Morgunblaðið - 26.03.1998, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Afbygging-
endurbygging
MYNDLIST
Listasaln ASÍ
MÁLVERK
Verk Sigurðar Magnússonar. Opið
14-18 alla daga nema mánudaga. Að-
gangseyrir 200 kr. Sýningin stendur
til 29. mars.
SIGURÐUR Magnússon á að
baki langt listnám á Islandi og í
London en heldur nú sína fyrstu
einkasýningu á Islandi. Pótt hann
hafi dvalist erlendis síðustu fimm
árin virðast málverk hans að mestu
sprottin úr íslenskum veruleika og
fiskar og fiskimenn eru þar ráðandi
viðfangsefni. Sigurður málar með
olíu á striga og myndir hans hafa
nokkuð expressjónískt yfirbragð
þar sem sterkir litir og grófir
pensildrættir draga fram órólegan
veruleika sem virðist alltaf við það
að leysast upp í abstraksjón. Menn
og fiskar eru í forgrunni en á bak
við má stundum greina líkt og net
eða fjarlægt landslag. Myndir af
þessu tagi eru vissulega nokkuð á
skjön við tískuna í samtímalist,
hvort sem horft er til Islands eða
Bretlands, en dæmast að sjálfsögðu
ekki ógildar fyrir það. Greinilegt er
að Sigurður hefur valið sér sinn
táknheim og þykir hann nægja til
að koma til skila því sem hann vill
miðla áhorfendum sínum. Og í texta
hans í vandaðri sýningarskránni má
líka lesa að hann ætlar sér mikið
með myndunum, enda eggjar hann
listamenn til virkrar og gagnrýn-
innar þátttöku í samfélaginu: „Peir
sem starfa á sviði menningar og
lista geta síst af öllu skotið sér und-
an umræðu og þátttöku í leit að
betra samfélagi, samfélagi sem ber í
sér skilyrði til vaxtar og þroska og
setur markaðshyggjunni skorður,
og andmælir þeirri þróun að sífellt
fámennari hópur þjóðfélagsþegn-
anna ráði og túlki nútímann fyrir
fólki og móti ríkjandi viðhorf, menn-
ingu og listir." Ekki er ljóst hvort
Sigurður beinir þessum orðum til
kollega sinna í listamannastétt og
vill með þeim andmæla ríkjandi stíl-
viðhorfum og stefnum, en óhætt er
að segja að hann sjálfur tald nokkuð
afdráttarlausa afstöðu með mál-
verkum sínum. Þar ráða all-hefð-
bundin vinnubrögð og framsetning,
þótt málverkin séu á köflum ansi
„villt“.
En þrátt fyrir að Sigurður leiti
einmitt þess vegna -
eru myndir hans
ögrandi. Litasamsetn-
ingin er oft sláandi og
frjálsleg úrvinnslan
knýr áhorfendur til að
kafa ofan í verkin og
móta sína eigin af-
stöðu. Þrátt fyrir skoð-
anahitann 1 textanum í
sýningarskránni virðist
Sigurður staðráðinn í
því að leiða ekki áhorf-
andann fyrirhafnar-
laust inn í málverk sín
heldur virkja hann á
svipaðan hátt og hann
krefst þess að lista-
menn verði virkir í
samfélaginu. Allar til-
raunir í þá átt eru
vissulega af hinu góða
og gefa sýningum af
þessu tagi gildi.
TEIKNINGAR OG
LJÓSMYNDIR
Verk eftir Steingrím
Eyfjörð
SPORÐREISTUR eftir Sigurð Magnússon.
frekar til eldri hefðar eða sígildrar
en til nýrri strauma - eða jafnvel
í Gryfjunni í Lista-
safni ASI sýnir Stein-
grímur Eyfjörð verk
sem unnin eru í ýmis
efni útfrá Ijósmyndum.
Hér er um að ræða
verk á svipuðum nótum
og Steingrímur hefur
sýnt að undanförnu,
enda hefur hann þróað
með sér vinnsluaðferð sem gerir
honum kleift að takast á við fjöl-
breytt verkefni innan ákveðins
ramma.
Líkt og áður er hér um eins kon-
ar greiningu að ræða þar sem
áhorfandinn er leiddur gegnum ým-
is hugrenningatengsl til að skoða
viðfangsefnið frá ýmsum hliðum og
með fjölbreyttum tilvísunum í tákn-
heim okkar. Myndlega séð er úr-
vinnslan gróf, enda eru það hug-
myndirnar sem sitja i fyrirrúmi og
skilningsferlið sjálf sem listamaður-
inn býður áhorfandanum að taka
þátt í. Verkin eru þannig eins konar
heimild um vangaveltur sem leiða
smátt og smátt til betri skilnings.
Þau geta á stundum virst afar per-
sónuleg, því Steingrímur veigrar
sér ekki við að opinbera hugsanir
sínai- og tengingar við áhrifavalda
úr eigin umhverfi og lífi, ekki síður
en úr sameiginlegum táknsagna-
brunni okkar.
Eins og Svanur Kristbergsson
segir í texta sem fylgir sýningunni
staðsetur Steingrímur sig „í völund-
arhúsi þver- og fjölvísana og gagn-
virkni“. Verk hans taka alltaf yfir
vítt svið þótt tilefni þeirra sé ákveð-
in mynd eða ákveðið tákn. Tákn-
bygging heimsins gefur alltaf tilefni
til fjölbreyttra og jafnvel óvæntra
tenginga og sköpunin felst einmitt í
því að draga fram tengsl sem ekki
virðast við fyrstu sýn sjálfsögð. I
því felst uppbyggingin í verkum af
þessu tagi: Þau eru afbygging og
endurbygging í senn þar sem hið
sjálfsagða er sífellt brotið upp og
endurskipulagt svo úr verður nýr
skilningur, ný og skapandi sýn.
Jón Proppé
Pappírsfés
MYJVDLIST
Nýlistasafnið
MÁLVERK
Verk eftir Marlene Dumas. Opið alla
daga nema mánudaga frá 14-18. Að-
gangur ókeypis. Til 29. mars.
ANDLITSMYNDIR eru áreiðan-
lega eitthvert aðgengilegasta og al-
mennasta form myndlistar sem til
er. Þær segja sig sjálfar að vissu
leyti. Stundum eru myndir ekkert
flóknari, margbrotnari eða dýpri en
þær virðast vera. En þegar um er
að ræða jafn fræga og eftirsótta
listakonu og Marlene Dumas þá
ímyndar maður sér að það hljóti
eitthvað að vera spunnið í myndir
hennar umfram aðrar. Það hljóti að
vera einhver falinn leyndardómur
bak við andlitin á pappírnum sem
skýri afhverju hennar andlitsmynd-
ir skeri sig úr öllum öðrum. En svo
þarf ekki endilega að vera. Sjálf lýs-
ir hún furðu sinni á ýmsum
langsóttum sálfræðilegum túlkun-
um á verkum sínum. Gildismat
byggist svo oft á samanburði og
andstæðum. Einfaldar og aðgengi-
legar myndir eiga sér einnig sinn
sess í myndlist þó ekki væri nema
sem mótvægi við hið margbrotna og
hugmyndalega. Ástæðan fyrir því
að myndir hennar hljóta svo mikla
athygli getur verið sú að hún hafi
verið rétta manneskjan, á réttum
stað, á réttum tíma.
í Gryfju Nýlistasafnsins getur að
líta 24 myndir úr seríunni „Und-
erground“, eða Neðanjarðar, teikn-
ingar frá 1994 til 96. Myndirnar eru
dæmigerðar fyrir verk Dumas,
myndlýsingar með bleki á pappír af
andlitum eða mannsmyndum tiltek-
inna persóna, oft nafngreindra. Það
sem gerir þessar tilteknu myndir
frábrugðnar öðrum verkum Dumas
er að fimm ára gömul dóttir hennar
hefur flikkað upp á og „fegrað“ þær
að eigin frumkvæði. Eftir því sem
henni segist sjálfri frá þá hafði hún
dóttur sína hjá sér á vinnustofunni
og einhverju sinni varð dóttir henn-
ar eirðarlaus og vildi fá að hjálpa
móður sinni. Dumas leyfði henni
það og ætlaði sér ekkert frekar að
sýna afraksturinn. En skömmu síð-
ar kemur einn af sýningarstjórum
Feneyjatvíæringsins og vill óður og
uppvægur fá myndimar á sýning-
una (ég man ekki hvort það var nú
síðast, árið 1997, eða þar áður).
Þetta samstarf móður og bams hef-
ur nú ratað á Nýlistasafnið.
Margan fleiri fróðleik um Mar-
lene Dumas er að finna í heimildar-
mynd um listakonuna sem hægt er
að skoða á staðnum, sem ber hinn
skemmtilega tvíræða titil „Miss
Interpreted", eftir Rudolf Evanhuis
og Joost Verhey. Þar er talvert
fjallað um bakgrann hennar, heima-
slóðimar í Suður-Afríku, fjölskyldu
hennar og uppvöxt í strangtrúuðu
umhverfi. Dumas flutti til Hollands
og settist að í Amsterdam á seinni
hluta áttunda áratugarins, þar sem
hún hefur búið síðan. Fyrsta sam-
sýning sem hún tók þátt í var í
Stedelijk-safninu 1978. Og frami
hennar virðist hafa verið skjótur,
því nokkram áram síðar, eða 1982,
var hún þátttakandi á Documenta 7
sýningunni í Kassel, en þátttaka á
þeirri sýningu þykir alltaf mikil
upphefð, sérstaklega fyrir óþekkt-
ari listamenn.
Það má sjá af þeim myndum að
hún fékkst ekki við andlits- og
mannamyndir til að byrja með. Það
sem hefur þó verið gegnumgang-
andi allan hennar feril er notkun á
pappír, kolum, krít og bleki, einfóld-
ustu teikniáhöldum, og hvernig
pappírinn hefur alltaf verið laus, án
ramma og glers.
ÚR myndröðinni „Under-
ground" eftir Marlene Dumas.
Galdurinn við myndir Dumas er
hvort maður nær tengslum við and-
litin, hvort að þessi síbylja andlits-
falla skapi mannlega nálægð. Stíll
Dumas er léttur og óþvingaður, án
þess að vera léttúðugur eða laus í
reipunum. Allir drættir era ákveðn-
ir og sterkir. Ég kann betur við
myndir Dumas án íhlutunar dóttur-
innar, og í forsal era nokkrar slíkar.
En það er heldur ekki af myndræn-
um ástæðum, held ég, sem samstarf
þeirra mæðgnanna vekur áhuga,
heldur er það frekar sambandið
þeirra á milli, eins og það kemur
fram í myndunum, sem gefur þeim
gildi. Það er mikill fengur að fá að
sjá myndir Dumas frá fyrstu hendi
og til marks um þá miklu breidd
sem er ríkjandi í myndlist í dag.
Gunnar J. Árnason
Tónlist fyrir alla
Tj ar nar kvartettinn
í Hafnarborg
TJARNARKVARTETTINN í
Svarfaðardal lýkur tónleikasyrpu
sinni í grunnskólum Hafnarfjarðar
með fjölskyldutónleikum í Hafnar-
borg, fimmtudaginn 26. mars kl.
20.30.
Með lokatónleikum sínum hefur
Tjarnarkvartettinn flutt á fjórða
þúsund grunnskólanemenda dag-
skrá sem gefur nokkra mynd af
sönglist á Islandi fyrr og nú. Dag-
skráin er byggð á dagskrá sem
kvartettinn flutti á alþjóðlegri leik-
listarhátíð í Tampere í Finnlandi
sumarið 1995.
Dagskráin hefst með því að nem-
endur heyra fimmundarsöng og fá-
breyttan rímnasöng; fjallað verður
um þjóðsögur og þjóðkvæði og
hlýtt er á dæmi um útsetningar
seinni tíma tónskálda á þjóðlögum.
Þá verður vikið að fyrstu tónskáld-
unum, s.s. Sigvalda Kaldalóns,
fjallað um ljóðskáldin, m.a. Jónas
Hallgrímsson, Davíð Stefánsson og
Halldór Laxness og hvemig kvæð-
in hafa orðið tónskáldunum inn-
blástur. Undir lokin verða sungin
lög eftir ýmsa höfunda samtímans:
Atla Heimi Sveinsson, Gunnar
Reyni Sveinsson, Jón Hlöðver
Áskelsson, Jón Múla Árnason, Sig-
Menningarmálanefnd
úthlutar 29 milljónum
króna í styrki
Á FUNDI menningarmálanefndar
11. mars sl. var samþykkt að út-
hluta eftirtöldum 59 aðilum styrki
nefndarinnar fyrir árið 1998:
Inga Margrét Róbertsdóttir kr.
50.000; 100.000 kr. styrk hlutu
Bamabókaráð íslandsdeild IBBY,
Esperantistafélagið Aurora, Þor-
valdur Gunnarsson og Rannveig
Jónasdóttir, Viðeyingafélagið, Ás-
hildur Haraldsdóttir, Steinunn
Birna Ragnarsdóttri og Zilia-pí-
anókvartettinn; 150.000 kr. styrk
hlutu Gallerí Stöðlakot, Listvinafé-
lag Hallgrímskirkju, Musica Ant-
iqua og Voces Thules; 200.000 kr.
styrk hlutu Draumasmiðjan
v./Uppgjörsins, Halaleikhópurinn,
Leikfélagið Snúður og Snælda, Fé-
lag íslenskra myndlistarmanna,
Sumarskóli HÍ v. myndlistarsýn-
inga, Drengjakór Laugarneskirkju,
Félag ísl. tónlistarmanna og Tríó
Reykjavíkur; 250.000 kr. styrk
hlutu art.is. v. sýninga á Mokka, og
hjá Sævari Karli, art.is v. Reykja-
víkursýningar, Atli Heimir Sveins-
son, Camerartica og Ung Nordisk
Musik; 300.000 kr. styrk hlutu
Bjarni H. Þórsson v. „Trainspott-
ing“, Hugleikur, Leikhópurinn
Perlan, Leikhúsið í kirkjunni,
Möguleikhúsið v. Einars Áskels,
Reykjavíkurleikhúsið, Þróunar-
samvinnustofnun Islands, Blásara-
kvintett Reykjavíkur, Erki tónlist,
Kammermúsíkklúbburinn, Lúðra-
sveit Reykjavíkur, Lúðrasveit
verkalýðsins, Lúðrasveitin Svanur,
Mótettukór Hallgrímskirkju, Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna og
Söngsveitin Fílharmonía; 350.000
kr. styrk hlaut Kvikmyndafélag Is-
lands v. Stuttmyndadaga; 400.000
kr. styrk hlutu Leikhúsið 10 fingur,
Stoppleikhópurinn og Leifur Þór-
arinsson; 450.000 kr. styrk hlaut ís-
lensk tónverkamiðstöð; 500.000 kr.
styrk hlutu Draumasmiðjan v. Ban-
eitrað samband á Njálsgötunni og
Furðuleikhúsið; 600.000 kr. styrk
hlaut Gallerí Ingólfsstræti 8;
700.000 kr. styrk hlaut Leikfélagið
Snúður og Snælda; 900.000 kr.
styrk hlutu Flugfélagið Loftur,
Kaffileikhúsið; 1.200.000 kr. styrk
hlaut Kammersveit Reykjavíkur;
1.500.000 kr. styrk hlaut Rúri v.
sýningarinnar Paradís - hvenær?;
2.000.000 kr. styrk hlutu Mynd-
höggvarafélagið, Caput-hópurinn
og Jazzdeild FÍH; 2.500.000 kr.
styrk hlutu Félag Nýlistasafnsins
og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar.
w
S
V . ..
\Æ -JfSlJi
*1 -i
’ , *•<■" fÁ -I
. mr
TJARNARKVARTETTINN skipa Kristján Hjartarson, bassi; Kristjana
Arngrímsdóttir, ait; Rósa Kristín Baldursdóttir, sópran og Hjörleifur
Hjartarson, tenór.
fús Halldórsson, Jónas Jónasson
o.fl.
Tjarnarkvartettinn er blandað-
ur k\'artett sem starfað hefur síð-
an 1989.
Aðgangseyrir, 700 kr., rennur til
tónlistarmála í Hafnarfirði. Ókeyp-
is aðgangur er fyrir nemendur
grann-, framhalds- og tónlistar-
skóla.