Morgunblaðið - 31.12.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBERÍ 1997 D 41
UMHVERFIÐ SKIPTIR
OKKUR MÁLI
Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hlaut
umhverfisviðurkenningu Iðnlánasjóðs 1997 fyrir að
skara fram úr f aöbúnaöi og öryggi starfsfólks og
verndun umhverfisins.
Við útgáfu á Morgunblaðinu er markvisst unniö
að þvf að nýta til hins ýtrasta öll aðföng við vinnslu
blaösins og öllu því sem gengur af er komiö til
endurvinnslu eða fargað á viðeigandi hátt.
Áhersla er lögð á að takmarka sem mest notkun
á efnum sem kunna að vera skaöleg umhverfinu.
Sett hefur verið upp sérstakt flokkunarkerfi fyrir allan
úrgang og leitast hefur verið við að hafa kerfið sem
einfaldast til að auðvelda framkvæmdina. Þannig er
almennur úrgangur eins og fellur til á flestum vinnu-
stöðum, svo sem pappfr, prenthylki úr prenturum,
rafhlöður og umbúðir undan drykkjarvörum, flokkaður
og settur f endurvinnslu eða fargað.
Sérstakur hreinsibúnaður hefur verið settur upp til
meöhöndlunar á margvíslegum efnum sem nota þarf
f starfseminni, auk þess sem sérútbúið fráveitukerfi
á að tryggja að ekki fari óæskileg efni út f umhverfið.
öllu þvf sem notað er f starfseminni er komið f
endurnýtingu, svo sem álplötum, dagblaða-
pappfr, filmum, smurolfu, framköllunanrökva
og prentfarfa.
Á Morgunblaðinu láta starfsmenn og stjórnendur
sig umhverfið varða og eru vakandi fyrir nýjum
úrlausnum á öllum sviðum starfseminnar sem leiöa til
þess að framleiðsla blaðsins valdi sem minnstri röskun
á umhverfinu. Þvf er sú viðurkenning sem útgáfufélagið
hlaut mikil hvatning til áframhaldandi vöku og er stefnt
að þvf aö á nýju ári veröi komiö á umhverfisstjórnunar-
kerfi í samræmi viö alþjóöastaöalinn ISO 14001.
VERND
UMHVERFIS-
VIÐURKENNING
IDNLÁNAS)ÓÐS
U,
Morgunblaðið óskar lesendum og landsmönnum öllum gleðilegs árs
og þakkar fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.