Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fulltrúaráð Sambands ísl. sveitar- félaga um húsnæðisfrumvarpið Nýtt húsnæðis- kerfí einfaldara og sveigjanlegra Morgunblaðið/Ámi Sæberg HELGI Ágústsson, ráðuneytissfíóri utanríkisráðuneytisins, og Marie-Lucie Morin, sendiherra Kanada á ís- landi, undirrita samkomulag um samvinnu Islands og Kanada í viðskiptum og efnahagsmálum. Samkomulag Islands og Kanada um samvinnu í viðskipta- og efnahagsmálum Efla á samskipti og auka frjálsræði FULLTRÚARÁÐ Sambands ís- lenskra sveitarfélaga telur að með húsnæðismálafrumvarpi félags- málaráðherra sé í meginatriðum komið til móts við óskir sveitarfé- laga á félagslega íbúðakerfinu. Full- trúaráðið vill þó að gerðar verði tvær efnisbreytingar á frumvarpinu áður en það verður að lögum. „Nýtt húsnæðiskerfi verður í senn einfaldara og sveigjanlegra í umsýslu og framkvæmd bæði fyrir sveitarfélög og einstaklinga,“ segir í ályktun um frumvarpið sem sam- þykkt var á fundi fulltrúaráðsins sem haldinn var 20.-21. mars. I ályktuninni segir að breytt húsnæðiskerfi komi með ýmsum beinum hætti til móts við þarfir þeirra sem áður fengu viðbótarlán til kaupa á félagslegum íbúðum. Ennfremur sé líklegt að breytt húsaleigubótakerfi, þar sem öll sveitarfélög eru skylduð til greiðslu húsaleigubóta, muni efla leigumarkað og draga úr þörf á byggingu félagslegra eignaríbúða og viðbótarlánum. Lánsheimild íbúðalánasjóðs verði ótímabundin Fulltrúaráðið leggur þunga áherslu á að breytingar verði EFNAHAGSBROTADEILD embættis ríkislögreglustjóra hef- ur að ósk sýslumanns á Húsavík tekið til rannsóknar meintan fjár- drátt fyrrverandi formanns trún- arráðs og forstöðumanns bygg- ingadeildar Dvalarheimilis aldr- aðra á Húsavík. Stjórn dvalarheimilisins lagði fram kæru á hendur manninum fyrir skömmu og hefur hann þegar látið af störfum. gerðar á bráðabirgðaákvæðum frumvarpsins þar sem kveðið er á um heimild íbúðalánasjóðs til að veita lán til leiguíbúða sveitarfé- laga með niðurgreiddum vöxtum. Samkvæmt upplýsingum Pórðar Skúlasonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfé- laga, er lagt til að í stað þess að heimildin verði bundin við árin 1999 og 2000, eins og fi’umvarpið gerir ráð fyrir, verði hún ótíma- bundin eins og verið hefur. „Það er opnað fyrir þann möguleika að sveitarfélög sem hafa orðið að innleysa íbúðir geti hugsanlega breytt hluta þeirra í leiguíbúðir á hagstæðari kjörum," segir Þórð- ur. í ályktun fulltrúaráðsins er rík áhersla lögð á að framlög ríkisins til afskrifta og niðurgreiðslna eldri lána Byggingarsjóðs verka- manna mæti þörfum þeiiTa sveit- arfélaga sem þurft hafa að inn- leysa íbúðir á verði sem sé langt yfir markaðsverði, í samræmi við bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu um varasjóð. „Fulltrúaráðið legg- ur til að að samið verði um þetta framlag ríkisins áður en frum- varpið verður afgreitt," segir Þórður Skúlason. Grunur leikur á að fjárdráttur- inn nemi allt að einum tug millj- óna króna en maðurinn hefur end- urgreitt um 4,5 milljónir króna. Lögreglurannnsókn hefur enn ekki farið fram, samkvæmt upp- lýsingum frá embætti ríkislög- reglustjóra, og var kæran til sýslumanns byggð á útttekt lög- gilts endurskoðanda Dvalarheim- ilsins. Verið er að fara yfir kæru- gögnin. MARIE-Lucie Morin, sendiherra Kanada á Islandi, og Helgi Agústs- son, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, undirrituðu s.l. þriðjudag samkomulag um sam- vinnu í viðskiptum og efnahags- málum milli Kanada og íslands. Litið er svo á að samkomulag þetta sé Uður í að hefja fríverslunarvið- ræður milli EFTA-ríkjanna og Kanada. Sendinefnd frá Kanada hefur átt viðræður við íslensk stjórnvöld að undanfórnu hér á landi um gerð fríverslunarsamnings milli EFTA- ríkjanna og Kanada og átti hún fundi með utanríkisráðherra, al- þingismönnum, fulltrúum ráðu- neyta og nokkurra íslenskra fyrir- tækja. Markmið samkomulagsins er að efla samskipti landanna með sér- stakri áherslu á vöru- og þjónustu- viðskipti, fjárfestingar og sjávarút- vegsmál. Styrkja á samstarf land- anna í því augnamiði að auka frjálsræði og draga úr hömlum í viðskiptum og auka samvinnu einkafyrirtækja á Islandi og í Kanada. Hveija til víðtækari viðskipta og fjárfestinga milli einkafyrirtækja Samningsaðilar ætla að leitast við að skapa sem hagstæðust skil- yrði fyrir afnámi hafta á viðskipt- um með vörur og þjónustu og fjár- festingum milli landanna sam- kvæmt sameiginlegri vinnuáætlun. Verður áhersla lögð á samvinnu um þróun marghliða fjárfestinga- sáttmála og vinnuáætlunar innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Skuldbinda aðilar sig til að hvetja til víðtækari viðskipta og fjárfest- inga milli einkafyrirtækja í löndun- um tveimur og lögð verður rækt við regluleg upplýsingaskipti um tækifæri á sviði viðskipta og fjár- festinga og frumkvæði til kynning- ar, m.a. sambönd á vettvangi fyrir- tækja. í sameiginlegri vinnuáætlun landanna eru sett fram nokkur for- gangsverkefni og er m.a. gert ráð fyrir að lítil og meðalstór fyrirtæki verði hvött til að taka þátt í sam- vinnu á sviði viðskipta og efnahags- mála og stuðlað verði að viðskipta- ferðum, kaupstefnum og vörusýn- ingum milli landanna. Sett verður á fót sérstök sam- ráðsnefnd til þess að auðvelda framkvæmd samkomulagsins og uppfylla markmið þess. Verður nefndin skipuð fulltrúum stjóm- valda en fulltrúum atvinnulífsins verður boðin þátttaka í störfum nefndarinnar. Ríkislögreglustjóri rann- sakar meintan íjárdrátt Gengið frá kaupum á 100% hlut í Skímu hf. Óháð framboð í Hafnarfírði Leiðbein- andi skoð- anakönnun FJARÐARLISTINN í Hafharfirði, „samtök um samfylkingu þeirra sem aðhyllast félagshyggju og jafnrétti í reynd“, gangast fyrii’ leiðbeinandi skoðanakönnun vegna uppröðunar á framboðslista fyrir komandi bæjar- stjórnarkosningar. Könnunin mun fa)-a fram laugar- daginn 4. apríl n.k. og er opin öllum sem hafa kosningarétt í Hafnarfirði og styðja Fjarðariistann, segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. Þar kemur einnig fram að skoðana- könnunin sé leiðbeinandi og að kjör- nefnd sé óhlutbundin af niðurstöðum hennar. Að framboði Fjarðarlistans standa óháðir einstaklingar, aðilar úr Alþýðu- bandalagi og Jafnaðai-mannafélagi Hafnarfjarðar auk einstaklinga innan Kvennalistans. Frestur til að gefa kost á sér á framboðslista samtak- anna rennur út klukkan 18 sunnudag- inn 29. mars nk. í kjömefnd Fjarðar- listans sitja Erlingur Kristensson, Guðrún Margrét Ólafsdóttir, Harald- ur Eggertsson, Ingibjörg Jónsdóttii- og Símon Jón Jóhannsson. ÞÓRARINN V. Þórarinsson, stjómarformaður Landssímans hf., segist gera ráð fyrir að formleg eig- endaskipti vegna kaupa fyrirtækis- ins á netþjónustufyrirtækinu Skímu hf. fari fram nú í vikunni. Gengið hefur verið frá kaupum á 100% eignarhlut í fyrirtækinu og sagði Þórarinn að málið ætti að vera frágengið nú, en eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Is- landia-Internet einnig sóst eftir kaupum á fyrirtækinu. Um helgina hefði það gerst að eigendur 92% hlutafjár í Skímu hefðu keypt þau 8% sem út af stóðu „og munu þannig standa við þann kaupsamn- ing sem gerður hafði verið við Landssímann og miðaðist við kaup á öllum hlutum í Skímu hf.“, sagði Þórarinn. Þórarinn sagði að hvorki við- skiptavinir né starfsmenn fyrirtæk- isins myndu verða varir við eig- endaskiptin að öðru leyti en því að gert væri ráð fyrir að ná upp vissri tækni og samnýtingu á tækni- og markaðssviði, sem yrði til þess að efla Skímu og þá þjónustu sem hún hefði boðið upp á. Skipulagið til umfjöllunar „Skipulag Landssímans er til umfjöllunar um þessar mundir og verður viðfangsefni stjórnarinnar á síðari hluta ársins. Við miðum okk- ar starf við það að leita okkur ráð- gjafar bæði innanlands og utan við það og höfum raunar þegar hafið samtöl af þeim toga. Við gerum okkur grein fyrir því að það skipu- rit kann að fela í sér að síminn verði meira brotinn upp í sjálfstæð dótturfélög um einstaka þjónustu- þætti en nú er gert. Þess vegna kann það vel að vera að Internet- þjónusta símans færist frekar yfir í Skímu á komandi tímum,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að þetta stefnumót- unarvgrkefni um skipulag Lands- síma íslands hf. væri mjög viðamik- ið og ákvarðanir í þeim efnum tækju meðal annars mið af því hvernig skattaleg umgjörð yrði í framtíðinni. Það væru hömlur á þvi hér á landi vegna þess að skattalög leyfðu ekki samsköttun móður- og dótturfyrirtækja eins og gerðist í öllum nágrannalöndunum. Norski síminn væri til dæmis mikið skipu- lagður upp í sjálfstæð dótturfélög og hefði náð mjög athyglisverðum árangri á síðustu árum. Þórarinn sagði að atvinnulífið hefði lengi haft uppi þessa kröfu gagnvart fjármálaráðuneytinu og fengið við henni jákvæð viðbrögð, en minna hefði orðið úr fram- kvæmdinni. „Við erum sannfærð um að Inter- netið á eftir að taka við miklu stærri hluta af umferð í fjarskiptaneti framtíðarinnar. Við getum séð það fyrir okkur að hluti af tal- og mynd- máli fari yfir Internetið og þess vegna er óhjákvæmilegt að Lands- síminn byggi upp öfluga þjónustu á þessu sviði til að geta mætt kröfum viðskiptavina sinna á komandi ár- um. Þetta er eðlilegur og nauðsyn- legur þáttur í þróun símans," sagði Þórarinn ennfremur. Ingvar Helgason hf. lækkar vara- hlutaverð INGVAR Helgason hf. hefur lækk- að verð varahluta í Nissan bfla um 30% að meðaltali. Einnig stendur til að verð á varahlutum í Subaru bíla verði lækkað verulega. Þetta kom fram í samtali við Helga Ingvarsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Helgi sagði verðlækkunina bæði stafa af hagstæðum samningum og hagræðingu innan fyrirtækisins sem mioaði að því að gera vörur þess samkeppnishæfari. Hjá Bifreiðum og landbúnaðar- vélum, Heklu og P. Samúelssyni fengust þær upplýsingar að ekki stæði til að lækka verð í kjölfar lækkunar Ingvars Helgasonar. „Neytandinn er svo vel upplýstur að hann verslar bara þar sem verð og vara eru best. í stöðugu verðlagi og mikilli samkeppni þýðir því ekk- ert að vera með mikla álagningu," sagði Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu. „Við seljum bæði bfla og varahluti á jafn samkeppnishæfu verði og mögulegt er og hvorki þurfum því né getum þrumað verðinu niður“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.