Morgunblaðið - 31.12.1997, Page 31

Morgunblaðið - 31.12.1997, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBERÍ 1997 D 81 4- . . Tilhneiging til þess að fá vissa sjúkdóma erfist milli kynslóða. Hvernig og hvers vegna er ósvarað enn. Svörin eru hér fyrir þá sem leita þeirra. Hvergi í heiminum er viðlíka áhugi og þekking á ættfræði ög á íslandi. Erfðagreining ertil muna auðveldari á einstofna þjóð heldur en margstofna. Heilbrigðisþjónustan hér á landi hefur lengi skarað fram úr. Á íslandi eru því einstakar aðstæðurtil erfðafræðirannsókna. Með hóprannsóknum í erfðafræði vinnum við að uppgötvun erfðavísa sem tengjast sjúkdómum. Markmiðið er að hagnýta nýja þekkingu til þess að greina, meðhöndla og lækna slíka sjúkdóma. Við höfum á fyrsta starfsári okkar hafið rannsóknir á erfðavísum sem tengjast algengustu sjúkdómum okkar tíma. Um eitt hundrað starfsmenn, flestir hámenntaðir ungir vísindamenn, hafa lagt hart að sér við rannsóknarvinnu. Þegar hefur náðst góður árangur og er það ekki síst að þakka áhuga íslenskra stjórnvalda, samvinnu við lækna og góðfúsri þátttöku sjúklinga og fjölskyldna þeirra í rannsóknum. Við þökkum þá aðstoð sem fjölmargir íslendingar hafa veitt fyrirtækinu. Hún er mikilsvert framlag í þágu þess að fyrirbyggja og lækna sjúkdóma og lina þjáningar. íslensk erfðagreining þakkar góðar móttökur á íslandi og óskar landsmönnum árs og friðar! GSP almannatenj$l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.