Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 10
10 D MIÐVIKURDAGUR 31. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ farandi: í fyrsta lagi, að tryggja vamir Islands um ókomna framtíð, byggt á granni aðildar íslands að Atlantshafsbandalaginu og tvíhliða vamarsamningi okkar við Banda- ríkin. I öðru lagi, að skilgreina hvernig og með hvaða hætti Island hyggst leggja sitt af mörkum tii sameiginlegra öryggishagsmuna aðildarríkja Atlantshafsbandalags- ins og samstarfsríkja þess. I þriðja lagi, að skilgreina þátttöku okkar af þessu tagi innan víðtækara alþjóð- legs samstarfs, s.s. innan Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Sameinuðu þjóðanna. I fjórða lagi, að skilgreina hvernig Island vill haga stjórnskipulegri framkvæmd vamarstefnunnar og samspili hefð- bundins varnarsamstarfs, almanna- varna og innra öryggis. Þetta kallar á skýra stefnumótun sem á síðari stigum verður að hljóta vandlega umfjöllun á vettvangi íslenskra stjómmála. Fyrsta skrefíð er þó að setja fram skilgreiningu á núver- andi öryggis- og vamammhverfi, þörfum, væntingum og mögulegum leiðum að markmiðum. Það starf er þegar hafíð innan utanríkisráðu- neytisins. 5. Stækkun Atlantshafsbandalags- ins sýnir svo ekki verður um villst að skipting Evrópu heyrir fortíð- inni til. Stækkunin skapar ekki ný landamæri, heldur stuðlar hún að auknum friði og stöðugleika í álf- unni. Ríkisstjórn íslands hefur lýst eindregnum stuðningi við framtíð- araðild Póllands, Tékklands og Ungverjalands og lagt áherslu á að bandalagið standi áfram opið öðr- um ríkjum. Það var ánægjulegt að taka þátt í þeirri sögulegu stund á utanríkisráðherrafundi NATO íyrr í þessum mánuði að skrifa undir að- ildarbókanir ríkjanna þriggja. Stækkun Atlantshafsbandalagsins er skýrasta dæmi þess að við búum við nýtt öryggisumhverfi. Þetta hefur vissulega áhrif á stöðu ís- lands. A dögum kalda stríðsins var framlag íslands til öryggis í álfunni fyrst og fremst fólgið í að láta Atl- antshafsbandalaginu í té landsvæði. Samkvæmt hinu nýja öryggisfyrir- komulagi í Evrópu hefur hinn póli- tíski og borgaralegi hluti hlotið aukið vægi. Þessi staðreynd býður upp á virkari þátttöku íslands í samstarfí innan og utan bandalags- ins. Til að bregðast við þessu hefur verið ákveðið að bæta við starfs- manni í fastanefnd íslands hjá Atl- antshafsbandalaginu og stefnt er að opnun fastanefndar hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. A sama hátt markar sú ákvörðun ESB að bjóða ellefu umsóknai-ríkj- um til aðildarviðræðna tímamót í samstarfi ESB. Ákvörðunin er já- kvæð og með henni er stigið mikil- vægt skref til eflingar lýðræðislegra stjómarhátta, mannréttinda og stöðugleika í þessum hluta álfunnar. í ljósi þessarar þróunar er mikil- vægt að meta stöðu Islands í samfé- lagi Evrópuríkjanna og efla hags- munagæslu okkar í þeim málum sem varða samskiptin við ESB. Það á ekki einungis við um málefni evr- ópska efnahagssvæðisins heldur einnig um Schengen-samstarfíð og samráð um pólitísk málefni. Fróð- legt verður að fylgjast með því hvemig stöðu smárra ríkja innan ESB verður háttað. Jafnframt hvemig styrkja- og sjóðakerfi sam- bandsins á sviði byggðamála, land- búnaðar og ekki síst í sjávarútvegi þróast á næstu ámm. Samskipti ís- lands við ESB eru í fóstum farvegi og samstarf innan EES hefur geng- ið vel. Varðandi fyrirhugaða stækk- un ESB verður að hafa í huga að að- ild nýrra ríkja að ESB þýðir sjálf- krafa aðild þeirra að EES. Það er því mikilvægt að ísland fylgist náið með aðildarviðræðunum sem framundan em. Verður það eitt helsta verkefni íslands sem tekur við formennsku í EFTA í byrjun næsta árs. Af því sem að framan segir má vera ljóst að utanríkismál skipta vaxandi máli fyrir framtíð Is- lands. Niðurstaða innanlandsmála ræðst því meir og meir í alþjóðlegu samhengi. Eg óska landsmönnum gleðilegs árs og þakka ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóðvaka: U mh verfís vernd verði þungamiðjan 1. UMHVERFISVERND er stærsta og mikilvægasta velferðar- mál heimsins og undirstaðan undir líf og framþróun á jörðunni. Fram- tíð þjóða heims er undir því komin að þeim takist að draga úr hrika- legum afleiðingum mengunar, sem ekki síst má rekja til aukinnar iðn- væðingar. Kyoto-samningurinn mun hafa mjög mikil áhrif á þróun umhverfis- og atvinnumála í heim- inum í framtíðinni, en gengið er út frá að hann gangi í gildi þegar 55 ríki hafa staðfest hann sem losuðu a.m.k. 55% af koltvíoxíði árið 1990. Afleiðingarnar af loftslagsbreyt- ingum em hrikalegar fyrir mann- kynið allt, sem ekki síst munu bitna á þeim sem búa við mestan skort og fátækt og auka á allskyns plágur og sjúkdóma og hafa afger- andi áhrif á matvælaframleiðslu í heiminum. Hér á landi stafar okk- ur ekki síst ógn af því ef breyting verður á hafstraumum á norður- hveli jarðar, en allar breytingar á hafstraumum og hitastigi sjávar hafa áhrif á okkar fiskimið og lífs- möguleika íslensku þjóðarinnar. Af sjálfu leiðir að íslandi ber að standa í fararbroddi þjóða heims fyrir umhverfisvemd og þar verða skammtímahagsmunir að víkja fyr- ir framtíðarhagsmunum þjóðarinn- ar. Það er því ekki spurning að ís- land hlýtur að vera í röð þeirra þjóða sem knýja munu á að Kyoto- samningum verði framfylgt undan- bragðalaust. Það hlýtur að kalla á endurskoðun á okkar stóriðjuá- formum, en losun gróðurhúsaloft- tegunda í tengslum við fyrirhuguð stóriðjuáform hér á landi er langt umfram það sem íslandi er heimil- að samkvæmt Kyoto-samningnum. Við verðum líka að endurmeta ýmsa þætti er lúta að umhverfis- mati og mengunarmálum tengdum stóriðju og áhrifum þessa á náttúr- una og aðra atvinnuvegi þjóðarinn- ar. Því er brýnt að marka skyn- samlega stefnu í stóriðjumálum til framtíðar þar sem umhverfisvernd verður þungamiðjan og leggja þjóðhagslegt mat á áhrifin með til- liti til mengunar og náttúmspjalla ekki síður en efnhagslegan ávinn- ing stóriðjuframkvæmdanna. í allri okkar atvinnuuppbyggingu verður þungamiðjan að vera umhverfis- vemd sem skiptir máli um lífskjör þjóðarinnar til lengri tíma litið fremur en stundarábati eins og af stóriðjuframkvæmdum. Vernd um- hverfis og hreint land eru þau miklu verðmæti sem komandi kyn- slóðir verða að teysta á að við varð- veitum. Þar sem um þriðjungur af út- streymi koltvíoxíðs hér á landi kemur frá fiskiskipum og annar þriðjungur frá samgöngum verðum við einnig þar að huga að aðgerð- um sem dregið geta úr losun koltvíoxíðs, en þar hljótum við að skoða af fullri alvöm að nota vetni. Þó það sé vissulega dýrara ber okkar að prófa okkur áfram á því sviði. Mætti t.d. hugsa sér í til- raunaskyni að nýtt hafrannsóknar- skip sem nú er í undirbúningi, væri vetnisknúið. Þó ör tækniþróun muni vafalaust auðvelda Islending- um að standa við skuldabindingar gagnvart Kyoto-samningnum, er ekki ólíklegt að hann hafi til skemmri tíma neikvæð áhrif á þró- un efnahags- og atvinnumála, en til lengri tíma mun ávinningurinn skila sér að fullu. 2. Meginmarkmiðið með stofnun Þjóðvaka var að vinna að samein- ingu allra jafnaðarmanna og fé- lagshyggjufólks. Það markmið er nú í aug- sýn og því hefur Þjóð- vaki í trausti þess að það verði að veruleika lýst yfir að hann stefiii að aðild að slíku fram- boði í næstu kosning- um. Sameiginlegt framboð Alþýðuflokks, Alþýðubandalags, Þjóðvaka og Kvenna- lista myndi höggva verulega í raðir Sjálf- stæðismanna og Fram- sóknarmanna,auk þess sem fjöldi óflokksbund- ins fólks myndi styðja slíkt framboð. Það mun leiða til vemlegra og jákvæðra umskipta í íslenskum stjórnmálum í framtíðinni. Yænt- anlega myndu þá tveir stórir flokk- ar aðallega takast á um völdin í ís- lenskum stjórnmálum. Hreinni lín- ur myndu skapast og stjómmála- flokkamir yrðu ábyrgari gagnvart stefnu sinni og kjósendum og gætu síður skotið sér á bak við málamiðl- anir sem einkenna samsteypu- stjórnir. Sameiginlegt framboð myndi einnig fjölga vemlega kon- um við landsstjómina og leiða til breyttra áhersln'a við stjórn lands- ins. Höfuðáherslan yrði að vinna í þágu almannahagsmuna gegn sér- hagsmunum og forréttindum, auk þess sem jafnrétti fólks í kjöram og aðbúnaði yrði haft að leiðarljósi á öllum sviðum. Líklegt er að loknu næsta kjörtímabili árið 2003 hefðu þeir flokkar sem að sameiginlegu framboði standa árið 1999 samein- ast í einum stómm flokki jafnaðar- manna og félagshyggjufólks og gömlu flokkarnir á vinstri vængn- um heyrðu sögunni til. Spurt er hvað gerist fari samein- ing vinstri manna út um þúfur. Krafa fólksins er svo sterk um sameiginlegt framboð, væntingar það miklar og málið það langt kom- ið, að afar ólíklegt verður að teljast að það fari út um þúfur. Málefnaá- greiningur er ekki meiri milli flokkanna í stóram málum eins og sjávarútvegsmálum og Evrópumál- um, en innan Sjálfstæðisflokksins eða hreinlega innan þeirra flokka sem nú reyna að ná saman um sameiginlegt framboð, þannig að ábyrgð þeirra sem hugsanlega kæmu í veg fyrir slíkt framboð yrði mikil. Það myndi festa í sessi áfram helmingaskiptastjóm Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og A flokkarnir myndu áfram fá 10-15% fylgi. Fari sameiginlegt framboð út um þúfur kæmi vænt- anlega fram krafa um að Þjóðvaki myndi endurskoða afstöðu sína til þess að bjóða ekki fram í næstu kosningum eða að hann gerðist að- ili að nýju framboði gegn gamla flokkakerfinu, sem ég er sannfærð um að mun koma fram heykist A- flokkamir á sameiginlegu fram- boði. Engin ástæða er þó til að ætla að svo verði á þessari stundu, þvi fullur skriður er á sameiningu vinstri manna bæði til sveita- stjórnakosninga á næsta ári og til alþingiskosninga árið 1999. 3. Undanfama mánuði og misseri hefur krafan um að arðurinn af auðlindinni renni til þjóðarinnar fengið vaxandi byr. Fólkið líður ekki öllu lengur að arðurinn renni til örfárra sægreifa, en mesta eignatilfærsla Islandssögunnar á sér nú stað í sjávarútveginum. Sameign landsmanna er orðið erfðagóss og bitbein í fjölskyldu- deilum hjá þeim sem hafa fengið úthlutað kvóta. Nýliðar verða að kaupa sig inní greinina meðan þeir sem era að hætta selja veiðiheim- ildimar og hagnast á því um hundrað millj- óna króna. Jafnaðarmenn hafa lagt fram margar til- lögur á Alþingi, sem taka á ýmsum göllum kvótakerfisins og sem koma eiga í veg fyrir að arðurinn af sameign þjóðarinnar renni í vasa örfárra kvóta- kónga. Jafnaðarmenn hafa verið í forystu fyr- ir því að tekin verði upp gjaldtalca fyrir nýtingu auðlinda. Veiðileyfagjald hefur lengi viðgengist í sjávarútvegi í formi viðskipta með kvóta milli út- gerðaraðila, auk þess sem nýir að- ilar komast ekki inn í greinina, nema gi-eiða fyrir kvótann fullu verði. Þar er um gífurlegar fjár- hæðir að ræða sem nema milljörð- um, sem renna ekki í vasa eigend- anna, þjóðarinnar, heldm- í vasa þeirra sem hafa fengið úthlutað ókeypis aflaheimildum. Það er því ekki spurning um hvort heldur hvenær veiðileyfa- gjald og almennt auðlindagjald verði tekið upp, enda hafa meira segja hörðustu andstæðingar þess, forsætisráðherra, sjávarútvegsráð- herra og formaður LÍU opnað fyrir veiðileyfagjald og þar með viður- kennt það grandvallarsjónarmið og réttlæisrök sem liggja að baki veiðileyfagjaldi. 4. A aðeins örfáum áram hefur heimsmyndin gjörbreyst og bylt- ingakenndar breytingar átt sér stað eins og hran kommúnismans, fall Berlínarmúrsins og kúgaðar þjóðir endurheimt sjálfstæði sitt. Aukið samstarf Atlantshafsbanda- lagsins og Rússlands er líka tím- anna tákn um þá breytingu sem orðin er í friðar- og öryggismálum. Þessi breytta þróun heimsmála og lok kalda stríðsins hefur leitt til nýrrar aðlögunar og endurmats á öi-yggis- og vamarmálum. Atlants- hafsbandalagið hlýtur að verða áfram meginstoð okkar í varnar- og öryggismálum, ásamt því að taka þátt í uppbyggingu á nýju ör- yggiskerfi í Evrópu og þáttöku í VES og Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, sem gegnir sífellt mikilvægara hlutverki í friðar og öryggisgæslu í Evrópu. Við hljót- um einnig að styrkja eins og kostur er Sameinuðu þjóðimar, sem gegna m.a. þýðingarmiklu hlut- verki á sviði mannréttinda og um- hverfisverndar. Við þurfum einnig að leggja meira af mörkum til þróunarað- stoðar og til aðstoðar flóttamönn- um. Islendingar hljóta einnig eins og kostur er að leggja sitt af mörk- um til friðarsamstarfs í heiminum og ekki síst ber okkur að vera í far- arbroddi þeirra sem berjast fyrir auknum mannréttindum og í bar- áttunni gegn hverskonar misrétti, fátækt, hungri og ofbeldi í heimin- um. Allt þetta fellur undir friðar- og öryggismál í heiminum, þar sem okkur ber skylda á alþjóðavett- vangi til að leggja okkar skerf fram til meiri mannúðar, mannréttinda, frelsis og lýðræðis í heiminum. I samræmi við breytta heims- mynd og breytt umhverfi í öryggis- og friðarmálum í heiminum eigum við að endurmeta og endurskil- greina okkar eigin öryggis- og vamarmál og taka afstöðu til og meta vamarþörf þjóðarinnar í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í Jóhanna Sigurðardóttir friðar- og öryggismálum í heimin- um. Samstarf okkar og samvinna við aðrar þjóðir verður að vera í sí- > felldri mótun og endunnati til að tryggja sem best hagsmuni ís- lensku þjóðarinnar. Við erum hluti af samfélagi þjóðanna og því eigum við að líta með víðsýni og raunsæi á þróunina á hinum alþjóðlega vett- vangi hvort sem um er að ræða við- skipta-, umhverfis eða öryggis- og varnarmál. 5. Stækkun Atlantshafsbandalags- * ins er eðlileg í ljósi breyttrar heimsmyndar og endurskipulagn- i ingar öryggis og vamarmála í heiminum. Atlantshafsbandalagið hefur tekið verulegum breytingum á umliðnum áram m.a. með fækkun í herjum aðildarríkjanna og vera- lega hefur dregið úr kjarnavopna- viðbúnaði. Friðarsamstarf og al- þjóðleg friðargæsla era sífellt mik- ilvægari þættir í starfi Atlantshafs- ) bandalagsins og má þar nefna frið- arsamstarf þess við samstarfsríkin í austri. Mikilvægt er að tryggja að þannig verði staðið að stækkuninni að hún tryggi að ekki verði breyt- ing á grundvallarmarkmiðum og að hún leiði ekki til nýiTar skiptingar Ewópu og að öryggishagsmunir allra samstarfsríkjanna verði tryggðir, en óvíst virðist vera hvaða áhrif aðild Póllands, Tékk- I lands og Ungverjalands að Atlants- i hafsbandalaginu hefur á vamarvið- j búnað núverandi aðildarríkja. Brýnt er líka að treysta og efla samskipti við þau ríki sem enn hafa ekki fengið aðild, en það veldur vissulega vonbrigðum, að Eystra- saltsþjóðirnar verða ekki aðilar að Atlantshafsbandalaginu í þessum áfanga. Islendingar eiga að beita sér fyrir því að Eystrasaltsþjóðirn- . ar fái sem fyrst aðild að bandalag- inu, en Rússland hefur lagst gegn stækkun Atlantshafsbandalagsins l og því brýnt að eyða þeirri tor- tryggni með meira samstarfi og auknum tengslum, þannig að þeir skilji að öryggishagsmunir þeirra era ekki í hættu með stækkun bandalagsins. Stækkun Atlants- hafsbandalagsins hefur mikla þýð- ingu fyrir varnarmátt bandalagsins og öryggishagsmuni aðildarþjóð- j anna. Þess vegna er mikilvægt að vel takist til og að stækkunin verði til þess að efla öryggi í Evrópu. Líklegt er að það leiði til vera- legra breytinga á ýmsum sviðum Evrópusambandsins, ef þær Aust- ur-Evrópuþjóðir sem Evrópusam- bandið hefur nú hafið viðræður við gerast aðilar að Evrópusamband- inu. ESB stendur frammi fyrir mörgum umsóknum um aðild frá ríkjum með mjög bágborinn efna- I hag. Þar við bætist að stór hluti vinnuaflsins í Mið- og Austur Evr- j ópu vinnur við landbúnað eða um 25% vinnuaflsins á móti 6% innan núverandi aðildamíkja ESB, en styrkjakerfi landbúnaðarins hefur verið Evrópusambandinu mjög þungt fjárhagslega. Þetta þýðir væntanlega að með inngöngu Austur-Evrópuþjóðanna þurfi að gjörbreyta landbúnaðar- stefnu bandalagsins og breyta styi-kjakerfinu, sem hefur verið mikilvægur þáttur í því að jafna ) lífskjörin innan Evrópusambands- landanna. Styrkjakerfi Evrópu- bandalagsins hafa verið okkur ís- lendingum áhyggjuefni einkum fyrir samkeppnishæfni okkar í sjávarútvegi og hve þungt það veg- ur í okkar samkeppnislöndunum. Islendingar geta heldur ekki geng- ið undir sameiginlega sjávarát- j vegsstefnu Evrópusambandsins með því að afhenta meginauðlind sína undir sameiginleg yfirráð, en i endurskoðun á sjávarátvegsstefnu sambandsins á að liggja fyrir árið 2002. Við hljótum þó að fylgjast vel með þeirri þróun sem verður við stækkun Evrópusambandsins til austurs, jafnframt því að skilgreina betur en gert hefur verið til þessa kosti þess og galla að standa innan eða utan bandalagsins. ) Þjóðvaki sendir öllum lands- mönnum bestu óskir um frið og farsæld á komandi ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.