Morgunblaðið - 31.12.1997, Qupperneq 40
40 D MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
þróun Evrópumynta hefur bitnað
mest á saltfiskinum.
Óvissa í upphafi nýs árs
Þannig er staðan um þessi ára-
mót. En hvað er framundan? Sjó-
menn hafa um nokkurt skeið verið
tneð lausa kjarasamninga. Vélstjór-
ar á stærri fiskiskipum hafa boðað
verkfall um miðjan janúar og sjó-
mannafélögin og yfirmenn greiða
atkvæði um verkfallsboðun sem
kæmi til framkvæmda í byijun febr-
úar. Viðræður við sjómenn hafa
gengið treglega og eykur það á
vandann að vélstjórar á stærri fiski-
skipum gera kröfur um aukinn hlut
sér til handa. Segja má að krafa
vélstjóra um aukinn hlut stefni öll-
um viðræðum í strand. Komi til
verkfalls vélstjóra síðari hluta jan-
úar og yfir- og undirmanna í febr-
úar nk. munu þau verkföll hafa
gífurleg áhrif á rekstur allra sjávar-
útvegsfyrirtækja. Það er vandséð
hvaða tilgangi þau átök þjóni. Það
liggur fyrir launastefna í landinu
og búið að gera langtímasamning
á vinnumarkaði. Við hljótum að
vona að samningar takist við sjó-
menn og ekki komi til verkfalls á
fiskiskipum í upphafi nýs árs.
Að lokum óska ég öllum sem
starfa við sjávarútveg og lands-
mönnum öllum gleðilegs árs.
Bjarni Finnsson, for-
^ maður íslenskrar
verslunar
Verslunin
er að eflast
VERSLUN á íslandi er að eflast
sem starfsgrein þrátt fyrir, eða
m.a. vegna þess, að hún á í vax-
andi samkeppni inn-
byrðis og við verslun í
nálægum löndum. Það
er þó ljóst að einstök
verslunarfyrirtæki
standa misjafnlega, og
eins miðar verslun mis-
jafnlega eftir svæðum.
En almennt hafa að-
stæður verið góðar á
árinu fyrir verslun á
íslandi. Rekstrarum-
hverfi versiunar hefur
að sumu leyti verið
fært í jafnræðisátt
samanborið við aðrar
starfsgreinar, en á
undanförnum árum
■*5iafa hagsmunasamtök
verslunarinnar unnið að því að fá
þá leiðréttingu. Þetta hefur borið
nokkurn árangur, en áfram þarf
að vinna að því að auka skattalegt
jafnræði atvinnugreina. Verslunin
hefur sjálf lagt mikla áherslu á
tæknivæðingu greinarinnar, og það
ásamt aukinni framleiðni og hag-
stæðri efnahagsþróun í landinu á
síðasta ári hefur stuðlað að eflingu
verslunar. Þjóðhagsstofnun hefur
upplýst, að kaupmáttur atvinnu-
tekna hafi batnað um 6,4% á milli
áranna 1995 og 1996, og leita verði
aftur til ársins 1987 til að finna
dæmi um meiri kaupmáttaraukn-
mgu á einu ári. í fyrra reyndust
meðalráðstöfunartekjur hjóna
2.407 þúsund krónur eða 201 þús-
und krónur á mánuði. Ráðstöfunar-
tekjurnar hækkuðu um 6,3% á milli
ára.
Verslunin finnur sífellt meira
fyrir samkeppni við verslanir í út-
löndum því bæði ferðast íslendingar
mikið og gefa sér þá tíma til að líta
í verslanir, en auk þess verður sí-
fellt meira vart við Ijarkaup um
póstverslun og tölvur. Síðan bætist
við, að erlend fyrirtæki eða umboð
þeirra hér á landi, setja upp verslan-
ir í Reykjavík og efla með því nokk-
uð samkeppnina. Þessi aukna sam-
keppni er holl fyrir verslunina svo
lengi sem jafnræði ríkir á milli að-
ila. Því miður er ennþá nokkur
ójöfnuður á milli útlendrar verslun-
ar og innlendrar, t.d. er virðisauka-
skattur mishár í löndunum. En þrátt
fyrir slíkan mismun hefur verslun
á Islandi tekist að vera samkeppnis-
hæf í verði, og sanna aukin innkaup
útlendra ferðamanna á íslandi best
að þetta hefur tekist.
Margt torveldar neytendum sam-
anburð á verði á milli landa, t.d.
sú staðreynd, að flest er greitt með
kortum og upphæðir síðan reiknað-
ar yfir í dollara hér og bætt við
kostnaði. Evróið mun að sjálfsögðu
skerpa þessa samkeppni mikið þeg-
ar það verður tekið upp í bytjun
ársins 1999, en langflest ríki Evr-
ópu munu að líkindum taka þátt í
Efnahags- og myntbandalaginu og
taka upp Evróið þá eða næstu ár á
eftir. Þá geta neytendur með auð-
veldum hætti borið saman raun-
verulegt verð sambærilegra vara í
löndum Evrópu, og samkeppni
verslunarfyrirtækja hlýtur að sama
skapi að aukast. Þær viðræður sem
hafa nú nýlega hafist við stjórnvöld
í Kanada um gerð gagnkvæms frí-
verslunarsamnings eru mikilvægar
fyrir íslenska verslun. Slíkur frí-
verslunarsamningur gæti aukið
verslun á milli landanna mikið og
stuðlað að auknum samskiptum og
tíðari samgöngum. Sömuleiðis geta
fyrirhugaðar framkvæmdir við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og öflug
markaðssetning stöðvarinnar fjölg-
að ferðamönnum og jafnframt eflt
íslenska verslun. Verslunin fagnar
því skrefi sem stigið var á árinu
með aukningu verslunarrýmis í
flugstöðinni og útboði þess til einka-
aðila. Vonandi verða fleiri skref
stigin á sömu braut á næstu árum.
Endurskoðun sölukerfis áfengis er
baráttumál hagsmunasamtaka
verslunarinnar og fagna ber við-
horfsbreytingu sem fram kemur í
stefnumótun og framtíðarsýn nú-
verandi stjórnar ÁTVR. Enda þótt
einkasala ríkisins með áfengi sé
ekki talin bijóta í bága við lög og
samþykktir ESB og EES, þá er ljóst
að breyta verður sölukerfi áfengis
til þess að það færist nær viðtekn-
um viðskiptavenjum og verslunar-
þjónustu. Verslunin hvetur stjórn-
völd til að nýta það
vörudreifingarkerfi
sem til er í landinu við
sölu áfengis, en draga
að sama skapi úr versl-
unarrekstri hins opin-
bera.
Þróunin í verslun á
íslandi hefur haldið
áfram þannig að hlutur
höfuðborgarinnar og
SV-hornsins verður sí-
fellt meiri, en að sama
skapi dregur úr verslun
á öðrum stöðum í land-
inu. Ekki verður séð
að breyting verði á
þessu nema stjórnvöld
landsins og sveitarfé-
laganna taki höndum saman um
eflingu stærstu verslunar- og þjón-
ustukjarna utan höfuðborgarsvæð-
isins til mótvægis við höfuðborgar-
svæðið. í stað þess að rekstrarum-
hverfi verslunar út um landið versni
alls staðar meira, móti yfirvöld
stefnu varðandi verslun og þjónustu
utan SV-hornsins og fylgi henni
síðan eftir með samstilltu átaki.
Þetta kallar á harðar en óhjákvæmi-
legar ákvarðanir.
Á höfuðborgarsvæðinu heldur
áfram samþjöppun í versluninni,
þ.e.a.s. aukin keðjumyndun og til-
færsla verslunar til færri og stærri
aðila. Jafnframt eflast verslunar-
klasar eða svæði þar sem margar
verslanir hafa sameiginlega sterkt
aðdráttarafl á neytendur. Meirihluti
matvöruverslunar á höfuðborgar-
svæðinu er kominn í hendur aðila
sam eru í samstarfi og að nokkru
leyti sameign. Fáir og stórir aðilar
ráða bróðurparti þeirrar matvöru-
verslunar sem eftir er. Einstakur
sjálfstæður kaupmaður sem ekki
er í samstarfi við aðra verslunar-
aðila, býr við vaxandi rekstrarerfið-
leika, og slíkum aðilum fækkar
óðum. Sk. þægindaverslanir,
þ.e.a.s. klukkubúðirnar og bensín-
stöðvar, sækja að „kaupmanninum
á horninu“. Skipulagsmál hafa ver-
ið ofarlega á baugi í höfuðborginni
og nágrenni á árinu, ekki síst með
tilliti til verslunar. Áform um upp-
byggingu stórrar verslunarmið-
stöðvar í Kópavogi, stækkun
Kringlunnar og skipulag miðborgar
Reykjavíkur hafa ekki síst valdið
þeirri umræðu. Ljóst er að kjarni
þessa máls er samkeppni íjárfest-
ingar og rekstraraðila í verslun og
síðan samkeppni sveitarfélaganna
sem í hlut eiga. Þessi samkeppni
er ekki óeðlileg, en þó ber e.t.v. að
harma að skipulagsmál séu með
þeim hætti, að ekki sé litið á allt
höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði
heldur fari línur eftir mörkum sveit-
arfélaga þar. Fyrir neytendur og
verslunina er þetta eitt markaðs-
svæði, og af því mótast hegðun
þeirra og framkvæmdir. Ánægju-
legt er þó að sjá, að sveitarstjórnir
eru að átta sig á nauðsyn samráðs
við fyrirtæki og einstaklinga til
þess að skipulag og framkvæmd
þess gangi eftir vandræðalaust.
Skipulagsmál hafa nú í mánuðinum
verið mikið rædd í Reykjavík. Þarna
hefur gildi verslunar fyrir borgar-
þróun verið viðurkennt og nú er
lögð áhersla á samráð við kaup-
menn um þróun skipulags í mið-
borginni. Sama ætti að gilda um
hafnarsvæði, sem mikilvægt er fyr-
ir verslunina að henti þörfum henn-
ar. Sveitarfélög víðar mættu gjarn-
an íhuga hvort ekki er ástæða til
að fylgja þessu fordæmi. Fjárfestar
verða að geta treyst því að skipulag
standi, en að því sé ekki breytt eft-
ir hentugleikum stjórnvalda hveiju
sinni.
Aukin fjarverslun, þ.e.a.s. versl-
un um alnetið, sjónvarpsmarkaði
o.s.frv. mun stuðla að breytingu á
verslunarmynstri á næstu árum.
Verslunin þarf að gera sér grein
fyrir þessu, og búa sig undir breyt-
ingarnar. Upplýsingatækni og
„vörudreifikerfi" mun skapa fyrir-
tækjum samkeppnisyfirburði á
markaðinum. Menn greinir á um
hversu mikil verslun færist til vegna
þessarar tækni, en flestar spár gera
ráð fyrir að a.m.k. 10% af matvöru-
verslun verði með þessum hætti
innan 5 ára. Um leið og þetta þýð-
ir erfiðleika fyrir verslun í stærri
bæjum getur það þýtt lausn ákveð-
inna vandamála fyrir neytendur í
fámennum byggðum þar sem ekki
er hægt að reka verslun á arðbæran
hátt.
Aukin verslun erlendra ferða-
manna á íslandi hefur verið sam-
starfsverkefni hagsmunaaðila á ár-
inu, og íslensk verslun hefur ásamt
Reykjavíkurborg veitt verðlaun,
Njarðarskjöldinn, þeirri verslun sem
hefur skarað fram úr í borginni í
þjónustu við ferðamenn. Ljóst er
að útlendir ferðamenn á íslandi
kaupa nú fleiri vörutegundir og
fyrir hærri upphæðir en áður og
hefur samstarfið sem áður var nefnt
án efa haft góð áhrif á þetta.
Á síðustu mánuðum hefur skriða
afsláttar- og tryggðarkorta farið
yfir markaðinn, og verslunin hefur
með einum eða öðrum hætti tengst
þessum kortum. Ljóst er að áhrif
þessara korta á markaðinn munu
verða þau að hækka verð þeirra
sérvara sem einkum eiga í hlut.
Þetta rýrir þar með samkeppnis-
hæfni íslenskrar verslunar í saman-
burði við erlenda verslun. Að þessu
þarf verslunin að hyggja, þótt verð-
lag hér fari lækkandi, og sé í mörg-
um greinum fyllilega samkeppnis-
fært við útlendar verslanir. Samtök
Evrópuverslunar, EuroCommerce,
hafa nú kært samráð kortafyrir-
tækja í Evrópu til Evrópudómstóls-
ins m.a. vegna þjónustugjalda sem
aðildarverslanir þurfa að greiða.
Vonast er eftir niðurstöðu fljótlega.
Bílainnflutningur er nú á þessu
ári sem er að líða að nálgast meðal-
talsinnflutning eftir mjög lítinn inn-
flutning bíla undanfarin ár.
Á undanförnum árum hefur
neyslustýring þess opinbera í formi
stighækkandi gjalda minnkað og
eru gjaldflokkar nú 3 í stað 7 áð-
ur. Einnig hafa gjöld á stærri hóp-
ferða- og vöruflutningabíla verið
lækkuð. Breytingar þessar hafa
tekist mjög vel og mun meira er
nú flutt inn af betur búnum bílum
með meiri öryggisbúnaði og hefur
úrval íjórhjóladrifinna bíla og bíla
með sætum fyrir fleiri en 4 farþega
aukist. Nauðsynlegt er að neyslu-
stýring í formi mismunandi gjalda
á ökutæki verði aflögð og gætt sé
jafnræðis, þannig að sambærileg
gjöld séu lögð á tæki til sambæri-
legra nota og hver og einn geti ljár-
fest í því tæki sem best þjónar flutn-
ingsþörfinni. Þá þarf að stuðla að
því að barnmargar fjölskyldur geti
eignast hentugan bíl á sambærilegu
verði við aðra og fjölskyldan geti
ferðast saman löglega og að fyllsta
öryggis sé gætt.
Bifreiðir eru nauðsynleg fram-
leiðslutæki og óeðlilegt að skatt-
leggja atvinnulífið í formi gjalda á
þær bifreiðir sem það notar og rýr-
ir það samkeppnisstöðu landsins.
Meðalaldur fólksbíla hefur hækk-
að um 7,5 ár í 9,5 ár á þessum
áratug og er mun hærri á atvinnu-
bifreiðum og almennt eru bílar eldri
hér og menga meira en í flestum
nágrannalöndum okkar. Stutt er
síðan reglur voru settar um notkun
hvarfakúta þannig að um þrír af
hveijum fjórum bílum á götunum
eru án mengunarvarnabúnaðar.
Kjarasamningar við verslunar-
menn til 3ja ára voru gerðir fyrr á
árinu, og er samningstíminn og
ýmis ákvæði samningsins nokkur
nýmæli. Samningarnir tóku mið af
spám Þjóðhagsstofnunar um verð-
lagsþróun og byggðu á nýjum lög-
um um kjarasamninga og vinnudeil-
ur, tóku mið af tilskipunum ESB
um vinnutíma o.fl. og viðræðuáætl-
unum sem gert er ráð fyrir að séu
settar upp við gerð kjarasamninga.
Með nokkrum hætti kom verslunin
sem starfsgrein beinna inn í samn-
ingaferlið en áður, og enn fremur
fylgdu í kjölfar samninganna sk.
vinnustaðasamningar við starfs-
menn á einstökum starfsstöðvum.
Fyrirmynd kjarasamninga verslun-
arinnar eru samningar sem verslun-
in og launþegasamtök verslunar-
fólks í Danmörku hafa þróað. Með-
al nýmæla var stigið skref í þá átt
að fella niður launataxta aðra en
lágmarkslaun líkt og gert hefur
verið í Danmörku. Er e.t.v. tíma-
bært að fella alla launataxta út úr
næstu samningum árið 2000?
Verslunin lítir framtíðina björtum
augum og horfir með eftirvæntingu
fram á nýtt og spennandi ár.
Magnús Oddsson
ferðamálastjórí
Treysta
þarf for-
sendur til
frekari
vaxtar
ÞAÐ ER hefð og reyndar öllum
nauðsynlegt að líta til baka um
áramót. Þetta gerir íslensk ferða-
þjónusta eins og aðrar
atvinnugreinar þjóðar-
innar. Þegar árangur
ársins 1997 er skoðaður
er það eðlilega mjög
misjafnt hver niður-
staða einstakra fyrir-
tækja, landshluta og
einstaklinga verður.
Árangur heildarinn-
ar kemur fram í ýmsum
opinberum tölulegum
upplýsingum svo og í
niðurstöðum þeirra
kannana, sem gerðar
hafa verið meðal okkar
innlendu og erlendu
gesta.
Erlendir gestir á
þessu ári verða um 202.000 og er
um hlutfallslega litla aukningu að
ræða frá árinu 1996 eða rúm 2%.
Er það í fyrsta sinn í nokkur ár sem
ekki verður veruleg aukning á fjölda
erlendra gesta til landsins á milli
ára. Til viðbótar við þá gesti sem
að ofan eru taldir komu hingað um
40.000 dagsferðamenn á árinu.
Á árinu náðist sá áfangi að meira
en helmingur erlendu gestanna, eða
yfir 100.000, kom utan hins svo-
nefnda hefðbundna ferðamanna-
tíma. Þessi árangur er í samræmi
við þau markmið sem sett hafa
verið um að ná hlutfallslega meiri
aukningu í umsvifum utan háanna-
tímans og hefur það tekist undan-
farin ár.
Hér er að skila sér árangur í
vöruþróun og markaðssetningu,
sem unnið hefur verið að árum sam-
an í þeim tilgangi að ná betri nýt-
ingu fjárfestinga allt árið. Gjaldeyr-
istekjur af ferðaþjónustu voru sam-
kvæmt upplýsingum Seðlabankans
fyrstu níu mánuði ársins um 17,8
milljarðar. Því má gera ráð fyrir
að heildargjaldeyristekjur af ferða-
þjónustu verði um 22 milljarðar á
árinu eða 6-7% meiri en árið 1996.
Þegar rætt er um tekjur af ferða-
þjónustu á árinu 1997 er ekki úr
vegi að benda á þá fjármuni, sem
þessir 240 þúsund erlendu ferða-
menn greiða beint til ríkisins.
Leiða má að því líkur að erlendir
gestir á þessu ári greiði í skatta
vegna beinna kaupa á vöru og þjón-
ustu allt að 1,6 milljarða króna. Þá
er ekki verið að tala um óbein áhrif
eins og skatta af launum starfs-
fólks, skatta fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu og aðra skatta vegna marg-
feldisáhrifa þessarar atvinnugrein-
ar sem eru þessu til viðbótar og
hlutfallslega hliðstæð og í öðrum
atvinnurekstri. Virðisaukaskattur
er innheimtur beint af gestum af
hverri gistinótt, hverri máltíð, öllum
vörukaupum og þjónustu, vega-
skattur af hveijum bensínlítra,
o.s.frv. Endurgreiðsla til erlendra
ferðamanna er óverulegur hluti
þessarar upphæðar eða um 100
milljónir. Beinar skattgreiðslur
gestanna gætu því numið allt að
1,5 milljörðum á árinu á meðan á
dvöl þeirra stendur um leið og þeir
skapa þúsundir ársverka í landinu.
Þetta er sett hér á blað til að
sýna mikilvægi þeirra gesta sem á
þessum vettvangi í fyrra voru
nefndir „gestir þjóðarinnar". Inn-
lendir ferðamenn greiða svo eðlilega
sömu óbeinu skatta af keyptri þjón-
ustu af ferðaþjónustufyrirtækjum
og öðrum á ferðalögum um eigið
land.
Ekki liggja fyrir hjá Hagstofunni
tölur um heildarfjölda gistinátta á
þessu ári. Ýmsar upplýsingar gefa
þó tilefni til að ætla að aukning
hafi enn orðið í ferðalögum íslend-
inga um eigið land.
Stóraukin fjölmiðlun
og margmiðlun
Á árinu 1997 heimsótti okkur
mikill fjöldi erlends fjölmiðlafólks.
Mér er til efs að slíkur fjöldi hafi
komið áður á einu ári. Mjög mikil
áhersla hefur verið lögð á þennan
þátt kynningarstarfsins af hálfu
ferðaþjónustunnar á undanförnum
árum.
Milli sex og sjö hundruð fjöl-
miðlamenn komu á árinu á vegum
ferðaþjónustuaðila og kynntu sér
land og þjóð og mun fleiri sýndu
áhuga á íslandsferð. Sjónvarps-
stöðvar voru áberandi í þessum
hópi og hefur fjöldi þátta um land
og þjóð verið sýndur víða um lönd
undanfarið. Þegar litið
er til prentmiðlanna
er víða að sjá ómet-
anlegar upplýsinga:
og myndagreinar. í
þýskalandi einu hafa
t.d. á þessu ári birst
rúmlega 300 greinar
qg fréttaklausur um
ísland í blöðum og
tímaritum. Með þess-
ari auknu umfjöllun
er vakin forvitni til
frekari kynna. Þess
misskilnings gætir
stundum að íjölmið-
laumfjöllum ein og sér
selji ferðir til íslands.
Þessu er auðvitað ekki
svona farið.
Til þess að hún nýtist þarf sam-
hliða henni að efla allt annað mark-
aðsstarf og sölu- og dreifingarkerfi
ferðaþjónustunnar verður að vera í
stakk búið til að þjóna auknum
áhuga á viðkomandi svæði. Þá hef-
ur umfjöllun innlendra fjölmiðla um
ferðaþjónustu og ferðamöguleika á
íslandi stóraukist og á sinn þátt í
vaxandi fjölda þeirra sem „sækja
ísland heim“
Öll margmiðlun skiptir okkur
stöðugt meira máli í kynningar-
starfinu. Samkvæmt könnunum er
ljóst að stöðugar breytingar eru að
verða á kauphegðun ferðamanna.
Bjarni Finnsson
Magnús Oddsson