Morgunblaðið - 26.03.1998, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
> Þaká
laxveiðar
„Ég er ekki tilbúinn með tillögu
á þcssarí stundu/en ég útiloka
slíkt ekki,“ segir Helgi S. Guð-
mundsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, þegar Dagur bar
sji GMuMD-
OG passaðu þig svo bara á að vera ekkert að glenna þig neitt með stöngina
fyrir utan, Sverrir ...
Fulltrúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga
Hlynnt stofnun
lífeyrissjóða
Þýðingarmikið skref í skipan lífeyrissjóðsmála
FULLTRÚARÁÐ Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga lýsti á fundi
sínum 20. og 21. mars yfír stuðn-
ingi við sameiginlega yfirlýsingu
BSRB, BHM og lífeyrissjóðsnefnd-
ar Sambandsins frá í seinustu viku
um stofnun lífeyrissjóðs starfs-
manna sveitarfélaga.
Verða að gera upp hug
sinn fyrir 20. aprfl
Nefnd skipuð fulltrúum Sam-
bands ísl. sveitarfélaga, BSRB og
BHM hefur á undanfömum mánuð-
um rætt framtíðarskipan lífeyris-
sjóðsmála fyrir starfsmenn sveitar-
félaga með það að markmiði að
tryggð verði jafnverðmæt lífeyris-
réttindi starfsmanna sveitarfélaga.
í sameiginlegri yfirlýsingu for-
svarsmanna þessara samtaka 18.
mars sl. var þeim tilmælum beint til
sveitarfélaga og aðildarfélaga
BSRB og BHM að þau geri upp
hug sinn varðandi aðild að stofnun
eins lífeyrissjóðs starfsmanna sveit-
arfélaga fyir 20. apríl, svo unnt
verði að ganga írá endanlegri út-
færslu og formlegum samningum
milli aðila um sjóðinn.
Tekið var undir þessi sjónarmið á
fundi fulltrúaráðs sveitai-félaga um
seinustu helgi. í ályktun fundarins
segir að með þessu sé stigið mjög
þýðingarmikið skref í þá átt að
koma framtíðarskipan lífeyrissjóðs-
mála íyrir starfsmenn sveitarfélaga
í það horf sem ný lög um starfsemi
lífeyrissjóða geri kröfu til, en þau
taka gildi 1. júlí næstkomandi.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Dvergsnípa
vetrargestur
í Kollafírði
DVERGSNÍPUR eru sjald-
séðir vetrargestir hér á landi.
Ein slík sást þó við Mógilsá í
Kollafirði fyrir nokkru.
Kuldakast fyrir þremur
vikum olli því að hrossagauk-
ar og náskyldar tegundir leit-
uðu að heitum skurðum til að
finna æti. Við Mógilsá var
þessi sjaldséði vetrargestur á
Islandi, dvergsnípan.
Allir dagar eru tilboðsdagar hjá okkur
~ r
I LEIÐININI HEIN • UM LAIND ALLT
Manneldisfélag Islands er 20 ára
V ettvangur fyrir
skoðanaskipti um
manneldismál
FUNDUR áhuga-
manna um stofnun
Manneldisfélags ís-
lands var haldinn 30. mars
árið 1978 og er félagið 20
ára um þessar mundir.
Brynhildur Briem er for-
maður félagsins.
„Þetta er áhugamanna-
félag um manneldismál“,
segir Brynhildur þegar
hún er beðin að segja frá
félaginu. „Upphaf þess að
félagið var stofnað var að
árið 1977 gengust lyflækn-
isdeild Landspítalans og
efnafræðistofa Raunvís-
indadeildar Háskólans
fyrir ráðstefnu á Islandi
um neysluvenjur og
heilsufar. I framhaldi af
þeirri ráðstefnu var farið
að ræða um nauðsyn þess að
stofna manneldisfélag hér á
landi. Vaxandi áhugi var þá á
hollu mataræði fyrir vellíðan og
góða heilsu og menn vildu skapa
vettvang til skoðanaskipta um
þessi mál.“
Brynhildur segir að uppúr
þessu hafi verið stofnað félag um
manneldi og fyrsta verkefni þess
var að gefa út ráðstefnurit um
neysluvenjur og heilsufar.
- Voru stofnfélagarnir margir?
„Það var mjög mikill áhugi
fyrir stofnun Manneldisfélags
Islands og stofnfélagarnir voru
um 250 talsins. Þetta var stór-
huga fólk og þrjár nefndir voru
starfandi innan félagsins, vís-
indanefnd, fræðslunefnd og fjár-
málanefnd. Björn Sigurbjörns-
son núverandi ráðuneytisstjóri í
Landbúnaðarráðuneytinu var
fyrsti formaður félagsins."
- Hver eru markmið félagsins?
,Að auka skilning á gildi hollr-
ar fæðu fyrir vellíðan og heilsu
og skapa vettvang fyrir skoðana-
skipti fyrir alla þá sem áhuga
hafa á góðum neysluvenjum. Þá
er eitt af markmiðunum að veita
fræðslu og koma á framfæri
upplýsingum um næringargildi
og hollustuhætti meðal þeirra
sem vinna að framleiðslu vinnslu
eða framreiðslu matvæla." I síð-
asta lagi segir Brynhildur hlut-
verk félagsins að stuðla að nýt-
ingu innlendra hráefna til mann-
eldis.
- Hvernig hefur starfsemin
verið uppbyggð?
„Starfsemin var blómleg
fyrstu árin, félagið gekkst fyrir
útvarpserindum um ýmis svið
næringarfræðinnar og víða voru
haldnir fræðslufundir _______
og málþing. Félagið
stóð meðal annars
fyrir málþingi um
manneldismarkmið
nokkrum árum áður
en manneldismarkmiðin voru
síðan tekin upp og sömuleiðis
var málþing um manneldis-
stefnu. Nokkru síðar var mótuð
manneldisstefna hér á landi og
samþykkt sem þingsályktunar-
tillaga á alþingi. Það má segja að
félagið hafi tekið upp ýmis mál-
efni um manneldi og komið þeim
á framfæri.
Á íyrstu árum félagsins var
rætt um hvort gera ætti stóra
neyslukönnun en af því varð
ekki og Manneldisráð gerði slíka
könnun síðar.“
Gefnar hafa verið út í tvígang
næringarefnatöflur á vegum fé-
lagsins.
Brynhildur segir að á síðasta
Brynhildur Briem
►Brynhildur Briem er fædd í
Reykjavík árið 1953. Hún
lauk prófi í lyjfafræði frá Há-
skóla Islands árið 1977 og
matvælafræði árið 1980.
Brynhildur lauk prófi í nær-
ingarfræði frá Oslóarháskóla
árið 1981. Hún er lektor í
matvæla- og næringarfræði
við Kennaraháskóla Islands
og stundar nám við Norræna
heilbrigðisháskólann í Gauta-
borg. Hún á sæti í Manneldis-
ráði og er formaður Mann-
eldisfélags Islands.
Áhugi á mann-
eldismálum
hefur aukist
ári hafi félagsmenn farið í heim-
sóknir í fyrirtæki og stofnanir
sem tengjast matvælum og
kynnt sér framleiðslu og starf-
semi. Félagar í Manneldisfélagi
íslands eru nú um 250 en voru í
400 þegar mest var.
- Hverjir eru í Manneldisfé-
lagi íslands?
„Allir sem áhuga hafa á mann-
eldismálum geta gerst félags-
menn en aðallega eru það nær-
ingar- og matvælafræðingar,
heimilisfræðikennarar og lækn-
ar sem hafa verið virkir félagar.“
- Það hafa miklar breytingar
orðið á manneldismálum þessi
20 ár?
„Úrval af matvöru hefur auk-
ist mikið undanfai'in ár. Fólk
hefur kynnst öðrum matarvenj-
um á ferðalögum sínum erlendis.
Neysluvenjur hafa breyst
þannig að neysla á ávöxtum,
grænmeti og grófmeti er ekki
sambærileg nú og fyrir tuttugu
árum.
Almennt hefur áhugi vaxið
________ mikið á manneldis-
málum og tækifærum
hefur fjölgað til að
ræða þessi mál. I
byrjun var þetta eina
““““““ félagið sinnar tegund-
ar en nú eru þessi mál víða til
umfjöllunar í þjóðfélaginu.
Skoðanir eru iðulega skiptar
og geta ráðist af hagsmunum
ýmissa aðila. Það er því mikil-
vægt að hafa óháð félag eins og
Manneldisfélagið til að ræða
málin og íylgja þeim eftir.“
- Ætlið þið að halda upp á af-
mælið?
„Það verður haldin sérstök af-
mælishátíð næstkomandi laug-
ardag, þann 28. mars. Félags-
mönnum, sem eru um 250 tals-
ins, er boðið í heimsókn í eldhús
Landspítalans þar sem borðaður
verður hádegisverður og frum-
kvöðlar félagsins verða heiðraðir
og rifjuð upp saga félagsins."