Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
~~_________________AÐSENDAR GREINAR_________
Fyrstu rafbflarnir á göturnar
FOSTUDAGURINN
13. mars táknaði mikil-
væg tímamót á íslandi.
Þá afhenti fyrirtækið
Jöfur hf. í Kópavogi
fyrsta rafbílinn á al-
mennan markað hér á
Islandi. Um er að ræða
Peugeot 106, búinn öll-
um nútíma þægindum.
Hér er um að ræða
hljóðlausan bíl sem al-
farið er knúinn raf-
magni. Þar með má
segja að fyrstu alvöru
skrefin hafi verið stigin
hér á landi í áttina að
vistvænum ökutækjum.
Nokkrum dögum áð-
ur var samþykkt í stjórn Rafveitu
Reykjavíkur að eigendur rafbfla
skyldu njóta ókeypis rafmagns á
bflana fyrsta árið. Þá mun ennfrem-
ur í bígerð að koma upp innstung-
um við bflastæði og hjá stofnunum
og fyrirtækjum á höfuðborgarsvæð-
inu. Þetta felur í sér að almenning-
ur á þess kost að hlaða rafbíla sína
ókeypis heima og setja þá í sam-
band meðan fólk stundar vinnu.
Fyrstu skrefin eru ávallt erfiðust.
Nú hafa þau verið stigin og er þess
vegna mikilvægt að fylgja þeim
vandlega eftir. Ekki fer á milli mála
að almenningur hefur mikinn áhuga
á þvi að nota vistvæn ökutæki, enda
er umhverfisáhugi stöðugt vaxandi
meðal þjóðarinnar.
Milljón kílómetrar á rafmagni
Borgin LaRouehelle í Frakklandi
er í fararbroddi í Evrópu á sviði
notkunar rafbfla. Það hefur gerst
með markvissu uppbyggingarstarfi
í samstarfi borgaryfirvalda, ríkis-
valds og atvinnufyrir-
tækja. Peugeot og
Citroen hafa látið aka í
borginni nokkrum tug-
um rafbfla og hefur
þeim nú verið ekið um 1
milljón kflómetra.
Reynslan af þeim akstri
er sú að notendurnir
telja sig komast allra
sinna ferða innan borg-
arinnar og geta nýtt bíl-
ana í sínum erindum. I
LaRouchelle hafa sam-
bærilegar tilraunir far-
ið fram með rafknúin
vélhjól og gefa þau
sömu raun.
Sú reynsla sem fengin
er af þessu tilraunastarfi hefur orð-
ið öðrum borgum í Evrópu hvatning
til þess að taka upp sambærilegt
kerfi. Þeir bflar, sem tilraunin nær
til, komast allt að 150 km á fylling-
unni en um 90 km í hreinum innan-
bæjarakstri. Kostnaður af rekstri
þeirra er hverfandi miðað við rekst-
ur hefðbundins bíls. A það bæði við
um orkukostnað, smurningu og bil-
anir. I mínum huga er ekki nokkur
vafi að sveitarfélög á Islandi eiga að
stíga sömu skref og gengin hafa
verið í borginni LaRouchelle.
Hvetjandi aðgerðir
Hin öra þróun á sviði rafbfla í
Frakklandi er bein afleiðing af vilja
stjómvalda í þá veru. Þess má geta
að rfldsstjórn íslands hefur lýst yfir
samskonar vilja. I Frakklandi fá
kaupendur raíbfla beinan styrk við
kaup á slíkum bflum. Um er að
ræða allt að 200 þúsund krónur í
styrk. Boðið er upp á ókeypis
hleðslu (sama og hjá Rafveitu
Almenningur hefur
mikinn áhuga á því,
segir Hjálmar
Arnason, að nota
vistvæn ökutæki.
Reykjavíkur), og þá er boðið upp á
ókeypis bílastæði fyi'ir rafbfla
ásamt hleðslu á bflana. Opinberar
stofnanir eru skyldugar til að hafa
20% af bílum sínum rafknúna. Þess-
ar stjórnsýsluaðgerðir eru til þess
að framfylgja stefnumörkun og hafa
skilað þeim árangri sem raun ber
vitni.
Hvað gerum við?
I framhaldi af stefnumörkun rik-
isstjómarinnar samþykkti Alþingi
lög í desember síðastliðnum þar
sem kveðið er á um afnám vöru-
gjalds á bíla sem nota vistvæna
orkugjafa. Sú aðgerð lækkaði
kostnað bíla um nokkur hundruð
þúsund krónur. En betur má ef
duga skal. I gildandi lögum er kveð-
ið á um að þungaskattur sé á rafbfl-
um, líkt og díselbflum. Undirritaður
lagði fram á yfirstandandi þingi
framvarp þar sem kveðið er á um
tímabundið afnám þungaskatts á
vistvæn ökutæki sem og tímabundið
afnám virðisaukaskatts á sömu öku-
tæki. Samkvæmt framvarpinu á
þetta ákvæði að gilda í fimm ár frá
setningu laganna verði framvarpið
samþykkt. Hugsunin á bak við það
er að gera rafbfla og önnur vistvæn
ökutæki samkeppnisfær við hefð-
bundin ökutæki.
Þá er mjög mikilvægt að leggja
áherslu á að byggja upp innviði og
skipulag hér innanlands þannig að
notendur rafbíla geti annars vegar
fengið aðgang að ódýru rafmagni
heima við og hins vegar komið bíl-
unum í hleðslu meðan eigendur
sinna t.d. vinnu sinni. Þetta er mik-
ilvægt til þess að gera rafbflavæð-
inguna raunhæfa. Eg tel að sam-
þykkt Rafveitu Reykjavíkur feli
þessi atriði í sér. Önnur sveitarfélög
þyrftu að taka sama fyrirkomulag
upp. Fjölmargir bílar í eigu fyrir-
tækja og stofnana eru notaðir til að
sinna sendiferðum þar sem ekki er
krafist mikils rýmis vegna vöra-
flutninga. Enginn vafi er á að rafbíl-
ar henta til slíkra sendiferða. Þess
vegna er mikilvægt að fyrirtæki og
stofnanir hérlendis sýni þá fram-
sýni að festa kaup á þessum bílum.
Enginn vafi er á því að rafbílar
eru ekki jafn hættulegir í umferð og
hefðbundnir bílar. Þeim er ekki ætl-
að að fara hraðar en 90 km á
klukkustund, sem dugar vel fyrir
innanbæjarakstur, og þar að auki
era þeir hljóðlausir. Þess vegna er
ekld óeðlilegt að tryggingafélög taki
þátt í því að stíga fyrstu skrefin til
rafbflavæðingar með því að veita
eigendum rafbfla lægri iðgjöld en
ella.
Ávinningur
Enn skal rifjað upp að 1/3 koldí-
oxíðmengunar á Islandi stafar af út-
blæstri bfla. Þetta sést glöggt yfir
höfuðborginni. Með þvi að innleiða
vistvæn ökutæki, svo sem eins og
i'afbíla, erum við að leggja okkar af
mörkum til að draga úr þessari
mengun. Þá er mikilvægt að hafa í
huga að rafbflar era hljóðlausir og
notkun þeirra dregur úr þeirri há-
vaðamengun sem sannarlega er
Hjálmar
Árnason
MORGUNB LAÐIÐ
orðin vandamál við helstu umferð-
aræðar.
Það eru líka mikil efnahagsleg
rök fyrir þjóðarbúið að við getum
sjálf framleitt og selt orkugjafa til
bifreiða í stað þess að eyða gjald-
eyri til kaupa á mengandi orkugjöf-
um. Þar að auki má ætla að vaxandi
notkun rafbfla auki tæknikunnáttu
og þróunarstarf á þessu sviði og ýti
þar með undir tækni- og menntastig
þjóðarinnar. Ávinningurinn er í
raun ómetanlegur.
Næstu skref
Gangi þau mál eftir sem hér hafa
verið rakin tel ég fullvíst að rafbflum
muni fjölga allveralega hér á næstu
áram. í raun tel ég að hér geti orðið
bylting hvað varðar samgöngutæki.
Enda er það svo að almenningur er
mjög áfram um að bæta umhverfi
okkar og sýna það í verki með því að
nýta vistvæn ökutæki.
Eg hef áður fjallað um þróunina á
sviði vetnis sem orkugjafa í bfla.
Grundvallarmunurinn á rafbflum og
vetnisbílum er í raun afskaplega lít-
ill. Við rafbíla eru notaðar rafhlöður
sem hlaðnar era úr veitukerfi um-
hverfisins. Vetnisbfll hins vegar
framleiðir sitt eigið rafmagn með
vetni á efnarafölum. Að öðra leyti
er uppbygging vetnisbfla að öllu
leyti sú sama. Með vordögum mun
koma hér til landsins sýningarbíll,
knúinn vetni, og er það sannfæring
mín að innan skamms tíma verði ís-
lendingar einnig farnir að aka um á
slíkum bflum - með vetni fram-
leiddu á Islandi. I rauninni fæ ég lít-
il rök séð gegn því að stefnunni um
vistvæn ökutæki verði hrint í fram-
kvæmd þegar í stað. Ávinningurinn
er á flestum sviðum. íslendingar
eiga í dag heimsmet hvað varðar
nýtingu vistvænna orkugjafa. Við
eigum áfram að vera forystuþjóð á
þessu sviði. Vilji er allt sem þarf.
Hötundur er alþingismaður.
Af Útirauðsmýrarpólitík
UNDANFARNAR
vikur hafa menn keppst
um að mæra Halldór
Kiljan Laxness, svo
sem verðugt er, ekki
síðar en núna, að hon-
um látnum. Engir
seinni tíma menn a.m.k.
hafa verið jafnskyggnir
og hann á Islend-
ingseðlið og íslenskt
þjóðlíf og jafnframt
haft til að bera elju og
listræna burði til að
finna skyggni sinni far-
veg í bókmenntum, sem
að sönnu era alíslensk-
ar, en um leið heims-
bókmenntir, sem
standa undir því nafni. Meðal
þeirra gullkorna, sem Halldór
skildi eftir sig, var sú einkunn, sem
hann gaf íslendingum í Innansveit-
arkróniku, að þá reki jafnan í
rogastans og setji hljóða hvert
sinn, sem komið er að kjarna máls,
taki engum rökum en þrátti hins
vegar endalaust um tittlingaskít.
Því kemur þetta í huga skrifara
þessarar greinar, að hann birti ný-
verið yfirlitsgrein í Mbl. þar sem
leitt var í ljós, hvemig deilan um
fiskveiðistjórnun er miklu víðtæk-
ari, djúpstæðari og flóknari en svo,
að hún verði leyst með veiði-
leyfagjaldi, eins og það hugtak hef-
ur verið notað. Með gildum rökum
var dregið í efa, að yf-
irlýst hagkvæmni-
markmið kerfisins séu
að nást. Það séu mögu-
leikarnir á braskhagn-
aði, sem fyrirkomulag-
ið gefur færi á, en ekki
hagkvæmari afrakstur
auðlindarinnar, sem
ráði ferðinni í viðskipt-
um þessi misserin.
Þeir stóra éti upp hag-
kvæma útgerð smærri
báta og þrengi þannig
að afkomugrundvelli
ýmissa sjávarplássa.
Því er raunar haldið
fram í greininni, að
brottflutningur fólks
af landsbyggðinni sé að hluta til
þessu að kenna og þess vegna að
því leyti á ábyrgð þeirra stjóm-
málamanna, sem standa fyrir fisk-
veiðistjómunarkerfinu. Vakin er
athygli á ógnarlegri sóun, sem
kerfíð á sök á vegna brottkasts á
verðmætum afla og því haldið
fram, að fólk um allt land sé bál-
reitt, en margir þori ekki að láta
uppi skoðun sína vegna ótta um
ýmiss konar hagsmuni. Undir lok
greinarinnar var svo þeirri
sprengju kastað fram, að vera
kunni fræðilegur grunnur í smiðju
stofnvistfræðinga undir því, að
leyfa ætti óheftar þorskveiðar í eitt
eða tvö ár, meðan verið væri að
Gjafaúthlutun kvóta á
grundvelli veiðireynslu
útgerða telur Jón Sig-
urðsson vera rót og eitt
af höfuðvandamálum
núverandi fískveiði-
stjórnunarkerfis.
búa til viðunandi og skaðlaust fisk-
veiðistjómunarkerfi í stað þess
óskapnaðar, sem nú er í lögum. I
leiðinni var bent á þann fræðilega
möguleika, sem reynslan úr
Barentshafinu er að kenna þeim,
sem vilja læra. Þar hefur sá árang-
ur náðst með friðun þorsksins, að
stórþorskurinn er búinn að éta upp
kröftuga árganga af þeirri nýliðun,
sem menn þóttust hafa séð fyrir.
Af því stafar hrunið. Nýlegar frétt-
ir úr Breiðafirði og sögusagnir
hafðar eftir sjómönnum víðar
benda til hins sama hér, a.m.k.
sums staðar við landið. Því kynn-
um við að vera að friða þorsk okk-
ur til stórskaða sem næmi tug eða
tugum milljarða króna á ári í
þorski, sem samkvæmt gildandi
fiskveiðiráðgjöf á að geyma sér í
sjónum og láta vaxa. I staðinn hor-
ast hann og drepst eða dregur
fram lífið með því að éta upp ár-
gangana á eftir sér, sem áttu að
verða nýliðun næstu ára.
Því verður varla í móti mælt, að
þama var rætt um mörg og mikils-
verð mál og fleiri hefði raunar mátt
nefna úr téðri grein. Nú sækir sú
spuming á skrifarann, hvort held-
ur þessi grein var svo afspyrnu-
vond og ómerkileg eða hún komst
einhvers staðar nálægt kjama
máls. Svo mikið er víst, að hvergi
hefur skrifarinn séð þess stað, að
nokkrum manni hafi þótt tilefni til
að ræða þessi mikils verðu mál,
a.m.k. ekki í þeim fjölmiðlum, sem
skrifarinn fylgist með. Þetta er
þess vegna eitt dæmið enn um að
tilraunir til málefnalegrar umræðu
um samfélagsmál verða eintal út í
tómið.
Greininni var ætlað að segja það
án þess að segja það beinlínis, að
það er gjafaúthlutun kvóta á
grundvelli veiðireynslu útgerða,
sem til vora þrjú ár endur fyrir
löngu, sem er rót og eitt af höfuð-
vandamálum núverandi fiskveiði-
stjómunarkerfis. Og það er vanda-
mál, sem ekkert venjulegt veiði-
leyfagjald eitt og sér .getur leyst.
Það þarf að þróa kerfi með aðra og
réttlátari gerð af úthlutun réttar til
nýtingar fiskimiðanna.
Allar nýlegar og síðbúnar undir-
tektir forystumanna núverandi
stjórnarflokka við gagnrýni á ríkj-
andi ástand hafa falist í að dragast
á eitthvert lítilræði af' veiði-
leyfagjaldi í þeim augljósa tilgangi
að tryggja lénsúthlutunina á gjafa-
kvótanum til frambúðar. Þar kem-
ur að þætti Steingríms Sigfússonar,
sem birti í Mbl. á dögunum útlegg-
ingu sína á nýlegri samþykkt Al-
þýðubandalagsins um málið. Af
þeim skrifum verður ekki annað
ráðið en Steingrímur vilji einmitt
þetta sama og forystumenn ríkis-
stjórnarinnar - festa úthlutunina í
sessi með einhverju „hóflegu“ veiði-
leyfagjaldi.
Þessi stuðningur Steingríms og
skoðanabræðra hans við óréttlæt-
anlega gallað og skaðlegt úthlut-
unarkerfi er sorglegur. Að hann
skuli ekki sjá, þótt forystumenn
stjórnarflokkanna vilji ekki gera
það, að auðlindarleigan á hvorki að
vera hófleg né óhófleg. Hún á að
vera sú leiga, sem hagkvæmustu
útgerðirnar í landinu á hverjum
tíma eru reiðubúnar að greiða í
eðlilegri samkeppni sín í milli um
réttinn til að mega nýta auðlind-
ina, að því marki sem það telst
óhætt á hverjum tíma. Þannig
sætu allir aftur við sama borð, -
í pípum og plötum sem má þrýsta
og sveigja, laust við CFC, í sam-
ræmi við ríkjandi evrópska staðla.
Hentar vel til einangrunar kæli-
kerfa fyrir loftræsti- og hitakerfi,
og fyrir pípulagningar.
I Leitið frekari upplýsinga
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29,108 REYKJAVÍK,
SlMI 553 8840 / 568 6100.
ÞÞ
&co
Jón
Sigurðsson
líka þeir, sem hefja vildu útgerð.
Skrifari þessarar greinar hefur
a.m.k. ekki til þessa, þrátt fýrir
talsverða leit, fundið neina aðra
leið, sem fullnægir réttlætiskröf-
um hans og kröfunni um hámarks-
afrakstur af auðlindinni. Stein-
grímur Sigfússon sér réttlætið
sýnilega öðrum augum og vill ráð-
stafa þeim afrakstri, sem næst,
einungis til hinna verðugu, en ekki
til þjóðarheildarinnar.
Úr því að menn sjá ástæðu til að
mæra Halldór Kiljan er ekki úr vegi
að nýta sér skyggni hans á samfélag-
ið og taka ögn mark á henni. Undir
lok hetjusögunnar af Bjarti í Sumar-
húsum lýsir Halldór yndislega
hvemig allt það, sem af hálfu hins op-
inbera var gert í þágu landbúnaðai- á
íslandi undir stjóm landnámsmanns-
ins frá Útirauðsmýri, kom einungis
vel efnuðum stórbændum að gagni.
Þetta sá Halldór Kfljan sínum
skörpu augum á miðjum ijórða ára-
tugnum og samúð stjómmálanna
með Bjarti og hans líkum hefur ekki
verið meiri en svo, að þessar eigindir
landbúnaðarstefnunnar hafa verið af-
ar lífseigar allt til þessa dags. Sjávar-
útvegsstefna síðustu ára hefur verið
býsna góð eftirlíking landbúnaðar-
stefnu þeirra Útirauðsmýringa. Hún
gagnast vel þeim stóra, en gefur
þeim litlu raunveralega þann kost
einan að sejja undan sér án þess að
eiga völ á samkeppni á jaftiræðis-
grundvelli.
Það er ekki ónýtt fyrir þá
Útirauðsmýringa nútímans að hafa
fengið oddvita Alþýðubandalags-
manna á Norðausturlandi, af öllum
stöðum, til fylgis við sig. Og síst er að
undra, að þeir skyldu klappa Stein-
grími á kollinn fyrir þann stuðning í
þinginu. I hetjusögunni gáfu
Útirauðsmýrarmenn með sama
hætti óviðurkenndum afkomanda
sínum stundum túkall. Þann túkall
lét Bjartur týnast í keldu vegna þess
hvers konar túkall það var. Af frétt-
um úr þinginu var ekki annað að
heyra en Steingrímur tæki hinn glað-
asti við honum.
Höfundur er fyrrverandi fram-
kvæmdasljóri og félagi í Saintökum
um þjóðareign.