Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
GISLAR FRELS-
AÐIR í LIMA
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 D 21
SÉRSVEITIR perúska hersins réð-
ust inn í bústað japanska sendiherr-
ans í Lima í Perú í apríl og frelsuðu
72 gísla, sem skæruliðar Tupac
Amaru-hreyfingarinnar höfðu haft
í haidi í bústaðnum f 126 daga. Einn
gísl og allir skæruliðarnir, tíu að
tölu, iétu lífið er gíslarnir voru
frelsaðir en sérsveitunum tókst að
koma skilaboðum til gislanna um
yfirvofandi árás skömmu áður en
hún var gerð. Stóð áhlaup sérsveit-
armanna í fjörutíu mínútur. Vin-
sældir Albertos Fujimoris, forseta
Perú, jukust mjög í kjölfarið en
hann sést hér ganga upp stiga í
sendiráðinu eftir áhlaupið, fram
hjá likum Nestors Cerpa, leiðtoga
skæruliðanna og eins félaga hans.
FLÓÐ og vatnavextir
settu að venju svip sinn á
fréttir ársins. Mesta athygli vöktu mikil flóð í Mið-Evr-
ópu og Norður-Ameríku. Yfir 100 manns létu lífið í
Póllandi, Tékklandi og Þýskalandi í júlí í flóðum og
gífurlegt tjón varð á
ökrum og híbýlum manna.
Þá urðu mestu vatnavextir í Manitoba, sem orðið hafa
í 145 ár í apríl en þar flaut yfir u.þ.b. 2.000 ferkíló-
metra. Myndin er tekin í Wroclaw í Póllandi.
FLOÐ I EVROPU OG AMERIKU
VERKAMANNAFLOKK-
URINN breski vann stór-
sigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu 1. maí
og batt þar með enda á 18 ára valdatíma íhaldsflokks-
ins. Hefur Verkamannaflokkurinn aldrei verið jafn-
sterkur á þingi en meirihluti hans er 179 þingmenn.
Hann hlaut 45% atkvæða en íhaldsflokkurinn galt að
sama skapi afliroð, hlaut
31%. Ný ríkisstjórn tók
við undir forystu Tonys Blairs en John Major, fyrrver-
andi forsætisráðherra, sagði í kjölfarið af sér leiðtoga-
embætti í íhaldsfiokknum. Þessi mynd þótti táknræn
fyrir stöðu Majors en hún var tekin á síðustu dögum
kosningabaráttunnar.
ÞATTASKIL I BRETLANDI
LEYNDARMAT
MARS AFHJÚPUÐ
BANDARÍSKA geimfarið Pathfind-
er lenti á yfirborði Mars í júlí en það
var fyrsta geimfarið sem það gerði
frá árinu 1976. Markaði lendingin
tímamót í könnun Mars en um borð
var m.a. jeppinn Sojourner, sem í
var efnagreiningartæki. Sendi hann
mikið magn upplýsinga um sam-
setningu jarðvegs á Mars til jarðar.
Þær tvær spurningar sem fyrst og
fremst er leitað svara við með rann-
sóknum á gögnum frá Mars eru
hversu mikið vatn hafi fundist á
plánetunni og hvort líf hafi fyrir-
fundist þar. Leiðangur Pathfinder
stóð í Qóra mánuði og bárust mun
meiri upplýsingar frá geimfarinu
en gert hafði verið ráð fyrir.
Thórlo. ^
HEILSUSOKKARNIR
Mest seldu HEILSUSOKKARNIR í Bandaríkjunum
• IHOK-LO’
f ZONE
' PROTECTION
' göxfra Ourability
o*m
Kwspsíeultjrvi
. P«o«ny.
j N^comtortcM*
Einstakir útivistarsokkar
Hannaðir af bandarískum fótasérfræðingum
Nýtt líf með Thórlo
Lagaðir fullkomlega að fætinum og styrktir undir hæl og il
ÚTSÖLUSTAÐIR
Seglagerðin Ægir • Sportkringlan • Ellingsen • Versl. Hjólið
Hestamaðurinn • Músík & Sport • Kaupfélög og Apótek
Ferðamálaskólinn MK
Spennandi nám fyrir framsýnt fólk
Tekið verður við skráningum nýnema í ferðafræðinám Ferða-
málaskóla MK mánudaginn 5. og þriðjudaginn 6. janúar 1998.
Um er að ræða alhliða tveggja anna nám í ferðafræðum. Á vorönn 1998
eru í boði 8 fjölbreyttir og spennandi áfangar. Nemendum gefst kostur á að
taka sjálfstæða áfanga eða ljúka námi á einu ári. Námið er góður undir-
búningur fyrir margvt'sleg störf f ferðaþjónustu eða frekari menntun á því sviði.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans.
i!L
FERÐAMÁLASKÓLINN
Digranesvegi 31, Kópavogi.
- kjarni málsins!
VtKtJbKtrAh I U r A N
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 533-2060