Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ 4 ÚR VERINU ERLENT Morgunblaðið/Rax LANDAÐ í Grindavík. Sá fískur sem nú berst að landi er einungis af smábátum, sem hafa mokfískað, þegar gefur á sjó. „ V ertíðarstemmninguna hefur vantað í vetur“ „ÞAÐ fer nú að koma að þrotum hjá okkur. Það hefur engin vertíð verið og við erum að klára að pakka og ganga frá því sem hægt var að vinna, en við reyndum auðvitað að birgja okkur upp af hráefni þegar sýnt var að verkfall væri yfirvofandi. En kvótinn fer svo sem ekkert þannig að þetta skaðar okkur ekki, þannig séð, heldur bara lengir ver- tíðina hjá okkur,“ sagði Hermann Olafsson framkvæmdastjóri Stakka- víkur í Grindavík í samtali við Morg- unblaðið í gær, en fyrirtækið er einn stærsti saltfiskverkandi landsins. Stakkavík gerir út milli 25 og 27 smábáta, en veiðiskapur þeirra er aðeins brot af hráefnisþörf fyrir- tækisins. „Við tökum einungis afl- ann af tveimur netabátum, en setj- um allt hitt á fiskmarkaði. Þar kaupum við sjálfir það sem á vantar og þann fisk sem hentar okkur best. Við höfum tekið á afleiðingum verkfallsins, stytt vinnudag, fellt niður helgarvinnu og við gætum kannski juðað áfram í viku til tíu daga enn við ýmis konar frágang áður en til lokunar kæmi. Þetta er sérkennileg staða. Það hefur alveg vantað þessa skemmtilegu vertíðar- stemmningu, þegar það er land- burður af fiski og unnið myrkrana á milli,“ bætti Hermann við. Forráðamenn Stakkavíkur bíða átekta eins og fleiri eftir því hver framvinda mála verður í sjómanna- verkfallinu. „Það er augljóslega númer eitt, tvö og þrjú að þessi deila verði leyst og fundinn þannig flötur að það verði vinnufriður í greininni næstu árin að minnsta kosti. Það er að öðrum kosti ekki hægt að standa í þessu. Ef ég lít yf- ir þetta, þá sé ég aðeins einn ljósan punkt, og hann er sá að við slepp- um við fiskinn fullan af loðnu eins og hann er alltaf á þessum tíma. Fiskurinn verður þannig tekinn á betri tíma að því leyti,“ sagði Her- mann. Auka eftirlit við Suðurskautið NORSK stjómvöld hafa sett nýjar reglur, sem gilda eiga um veiðar norskra skipa við Suðurskauts- landið. Töluverð brögð hafa verið að því að skip skráð í Noregi eða skip í eigu norskra aðila skráð ann- ars staðar hafi stundað ólöglegar veiðar á tannfiski á þessum slóð- um. Veiðum þarna er stjómað af þjóðunum sem liggja næst Suður- skautinu, Nýja Sjálandi, Astralíu, Chile og Argentínu. Samkvæmt hinum nýju norsku reglum verða norsk skip að fá sér- stakt leyfi frá norskum yfirvöldum til að stunda veiðar við Suðurskaut- ið. Til að tryggja öryggara eftirlit geta stjómvöld síðan skyldað skip- in til að gangast undir gervihnatta- eftirlit. Þá geta stjórnvöld krafizt þess að eftirlitsmenn verði um borð í skipunum og jafnframt sett enn- frekari reglur til að ná fullnægjandi stjóm og eftirliti yfir norskum skip- um á þessum slóðum. Norsk stjómvöld geta ennfrem- ur bannað veiðar á vissum tegund- um á ákveðnum fiskislóðum og stöðvað veiðar, þegar heildarkvóta er náð. Tilkynningaskylda og til- kynningar um afla em hluti af þessum reglum. Auk þessa hefur sjávarútvegs- ráðuneytið norska ákveðið reglur um veiðar norskra skipa á alþjóð- legum veiðisvæðum, sem falla ekki undir lögsögu Norðmanna. Öll skip, sem stunda slíkar veiðar, verður fyrst að skrá hjá ráðuneytinu. Ráðuneytið getur neitað að skrá skipin, sé talið að veiðamar séu í andstöðu við norska fiskveiðihags- muni, þegar alþjóðlegir sáttmálar kveða svo á og þegar veiðunum er stjómað að fiskveiðinefndum ákveðinna veiðisvæða. Þá er einnig tilkynningaskylda og skylda til að gefa reglulega upp afla skipanna. SlGLING TIL FRAMTÍÐAR Stýrimannaskólinn í Reykjavík Kynningardagur Stýrimannaskólans laugardaginn 28. mars frá kl. 13-16.30 Allir velkomnir Bill Clinton segir að skilgreina „Biðjið fyr- ir okkur“ Jonesboro í Arkansas, Entebbe í Úganda. Reuters. „HANN sagði að hann ætlaði að koma og skjóta fólk, en ég trúði því aldrei að hann myndi gera það, en hann gerði það,“ sagði skólabróðir annars af tveim drengjum sem myrtu fjórar skólasystur sínar og einn kennara í Arkansas á þriðju- dag. Þrettán ára stúlka er lífs- hættulega særð. Ekki er ljóst hvað kom drengjunum til að fremja verknaðinn. Drengirnir tveir, 11 og 13 ára, komu fyrir rétt í Arkansas í gær. Morðin voru framin með skipu- lagðri fyrirsát skammt frá bænum Jonesboro, að því er lögregla greindi frá. Að auki særðust níu stúlkur og einn kennari er drengimir hófu skothríð á nem- endur og kennara. Sagði lögregla að þetta hafi verið vandlega skipu- lagt tilræði, drengirnir tveir hefðu falið sig í runnum skammt frá skól- anum, en félagi þeirra hefði sett bmnabjöllur af stað í skólahúsinu og er kennarar og nemendur yfir- gáfu það hófu drengirnir skothríð. Með riffla og skammbyssur Atburðurinn átti sér stað í Westside miðskólanum, sem er í dreifbýli skammt vestur af Jones- boro, 52 þúsund manna háskólabæ um 200 km norðaustur af Little Rock. Lögregla handtók drengina tvo er þeir reyndu að flýja, og vora þeir vopnaðir rifflum og skamm- byssum og í felulituðum klæðum sem veiðimenn nota oft, að sögn Wayne Jordan, fulltrúa Ríkislög- reglunnar í Arkansas. Drengimir tveir hleyptu af allt að 27 skotum, en alls stóð skot- hríðin í um fjórar mínútur. Dyr skólans læsast sjálfkrafa þegar branaboði er í gangi og ekki hægt að opna þær utan frá. Því gátu kennarar og nemendur ekki leitað skjóls í skólanum. „Eg sá bestu vinkonu mína, Natalie Brooks, drepna, hún var skotin tvisvar í höfuðið,“ sagði Amber Vanoven, 11 ára. Hún sá líka þegar Shannon Wi-ight, 32 ára kennslukona, fékk; skot í brjóstholið og kviðinn þegar: hún hljóp til og skýldi nemanda fyrir skotum. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, kvaðst harmi sleginn í gær er hann frétti af atburðunum í Arkansas. Hvatti hann landa sína til þess að íhuga vandlega hverjar gætu verið orsakir atburða sem þessara. Clinton ólst upp í Arkansas og sagðist hann vera vel kunnugur Jonesboro. Hann sendi fjölskyldum fórnarlambanna sam- úðarkveðjur. Nýhættur með kærustunni Stúlkumar sem létust vora á aldrinum 11-14 ára. Læknar sögðu að ein þeirra hafi látist samstundis og hinar á leið til sjúkrahússins eða á skurðarborði er þangað var kom- ið. Kennari, er særðist lífshættu- lega, lést á þriðjudagskvöld. Ekki var fyllilega ljóst í gær hvað fyrir drengjunum vakti, en einn skólafé- lagi þeirra sagði að þeir hefðu ver- ið vandræðagemlingar og annar þeirra verið reiður vegna þess að kærastan hans hefði nýlega sagt skilið við hann. „Þeir vora oft að gera eitthvað af sér,“ sagði Laura Birdsong, 12 ára, vinkona einnar telpunnar sem lést. Annar nemandi, Michael Barnes, sagðist þekkja annan drenginn, og hefði hann sagst myndu drepa ein- j hvern. Nemendur og foreldrar komu saman í leikfimisal skólans síðdegis á þriðjudag þar sem geð- læknar veittu þeim aðstoð. Skotin í bijóstholið Rick Elder, ökumaður sjúkra- bfls, lýsti vettvangi er hann bar að: „Það vora böm, flest stúlkur, liggj- andi úti um allt þegar ég kom. Eg flutti kennara, konu, á sjúkrahús. Hún hafði verið skotin í brjóst- holið. Ég finn bara fyrir viðbjóði og sársauka. Maður ímyndar sér að Höggvið á hnútinn í friðarviðræðum Nýtt tilboð frá Israelum BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, hefur sent Bill Clinton, Bandaríkjaforseta, boð um að ísraelar séu reiðubúnir að sætt- ast á málamiðlun í deilu sinni við Palestínumenn um brottflutning herliðs frá Vesturbakkanum, að því er The New York Times greindi frá í gær. Samkvæmt boði Netanyahus myndu ísraelar skila Palestínu- mönnum minna landsvæði en Bandaríkjamenn hafa hvatt til, en meira en þeir hafa hingað til viljað láta af hendi. Þá hljóðar tilboðið upp á meira af samliggjandi svæð- um, en Palestínumenn hafa kvart- að yfir því að ísraelar vildu einung- is láta eftir einangraða skika. Segir fréttaskýrandi blaðsins að þessir tveir þættir gætu orðið til þess að höggvið yrði á hnútinn í deilunni. Friðarumleitanir hafa legið niðri síðan fyrir ári, er Israel- ar leyfðu byggingaframkvæmdir í landnámi gyðinga í Austur-Jer- úsalem, sem Palestínumenn ætla að verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns. Ross sendur til Israel Bandaríkjamenn hafa hvorki sagt af eða á um tilboð Netanya- hus, að því er The New York Times hefur eftir bandarískum embættismönnum. En eftir að Clinton fékk bréf frá Netanyahu og ræddi tvisvar við hann í síma ákvað Clinton þó að grandvöllur væri fyrir því að Dennis Ross, sér- stakur sendifulltrúi Bandaríkja- stjórnar, héldi til Mið-Austurlanda. Palestínumenn hafa krafist þess að Israelar láti eftir 13% land til viðbótar á Vesturbakkanum, en ísraelar hafa hingað til boðið 9%. Bandaríkjamenn hafa þrýst á Isra- ela að láta meira af hendi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.