Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 24
24 D MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Fréttamyndir af innlendum vettvangi FLUTN- INGASKIPI á vegum Sam- skipa, m/s Dísarfelli, hvolfdi og það sökk í vonsku- veðri miðja vegu milli íslands og Færeyja að morgni sunnudagsins 9. mars. Skipveijar biðu í um tvo klukku- tíma í sjónum í 10 metra ölduhæð á opnu úthafinu, innan um brak og olíu, þar til áhöfn björgunarþyrlu Landhelg- isgæslunnar bjargaði tíu þeirra en tveir fórust. Skipveijarnir voru í björgunar- göllum og kræktu sam- an hand- leggjunum á meðan þeir biðu björgunar. Ekki er vitað um ástæður slyssins en Uóst er að sjór komst af einhverjum ástæðum í lestar þess aðfaranótt sunnu- dagsins með þeim afleiðingum að skipið fékk slagsíðu og hvolfdi nokkru síðar. Áhöfninni tókst að senda út neyðarkall. Þegar skipið fórst var það um 100 sjó- mflur suðaustur af Hornafírði. DISARFELL FERST 100 SJOMILUR SUÐAUSTUR AF LANDINU Á SEX dögum í byijun mars var 39 sjómönnum bjargað úr sjávarháska í björgunarþyrlu Landhelgisgæslunn- ar, TF-LÍF. Fyrst bjargaði áhöfn þyrlunnar nflján mönnum af Víkartindi þegar skipið strandaði austur af Þjórsárósum. Þyrlan bjargaði síðan 10 mönnum af Dísarfelli eft- ir að skipið fórst 100 sjómflur suðaustur af Hornafirði. Tveir BJARGA 39 SJOMONNUM A SEX DOGUM menn úr áhöfn skipsins fórust. Myndin var tekin þegar skipbrots- menn af Dísarfelli stigu út úr þyrl- unni í Reykjavík. Daginn eftir var 10 mönnum bjargað af Þorsteini GK sem rak vélarvana upp í Krísuvíkurberg. Eignatjón í þessum þremur sjóslysum var áætlað tæpir 4 millj- arðar kr. STORTFLUTNINGASKIP STRANDAR VIÐ ÞYKKVABÆ NÍTJÁN manna áhöfn þýska flutninga- skipsins Víkartinds bjargaðist giftusam- lega um borð í þyrlu Landhelgisgæslunn- ar, TF-LÍF, eftir að skipið strandaði í Háfsfjöru fyrir neðan Þykkvabæ að kvöldi 5. mars. Þegar varðskipið Ægir reyndi björgun skömmu áður tók út mann af varðskipinu og fórst hann. Aðalvél Víkartinds bilaði fyrir hádegi þennan dag þegar skipið var á siglingu tskammt undan Þjórsárósum. Varðskipið Ægir hélt á vettvang. Ekki tókst að koma vélum skipsins í gang. Varðskipið gerði tvær árangurslausar tilraunir til að koma dráttartaug í skipið. TF-LÍF kom á strand- stað skömmu eftir að akkerisfestar Víkar- tinds slitnuðu og voru skipverjarnir hífðir upp í þyrluna í slæmu veðri. Orfáum mín- íútum síðar rak skipið upp í land. Hluti af farmi þess dreifðist um Háfsfjöru. Það sem eftir var af farminum var híft í land og skipið sjálft hlutað niður og fjarlægt. Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson EYÐILEGGINGUNDIR KRYSUVIKURBERGI ÁHÖFN björgunarþyrlu Landhelgisgæsl- unnar bjargaði 10 manna áhöfn netabáts- ins Þorsteins GK áður en skipið strandaði, fylltist af sjó og valt á hliðina undir Krýsu- víkurbergi í slæmu veðri 10. mars. Fyrstu skip komu á staðinn um það bil sem síð- ustu mennirnir voru hífðir frá borði og horfðu áhafnir þeirra á Þorstein reka upp í klettana þar sem skipið valt á hliðina og eyðilagðist á stuttum tima. Þorsteinn GK-16, 179 lesta stálbátur frá Grindavík, var á netaveiðum tæpa sjómflu undan Krísuvíkurbergi þegar hann fékk í skrúfuna. Rak hann skáhallt f áttina að berginu. Ekki tókst að koma vélinni aftur í gang. Rekið stöðvaðist þegar akkerin voru sett út en þau slitnuðu frá þegar hvessti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.