst og fremst snúið að því sem snerti siðamál. Um miðjan síðasta áratug opnaði Blaðamanna- félagið allt, sem sneri að siðaregl- um sínum og starfi siðanefndar, upp á gátt. Það var á þeim forsend- um að fyrst blaðamenn væru að gera kröfur um upplýsingar út í samfélagið ætti að gera sömu kröf- ur til þeirra sjálfra. Mér hefur hins vegar þótt miður að aðrar starfs- stétth- hafa ekki fylgt okkar frum- kvæði í þessum efnum. Upplýsingalög Svipaðar áherslur félagsins hafa endurspeglast í samskiptum við stjórnsýsluna hér á landi, sem var lengi á eftir tímanum. Nútímaleg stjórnsýslulög voru fyrst sett hér á landi fyrir fáeinum árum. Núna er ekki liðið eitt ár frá því að sett voru upplýsingalög. Það var tímamóta lagasetning, sem hafði verið bar- áttumál í hátt í tvo áratugi. Eg segi hiklaust að Blaðamannafélagið hafi átt stóran hlut í því að sú lagasetn- ing varð með þeim hætti sem raun bar vitni.“ - Þú nefnclir að stjórnsýski á Is- landi hefði veríð sein að tileinka sér nútímalegar áherslur. Hvað með fjölmiðla? Standa jieir undir því hlutverki að vera fjórða afl ríkis- valdsins? „Eg svara því hiklaust játandi. Auðvitað fer ekki hjá því að mönn- um mislíki eitt og annað og auðvit- að er stundum eitthvað til í því að menn mættu gera betur. En ég held að allir þeir sem með sann- girni skoða íslenska fjölmiðlun og bera saman við það sem gerist, úti í heimi og í löndunum í kring, þurfi ekki að velta hlutunum lengi fyrir sér áður en þeir viðurkenni að fjöl- miðlar hér á landi standa mjög framarlega. Við erum með vel menntað og hæft fólk og góða rit- og fréttastýringu hvort heldur er í dagblöðum eða ljósvökum. Við höfum ákveðin séi-kenni í okkar fjölmiðlum sem stafa af því umhverfi sem störfum í. Nálægðin í fámenninu skapar vanda vegna kunningjasamfélagsins. Þar held ég að fjölmiðlar hafi upp til hópa stað- ið í stykkinu. Það er líka vandi í fá- menninu að fara með viðkvæm mál en það er ekki síst í þeim efnum sem ég tel að íslenskir fjölmiðlar vinni af heilindum og heiðarleika. En talandi um það, sem betur má fara, hefur vandinn verið skortur á tíma og mannafla. Við erum með fáa fjölmiðla sem standa undir nafni og geta leyft sér að vinna að málum með þeim hætti sem menn helst vildu og jafnvel þeim, sem best standa, tekst það ekki alltaf. Tímapressan, sem hefur fylgt þessu starfi, streita og álag; hefur ekki farið minnkandi. I við- horfskönnuninni kvörtuðu blaða- menn undan því að fá ekki þann tíma sem þeir þyrftu til að vinna að málum og taka á hlutum sem ekki eru teknir fyrir. Þetta er hlutur sem menn þurfa að horfast í augu við og reyna að vinna sig út úr.“ Fjórða aflið ekki það veikasta Varðandi spurninguna um fjórða aflið segir Lúðvík að íslenskir fjöl- miðlar standi síður en svo verr í al- þjóðlegum samanburði en hinir þrír formlegu og hefðbundnu þættir rík- isvaldsins, þ.e. dómstólar, löggjaf- arvald og stjórnsýsla. „Ef nokkuð er, eru fjölmiðlar að mörgu leyti á undan,“ segir hann. - Þegar þú lítur yfir 100 ára sögu Blaðamannafélagsins, hvað telurþú að berí hæst? „A seinni árum hugsa ég að það hafi borið hæst í sögu félagsins að það festi rætur og hefur orðið að al- vöru hagsmuna- og fagfélagi. Það eru ekki nema liðlega tveir áratugir síðan það gerðist að við eignuðumst okkar eigið húsnæði, réðum starfs- mann og það kom festa í alla starf- semina, sem ég held að hafi ráðið miklu um styrk og stöðu félagsins út í frá. Stoð og stytta í starfi fé- lagsins hefur síðan verið Fríða Björnsdóttir, fyrsti starfsmaður fé- lagsins og núverandi framkvæmda- stjóri. Hún hefur að mestu verið með þennan rekstur og umsýslu á sinni könnu þótt aðrir hafi verið í sviðsljósinu.“ Ritstjóri í önnum VALTÝR Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, við vinnu sína ásamt starfsstúlku á bókhaldi blaðsins, Gyðu Einarsdóttur. Myndin er að öllum líkindum tekin um eða eftir 1936. sjónannið varð ofan á innan félags- ins að blaðamenn gætu ekki gert kröfu um opna stjórnsýslu og al- mennt upplýsingaflæði ef þeir væru ekki sjálfir tilbúnir til að segja frá eigin málum. Nú náðu siðareglur til allra, líka lausamanna og starfsmanna RÚV en ekki aðeins blaðamanna í föstu starfi á dagblöðum. Nýr kafli fjall- aði um hagsmunaárekstur í starfi og þeim sem fengu úrskurð um mjög alvarlegt brot var gert að birta úrskurðinn í heild í eigin fjöl- miðli. Siðareglum sínum breyttu blaða- menn síðast árið 1991, m.a. í þá átt að nefndin taki ekki mál til með- ferðar nema kærandi hafi áður leit- að leiðréttingar mála sinna hjá þeim miðli sem í hlut á. Einnig hefur siðanefndin sett sér starfsreglur. Þar er greint frá því hvaða kröfur eru gerðar til kærenda um fram- setningu máls og eftir hvaða reglum nefndin starfar við úrlausn kæru- mála. Siðanefndin starfar sjálfstætt og óháð stjórn Blaðamannafélagsins og starfi félagsins að öðru leyti en því að BÍ stendur straum af kostnaði við starf nefndarinnar. Siðanefndin er skipuð fimm mönnum. Þrír eru kjörnir á aðalfundi BÍ, einn er til- nefndur af heimspekideildar Há- skóla Islands og einn er fulltrúi út- gefenda. Undanfarin ár hefur nefndin fengið til meðhöndlunar á annan tug mála árlega. Núverandi formaður siðanefndar er Þorsteinn Gylfason, prófessor. Siðareg’lur Blaðamanna- félags Islands Hér fara á eftir gildandi siðareglur Blaða- mannafélags íslands. Þær voru samþykktar á aðalfundi félagsins árið 1991. „I starfi sínu hafa blaðamenn allra fjölmiðla jafnan í huga gi-undvallarreglur mannlegra samskipta og rétt almennings til upplýsinga, tjáningarfrelsis og gagnrýni. 1. grein. Blaðamaður leitast við að gera ekk- ert það, sem til vanvirðu má telja fyrir sétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit al- mennings á starfi blaðamanns eða skert hags- muni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfé- laga. 2. grein. Blaðamanni er ljós persónuleg ábyrgð á öllu sem hann skrifar. Hann hefur í huga að almennt er litið á hann sem blaðamann þó að hann komi fram utan síns eiginlega starfssviðs, í riti eða ræðu. Blaðamaður virðir nauðsynlegan trúnað við heimildarmenn sína. 3. grein. Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur sak- lausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu. 4. grein. Það telst mjög alvarlegt brot þiggi blaðmaður mútur eða hafi í hótunum vegna birtingar efnis. Blaðamenn skulu hafa ríkt í huga hvenær almennt öryggi borgaranna, sér- staklega hagsmunir almennings eða almanna- heill ki-efst nafnbirtingar. f frásögnum af dóms- og refismálum skulu blaðamenn virða þá meg- inreglu laga að hver maður er talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð. 5. grein. Blaðamaður varast að lenda í hags- munaágreiningi, til dæmis með því að flytja fréttir eða frásagnir af fyrirtækjum eða hags- munasamtökum þar sem hann á sjálfur aðild. Hann skal fyrst og síðast gæta hagsmuna les- enda og sóma blaðamannastéttarinnar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur í nafni starfs síns. Blaðamaður hefur í skrifum sínum sannfæringu sína að leiðarljósi. Hann gætir þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi, og auglýsingum í myndum og/eða máli. Siða- reglur þessar setja ekki hömlur á tjáningar- frelsi blaðamanna sem skrifa undir fullu nafni afmarkaða þætti í fjölmiðlum, til dæmis gagn- rýni, þar sem persónulegar skoðanir höfundar eru í fyrirrúmi. 6. grein. Hver sá sem telur að blaðamaður hafi brotið framangreindar reglur og á hags- muna að gæta, getur kært ætlað brot til Siða- nefndar BÍ innan 2ja mánaða frá birtingu enda sé mál vegna birtingarinnar ekki rekið fyrir al- mennum dómstólum á sama tíma. Áður skal hann þó leita undanþágu frá leiðréttingarkröf- um vegna annarra aðstæðna. Siðanefndin tekur kæruna fyrir á fundi innan viku og kveður upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er. Taki Siðanefnd kærumál til efnislegrar athug- unar skal hún kanna heildarumfjöllun um málið á hinum kærða fjölmiðli. Kærða skal gefinn kostur á að gera grein fyi-ir sjónarmiði sínu. Siðanefnd greinir brot í flokka eftir eðli þein-a: a) ámælisvert b) alvarlegt c) mjög alvarlegt Úr- skurði Siðanefndar verður ekki áftýjað. Úr- skurð Siðanefndar ásamt rökstuðningi skal birta í heild í Félagstíðindum BÍ svo fljótt sem verða má. Úrskurð Siðanefndar skal senda við- komandi fjölmiðli \ið fyrstu hentugleika og með ósk um birtingu ef um brot samkv. skilgrein- ingu b) og c) er að ræða. Þremur dögum seinna skal senda úrskurðinn öðrum fjölmiðlum. Meg- inniðurstaða nefndarinnar skal birt orðrétt. Við framsetningu fréttar af úrskurðum Siðanefndar sýna blaðamenn alla þá aðgát sem reglur þess- ar ætlast til sbr. 1. og 2. grein að framan. Nú telur stjórn BÍ að gengnum úrskurði Siða- nefndar að brot sé svo alvarlegt að frekari ráð- stafana sé þörf og getur hún þá borið undir fé- lagsfund tillögu um vítur á viðkomandi blaða- mann enda sé þeirrar ætlunar getið í fundar- boði. Nú bera ummæli ekki með sér hver sé höfundur þeirra eða viðkomandi blaðamaður er utan BI og gengur þá úrskurður svo sem rit- stjóri og/eða ábjTgðarmaður eigi beina aðild að. Þótt enginn þessai'a aðila sé í BÍ getur Siða- nefnd allt að einu lagt fram rökstutt álit um kæruefni."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.