Morgunblaðið - 26.03.1998, Page 25

Morgunblaðið - 26.03.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 25 ___________ERLENT__________ A menningararfleifð Asíu- ríkja þátt í flugslysum? Rannsóknir á þúsundum atvinnuflugmanna hafa leitt í ljós áberandi mismun á því hvernig flugmenn frá ólíkum löndum hegða sér gagn- vart samstarfsmönnum sinum í sljórnklefa farþegaflugvéla. LOTNING fyrir yfirboðurum og óbilandi traust á sjálfstýringunni kann að hafa átt sinn þátt í að Boeing-747 breiðþota kóreska flug- félagsins Korean Air fórst á eynni Guam á Kyrrahafi í ágúst í fyrra en 228 af 254 sem um borð voru létust. Sérfræðingar Öryggisstofnunar samgöngumála í Bandaríkjunum (NTSB), sem unnið hafa að rann- sókn slyssins, telja að einhverju leyti megi skýra slysið á Guam, og reyndar fleiri flugslys í Asíu, með skírskotun til menningarhefðar As- íuríkja. A undanförnum 10 árum hafa aðeins fimm flugfélög í heimin- um orðið fyrir fjórum flugslysum hvert og eru fjögur þeirra asísk. Áður en aðvörunarbjöllur í stjórnklefa kóresku þotunnar gullu í afar bröttu aðflugi að flugvellinum í Agana virðast aðstoðarflugmaður- inn og flugvélstjórinn hafa vanrækt þær skyldur sem brýndar eru fyrir þeim í flugmannsþjálfuninni að vara flugstjórann við aðsteðjandi hættu og beinlínis að storka honum í því sambandi. Munaði aðeins nokkrum metrum Þegar flugstjórinn tók sjálfstýr- inguna loks úr sambandi og tók stjóm þotunnar í sínar hendur var það um seinan því hún skall á fjalls- brún skammt frá flugvellinum. Hefði hann gert það nokkrum sek- úndum áður og þotan verið nokkrum fetum ofar hefði hún sloppið yfír brúnina. Vitnaleiðslur vegna slyssins á Gu- am hófust í vikunni í Honolulu á Hawai. Að því er fram kemur í breska blaðinu The Times leikur sérfræðingum NTSB forvitni á að vita hvers vegna áhöfnin lét þotuna fljúga á sjálfstýringunni þar til á síðustu stundu. Fyrir þeim vakir einnig að leiða í Ijós hvers vegna áhöfnin hafði óljósar hugmyndir um aðflugshæð sína, hvers vegna bún- aður á flugvellinum til nákvænisað- flugs var óvirkur, hvers vegna brautargeisli aðflugsbúnaðar flug- vallarins var utan brautarmiðju og hvers vegna aðvörunarbúnaður flugstjórnarmiðstöðvarinnar, sem varar við óeðlilegri aðflugshæð (MSAW) var ekki í sambandi. Af hálfu flugfélagsins hefur því verið haldið fram að rangar merkjasend- ingar hafi hugsanlega raglað áhöfn- ina í ríminu. I skýi’slu um rannsókn slyssins segir, að MSAW-búnaðurinn hefði aðvarað flugumferðarstjóra og gefið þeim til kynna að þotan væri komin niður fýrir 1.700 fet, sem var lág- marks öryggishæð í aðfluginu. Sam- anburðarrannsóknir í flughermum hafa sýnt, að aðvörunin hefði gollið 64 sekúndum áður en þotan skall í jörðina. Hefðu flugmennirnir því haft nægan tíma til að afstýra brot- lendingu hefði búnaðurinn verið virkur. Mun búnaðurinn hafa verið tekinn úr sambandi „til að lina óþægindi" á vinnustað flugumferð- arstjóranna. Þá kom fram á upptökum af sam- tölum í stjórnklefa þotunnar, að áhöfnin ræddi um flughæð þotunn- ar og einhver sagði að flugvöllurinn væri ekki í augsýn. Af samtölunum mátti ráða að áhöfnin var nánast villt, en fram kemur að hvorki flug- maðurinn né flugvélstjórinn gerðu hvorki alvöru úr málinu né hvöttu flugstjórann til að hætta aðflugi. Þotan hóf aðflug mun fyrr en eðli- legt getur talist og flugstjórinn taldi sig vera mun nær flugvellinum en raun var á. Þegar hann greip loks til sinna ráða; hugðist hætta aðflugi og reyna lendingu öðru sinni var það um seinann. Var þotan 700 fet- um undir eðlilegri aðflugshæð er hún brotlenti 5 km undan flugbraut- arendanum. Af hálfu NTSB hefur verið forð- ast að nefna hinn menningarlega þátt sem hugsanlega skýringu á slysinu á Guam af ótta við að litið yrði á slíkt sem kynþáttafordóma í Asíuríkjum. En við vitnaleiðslurnar verður þess þó freistað að fá svör við því hvort undirmenn flugstjór- ans hafí hugsanlega lotið of mikið fyrir honum. Svarið varðar miklu því átta af hverjum 10 flugslysum verða af öðr- um ástæðum en vélarbilunum, þ.e. flugvélum í fullkomnu lagi er flogið í jörðina, og rúmlega 9.000 manns hafa farist með þotum í áætlunar- flugi frá upphafi þotualdar. Kóreskir flugmenn treysta sjálfstýringunni mest í sjálfu sér er ekki gengið út frá því að samfélagsgerð ráði hversu góðir flugmenn verða. Rannsóknir hafa þó leitt í Ijós áberandi mismun á því hvemig flugmenn frá ólíkum löndum hegða sér gagnvart sam- starfsmönnum sínum. Þannig treysta kóreskir flugmenn sjálfstýr- ingunni langmest meðan bandarísk- ir, ástralskir og írskir flugmenn vilja sem minnst reiða sig á hana. Sýnt hefur verið fram á að hættulegt sé að reiða sig fyllilega á sjálfvii-kni. Engu að síður leiddi athugun sál- fræðideildar Texasháskóla á 5.879 flugmönnum frá 12 ríkjum í ljós, að hver einasti flugmaður frá Kóreu, sem rannsóknin náði til, kvaðst frek- ar vilja láta sjálfstýringuna ráða ferðinni en fljúga sjálfur. Notuðu þeir hana undantekningarlaust. Önnur rannsókn á um 10.000 flugmönnum leiddi í ljós, að kóresk- ir þotuflugmenn skömmuðust sín meira og létu iðrun sína vegna mis- taka með meira áberandi hætti í ljós í viðurvist áhafnarinnar en flug- menn annarra þjóða. Á undanförnum 10 árum hefur Air India orðið fyrir sjö flugslysum, Korean Air Lines fyrir fimm, China Air fjórum, Garuda Indonesian fjór- um og bandaríska flugfélagið US Airways fimm. Þota Korean Air Lines sem fórst á Guam var 14. flugvél asískra flugfélaga til að far- ast á 10 mánaða tímabili en með þeim fórust 856 manns. Ráðgjafar- íyrirtækið Morton, Beyer og Ágnew hefur lagt til að þjálfun og færni- kröfur til flugmanna í Asíu verði endurskoðaðar því svo virðist sem flestum þotnanna 14 hafí verið bein- línis flogið í jörðina. Japanir undantekning Ekki virðist menningararfleifð alls staðar ráða ferðinni. I Japan er félagsleg stigskipun ekkert frá- brugðin því sem á við annars staðar í álfunni en engu að síður er orðspor Japana á sviði flugöryggis með því besta sem þekkist í veröldinni. Og á sama tíma er mikil fjöldi flugslysa í Suður-Ameríku fyrst og fremst rak- inn til fjöllótts landslags, lélegs ástands flugleiðsögubúnaðar á jörðu niðri og þungrar flugumferð- ar frekar en vinnufyrirkomulags í stjómklefanum. Staðalbúnaður: Vökvastýri Samlæsingar Útvarp, segulband og 4 hátalarar Litab gler Fimm höfuðpúðar Tvöfaldir styrktarbitar í hurðum Stillanleg hæð bílstjórasætis Frjókornasía Bílbeltastrekkjarar 8 ára ryðvarnarábyrgð 3ja ára ábyrgð Opið um helgar kl. 14-17 OPEL6 Bílheimar ehf. ■Þýskt eöalmerki Sævarhöfba 2a Simi:52S 9000 www.opel.is Sportlegur og spennandi Corsa meb álfelgum, vetrardekkjum og vindskeiö á frábœru verbi 1.160.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.