Morgunblaðið - 19.11.1997, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
MADONNA
í hlutverki
sínu sem
Evita.
Madonna í öðrum
söngleik
ÞAU Wilde og Constance höfðu eignast tvo syni þegar gestur
þeirra þvingaði Wilde til að horfast í augu við samkynhneigð sína.
►MADONNA virðist eiga níu líf
eins og kötturinn. Allavega nær hún
sér alltaf á strik og skiptir þá engu
máli hversu neikvæða umfjöllun
hún hefur fengið í fjölmiðlum.
Síðast fékk hún verðskuldað hrós
fyrir túlkun sína á Evítu eftir að
heldur hafði hallað undan fæti í tón-
listinni. Svo virðist sem aðdáendur
hennar séu tilbúnir að horfa fram-
hjá því þegar hún misstígur sig og
standi við bakið á henni gegnum
þykkt og þunnt.
Eftir að hafa farið með aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni Evítu eftir
Alan Parker stendur nú til að Ma-
donna leiki í annarri endurgerð á
öðrum vinsælum söngleik. Það er
„Chicago" sem er að gera það gott á
Broadway um þessar mundir.
Herbert Ross er líklegur leik-
stjóri, en hann byrjaði feril sinn í
kvikmyndum sem dansari. Aðal-
stjarnan verður reyndar Goldie
Hawn og hún leikur söngleikjadans-
ara sem lætur ákæra sig fyrir morð
til að fá athygli fjölmiða. Madonna
mun leika klefafélaga hennar í fang-
elsi. í önnur hlutverk koma stór-
stjörnur á borð við Rosie O’Donnell,
Kevin Kline og John Travolta til
greina.
Sagan hefur orðið öðrum inn-
blástur því tvær kvikmyndir hafa
verið gerðar eftir söngleiknum (sem
upplega var leikrit); Chicago 1927,
og síðan þekktari útgáfan „Roxie
Hart“ eftir William Wellman, sem
gerð var 1942 og Ginger Rogers lék
aðalhlutverkið í.
FULLUR sjálfs-
trausts vegna vel-
gengni sinnar
gengur Oscar
Wilde að eiga hina
fögru Constance
Lloyd.
Universily ofCalifomia, Berke
4 UNIVERSITY EXTENSION
ts' \ In Atiociatloa wilh
1 " «|a n dic Management A s s o ci|
This is ío ccríify that
has compietcd the
”Berkeley Week in Iceland” Program
Reykjavik, Icciand
Novcmber 24 - 27,1997
1. Wi4>.
l«jerB»úun»l Optfttiam
HvíUrlry WoíWwldí
Námstefna um sölustjórnun
Hverjar eru aðferðir sölumanna í þínu fyrirtæki. Eru þær úreltar?
Eru þær í stöðugri endurskoðun? Gætu þær verið betri? Hvernig stjórnar þú sölusveitinni?
Staður: Hótel Loftleiðir, Þingsalur 1.
Tími: Fimmtudagur 27. nóvember 1997,
kl. 9-17.
Uppstokkun fyrirtækja í sömu grein, grimmari
samkeppni, aukin gæðavitund viðskiptavina og
skýrari kröfur þeirra, eru allt þættir sem kalla á
stöðuga endurskoðun ALLRA þátta markaðs-
setningar. Fyrirtækið þarf að geta greint aðferðir
sem eru úr sér gengnar og kunna að leita að nýjum
leiðum til að ná betri árangri. Við slíka endur-
skoðun er oft horft framhjá stefnu og aðferðum
sþlumannanna.
Á þessari námstefnu verður fjallað um hlutverk
sölumanna við markaðsáætlun og framkvæmd
hennar. Sjónum verður beint að tvfþættu hlutverkj
þeirra, bæði sem framvörðum í að framfylgja
markaðsstefnu fyrirtækisins og sem farveginum
fyrir upplýsingar um breytingar á markaðnum.
Á námstefnunni verður einnig reynt að ákvarða
þá þætti í gerð og hegðun söluliðsins sem gefa
mesta möguleika til aukins hagnaðar, sem og
koma auga á tækifæri til að bæta frammistöðu
eða lækka sölukostnað.
Fyrir hverja:
Námstefnan er fyrir sölu- og markaðsstjóra og
stjórnendur minni fyrirtækja sem bera ábyrgð á
skipulagi söluaðferða. Umfjöllunarefnið höfðar til
allra fyrirtækja í þjónustu eða framleiðslu þar sem
framleiðni sölumanna skiptir máli.
Leiðbeinandi:
Peter C. Wilton
Dr. Peter C. Wilton kennir
vörudreifingu og stjómun við
Haas School of Business
í Berkeley. Hann hefur hlotið
fjölda viðurkenninga fyrir
störf sín á sviði stjómunar
og markaðsmála, þ.á m. frá
National Science Foundation. Hann hefur ritað
fjölda greina í þekkt tímarit, eins og
Management Science, Joumal of
Consumer Research, Journal
of Business and Economic
Statistics og The Journal of
Retailing.
Nánari upplýsingar í síma 533 4567 og www.stjornun.is
A
Stjórpunarfélag
Islands
Ath. í sömu viku: Nánistefnur um markaðssetningu á Netinu, veröákvarðanir og inntlutning/útflutning
ASTRIÐUFULLT en
stormasamt ástarsam-
bandi þeirra Wildes
og Bosies ieiddi þá að
lokum til glötunar.
KYIKMYNDIR/Laugarásbíó hefur
tekið til sýninga bresku kvikmyndina
Wilde sem fjallar um stormasamt líf
rithöfundarins Oscars Wilde.
Með hlutverk Wildes fer hinn þekkti gaman-
leikari Stephen Fry
Villtur Wilde
Negóborði
VORIÐ 1883 kom hinn írskættaði
Oscar Wilde geislandi af gleði til
London úr vel heppnaðri fyrir-
lestraferð um Bandaríkin og
Kanada sem staðið hafði í eitt ár.
Hæfileikaríkur, ástríðufullur og
sjálfumglaður gekk hann að eiga
hina fögru Constance Lloyd, og
nokkrum árum síðar voru andríki
Wildes, íburður og sköpunargáfa
á allra vitorði, og þá ekki síst eftir
að skáldsgan hans um myndina af
Dorian Grey kom út.
Wilde og Constance höfðu
eignast tvo syni þegar gestur á
heimili þeirra, hinn kanadíski Ro-
bert Ross, þvingaði Wilde til að
horfast í augu við þær samkyn-
hneigðu tilfinningar sem bærst
höfðu innra með honum allt frá
því hann var í skóla. Skáldverk
Wildes nutu umræðunnar um
samkynhneigð Wildes en í einka-
lífinu átti hann í sífelldum
árekstrum við þá andstöðu sem
ríkti í garð samkynhneigðra á
þessum tíma í Bretlandi.
Þegar leikrit Wildes, Lady
Windermere’s Fan, var frumsýnt
1892 kynntist Wilde myndarleg-
um og bráðgáfuðum háskólanema
frá Oxford. Þetta var Alfred Dou-
glas lávarður, sem í daglegu tali
var kallaður Bosie, og heillaðist
Wilde gjörsamlega af honum.
Varð þetta upphafíð að ástríðu-
fullu en stormasömu ástarsam-
bandi sem heltók þá báða og
leiddi þá að lokum til glötunar.
Með hlutverk Oscars Wilde fer
hinn þekkti leikari, grínisti og rit-
höfundur Stephen Fry, sem
reyndar hefur sjálfur nýlega op-
inberað heiminum samkynhneigð
sína í fyrsta bindi æviminninga
sem hann hefur gefíð út. Snilli
Frys varð fyrst verulega vart
þegar hann var við nám við há-
skólann í Cambridge þar sem
hann lék í meira en 30 leikritum
og auk þess hlaut hann verðlaun
á Edinborgarhátíðinni fyrir skrif
sín.
Þegar Fry var í Cambridge
starfaði hann einnig með gaman-
leikhópnum the Footlights sem
hann lagði til efni, og ekki leið á
löngu þar til BBC uppgötvaði
hæfileika unga mannsins og fyrr
en varði var hann farinn að leika í
og skrifa gamanþættina, The
Young Ones, Blackadder og síðar
A Bit of Fry and Laurie. Stephen
Fiy er sennilega hvað þekktastur
fyrir að hafa leikið þjóninn Jeeves
á móti félaga sínum Hugh Laurie
sem fór með hlutverk Berties í
sjónvarpsþáttunum Jeeves and
Wooster, sem gerðir voru eftir
sögum rithöfundarins P.G.
Woodehouse.
Fry hefur jafnframt leikið í
nokkrum kvikmyndum og meðal
þeirra eru A Handful of Dust, A
Fish Called Wanda, Peter’s Fri-
ends, Cold Comfort Farm og The
Steal. Fry hefur gefið út nokkrar
skáldsögur og er ekki langt um
liðið síðan síðasta saga hans,
Making Histoi-y, kom út.
Með hlutverk Bosies fer Jude
Law sem nýlega lauk við að leika
á móti þeim Ethan Hawke og
Umu Thurman í myndinni
Gattaca, og einnig í myndinni
Music From Another Room þar
sem hann lék á móti Jennifer
Tilly og Brendu Blethyn.
Leikstjóri Wilde er Brian Gil-
bert sem síðast gerði myndina
Tom & Viv með þeim Willem
Dafoe í hlutverki rithöfundarins
T.S. Eliot og Miröndu Richard-
son í hlutverki eiginkonu Eliots.
Myndin hlaut tvær óskarstilnefn-
ingar, tvær BAFTA tilnefningar
og eina Golden Globe tilnefningu.