Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ferðafélagar Kristjáns Kristján Jóhannsson fer síðar á þessu ári í tónleikaferð um heiminn með tveimur öðr- um tenórsöngvurum, Frakkanum Roberto Alagna og Kanadamanninum Ben Heppner. Verður fyrsti konsertinn í Tókýó í október en alls verða þeir tíu talsins. ___Morgunblaðið kynnir hér þessa ferðafélaga Kristjáns. BEN Heppner er Kanadamaður og vakti fyrst athygli í heimalandi sínu þegar hann sigraði í hæfileikakeppni kanadíska ríkisútvarpsins. Alþjóða- athygli vakti hann þegar hann tók þátt í inntökuprófum fyrir Metrop- olitan óperuna í New York og hlaut Birgit Nilsson verðlaunin 1988. Frumraun hans á sviði í Bandaríkj- unum var þegar hann söng í Carnegie Hall á sérstakri sýningu fyrir sænsku konungshjónin og í kjölfar verðlaunanna kom hann fyrst fram í Evrópu í Lohengrin í Konunglegu sænsku óperunni, en Heppner fór með óperunni til Rúss- lands i þeirri sömu sýningu. Meðal hlutverka sem hann hefur sungið má nefna Walter von der Vogelweide í Tannháuser, prinsinn í Rusalka og Walther von Stolzing í Meistarasöngvurunum. Hann hefur sungið með óperunni í Seattle, Chicago, La Scala í Mílanó, San Franciseo Opera, Ríkisóperu Bæj- aralands, Covent Garden í Lundún- um, Marseille óperunni, Nice, Zurich og nýverið í Metropolitan óperunni, svo fátt eitt sé talið. Auk þessa hefur Heppner komið fram með sinfóníu- hljómsveit í áttundu sinfóníu Ma- hlers og Das Lied von der Erde, Gurre-Lieder eftir Schönberg svo dæmi séu tekin og þá sungið undir stjóm manna eins og Michaels Til- sons Thomas, James Levine, Zubin Mehta og James Conlon. Heppner hefur sungið inn á nokkrar plötur, til að mynda sem Calaf í Turandot á vegum RCA útgáfunnar. Roberto Alagna fæddist í Frakk- landi en er af sikileysku bergi brot- inn. Hann lærði tónlist í Frakklandi og sigraði síðan í alþjóðlegri söng- keppni kenndri við Luciano Pa- varotti 1988. Sama ár kom hann fyrst fram á sviði í stóru hlutverki sem Alfredo í La Traviata með Glyndeboume óperunni, en í kjöl- farið söng hann það hlutverk víða um heim, meðal annars í nýrri upp- færslu í La Scala undir stjóm Riccardos Mutis og vakti mikla hrifningu. í kjölfarið söng hann síðan Rodol- fo í La Bohéme, meðal annars í Monte Carlo óperanni, La Scala, Liceo í Barcelona og Konunglegu óperanni í Covent Garden 1992. Upp frá því hefur Alagna komið fram í mörgum helstu tenórhlut- verkum óperabólgnenntanna, í Rigoletto í Mílanó, Astardrykknum, Lucia di Lammermoor, Faust Goun- ods og Rómeó og Júlíu svo dæmi séu tekin. 1993 gerði Ro- berto Alagna út- gáfusamning við EMI-útgáfuna og fyrsti diskurinn kom út 1995. Næsta út- gáfa hans á vegum EMI var dúettar og aríur sem hann söng með eiginkonu sinni Angela Gheorghiu með hljómsveit kon- unglegu óperannar í Covent Garden. Alagna hefur sungið inn á fleiri diska á vegum EMI, þar á meðal í La Bohéme, með Le- ontinu Vaduva, Thomas Hampson, Simon Keen- lyside, Samuel Ramey og Ruth Ann Swenson og í Don Carlos eftir Verdi með Thomas Hampson, Karita Mattila og José Van Dam. Skömmu fyrir jól 1996 kom einnig út jóla- plata þar sem Alagna söng með Kiri Te Kanawa og Thomas Hampson og diskui- með trúarlegum aríum. A síðasta ári kom út La Rondine eftir Puccini á vegum EMI þar sem Alagna söng á móti Angela Gheorg- hiu, en sú upptaka hlaut tvenn Gramophone-verðlaun, sem besta óperaútgáfan og plata ársins. Þau Alagna og Gheorghiu hlutu einnig hlustendaverðlaun helstu sígildu út- varpsstöðvar Bretlands. Síðasta plata Alagnas heitir Serenades, en á henni leika bræður hans tveir undir á gítar. Roberto Alagna hefur hlotið margvíslegan heiður í heimalandi sínu, meðal annars verið kjörinn listamaður árins og hlotið orðu heið- ursfylkingarinnar. Vestmannaeyjar Djassað í minningu Guðna Hermansen DJASSKVARTETT leikur í minningu listmálarans Guðna Hermansen í Akógeshúsinu í Vestmannaeyjum, laugardag- inn 28. mars kl. 21. Kvartett- inn er skipaður Ólafi Stolzenwald kontrabassaleik- ara, Jakopi Olsen gítarleikara, Kára Amasyni trommuleikara og Óskari Guðjónssyni saxó- fónleikara. A efnisskrá er tón- list frá gamla tímanum í bland við nýleg lög og spannar langt tímabil djasssögunnar. Þennan dag eru liðin 70 ár frá fæðingu listmálarans Guðna Hermansen. Hann hélt mikla tryggð við Eyjamar og „þar fann hann sig best við trönumar og saxófónleik", segir í fréttatilkynningu. Jafn- framt segir að Guðni hafi um langt árabil verið í hópi helstu djasssaxófónleikara íslend- inga og hafi gjaman blásið swingtónlist í anda Coleman Hawkins. Það er hópur áhugamanna um djass, sem haldið hefur úti djasshátíð í Vestmannaeyjum um hverja hvítasunnuhelgi, sem stendur að þessum tón- leikum. The Art of Entertainment Pioneer markaðsvtírburði á Isiandi? Samkvæmt skoðanakönngn Hagvangs í desember 1996 eru 26,2% heimila á Islandi meo Pioneer hljómflutningstæki. Fjórir næst stærstu keppinautarnir samanlagt eru minni en Pioneer. Hvað segir þetta þér um gæði Píoneer tækja? ...vínsœidjr Pioneer hij eru ótvírœo 69.900.-] N-770 Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 8Í2) *• Utvarp: FM/AM, 24 stööva minni * Geislaspilari: Tekur 26 diska * Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B * Hátalarar: Þrískiptir 100w (DIN) f Pegar stíll gœði og afl fara saman N -170 1 Magnari: 2x25w (RMS, 1kHz, 6D) 1 Útvarp: FM/AM, 30 stööva minni Geislaspilari: Þrlggja diska ' Segulbandstækí: Tvöfalt 'Hátalarar: - Tvískiptir 30w (DIN) n -470 í v 2r v;; ? Magnarl: 2x7Ów (RMS, 1kHz„60) Útvarp: FM/AM. 24 stöðva minni i Geislaspilari: Þriggja diska Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B Hátalarar:Tvískiptir 70w (DIN) The Art of Entertainment múla 8 • Sími 533 2800 Útsölustaðir: Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, Isafiröi. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvefninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA, Lónsbakka, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lóniö.Þórshöfn. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. Rafborg, Grindavik. ^ Að lifa lífínu KVIKMYJVPIR Sambfóin LITLA HAFMEYJAN ★★★% Leikstjórar og handritshöfundar Jon Musker og Ron Clements. Aðalhlut- verk: Valgerður Guðnadóttir, Jóhann Sigurðarson, Baldur Trausti Heimis- son, Egill Ólafsson og Margrét Vil- hjálmsdóttir, en þau tala fyrir Aríel, Tríton, Eirík, krabbann Sæfinn og Ursúlu sænorn. Leikstjóri ísl. tal- setn.: Jakob Þór Einarsson.Disney 1989. LITLA hafmeyjan og Fríða og dýrið era uppáhalds Disney teikni- myndirnar mínar því í þeim blómstra fegurð og töfrar ævintýr- anna að fullu. Fríða og Aríel litla hafmeyja eru nokkuð svipaðar per- sónur. Þær eru fallegar, góðar og að vissu leyti hafnar yfir aðra því þær eru fordómalausar, drifnar áfram af einskærri lífsgleði og vilja til að finna hamingjuna og sinn rétta stað í lífinu. Þær era þó ekki Síðustu sýningar Leikfélag Reykjavíkur Galdrakarlinn í Oz SÍÐUSTU sýningar á bama- söngleiknum Galdrakarlinum í Oz, sem Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í október sl., verða nú á sunnudag og sunnudaginn 5. apríl. Leikendur era Sóley Elías- dóttir, Ari Matthíasson, Bjöm Ingi Hilmarsson, Ellert A, Ingimundarson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Kjartan Guðjónsson og Theodór Júlíus- son. Auk þess koma fram dans- arar og fjöldi bama í sýning- unni. sjálfselskar og þegar til kemur vilja þær fóma sér fyrir feður sína sem þær elska mest af öllum. Þær em góðar fyrirmyndir fyrir bömin okkar og þau dýrka þær og dá. Litla haímeyjan er byggð á fal- lega ævintýrinu eftir frænda okkar H.C. Andersen. Aríel er ein af fimm prinsessum, dætram Trítons konungs. En hún er nokkuð óstýri- lát, sífellt að synda um allan sjó, leitandi að mannadóti sem hún safnar og er mjög heilluð af heimi mannfólksins sem hún getur ekki nálgast. Þegar hún verður svo ást- fangin af mannaprinsinum Eiríki lætur Tríton Sæfinn krabba hafa auga með henni, en ekkert stöðvar hana þegar ástin hefur náð tökum á henni. I stuttu máli er þessi kvikmynd frábær skemmtun og ungir sem aldnir geta setið andaktugir yfir henni frá upphafi til enda. I fyrsta lagi er ævintýrið mjög fallegt og hér er unnið úr því með miklu og skemmtilegu hugmyndaflugi. Per- sónumar em allar einstakar á sinn hátt og mjög mannlegar. Meira að segja Ursúla hin vonda er mjög skemmtileg og vel til fundin. Tón- listin eftir Alan Menken er bæði falleg, grípandi og öll lögin sérstök á sinn hátt. Öll tónlistaratriðin eru frábær einsog franski kokkurinn, í grænum sjó, Úrsúlusöngurinn og svo þegar dýrin era að reyna að fá prinsinn til þess að kyssa Aríel sem er eiginlega besta atriðið. Ekki þarf að minnast á að teikn- ingamar era óaðfinnanlegar. Það verður líka að segjast að íslenskir leikarar og hljóðmenn em orðnir mjög færir í raddsetningu, en í þetta skiptið er EgUl Ólafsson bestur í hlutverki Sæfinns. Það hlutverk býður upp á mörg skemmtileg tilþrif sem Egill not- færir sér til hins ýtrasta. Litla hafmeyjan en frábær fjöl- skylduskemmtun því fegurðin og fyndnin láta engan ósnortinn, enda endurvakti hún áhuga almennings á teiknimyndum þegar hún kom út á sínum tíma. Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.