Morgunblaðið - 31.12.1997, Page 30

Morgunblaðið - 31.12.1997, Page 30
30 D MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997 MORGUNBLADIÐ Anna Sveinbjarnardóttir Sæbjörn Valdimarsson Arnaldur Indriðason Velslan ;{'Big Night). Stanley Tucci & Scott Campell. Safaríkt byrjendaverk frá tveimur leikurum sem kom skemmtilega á óvart. ÁPBkstup (Crash). David Cronenberg. Kuldalega vel gerð krufn- ing á afbrigðilegri hegðun mannfólksins. Með tullpi relsn 8 (The Full Monty). Peter Cattaneo. Gamanmynd ársins sem skoð- ar líkamlegt ásigkomulag karlmennskuímyndar- innar. -Jói 00 pisatepskjao (James and the Giant Peach). Henry Selick. Bamamynd sem býr yfir hreinum kvikmyndatöfrum. Kolya Jan Sverak. Ljúf kvikmynd um litlar og stórar byltingar í Austur-Evrópu. LA, Contldentlal (Curtis Hanson). Pað væri óskandi að þessi mynd yrði skyldu- áhorfun fyrir alla sem vilja gera sakamálamynd í Hollywood. Jenn í svöptu (Men in Black). Barry Sonnenfeld. Geimgrín sem segir sex. (Sling blade). Billy Bob Thomton. Hljóðlát stúdía um hið góða og illa í mannsálinni. Leyndapmál 09 lygar (Secrets and Lies). Mike Leigh. Loksins, loksins fékk Leigh verðskuldaða viður- >i:enningu. Bomaá og Júlía (William Shakespeare’s Romeo & Juliet). Baz Luhrman. Langbesta Shakespeare kvikmyndin, og nóg hefur verið gert af þeim síðustu árin. Verð að lokum að fá að nefna að auki Stjörnu- ^ltríðsþríleikinn og heimildarmyndina „When We Were Kings“. (Secret and Lies). Leikstjóri Mike Leigh. Ekki aðeins besta mynd ársins heldur áratugarins. Súrsæt blanda tilfinningamála í venju- legri, breskri fjölskyldu þar sem margt býr í þögninni. Uppgjörið er eftirminnilegur sigur sannleik- ans yfir lyginni. Einfaldur gald- ur, sterk og margslungin. L.A. Gantidential (Curtis Hanson.) Besta myndin að vestan í ár er harðsoðin, nánast gallalus saka- málamynd í anda gullaldar þeirra um miðja öldina. Hún gerist á þeim tíma og útlitið óaðfinnan- legt. Fléttan er góð og leikurinn sömuleiðis hjá ólíklegum en frá- bærum leikhóp sem kemur nota- lega á óvart. Myndin skipar Curtis Hanson að lokum í flokk þeirra bestu. Mti tullPl PBÍSIt (The Full Monty). Peter Cattaneo. Bretar láta heldur betur að sér kveða um þesar mundir, hér rís „nýbyigjan“ hæst í einfaldri, drepfyndinni sögu um ótrauða sjálfsbjargarviðleitni verka- manna sem láta allt flakka til að bjarga sér frá hungurvofu at- vinnuleysisins. Tom Wilkinson fer fremstur í flokki lítt þekktra, fínna leikara. (Sling Blade) BiUy Bob Thornton. Billy Bob Thornton lætur heldur betur að sér kveða sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur, eftir áratuga dútl í kvikmynda- borginni. Sigrar á öllum víg- stöðvum, ekki síst í magnaðri túlkun á treggáfuðu ljúfmenni sem tekur til sinna ráða þegar vini hans er ógnað. Veltir eftir- minnilega fyrir sér grundvallar- spurningum kristinnar siðfræði. VHslðt alklt (The Big Night). Stanley Tucci. Annar gullmoli úr óvæntri átt. Stanley Tucci, aukaleikarinn góði, kemur fram á sjónarsviðið sem engu síðri leikstjóri og hand- ritshöfundur í frumraun sinni. Hún fjallar á yfirborðinu um mat og matargerðarlist, undir niðri um þjóðareinkenni, fótfestu í samfélaginu, metnað og ást. MÉIIó 989n Lappy Flpt (The People vs Larry Flynt). Milos Forman. Hrá og umbúða- laus mynd um skrautlegt lífs- hlaup klámkóngs. Sigur grund- vallarmannréttinda eða skrípa- leikur? Um það má deila en ekki gustmikla og ánægjulega endur- komu Formans né frábæran leik. (John Woo.) Besta spennumynd ársins mark- ar fótfestu besta hasarmyndleik- stjóra sem kenndur er við Hong Kong í Vesturálfu. Frumleg, skynsamlega skrifuð, Travolta í toppformi, brellumar og hraðinn hreinasta augnayndi spennufíkla. Jan Sverak. Hrífandi, hlý og falleg mannlífs- mynd frá Tékklandi á dögum Glastnosts. Umburðarlynd gagn- vart gömlu stríðsherrunum í austri, skilningsrík á marg- slungna kviku nýfrjálsrar þjóðar og stórkostlega vel leikin og skrifuð af þeim Sverakfeðgum. (George Armitage.) Kolsvört gamanmynd, frumleg, fyndin og óvenjuleg. Frá ungu og efnilegu kvikmyndaskáldi sem gerir grín að dauðans alvöru og kemst upp með það. John Cusack sýnir enn eina ferðina að hann er enn besti leikari Hollywoodborg- ar. Englentíingupinn (The English Patient). Anthony Minghella. Tvímælalaust „stórmynd“ ársins, mikilfengleg í flesta staði, um ástir og raunir undir hildarleik síðari heimsstyrjaldarinnar. Kon- urnar leika fimavel og Minghella er smekkvís fagmaður. (Secrets and Lies). Mike Leigh. Meistaraverk breska leikstjórans Mike Leigh segir af alþýðufólki í London í nútímanum og það er engu lík- ara en áhorfandinn sé á staðn- um þar sem atburðir myndar- innar gerast svo raunvemleg er hún. Sorg hennar og gleði er næstum áþreifanleg. M\ sjílklinguplnn (The English Patient). Anthony Manghella. Einstak- lega áhrifarík kvikmyndagerð sögu Michael Ondaatjes hefur allt sem prýða má gott bíó. Bygging frásagnarinnar, leik- urinn og örugg leikstjórnin gerir að verkum að erfitt er að gleyma henni. Jan Sverak. Sögulegar sættir Tékka og Rússa settar í bún- ing fallegrar myndar um rosk- inn Tékka sem tekur að sér rússneskan dreng mjög gegn vilja sínum en svo verða þeir aldavinir. Leikurinn er með af- brigðum góður og hlý, tékk- nesk mannelska drýpur af hverjum ramma. (Rigetll). Lars von Trier. Framhald sápuhrollvekju von Triers er jafnvel enn fyndnara og enn óhugnanlegra en fyrsti hlutinn. Myndin er næstum fimm tímar að lengd og það skondna er að tíminn flýgur áfram og þú vilt sífellt meira. Geri margir menntaskólar betur. (Shine). Scott Hicks. Kostuleg ævi pí- anóleikarans Helfgotts rakin frá því hann stefnir ungur á heimsfrægð en missir vitið og til þess að hann kynnist eigin- konu sinni á fullorðinsárum. Merkileg saga af glötuðum snillingi sögð með miklum glæsibrag. LA. Bunfldential Curtis Hanson. Nútíma John Ford mynd sem segir frá því hvernig útlagavestrið verður að siðuðu, nútíma samfélagi. Góð saga, góð persónusköpun og góður leikur í kraftmikilli leik- stjórn Hansons gerir þessa glæpamynd eina þá bestu frá því Kínahverfið var og hét. (Clara’s Song). Ken Loach. Sjaldséðar myndir gerðar af jafnmikilli pólitískri sannfær- ingu og þessi sem segir frá strætisvagnastjóra í Glasgow er kynnist ástandinu í Nigaragua á byltingarárunum. Tveir heimar, tvær fylkingar, tvær manneskj- ur og hyldýpi á milli. Áhrifarík mynd sem lætur engan ósnort- inn með raunsæi sínu og boð- skap. (The Long Kiss Goodnight). Renny Harlin. Besta hasar- mynd ársins naut ekki mikillar lýðhylli en var engu að síður framúrskarandi vel af hendi leyst með ódrepandi kvenhetju í stöðugri hasarkeyrslu. Dúett- inn Geena Davis og Samuel L. Jackson ómótstæðilegur í erfið- um kringumstæðum. (The People vs. Larry Flynt). Milos Forman. Klámkóngurinn Larry Flynt berst gegn rit- skoðun yfirvalda og hefur sigur í skemmtilega hortugri mynd sem forðast að gera helgislepju úr viðfangsefni sínu og gæti það sjálfsagt ekki þótt hún vildi. Tékkinn Formann enn að fjalla um einstaklinginn gegn ríkiskúgun og gerir það fjarska vel. BjÉllRffMP (Sling blade). Billy Bob Thornton. Ein af þessum litlu myndum sem vefja þig inn í stóra sögu. Sambland af Músum og mönnum og To Kill a Mockingbird", glæsileg í einfaldleika sínum, manneskju- leg í raunum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.