Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 39

Morgunblaðið - 19.11.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997 39 MINNINGAR HA UKUR ÞOR STEINSSON + Haukur Þorsteinsson fædd- ist á Höfðabrekku í Mýrdal 23. september 1923. Hann and- aðist á heimili sínu 6. nóvember síðastliðinn og fór útför hans rram 18. nóvember. „Deyr fé/deyja frændur/en orðstír deyr aldregi/hveim er sér góðan getur,“ og nú ert þú kæri bróðir allur og farinn yfír móðuna miklu, þá hinstu ferð sem við förum öll að lokum. Mikill er söknuður okkar systkina Hauks, barna hans og barnabarna og annarra ættingja. Alltaf kemur hann okkur að óvörum, dauðinn, og alltaf er jafn erfitt að sætta sig við hann. Við vonuðum öll að ný meðul mundu breyta einhveiju, þó svo að reikna mætti alltaf með þessum endalokum. Allir ættingjar vonuðu að Haukur ætti einhver ár eftir, hann átti svo margt ógert að honum fannst og hann átti svo mörg áhuga- mál að vinna að og kannske tekur einhver við því sem honum fannst ógert á kotinu í Landeyjunum. Haukur lærði rafvirkjun og byij- aði ungur að vinna við það og fleira í Hólmi í Landbroti hjá Bjarna Run- ólfssyni meðan hans naut við og síð- an hjá Eiríki Hjartarsyni og í Iðnskó- lanum í Reykjavík og hann vann síðan í einhver ár hjá Halldóri Ólafs- syni á Rauðarárstíg uns hann stofn- aði eigið fyrirtæki ásamt Ólafi K. Sveinssyni, _ Raftækjavinnustofu Hauks og Ólafs 1949. Um svipað leyti hefja þau búskap Haukur og Kristín Öttósdóttir frá Eyrarbakka. Börn þeirra eru: María (ættleidd), f. 1946, Þorsteinn, f. 1949, og Val- gerður, f. 1955. Kristín lést 1990 og er grafin að Breiðabólstað í Fljótshlíð þar sem Haukur verður nú grafinn. Það var mikið gæfuspor hjá þeim báðum Hauki og Ólafi og öll þeirra samvinna og samstarf eru mörgum ógleymanleg. Ólafur lést 1988 og er grafinn að Breiðabólstað þar sem þeir munu nú báðir hvíla. Haukur var mikill áhugamaður um laxveiðar og laxarækt ásamt mörgu öðru og mikið starf unnu þeir saman Gísli Sveinsson og Haukur í Vatnsánni í Heiðardalnum og síðar í Landeyjun- um á Ytri Hól. Þeir áttu margar góðar stundir með fjölskyldum, og einir, í Heiðardalnum og í Landeyj- unum. Það er ómetanleg aðstoðin og hjálpin sem Gísli veitti Hauki seinni árin á Ytri-Hól og hann á miklar þakkir fyrir alla þá hjálpsemi. Nú þegar að ævikvöldi er komið þá viijum við systkini Hauks kveðja hann með þessum fátæklegu línum. Farðu vel bróðir og vinur og megi guðs blessun fylgja þér og þínum um ókomna tíð. Systkini. Nú hafa orðið mikil straumhvörf í lífi okkar. Traustur vinur og frændi er fallinn frá. Haukur Þorsteinsson var maður athafna og áræðis. Hann hafði mikið gaman af útiveru og unni náttúrufegurð. Fiskveiðar voru honum alltaf í huga, svo og fiski- rækt. Nú á seinni árum sóttu sjúk- dómar hart að honum en aldrei gaf hann upp vonina og barðist ótrauður áfram að áhugamálum sínum allt fram undir það síðasta. Hann mun aldrei gleymast úr huga mínum. Guðlaugur M. Helgason. • • • • sœtir sófar- HÚSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 Gœðavara GjafdVdia — matai og kaffistell. Heim Allii verðfiokkar. m.a. ( yjé,v)g//X\\\A- ; VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versate. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við frá- fall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, PÁLFRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Ásgarði 157, Reykjavík. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á hjúkrun- ardeild Vífilsstaðaspítala. Garðar Steinþórsson, Ólaffa Helga Stígsdóttir, Hrönn Baldursdóttir, Vigfús Jónsson, Gunnar Steinþórsson, Guðrún Antonsdóttir, Guðmundur Þór Steinþórsson, Guðný Þorvaldsdóttir, Davíð Steinþórsson, Ragnheiður Erlendsdóttir, Þröstur Steinþórsson, Margrét Benjamínsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför SÍMONAR JÓNSSONAR, Sólheimum 23, Reykjavík. Sigurður Ó. Jónsson, Anna K. Linnet, Jóhanna G. Jónsdóttir, Ólafur Maríusson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning(a>mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. R A e A U GLÝBINGA ATVINNU- AUG LÝ 5INGAR Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Kennara vantar í MH á vorönn 1998 Kennara vantar í tölvufræði og til að hafa umsjón með tölvuneti skólans. Stundakennara vantar í stærðfræði. Stundakennara vantar í leiklist. Nánari upplýsingar veitir rektor. Umsóknir skulu berast til rektors fyrir 1. desember 1997. ÝMISLEGT Óskum eftir fjársterkum aðilum sem vilja fjárfesta í arðbærum fjárfest- ingum. Til samstarfs við aðila í sérhæfðum viðskiptum með góða aðstöðu og þekkingu. Gagnkvæmur trúnaður skilyrði. Nánari upplýsingarsendisttil afgreiðslu Mbl., merktar: „Hagnaður — 2811". NAUÐUNGARSALA Uppboð á lausafjármunum Eftirtaldir lausaf jármunir verða boðnir upp við lögreglustöðina, Vesturgötu 17, Olafsfirði, föstudaginn 28. nóvember kl. 14.00: JO 596 Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. Ólafsfirði, 19. nóvember 1997. Sýslumaðurinn í Ólafsfirði. FÉLAGSSTARF Aðalfundur skíðadeildar Hauka Áður auglýstur aðalfundur skíðadeildar Hauka verður haldinn fimmtudaginn 20. nóvember kl. 20.00. Fundarstaðurer Haukahúsið, Flata- hrauni. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. TILKYNNINGAR Framsóknarflokkurinn Prófkjör vegna Reykjavíkurlistans Stjórn Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík auglýsir eftir einstaklingum, sem hafa hug á að taka þátt í prófkjöri Reykjavíkur- listansvegna komandi borgarstjórnarkosn- inga, fyrir hönd Framsóknarflokksins. Frambjóðendur verða að eiga lögheimili í Reykjavík eða á Kjalarnesi og ekki vera félagar í öðrum stjórnmálasamtökum. Framboðsfrestur rennur úr kl. 16.00 þriðjudag- inn 25. nóvember nk. Frambjóðendurskulu skila inn stuttu æviágripi og Ijósmynd til skrif- stofu Framsóknarflokksins í Hafnarstræti 20 fyrir þann tíma. 7 frambjóðendur munu verða tilnefndir af hálfu Framsóknarflokksinstil að taka þátt í prófkjöri Reykjavíkurlistans. Berist fleiri en 7 framboð mun fara fram forval á félagsfundi aðal- og varamanna Fulltrúaráðs framsóknar- félaganna í Reykjavík laugardaginn 13. desem- ber1997. Prófkjör Reykjavíkurlistans fer síðan fram 31. janúar 1998. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 562 4480. Stjórn Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna i Reykjavík. Auglýsendur athugið skilafrest! Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudag. auglýsingadeild sími 569 1111 símbréf 569 1110 netfang: augl@mbl.is Garðabær Bæjarskrifstofur Hundahreinsun Samkvæmt samþykkt um hundahald í Garða- bæ, ber hundaeigendum að mæta með hunda sína til árlegrar hreinsunar og greiða hunda- leyfisgjald. Ákveðið hefurverið að árleg hundahreinsun í Garðabæ fari fram fimmtudaginn 20. nóv. kl. 16.00—18.00 og þriðjudaginn 25. nóv. kl. 16.00-18.00. ' Hundahreinsunarmaður, Einar Guðmundsson, mun annast hundahreinsun og mun hún fara fram í áhaldahúsi bæjarins við Lyngás 18, (Gamla húsið). Fyrirkomulag hundahreinsunar verður með þeim hætti, að hundaeigendurtaka númer og koma síðan inn þegar röðin kemur að þeim. Hundaleyfisgjald hefurverið ákveðið kr. 9.500. Greiðslukortaþjónusta verður á staðnum. Þessi þjónusta verður aðeins þessa tilteknu daga. Athygli eigenda óskráðra hunda ervakin á, að færa þá til skráningar og hreinsunar. Hu ndaeftir litsmaðu r.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.