Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dæmdur í 18 mánaða
fangelsi fyrir inn-
flutning á hassi
Morgunblaðið/Hólmfríður S. Haraldsdóttir
Jakaburður úr Seljadalsá
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 35 ára karlmann í 18
mánaða fangelsi fyrir að smygla til
landsins 192 grömmum af hassi í
pósti frá Kaupmannahöfn. Maður-
inn játaði brot sitt og hélt því fram
að hassið hafi hann ætlað til einka-
nota, en í héraðsdómi þótti sannað
að hann hafi ætlað hluta efnisins til
sölu í ágóðaskyni.
Maðurinn sendi hassið á heimil-
isfang blómabúðar í nágrenni við
heimili sitt í október síðastliðnum.
Vaktaði maðurinn póstsendingar
þangað og fékk hann bréfið afhent
hjá bréfbera. Maðurinn áttaði sig á
því 10 mínútum síðar að skipt hafði
verið um efni í bréfinu, en það
hafði verið gert þegar hassið
fannst við leit í tollpóststofunni við
Armúla.
Rauf skilorð
Fyrir dómi neitaði maðurinn því
alfarið að efnið hafi verið ætlað til
sölu en það sagðist hann hafa
keypt á 3.000 danskar krónur og
kaupverð þess hérlendis væri um
tífalt hærra. Sagðist maðurinn hafa
neytt hass að andvirði 2.000-3.000
kr. á dag, og þótti framburður hans
um að hann hafi ætlað allt hassið til
einkaneyslu ótrúverðugur. Þótti
dómnum ekki varhugavert að telja
sannað að ákærði hafi ætlað hluta
efnisins til sölu í ágóðaskyni, en
hluta þess hafi hann ætlað að neyta
sjálfur.
Maðurinn hafði áður verið
dæmdur í fjögurra ára fangelsi í
Þýskalandi árið 1985 fyrir brot
gegn hegningarlögum og fíkniefna-
löggjöf vegna innflutnings og sölu
mikils magns amfetamíns, og árið
1991 var hann dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi í Kaupmannahöfn
fyrir hegningar- og fíkniefnalaga-
brot. I Frakklandi var hann dæmd-
ur í sex mánaða fangelsi í árslok
1992 fyrir brot gegn fíkniefnalög-
um, þar af fjóra mánuði skilorðs-
bundið, og aftur var hann dæmdur
í Frakklandi í maí 1993 í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir þjófnað.
Hlaut maðurinn reynslulausn í
september 1996 skilorðsbundið í
tvö ár á eftirstöðvum refsingar, 480
dögum.
I dómi héraðsdóms Reykajavík-
ur segir að með broti því sem mað-
urinn var nú ákærður fyrir hafi
hann rofið skilorð framangreindrar
reynslulausnar og því beri að
dæma hann í einu lagi fyrir þessi
brot og þykir refsing hans hæfilega
ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Hass-
ið sem hann póstsendi hingað til
lands var gert upptækt og maður-
inn var dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað. Dóminn kvað upp
Ingibjörg Benediktsdóttir héraðs-
dómari.
SELJADALSÁ, sem á upptök sín
langt frammi á Fljótsheiði og
rennur í Reykjadalsá, á það til að
ryðja sig með miklum látum, en
frá því núverandi brú við Jaðar
var smfðuð fyrir 25 árum hafa
aldrei komið klakastíflur í ána.
Jakaburðurinn var hins vegar
slíkur í leysingunum um og eftir
helgi að hann fyllti upp í rúmið
undir brúnni. Eyrin sunnan við á,
Breiðumýrarmegin, var á kafi og
neðan við brú flaut áin yfir
bakka sína og kastaði til jökum,
aur og gijóti um allt. Vafah'tið
hefur þessi mikli jakaburður
valdið einhveiju tjóni, en ekki er
unnt að ganga úr skugga um það
strax. Á myndinni eru bræðumir
Hinrik og Óli Hjálmar að skoða
jakana.
Ragnar H. Hall settur sérstakur ríkislögreglustjóri til að
kanna málefni lögreglunnar í Reykjavík
Samtök verslunarínnar fagna nýju sparikorti
Ræða hugsanlegt
samstarf við Spron
HJA Samtökum verslunarinnar -
félagi íslenskra stórkaupmanna,
sem eru samtök fyrirtækja í milli-
ríkjaverslun, heildsölu og smásölu-
verslun, fagna menn Sparikortinu,
hinu nýja greiðslukorti Bónuss og
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis. Að sögn Stefáns S. Guð-
jónssonar, framkvæmdastjóra
samtakanna, munu þau eiga fund
með forráðamönnum Spron í dag
til þess að kanna hugsanlegt sam-
starf fyrir hönd félagsmanna.
Sparikortið er frábrugðið öðrum
krítarkortum á þann hátt að kort-
hafar greiða sjálfir þá þóknun sem
verslanir greiða annars kortafyrir-
tækjunum og í stað árgjalds greiða
korthafar úttektargjald þannig að
kostnaður verður í samræmi við
notkun kortsins.
„Við fógnum þessari niðurstöðu,
sem er í samræmi við þau sjónar-
mið sem við höfum haldið á lofti í
þessu sambandi og við höfðum gert
okkur vonir um að mál myndu þró-
ast í þessa átt,“ sagði Stefán.
„Við vildum sjá greiðslukorta-
viðskipti fara í þennan farveg sem
nú hefur orðið með Sparikorti
Bónuss, svo að við fógnum þessu
ákaft og erum raunar með þetta
mál til sérstakrar umíjöllunar,"
segir Stefán.
Fulltrúar Samtaka verslunarinn-
ar - félags íslenskra stórkaup-
manna munu eiga fund með for-
ráðamönnum Spron í dag til þess
að ræða hugsanlegt samstarf. „Það
er of snemmt að fullyrða um í
hvaða farveg þetta muni fara en
auðvitað gæti maður séð það fyrir
sér að kaupmenn myndu hætta að
taka við krítarkortum og eingöngu
taka við kortum Spron eða þeirra
sem yrðu með svipað fyrirkomulag
á sínum greiðslukortaviðskiptum,"
segir Stefán ennfremur.
Hvarf fíkniefna hjá
lögreglunni rannsakað
RAGNAR H. Hall hæstaréttarlögmaður hefur af dómsmálaráðuneyt-
inu verið settur ríkislögreglustjóri til að kanna meðferð og vörslu fíkni-
efna hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík, að kanna hvort starfs-
menn eða yfirmenn hafi brotið gegn starfsfyrirmælum eða starfsskyld-
um. Jafnframt hefur ráðuneytið farið þess á leit við ríkisendurskoðun
að áður umbeðinni stjómsýsluúttekt hennar á embætti lögreglustjór-
ans í Reylgavík verði flýtt eins og unnt er.
Rannsókn setts ríkislögreglu-
stjóra er tilkomin í framhaldi af
niðurstöðu úttektar ríkislögreglu-
stjóra frá 23. þessa mánaðar sem
gerð var að beiðni dómsmálaráðu-
neytisins að fengnu erindi frá emb-
ætti lögreglustjórans í Reykjavík.
Úttektin náði til tímabilsins 1981 til
1. júlí 1997. í bréfi ríkislögreglu-
stjóra til dómsmálaráðuneytisins sl.
mánudag er greint frá niðurstöð-
unni og kemur þar meðal annars
fram að rúm fjögur kíló af fíkniefn-
um vanti í fíkniefnageymslu lög-
reglunnar í Reykjavík miðað við
fyrirliggjandi slö-áningu embættis-
ins á haldlögðum efnum.
Dómsmálaráðuneytið fól ríkis-
lögreglustjóra rannsókn á málinu
en í bréfi til ráðuneytisins í gær
lýsti Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri því yfir að hann teldi
sig vanhæfan til frekari meðferðar
málsins með vísan til 6. töluliðs, 1.
málsgreinar, 3. greinar stjómsýslu-
laga nr. 37/1993 í ljósi þess að hann
var starfsmuður lögreglustjórans í
Reykjavík í sex mánuði undir lok
þess tímabils sem úttektin tók til.
Af þeirri ástæðu hefur ráðuneytið
sett Ragnar H. Hall hrl. sem ríkis-
lögreglustjóra til að fara með eftir-
farandi verkefni vegna þessa máls:
Að kanna meðferð, vörslu og af-
hendingu fíkniefna hjá embætti
lögreglustjórans í Reykjavík á fyrr-
greindu árabili, að kanna hvort
starfsmenn embættisins hafi brotið
gegn starfsfyrirmælum eða starfs-
skyldum sínum á opinbemm vett-
vangi; að kanna hvort gmnur leiki
á því að starfsmenn embættisins
hafí framið refsiverð brot við störf
sem tilkynna beri ríkissaksóknara.
Þá segir í frétt frá dómsmála-
ráðuneytinu að verði ríkissaksókn-
ara tilkynnt um ætlað brot og
ákveði hann að málið sæti opinberri
rannsókn sé Ragnari falið að ann-
ast slíka rannsókn undir stjóm rík-
issaksóknara.
Mjög alvarleg
niðurstaða
„Þetta er mjög alvarleg niður-
staða og ég taldi nauðsynlegt að
bregðast við í samræmi við það,“
sagði Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „Þess vegna höfum við sett
sérstakan ríkislögreglustjóra til
þess að rannsaka málið. Honum er
falið að kanna hvort tveggja, hvort
einstakir lögreglumenn eða yfir-
menn lögreglunnar hafi brugðist
starfsskyldum sínum eða hvort um
sé að ræða brot gagnvart hegning-
arlögum. Síðan er óskað eftir því
við ríkisendurskoðun að hún hraði
sem mest má verða þeirri stjórn-
sýsluathugun sem við fórum á dög-
unum fram á að hún gengist fyrir.“
Ráðherra sagði ekki önnur atriði
úttektarinnar en þau er varða hvarf
fíkniefna vera til skoðunar. Þar
sem ekki hefur farið fram talning
eða eftirlit með efnunum á um-
ræddu tímabili er ekki séð hvenær
ætla megi að þau hafi horfið og „er
það ekki í nógu góðu lagi,“ sagði
ráðherra. Settur ríkislögreglustjóri
hefur ekki fengið sérstök tímamörk
til verksins en ráðherra segir hann
munu reyna að hraða málinu.
„Mér þykja þetta vera alvarleg
tíðindi og vond niðurstaða eftir þá
birgðatalningu sem hér var tekin
að undirlagi okkar miðað við fyrsta
júlí í fyrra,“ sagði Böðvar Braga-
son, lögreglustjóri í Reykjavík að-
spurður um álit á úttekt embættis
ríkislögreglustjóra. Böðvar sagði
birgðatalninguna hafa verið gerða
þegar ný skipan lögreglumála var
tekin upp 1. júlí á síðasta ári.
Súpum seyðið af því að hafa
ekki staðið í stykkinu
„Þá þótti okkur eðlilegt að gerð
væri birgðatalning og það er hún
sem verið er að birta núna. Þá kem-
ur þetta í ljós sem engan óraði fyrir
að það virðist vera mismunur á því
sem fór inn í geymsluna og því sem
út úr henni kemur. Nú er augljós-
lega ástæða til þess að kafa ræki-
lega ofan í það,“ sagði lögreglu-
stjóri. Hann líkti þessu við sjóð-
þurrð. „Ef vantar uppá er með hefð-
bundnum hætti reynt að bregðast
við því. Það er dómsmálaráðuneyt-
ið, sem æðsti valdhafi lögreglunnar
í landinu, sem ákveður hvemig
brugðist verður við þeirri uppá-
komu sem orðið hefur í stærsta lög-
regluliði landsins sem er vægast
sagt heldur óskemmtileg, svo ekki
sé nú meira sagt,“ sagði lögreglu-
stjóri en rætt var við hann áður en
ráðuneytið ákvað viðbrögð sín.
„Við erum einfaldlega að súpa
seyðið af því að hafa ekki staðið
okkur í stykkinu með það að hafa
reglulega birgðatalningu sjálfir-
Um er að ræða tímabilið frá 1981 til
1997 og það er augljóst að þarna
hefur skort á það innra eftirlit að
við gerðum sjálfir birgðatalningu.
Það hefði sjálfsagt engum dottið 1
hug að nokkur efni gætu rýrnað í
meðförum lögreglu, það er sú nær-
tækasta skýring sem ég hef, en
auðvitað getur lögreglu orðið á |
þeim efnum sem öðrum,“ sagði
Böðvar Bragason.
Ekki er ljóst hvenær á þessum
tíma efnin gætu hafa glatast en í
þeim hluta rannsóknarskýrslu Atla
Gíslasonar um innra skipulag °S
starfshætti fíkniefnalögreglunnar,
sem opinberaður var í síðasta mán-
uði, kemur m.a. fram að við eyðingu
fíkniefna árið 1993 hafi talsverðrar
ónákvæmni gætt við eyðinguna,
efni hafi ekld fundist og lýst er
fleiri ágöllum á efnavörslu.