Morgunblaðið - 19.11.1997, Side 56
MORGUNBLADID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI3691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkomulag sjávarútvegsráðherra og smábátaeigenda
, Bjóða endurval og
fjölgun sóknardaga
PORSTEINN Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur náð samkomulagi við
forystumenn Félags smábátaeig-
enda. Það er fólgið í frumvarpi um
breytingar á fiskveiðistjómun smá-
báta, sem felur í sér umtalsverða
fjölgun sóknardaga, kost á endurvali
á milli kerfa og áframhaldandi úreld-
ingu smábáta á sóknardagakerfi.
Eftir því, sem næst verður komist,
munu þessar breytingar ekki auka
heildarafla smábáta frá því, sem
( '*'ákveðið hefur verið á þessu ári, svo
nokkru nemi.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins áttu ráðherrann og aðstoð-
armaður hans fund með fulltrúum
Félags smábátaeigenda í fyrradag,
þar sem ráðherra kynnti þeim þau
frumvarpsdrög sem hann kvaðst
Ráðherra kynnir
stj ó r narþ ingíl o kk-
um frumvarps-
drög í dag
mundu leggja fram til kynningar í
þingflokkum stjórnarflokkanna, að
því tilskildu að félagið féllist á inni-
hald draganna.
I fyrsta lagi mun vera gert ráð
fyrir því að þeir sem eru nú á 26
daga sóknarkerfi, eigi þess kost að
sækja sjó nálægt 40 dögum á ári.
Sömuleiðis verður gefinn kostur á
því að þeir sem eru á sóknardaga-
kerfí eigi kost á endurvali og geti
skipt yfir í þorskaflahámarkskerfi.
Loks gera frumvarpsdrögin ráð fyrir
því að þeir sem eru á dagakerfi eigi
áfram kost á úreldingu, en henni
lauk í sumar, samkvæmt núgildandi
lögum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins liggur fyrir að Félag smá-
bátaeigenda mun í höfuðdráttum vera
sátt við innihald frumvarps sjávarút-
vegsráðherra, ella myndi ráðherrann
ekki kynna þingflokkum stjórnar-
flokkanna frumvarpið á þingflokks-
fundum í dag. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að miklar líkur séu á
að stjómarflokkamir muni sam-
þykkja efnisinnihald frumvarpsins,
þótt væntanlega muni það taka ein-
hverjum breytingum í meðforum
þeirra. Stefnt mun að því að frum-
varpið verði að lögum fyrir áramót.
Jóla-
stjörnur í
breiðum
ANDRÉS Úlfarsson, garð-
yrkjumaður hjá garðyrkjumið-
stöðinni Fagrahvammi í Hvera-
gerði, vökvar breiðu af jóla-
stjörnum, sem væntanlega
munu innan skamms prýða
fjölda íslenzkra heimila fyrir
jólin.
Andrés segir græðlingana
koma til landsins um mitt sum-
ar. Stundum sé erfitt að koma
þeim til, en plönturnar dafni
vel í ár.
Andrés segir að bezt sé að
vökva jólastjörnurnar „að neð-
an“, þ.e. hella vatninu ekki
beint á moldina heldur láta
rætur plöntunnar sjúga væt-
una upp. Það má til dæmis
gera með því að setja blóma-
pottinn í skál og hella vatninu í
hana.
Seðlabankinn
Vextir
hækkaðir til
að hamla
gegn þenslu
BANKASTJÓRN Seðlabankans
ákvað í gær að hækka vexti sína um
0,3 prósentustig. Með þessari
hækkun er bankinn að bregðast við
lækkandi vaxtamun gagnvart
útlöndum, horfum um aukna
verðbólgu á fyrri hluta næsta árs og
ýmsum merkjum um aukna spennu í
þjóðarbúskapnum.
„Pað eru ýmis þenslumerki sem
ástæða er til að bregðast við að
okkar mati. Við höfum til dæmis
fengið nýjar tölur yfir útlán í
bankakerfinu í október, sem eru
nokkuð háar,“ segir Birgir ísleifur
Gunnarsson seðlabankastjóri. Hann
segir að spáð sé nokkurri verðbólgu
á fyrstu mánuðum næsta árs í
kjölfar launahækkana.
■ Ýmis merki/16
Samgönguráðherra um Landsímann
Hlutafé deilt út
til landsmanna
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segir að hann telji koma til
greina að um leið og Landsíminn
verði einkavæddur verði nokkrum
hluta hlutafjárins skipt endur-
gjaldslaust milli landsmanna. Með
þessu væri hægt að tryggja dreifða
eignaraðild að Landsímanum.
Hann telur jafnframt nauðsyn-
legt að inn í fyrirtækið komi erlend-
ir samstarfsaðilar. Þetta kom fram
á fundi um einkavæðingu Pósts og
•"-Síma sem Heimdallur stóð fyrir í
gærkvöldi.
Samgönguráðherra sagði að ís-
lenska farsímafélagið ehf. tæki til
starfa fyrir páska og samkeppni
væri þegar hafin á þessum vett-
vangi. Aðaleigandi Islenska far-
símafélagsins væri bandaríska fyr-
irtækið Western Wireless
International. Fyrirtækið væri að
leita eftir hlutafé frá íslenskum
stórfyrirtækjum til þess að reyna að
tryggja sér viðskipti frá þeim til
frambúðar.
„Póstur og simi getur ekki boðið
upp á slíkt, sem setur fyrirtækið í
þrönga stöðu í viðskiptum við eftir-
sóknarverð íyrirtæki sem áhuga
hafa á að fjárfesta í fjarskiptum eða
leita eftir nánu samstarfi á þeim
vettvangi," sagði samgönguráðherra.
Ögmundur Jónasson alþingis-
maður, einn ræðumanna á fundin-
um, varaði við einkavæðingu Land-
símans og erlendri eignaraðild.
Hann sagði mikla hættu á því að
eignarhaldið, arðurinn og valdið yfir
starfseminni færðist úr landi. Kjart-
an Magnússon varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins fagnaði yfirlýs-
ingu samgönguráðherra um sölu á
Landsímanum.
Morgunblaðið/Ásdls
Morgunblaðið/Þorkell
GREINA má bókstafinn H og töluna 211 á reykháfnum af Goth.
Reykháfurinn er af Goth
Blaðamannafélag íslands 100 ára í dag
Rætt um stofnun
Fj ölmiðlasambands
Foss-hótel
leigja
. rekstur
Hótels KEA
HÓTELKEÐJAN Foss-hótel ehf.
hefur leigt Hótel KEA á Akureyri
af Kaupfélagi Eyfirðinga til fimm
ára. Mun hótelkeðjan taka við
rekstrinum um næstu áramót.
Hótel KEA er stærsta hótelið á
Akureyri og nam velta þess nærri
200 milljónum kr. á síðasta ári.
Rekstur þess hefur hins vegar ekki
gengið sem skyldi síðustu ár og tap
yrerið á honum, skv. heimildum
Morgunblaðsins.
Foss-hótel reka nú m.a. Hótel
Hörpu, sem stendur við hlið Hótels
KEA. Með rekstri Hótels KEA
munu Foss-hótel starfrækja sam-
tals 101 hótelherbergi á Akureyri
og verða þannig með meirihlutann
^jf hótelgistingu í bænum.
■ Taka við/16
BRESKUR sérfræðingur í sögu
togaraútgerðar hefur staðfest að
áletrunin á reykháfnum sem Ilelga
RE fékk í troll á laugardag sé
skrásetningarnúmer togarans
Goth frá Fleetwood sem fórst í
desember 1948 með 21 manns
áhöfn. Hann og aðrir Bretar sem
rætt hefur verið við telja að fund-
urinn muni vekja töluverða athygli
í bresku útgerðarbæjunum þaðan
sem sótt var á íslandsmið. Mest
mun þó athyglin verða í bænum
Fleetwood, þar sem margir ætt-
ingja skipverjanna búa enn. Viku-
blað sem gefiö er út í bænum mun
að öllum líkindum fjalla um fund
reykháfsins í dag.
■ Skrásetningarnúmerið/4
LÚÐVÍK Geirsson, formaður
Blaðamannafélags Islands, segir að
viðræður hafi verið í gangi milli
Blaðamannafélagsins, Félags bóka-
gerðarmanna, Félags grafískra
hönnuða og fleiri aðila um að mynda
Fjölmiðiasamband, samtök allra
sem starfa við fjölmiðlun hér á
landi.
„Ég hef fulla trú á því að ef menn
einhenda sér í málið verði þess ekki
langt að bíða,“ segir hann aðspurð-
ur um stofnun sambandsins. „Eg sé
fyrir mér að það gerist jafnvel á
næsta ári.“
Hundrað ár eru í dag liðin frá
stofnun Blaðamannafélags íslands.
í viðtali við Morgunblaðið af þessu
tilefni segir Lúðvík að fjölmiðlasam-
band verði sameiginlegur faghópur
þeirra sem tengjast fjölmiðlun með
einum eða öðrum hætti. „Félögin
sem við þekkjum í dag eru rótgróin
og munu starfa áfram hvert á sínum
stað. En það er þörf fyrir að þessir
hópar samræmi sig og geti stillt
saman strengi bæði hvað snertir
endurmenntun og faglega símennt-
un og ekki síður hvað varðar ýmiss
konar höfundarréttarmál og þann
veruleika sem blasir við í fjölmiðla-
heiminum. Þau skýru skil, sem hafa
verið milli starfssviða, eru ekki eins
ljós og þau voru fyrir nokkrum ár-
um,“ segir Lúðvík.
Rætt við Félag frétta-
manna um sameiningu
I viðtalinu kemur einnig fram að
ríkur vilji sé hjá fréttamönnum Rík-
isútvarpsins að koma til samstarfs
við Blaðamannafélagið, þannig að til
verði eitt félag allra starfandi blaða-
og fréttamanna.
■ Hefur auðnast/29