Morgunblaðið - 31.12.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 D 11
Guðný Guðbjörnsdóttir, formaður
þingflokks Samtaka um kvennalista:
Varnarþarfir
verði endur-
skilgreindar
1.
FYRSTA spumingin
er sú hvort íslensk
stjórnvöld bera gæfu til
að skrifa undir Kyoto-
samþykktina. Ég óttast
að núverandi ríkis-
stjórn geri það ekki og
haldi áfram á núverandi
braut í atvinnu- og um-
hverfismálum með
mengandi stóriðju á
oddinum. Það ylli ekki
aðeins vaxandi mengun
hér og einhæfni í at-
vinnu, heldur hefði það
varanleg áhrif til hins
verra á ímynd okkar
sem ferðamannalands
og matvælaframleiðenda. Slíkt yrði
mikið slys að mínu mati. Við verð-
um að axla ábyrgð með samfélagi
þjóðanna að þessu leyti, ekki síst
eftir þær tilslakanir sem þegar
hafa fengist í Kyoto. Það eru ekki
síst hagsmunir okkar sjálfra sem
eru f veði, hugsanlega spumingin
um það hve lengi landið verður
byggilegt. Ég er sannfærð um að
fyrr eða síðar munu fslendingar
átta sig á mikilvægi þess að skrifa
undir samþykktina, ef ekki þessi
ríkisstjóm þá sú sem tekur við af
þessari. Þá verður hafist handa við
að styrkja ímynd íslands sem
hreins og fagurs lands með óspillta
náttúm fyrir ferðamenn og ómeng-
aða matvöm til útflutnings, hvort
sem það er fiskur, kjöt eða græn-
meti. Það er sjálfsagt að nýta okk-
ar endumýjanlegu orkugjafa til
annars en mengandi stóriðju. Auk
raforku fyrir innanlandsmarkað
mætti selja raforku til Evrópu í
gegn um streng og fljótlega verður
tímabært að nota raforku til vetn-
isframleiðslu eða annarra orku-
gjafa sem ekki gefa frá sér gróður-
húsalofttegundir. Eftir undirritun
Kyoto-samþykktarinnar þarf að
endurskilgreina stefnuna í efna-
hags- og atvinnumálum með meg-
ináherslu á ræktun mannauðsins
með góðri almennri og sérhæfðri
menntun kvenna og karla til hugar
og handar, allt frá leikskóla til há-
skólastigs. ísland á að vera paradís
hreins og fagurs lofts og lands, þar
sem vinnuaflið er vel menntað til
margvíslegra starfa og samkeppn-
ishæft við aðrar þjóðir.
2.
Eftir töluverðan aðdraganda
hafa formlegar viðræður nýhafist á
milli Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags og Kvennalista um sameigin-
legan málefnagmndvöll vegna
þingkosninganna 1999. Væntan-
lega munu óflokksbundnir tengjast
viðræðunum með tilteknum hætti.
Á miðju ári 1998 ætti að verða Ijóst
hvort samstaða næst um málefna-
grundvöll og stuttu síðar hvort
verður af sameiginlegu framboði
félagshyggjuaflanna í þingkosning-
unum 1999.
Slíkt framboð gæti haft gífurleg
áhrif á íslensk stjómmál. Ætla má
að fylgi þess verði á bilinu 30-50%
og því hafi það alla burði til að
verða leiðandi í ríkisstjóm að lokn-
um kosningum, leiðandi afl inn í
nýja öld. Slíkt afl yrði væntanlega
undir merkjum kvenfrelsis, jafnað-
ar og félagshyggju með tilheyrandi
áherslum á félagslegt réttlæti,
jöfnuð og jafnrétti kynjanna í
reynd, hvort sem er í atvinnumál-
um, launamálum, menntamálum
eða í félagslegri þjónustu. Snúið
yrði af þeirri braut að
þeir ríku yrðu ríkari
og yfir á braut félags-
legs jafnaðar og rétt-
lætis. Við kvennalista-
konur eygjum mögu-
leika á því að koma
svokallaðri samþætt-
ingarstefnu í jafnrétt-
ismálum í fram-
kvæmd. Það þýðir að
jafnréttismálin verða
miðlæg í stefnumörk-
un á öllum sviðum, í
stað þess að vera jað-
armálefni í einu ráðu-
neyti. Horft er á öll
mál út frá sjónarhóli
beggja kynja. Til að
komast upp úr þeim hjólfórum sem
jafnréttismálin eru í 20 árum eftir
að sett voru jafnréttislög, þarf
fyrst og fremst pólitískan vilja og
öfluga stofnun sem sér um fram-
kvæmd, eftirfylgni og eftirlit. Þetta
eru mikilvæg atriði sem við
kvennalistakonur leggjum upp með
í viðræðurnar, auk megináherslu á
umhverfis- og menntamál. Síðast
en ekki síst gerum við þá sjálf-
sögðu kröfu að jafnræði verði með
kynjunum á öllum sviðum sam-
starfsins.
Ég er þeirrar skoðunar að nú sé
sögulegt tækifæri í íslenskum
stjómmálum, sem verði að nýta. Ef
það fer út um þúfur þá er líklegt að
núverandi ríkisstjórn sitji áfram
við völd, þeir ríku verði ríkari og
misskipingin og misréttið í landinu
fari vaxandi.
3.
Það hefur verið athyglisvert að
fylgjast með hvernig ríkisstjómin
hefur komið með hvert frumvarpið
á fætur öðra til að lægja mestu
óánægjuöldurnar í kringum kvóta-
kerfið, án þess í raun að tekið sé á
nokkra sem máli skiptir. Það
nýjasta er að kvótinn fymist ekki í
skattalegu tilliti og að heimila smá-
bátaflotanum að fara út í kaup og
leigu á þorskaflahámarki, sem
væntanlega leiðir til þess að þessi
tvö kerfi aflamarksbáta annars
vegar og smábátanna hins vegar,
renna saman í eitt. Ekki skal held-
ur gleyma haldreypi Davíðs Odds-
sonar um að veiðileyfagjald sé í
lagi ef upphæðin er nægilega lág.
Ef þessi ríkisstjórn heldur velli tel
ég líklegt að svona verði lullað
áfram og allt gert til að styrkja
frekar „eignarhald“ sægreifanna
og annarra útgerðarmanna á þess-
ari mikilvægu auðlind þjóðarinnar,
með tilheyrandi átökum við sjó-
menn, fækkun smábáta og atvinnu-
leysi meðal fiskvinnslufólks. Þessi
stefna mun ýta enn frekar undir þá
byggðaþróun sem nú er í gangi,
þ.e. að fólk flytjist úr dreifbýli í
þéttbýli þar sem atvinnuöryggið
úti við sjávarsíðuna er ekkert.
Krafan um veiðileyfagjald mun
verða fyrirferðarmikil fyrir næstu
kosningar, þar sem auðlindagjald
verður að líkindum eitt stærsta
kosningamálið. Með því fær þjóðin
réttmætan afrakstur af auðlindum
sínum til hagsbóta fyrir þjóðar-
heildina í stað fárra útvaldra.
Auðlindagjald mun gera það mögu-
legt að efla mennta- og velferðar-
kerfið án þess að hækka skatta. Þá
þarf að huga sérstaklega að hags-
munum þeirra sem eiga húsnæði á
landsbyggðinni og vilja búa þar
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Guðný
Guðbjörnsdóttir
amota
etraun
Áramötagetraun Morgunbiaöstns birtist í btaðinu
dag á bls. 1öd, 1Sd, 22d og 23d og verður hún þnskipt.;
barnagetraun, unglingagetraun og fuílorðinsgetraun.
Veitt verða þrenn verðiaun fyrir hvern fíokk.
ætiuö olium 5-12 ru
Adidas-íþróttavörur að eigin vali frá
Sportkringlunni að andvirði 20.000 kr.
Tölvuleikir eða geislaplötur að eigin vali frá
Skífunni að andvirði 10.000 krr
Bækur að eigin vali frá Vöku-Helgafelli að
andvirði 5.000 kr.
Unglingagetraun
ætluð öllum 13-1? ára
| Vöruúttekt að eigin vali frá Jack & Jones eða
Vero Moda að andvirði 20.000 kr.
|| Tölvuleikir eða geislaplötur að eigin vali frá
Skífunni að andvirði 10.000 kr.
| Bækur að eigin vali frá Vöku-Helgafelli að
andvirði 5.000 kr.
ÁÉP
un
Vöruúttekt að eigin vali frá IKEA að andvirði
20.000 kr.
Bækur að eigin vali frá Vöku-Helgafelli að
andvirði 10.000 kr.
Geislaplötur að eigin vali frá Skífunni að
andvirði 5.000 kr.
Aukþess fá allir vinningshafar flisderhúfu merkta Morgunblaðinu.
Úrlausnirþurfa að berast Morgunblaðinu fyrir kl. 16.00
mánudaginn 19. janúar.