Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 35
34 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 35 v
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BETRI AFKOMA
LANDYINNSLU
GÓÐ AFKOMA landvinnslu hjá Fiskiðju Skagfirð-
ings hf. á Sauðárkróki, sem sagt er frá í sérblaði
Morgunblaðsins um sjávarútveg, „Úr verinu“, í gær,
hefur vakið verðskuldaða athygli. ísfisktogarinn
Hegranes hefur frá því í haust landað vikulega 50 til
70 tonnum af þorski til landvinnslu á Sauðárkróki. A
sex mánaða tímabili, frá september til febrúar, hefur
útgerð togarans og landvinnsla afla hans skilað rúm-
lega 100 m.kr. afgangi upp í afskriftir og fjármagns-
kostnað, sem skiptist nálega til helminga milli skips og
vinnslu.
„Úr verinu“ greinir einnig frá miklum umskiptum í
rekstri landvinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyringa hf.
í vetur, eftir breytingar í vinnslusal, breytta vinnutil-
högun og útgerðarmynstur. Hlutfall hráefnis, sem unn-
ið er í verðmætari söluvöru [hávirðispakkningar], hefur
hækkað úr 55% í 70%. Afköst „á manntíma“ hafa og
aukizt um 40%. Laun starfsfólks hafa hækkað en hlut-
fall launakostnaðar í framleiðslunni lækkað. Fram-
kvæmdastjóri ÚA segir í viðtali við blaðið í gær að
framlegð í landvinnslunni sé komin í eðlilegt horf. Enn
megi þó betur gera á þeim vettvangi.
Þetta eru góð tíðindi, ekki sízt fyrir sjávarplássin og
landvinnslufólkið. Þróunin hefur verið í þá átt að fisk-
vinnslan hefur verið að flytjast úr landi og út á sjó
[frystitogarar], sem veikt hefur afkomu- og starfsöryggi
fólks í sjávarbyggðum. Reynslan hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa og Fiskiðjunni Skagfirðingi bendir á hinn
bóginn til þess að landvinnsla geti átt góða framtíð, ef
rétt er að verki staðið: í útgerð, vinnutilhögun og skipu-
lagi vinnslunnar. Hlutaðeigendur, útgerð, fiskvinnsla og
starfsfólk, þurfa að leggja allar árar út til styrkja enn
stöðu landvinnslunnar og fylgja fast eftir góðum
árangri hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi og Útgerðarfélagi
Akureyringa.
FYRIRTÆKJASTYRKIR
TIL KVIKMYNDAGERÐAR
ÞRIR þingmenn í þingflokki jafnaðarmanna, Agúst
Einarsson, Svanfríður Jónasdóttir og Rannveig
Guðmundsdóttir, hafa endurflutt frumvarp, sem ekki
varð útrætt í fyrra, um að gjafir og framlög til menning-
armála, kvikmyndagerðar og vísindalegra rannsókna-
starfa skuli verða frádáttarbær við álagningu tekju- og
eignarskatts. Gjafir og framlög til þessara málaflokka
skulu þó ekki vera yfir 0,5% af tekjum á því ári sem gjöf
er afhent.
Tilgangur frumvarpsins er að efla menningu, kvik-
myndagerð og vísindi með tilteknum skattalegum að-
gerðum. Nú er í lögum að fyrirtæki og aðrir lögaðilar
megi draga ýmis framlög frá tekjum m.a. framlög til
menningarmála og vísindalegra rannsóknastarfa. Gert
er ráð fyrir því að með frumvarpinu megi fyrirtæki, sem
gefur eða styrkir menningarmál, kvikmyndagerð eða
vísindastarfsemi, draga frá tekjum fyrir skatta tvöfalda
þá upphæð, sem það gefur. Þetta fyrirkomulag á að
hvetja fyrirtæki til að styrkja menningarstarfsemi.
Þetta frumvarp er athyglivert. Þessi háttur hefur
víða verið hafður á erlendis og hefur þar gefizt vel. í
fyrra þegar frumvarpið kom fram fékk það jákvæðar
umsagnir frá aðilum, sem það var borið undir, m.a. sam-
tökum listamanna.
Aukin framlög til menningar, kvikmynda og vísinda
leiða til aukinna umsvifa, sem munu væntanlega skila
auknum tekjum til ríkissjóðs í formi virðisaukaskatts og
tekjuskatts einstaklinga. Því er líklegt, að skattaívilnun,
sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu, leiði til aukningar á
tekjum ríkisins um leið og hún ætti að auðga menning-
arlíf og vísindastarf. Það eru t.a.m. ekki litlar tekjur,
sem ríkið hefur af bókaútgáfu og mætti vel minnka þær
og styðja betur við bakið á þeim bókmenntum, sem hafa
átt undir högg að sækja í markaðsþjóðfélaginu, t.a.m.
ljóðlist.
SAMÞYKKT voru afbrigði á
Alþingi í gær til að hægt væri
að taka frumvörp ríkisstjóm-
arinnar vegna kjaradeilu sjó-
manna og útvegsmanna til umræðu.
Stjórnarandstaðan sat hjá við at-
kvæðagreiðslu vegna frumvarpsins
sem lögfestir miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara í tæp tvö ár, en afbrigði
vora veitt samhljóða vegna hinna
frumvarpanna. Áður en gengið var til
atkvæðagreiðslu tilkynnti sjávarút-
vegsráðherra að því væri beint til
sjávarútvegsnefndar Alþingis að
ákvæði í frumvarpi um lögfestingu
miðlunartillögunnar hvað varðar
skiptakjaraákvæði kjarasamninga
yrði breytt þannig að það tæki ein-
ungis til rækjuveiða, þar sem að við
nánari athugun hefði komið í Ijós að
kjaraáhrif ákvæðisins væru nokkru
viðtækari en að hefði verið stefnt.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra mælti síðan fyrir frumvörpun-
um, en þau voru öll tekin til umræðu í
einu lagi. Hann ræddi fyrst frum-
varpið sem lögfestir miðlunartillögu
ríkissáttasemjara og rakti hvernig
kjaradeila sjómanna og útvegsmanna
hefði gengið fyrir sig undanfarna
mánuði. Sagði hann að eftir að við-
ræður sjómanna og útvegsmanna
hefðu siglt í strand 23. mars, I kjölfar
þess að sjómenn samþykktu miðlun-
artillögu ríkissáttasemjara en útvegs-
menn felldu hana, hefði hann kallað
aðila á sinn fund. Á þeim fundi hefði
komið fram að mikið bæri á milli aðila
og engin lausn virtist í sjónmáli.
„Því var fyrirsjáanlegt að yrði ekk-
ert að gert myndi yfirstandandi verk-
fall standa í margar vikur ef ekki
mánuði. Ljóst er að almenn stövun
veiða og vinnslu um lengri tíma hefði
mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þjóð-
Mælt fyrir frumvörpum vegna kjaradeilu sjómanna
Nauðsynlegt að
bregðast við vegna
almannahagsmuna
Loksins virðist sjá fyrir endann á harðvít-
ugri kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna
með tilstyrk löggjafarvaldsins og líkur eru
til þess að fiskveiðiflotinn geti látið úr höfn
á morgun, föstudag. Arna Schram og
Hjálmar Jónsson fylgdust með umræðum
á Alþingi og ræddu við deiluaðila.
arbúið. Þau áhrif yrðu þó mun meiri
og alvarlegri fyrir einstaklinga sem
starfa við fískvinnslu og fyrirtæki og
bæjarfélög sem byggja á sjávarútvegi.
Vinnsla á fiski er að stöðvast en það
mundi leiða til þess að fjöldi físk-
vinnslufólks missti atvinnu. Hér er því
um mikla almannahagsmuni að tefla
og nauðsynlegt að bregðast við til að
koma í veg fyrir þann mikla efnahags-
skaða sem stöðvun fiskiskipaflotans
um lengri tíma myndi ella hafa í fór
með sér,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn ræddi síðan efnisatriði
frumvarps um kvótaþing og sagði
ljóst að ef það yrði að lögum yrðu tals-
verðar breytingar á starfsumhverfi
þeirra sem stunda útgerð frá því sem
væri. Viðskipti með aflamark hefðu
yfirleitt gengið nokkuð greiðlega fyrir
sig, enda væri slíkt nauðsynlegt, sér-
staklega í þeim tilvikum þegar lítið
væri eftir af aflamarki. Tryggja þyrfti
að framkvæmd við rekstur kvótaþings
yrði sem allra greiðust, þannig að
tryggt væri að flutningur aflamarks
gengi áfram hratt og örugglega fyrir
sig. Utgerðarfyrirtækin þyiftu að
sjálfsögðu að laga sig að þessu breytta
fyi'irkomulagi og ef til vill skipuleggja
flutning aflamarks með meiri fyi’ir-
vara en gert hefði verði.
„Starfsemi kvótaþings eins og hér
er lýst mun hafa áhrif á sjávarútveg-
inn í heild og tekjuskiptingu á milli
sjómanna, útgerðar og fiskvinnslu.
Áhrifin fyrir einstakar áhafnir eða
einstök fyrirtæki geta verið misjöfn
og leitt til ólíkra viðbragða. Meginat-
riðið er að margt bendir til þess að
hagkvæmni í sjávarútvegi í heild geti
aukist ef vel tekst til með kvótaþingið
og það getur stuðlað að bættum sam-
skiptum útgerðar og sjómanna til
lengri framtíðar,“ sagði Þorsteinn.
Þá ræddi Þorsteinn frumvarp um
verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurð-
arnefnd sjómanna og útvegsmanna
og fór yfir efnisatriði þess. Sagði
hann að nokkurrar tortryggni gætti
hjá forystumönnum samtaka sjó-
manna varðandi það hvort raunveru-
legt söluverð afla væri í öllum tilfell-
um lagt til grundvallar hlutaskiptum
á þann hátt sem lög og kjarasamning-
ar kveða á um. Verðlagsstofu yrði
falið að fylgjast með því, meðal ann-
ars með úrtakskönnunum, en megin-
hlutverk hennar yrði að fjalla um
skiptaverð í einstökum tilvikum.
Þá mælti Þorsteinn einnig fyrir
frumvarpi um breytingu á lögum um
stjórn fiskveiða, en hún lýtur að því að
auka veiðiskyldu skipa í 50% árlega af
úthlutuðum heimildum. Þorsteinn
sagði að aukin veiðiskylda myndi gera
það að verkum að aflahlutdeild færð-
ist til þeirra skipa sem veiðarnar
stunduðu og því drægi úr umfangi
óeðlilegra aflamarksflutninga, en
tengsl þeirra við fiskverð til uppgjörs
á aflahlut sjómanna hefðu verið í
brennidepli í kjaradeilum útvegs-
manna og sjómanna á undanförnum
árum. Mikilvægt væri að þessi aukna
veiðiskylda drægi ekki úr sveigjan-
leika fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Yrði það niðurstaðan mundi draga úr
möguleikum einstakra útgerða til að
hagræða í rekstri og nýrra aðila til að
hasla sér völl í útgerð.
/ /
Formaður LIU um breytingar á frumvarpi
Urelt ákvæði
kj arasamninga
áfram í gildi
STJÓRNVÖLD ákváðu eftir
fundi með forystumönnum sjó-
manna í gærmorgun að breyta
ákvæði í lagafrumvarpi sem lögfestir
miðlunartillögu ríkissáttasemjara til
samræmis við þá gagnrýni sem sjó-
menn höfðu sett fram og takmarka
ákvæðið, sem koma á í veg fyrir að
launakostnaður hækki við að það
fækkar í áhöfn, einungis við rækju-
veiðar.
Sjómenn lögðu þar með á hilluna
fyrirætlanir um að aflýsa verkfalli til
að koma í veg fyrir lögfestingu miðl-
unartillögunnar, eins og hugmyndir
voru uppi um í fyrrakvöld. Útvegs-
menn eru hins vegar afar ósáttir við
þessar lyktir mála og verða þær
ræddar á stjórnarfundi Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna I dag.
Forystumenn sjómanna áttu tvo
fundi með sjávarútvegsráðherra í
gærmorgun um málið og í kjölfarið
voru forsvarsmönnum útvegsmanna
kynntar niðurstöðurnar í stjórnarráð-
inu. Umræða um fjögur frumvörp
ríkisstjómarinnar vegna kjaradeil-
unnar hófst eftir hádegið á Alþingi og
ef umræða og afgreiðsla þeirra geng-
ur fram eins og ráð er fyrir gert
verða frumvörpin að lögum á morgun,
föstudag. Þar með yrði verkfalli sjó-
manna lokið og fiskveiðiflotinn ætti
að geta látið úr höfn í kjölfarið, en
með lögfestingu miðlunartillögunnar
verður kominn á samningur milli sjó-
manna og útvegsmanna sem gildir
næstu tvö ár.
Með endemum
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þessi þróun málsins væri
með endemum. Sjávarútvegsráðherra
hefði lagt fram frumvarp sem meðal
annars fæli í sér ákvæði um áhrif
þess sem yrði ef fækkaði í áhöfn. „Nú
ber hann það fyrir sig að þau áhrif
séu meiri en hann hafi ætlað. Hann
hafði öll gögn um það í höndum hver
áhrif af þessu yrðu, hvernig laun
myndu hækka við fækkun í áhöfn, því
þeir fá allan hlut sem sparast. Okkur
var ekki ætlað að fá neitt af þeim
sparnaði þegar fækkar í áhöfn, sem
er náttúrlega einstakt og ekki hægt
að bera saman við neinn annan at-
vinnurekstur," sagði Kristján.
„Það að gefast upp með þessum
hætti fyrir hótunum, brigslyrðum og
stóryi'ðum af öllu tagi finnst mér
svona lýsa því hvernig eigi að koma
fram við þessa ríkisstjórn í málefnum
er varða sjávarútveginn," sagði hann
ennfremur.
Kristján sagði að það væri hlaupið
til og frumvarpinu breytt að því litla
leyti sem það kom til móts við útgerð-
armenn, sum sé að firra þá útgjalda-
aukanum sem fylgdi fækkun um borð.
Nú ætti það ekki að ganga og út-
gerðamenn myndu sitja uppi með
þessi úreltu ákvæði kjarasamning-
anna, sem þessu hafi verið ætlað að
breyta.
Kristján sagði að sjávarútvegsráð-
herra hefði í tvígang hitt sjómenn í
gærmorgun. Þrír ráðherrar hefðu
síðan tilkynnt honurr. niðurstöðuna.
„Sjávarútvegsráðherra hafði nú ekki
fyrir því að láta okkur vita um að
þetta stæði tii einu sinni, hvað þá að
það væri nú rætt með hvaða hætti
það yrði gert eða hvort við hefðum
eitthvað um það að segja," sagði
Kristján.
Hann sagði að boðaður hefði verið
stjórnarfundur í LÍÚ í dag til að fara
yfir stöðu málsins.
Létu sér segjast
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
þær breytingar sem gerðar væru á
frumvarpinu kæmu í beinu framhaldi
af þeim fullyi'ðingum sínum í íyrra-
dag að stjórnvöld hefðu ekki vitað
hvað þau væru að gera með þessum
breytingum eða eitthvað annað verra
væri þar á ferðinni. „Þetta var ger-
ræði hvemig þeir ætluðu að fara í
Morgunblaðið/Kristinn
FORYSTUMENN sjómanna gátu verið kampakátir eftir fundi með sjávarútvegsráðherra í gærmorgun, þvi niður-
staða fundanna var að tekið var tillit til gagnrýni þeirra á frumvarp sem binda á enda á kjaradeilu þeirra og út-
vegsmanna. Að loknum fyrri fundinum urðu þeir allir samferða í lyftunni í gamla útvarpshúsinu, þar sem sjávar-
útvegsráðuneytið er til húsa.
þetta. Ég stend við það, en þeir hafa
látið sér segjast og breytt þessari
grein frumvarpsins í þá veru að við
ætlum að láta það yfir okkur ganga,"
sagði Sævar.
Hann sagði að það breytti aftur á
móti ekki þeirri skoðun sinni að sjó-
menn og útvegsmenn verði að fá að
klára gerð kjarasamninga og hann
væri ósáttur við að rétturinn til þess
væri tekinn af þeim.
„Það er ekki búandi við að útvegs-
menn geti treyst því aftur og aftur að
ef þeir segi bara nei við okkur um alla
þætti okkar mála í viku þá komi
stjórnvöld og hjálpi þeim frá því.
Þetta er ekki lýðræði og þetta er ekki
frjálsræði í kjarasamningum að þeir
geti treyst því með þessum hætti,“
sagði Sævar.
Hann sagði að frumvörp þríhöfða-
nefndarinnar myndu verða að lögum,
um það hefði hann fyrirheit ráðherra.
Hins vegar væri rétt að minna á, að
þó frumvörpin væra sjómönnum
þóknanleg, væru þau ekki krafa
þeirra. Sjómenn hefðu viljað verð-
myndun á markaði og því væri ekki
rétt að líta á þessi frumvörp sem ein-
hverja plúsa varðandi kjarasamning
sjómanna. „Þetta er umgjörð sem
stjórnvöldum ber skylda til að búa til
um kvótabraskið og verðmyndunina.
Það stendur úti hellingur af okkar
kjarakröfum sem ekki hefur verið
ansað allan tímann," sagði Sævar.
Breytingin viðunandi
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, sagði að sú breyting
sem fyrirhugað væri að gera á frum-
varpinu væri viðunandi og kæmi til
móts við þau sjónarmið sem sjómenn
hefðu sett fram. Það að ákvæðið tæki
eingöngu til rækjuveiða væri í sam-
ræmi við það sem þeir hefðu dregist á
í kjarasamningsviðræðunum við út-
vegsmenn.
Guðjón sagði að þess vegna þyrfti
ekki að koma til þess að samtök sjó-
manna aflýstu verkfalli til að koma í
veg fyrir lögfestingu miðlunartillög-
unnar.
Sáttir við breytinguna
Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra-
félags íslands, sagði að þeir væru
sáttir við þá breytingu á frumvarpinu
sem sjávarútvegsráðherra hefði
+
kynnt og ánægðir með það hve sjáv-
arútvegsráðherra og ríkisstjórnin
hefðu verið fljót að taka tillit til óska
sjómanna. Hann taldi einna helst að
ákvæðið, eins og það hljómaði, hefði
verið sett inn vegna misgánings. Nú
þyi'fti ekki að aflýsa verkfalli til að
koma í veg fyrir samþykkt frum-
varpsins.
Hann sagði að hins vegar væra þeir
ósáttir við að endi væri bundinn á
deiluna með lögum. Þeir hefðu viljað
leysa hana með samningum. „Ég ætla
að vona að okkur takist í næstu lotu
að ná kjarasamningi sem báðir skrifa
undir og eru þokkalega sáttir við. Það
er náttúrlega engin lausn að ljúka öll-
um málum með lögum,“ sagði Helgi.
Hann benti á að frumvörp þrí-
höfðanefndarinnar væru sett fram til
þess að reyna að tryggja það að út-
gerðarmenn stæðu við gerða kjara-
samninga, þannig að hin eiginlegi
kjarasamningaþáttur í þessari lotu
væri ekki mikill eða einungis þessi
miðlunartillaga. Ef tillögur þríhöfða-
nefndarinnar hefðu þau áhrif, sem
vonast væri til, sýndist honum að
næstu kjarasamningar ættu að geta
snúist um hrein kjaraatriði.
Stjórnarandstæðingar ósáttir við frumvarp til laga
um kjaramál fískimanna
Deilendur píndir til
að komast að niður-
stöðu í kjaradeilunni
IUMRÆÐUM á eftir framsögu-
ræðu Þorsteins Pálssonar sjáv-
arútvegsráðherra kom fram
stuðningur stjórnarandstæðinga
við frumvörp svokallaðrar þríhöfða-
nefndar og sögðust þeir ætla að
greiða leið frumvarpanna í gegnum
þingið. Þeir gagmýndu hins vegar
frumvarpið til laga um kjaramál fiski-
manna, einkum aðra grein frumvarps-
ins um skiptakjaraákvæði kjarasamn-
inga, þriðju grein frumvarpsins um
bann við verkfóllum og fimmtu grein
frumvarpsins sem kveður á um það að
frumvarpið gildi til ársins 2000. Sögðu
þeir m.a. að með frumvarpinu væri
verið að pína deilendur til að komast
að niðurstöðu í kjaradeilunni. Lög
væru sett á sjómenn á sama tíma og
flestar aðrar stéttir hefðu gert sína
eigin kjarasamninga. Kom fram í máli
nokkurra stjórnarandstæðinga að
þeir myndu greiða atkvæði gegn síð-
astnefnda frumvarpinu. I máli stjórn-
arliða kom einnig fram gagnrýni á
ýmis ákvæði frumvarpanna, m.a. að
með þeim væri verið að lögbinda auk-
inn launakostnað útgerðarinnar.
Sighvatur Björgvinsson, þingmað-
ur þingflokks jafnaðarmanna, lagði
m.a. áherslu í máli sínu á að frumvörp
svonefndrar þríhöfðanefndar yrðu
samþykkt á Alþingi eins og þau lægju
fyrir. Þau væru forsenda þess að
framvarp til laga um kjaramál fiski-
manna yi'ði afgreitt. „Verði frumvarp
til laga um kjaramál fiskimanna sam-
þykkt hér á Alþingi og verkfall sjó-
manna bannað til 15. febrúar árið
2000 en frumvörp þríhöfðanefndar
hins vegar ekki afgreidd eða afgreidd
allt öðruvísi en þau eru lögð fram
mun sú afgreiðsla eða það afgreiðslu-
leysi engin áhrif hafa á þá lausn í
kjaramálum fiskimanna sem frum-
varp ráðherra gerir ráð fyrir,“ sagði
hann meðal annars. I máli sjávarút-
vegsráðherra kom hins vegar fram að
hann hefði gefið sjávarútvegsnefnd
Alþingis þau tilmæli að umrædd
frumvörp þríhöfðanefndar yrðu af-
greidd eins og þau lægju fyi'ir.
Sighvatur fjallaði einnig um ein-
staka þætti frumvarpsins um kjara-
mál fiskimanna og sagði að vissulega
væri það svo að í miðlunartillögu iTk-
issáttasemjara væru ýmsir þættir
sem vörðuðu sjómenn miklu. „Það er
að sjálfsögðu eðlilegt að sjómenn vilji
fá hækkun einstakra kaupliða svo
sem eins og tryggingarinnar, tíma-
kaups og hlífðarpeninga, til jafns við
þær hækkanir sem hafa orðið al-
mennt á launum landverkafólks.“
Sagði hann að það væri af hinu góða
ef slíkt yrði lögfest.
Sighvatur gagnrýndi hins vegar
ýmis atriði frumvarpsins, einkum þau
ákvæði sem bætt hefði verið við miðl-
unai-tillögu ríkissáttasemjara. Átti
hann þar m.a. við aðra grein frum-
varpsins um skiptakjaraákvæði
kjarasamninga, en þar er kveðið á um
að fækkun í áhöfn eigi ekki að hafa
aukin útgjöld í för með sér fyrir út-
gerðarmenn. Spurði hann hvers
vegna ráðherra hefði valið að bæta
þessu ákvæði við, því þar með væri
hann að „rústa öllum kjarasamning-
um sjómanna á mismunandi veiðum“,
eins og hann orðaði það. „Sjávarút-
vegsráðherra kemur svo núna tæpum
sólarhring eftir að frumvarpið var
lagt fram á Alþingi og segir að því
miður hafi þetta verið mistök. Hann
hafi ekki ætlað að rústa kjarasamn-
ingum sjómanna. Þetta ákvæði ætti
bara við um úthafsrækjuveiðarnar,"
sagði Sighvatur og spurði hvers kon-
ar flumbrugangur þetta væri eigin-
lega. „Skipti hæstvirtur ráðherra um
skoðun á þessum tæpum sólarhring?"
spurði Sighvatur.
Útgerðarmenn geri út
á lagasetningu
Sighvatur hafði einnig efasemdir
um þá ákvörðun ríkisstjómarinnar yf-
irleitt að setja lagasetningu á deilu
sjómanna og útvegsmanna. „Það er
vissulega orðin spuming hvort það sé
líklegt að sjómenn á íslandi fái
nokkurn tíma að gera kjarasamning
við sína viðsemjendur, eftir að ríkis-
valdið hefur ítrekað gripið inn í þessa
deilu með lagasetningu,“ sagði hann
og spurði: „Er þá nokkuð annað lík-
legra heldur en að útgerðarmenn bók-
staflega geri út á það í framtíðinni, ná-
ist ekld samningar og verkfall standi í
einn dag eða hæsta lagi tíu daga, að
ríkisstjóm komi einfaldlega og höggvi
á hnútinn og banni sjómönnum að
grípa til aðgerða í kjaramálum í eitt,
tvö eða þrjú ár? Þetta er búið að
ganga svona meira og minna í nær
fimm ár og það er ekkert óeðlilegt að
viðsemjendur sjómanna gangi út frá
því sem gefnu að þetta sé orðin regla.“
Sighvatur kvaðst ekki ætla að hafa
mörg orð um frumvörp þríhöfða-
nefndar á þessu stigi málsins enda
ættu þau eftir að fara í umfjöllun til
sjávarútvegsnefndar. Hann sagði þó
að við þessi frumvörp væru bæði
kostir og gallar. Kostur frumvarps til
laga um kvótaþing væri sá að með
samþykki þess yrðu viðskiptin gegn-
sæ og ljós. Okosturinn væri hins veg-
ar sá að þarna væri um að ræða að-
eins einn markað sem hefði einokun á
öllum viðskiptum. Hættan við það
væri sú að svo gæti farið að aflaheim-
ildirnar söfnuðust á æ færri hendur.
Sighvatur sagði ennfremur ýmsa
kosti við frumvarpið um Verðlags-
stofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd
sjómanna og útvegsmanna, en ókost-
irnir væru þeir að þarna væri um
aukna miðstýringu að ræða.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmað-
ur Alþýðubandalags og óháðra, gerði
eins og Sighvatur frumvarp til laga
um kjaramál fiskimanna aðallega að
umtalsefni. Hann rakti aðdraganda
þessarar deilu milli sjómanna og út-
vegsmanna og sagði m.a. að ríkis-
stjómin hefði komið fram við sjómenn
með óvenjulegri lítilsvirðingu hvað
varðaði réttindi þeirra til verkfalls- og
samningsréttar. „Mestu vonbrigðin í
sambandi við þetta mál er auðvitað
það skipbrot sem frjáls samningsrétt-
ur í landinu bíður ítrekað með því að
sjómenn og útvegsmenn skuli ekki
geta lokið sínum málum hjálparlaust.
Jafnvel þótt það taki einhvern tíma og
þótt það kosti að flotinn sé bundinn í
höfn einhverja daga eða einhverjar
vikur,“ sagði hann og bætti því við að
annað hvort hefðu menn samningsrétt
og rétt til að beita samtakamætti sín-
um eða ekki. „Mér sýnist þróunin
vera grafalvarleg í þessu máli hvað
varðar umhverfi það sem sjómenn eru
staddir í. Auðvitað fýrst og fremst
vegna þess að þær ríkisstjórnir sem
setið hafa í landinu á þessum tíma
hafa ekki virt rétt sjómanna, þær hafa
þvert móti haft hann að engu þegar
svo ber undir.“
Launamisrétti í þjóðfélaginu
Steingrímur fór ennfremur
nokkrum orðum um frumvörp þrí-
höfðanefndarinnar og sagðist geta
stutt efni þeirra allra. Þau væru skref
í rétta átt. Sagði hann hins vegar um
frumvarpið um breytingu á lögum um
stjóm fiskveiða, þar sem m.a. væri
kveðið á um að veiðiskylda fiskiskipa
yrði hækkuð upp í 50% af samanlögðu
aflamarki sínu, væri umhugsunar-
vert. Þvi menn misstu annað hvort
allt eða ekkert.
Guðný Guðbjörnsdóttir, þingmaður
Kvennalista, minnti m.a. í máli sínu á
hið gífurlega launamisrétti sem ætti
sér stað í þjóðfélaginu. „Sjómönnum
finnst sín kjör eðlilega ekki nógu góð
þegar kjarasamningar þeirra eru
brotnir æ ofan í æ meðal annars
vegna kvótabrasks og viðskipta með
fisk milli skyldra aðila. Þeim finnst
kjör sín heldur ekki nógu góð af því
að viðmiðunarhópar þeirra eru ekki
aðrir verkamenn eða verkakonur eða
fólkið í frystihúsum landsins sem
einnig vinnur við sjávarútveg. Nei,
viðmiðunarhópar þeirra eru útgerð-
armenn. Útgerðarmenn sem fá gjafa-
kvóta þjóðarinnar á silfurfati og þurfa
aðstoð ríkisvaldsins til að greiða laun
sjómanna, samanber sjómannaaf-
sláttinn. Og geta samt ekki eins og
aðrir atvinnurekendur samið við sína '■
undirmenn um kaup sín og kjör,“
sagði hún og benti m.a. á að allt frá
því að framsal á veiðiheimildum hefði
almennt verið heimilað árið 1990
hefðu kjaramál sjómanna verið í upp-
námi og oftsinnis komið til verkfalla.
Guðný fór yfir einstaka þætti frum-
varpsins um kjaramál fiskimanna og
gagnrýndi eins og Sighvatur og Stein-
grímur ákvæði um að bann skyldi lagt
við kjaradeilur sjómanna til 15. febrú-
ai’ árið 2000 og ákvæðið um að fækkun
í áhöfn ætti ekki að hafa auldn útgjöld í -
í för með sér fyrir útgerðarmenn.
Sagði hún það ekki skrítið að sjómenn
skyldu taka síðarnefnda ákvæðinu illa •
þar sem Ijóst væri að um verulega
kjaraskerðingu væri að ræða frá því
sem nú væri. Sagði hún því ánægju-
efni að sjávarútvegsráðherra hefði
samþykkt fyrir sitt leyti að þessu
ákvæði verði breytt eftir tOlögum sjáv-
arútvegsnefndar. Þá sagðist Guðný
mótfallin því að verkfallsrétturinn, eða
„sjálfsögð mannréttindi heillar stétt-
ar“, eins og hún orðaði það skyldi tek-
inn af henni ár eftir ár, en það ástand
væri framlengt í frumvarpinu um
kjaramál fiskimanna eins og komið
hefur fram. Kvaðst hún mótfallin því.
Guðný tók nokkuð vel í frumvörp
þríhöfðanefndarinnar og taldi mikil-
vægt að þeim yrði ekki breytt í trássi
við vilja sjómanna. Guðný fagnaði
einnig sérstaklega ákvæðinu í fram-
varpinu til laga um breytingu á lögum
um stjórn fiskveiða um að veiðiskylda
yrði aukin í 50% á ári. Hún taldi hins
vegar að veiðiskylduna hefði mátt
hækka meira án þess að nauðsynleg-
ur sveigjanleiki kerfisins væri heftur
um of.
Mismunandi áhrif
á kjör sjómanna
Árni R. Ámason, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, var einn þeirra stjórn-
arþingmanna sem gagnrýndu ýmis
ákvæði í framvörpum þríhöfðanefnd- /•
arinnar. Hann sagði m.a. um frum-
varpið til laga um breytingu á lögum
um stjórn fiskveiða að þar væri verið
að spilla þeim ákvæðum sem menn
hefðu fram að þessu þróað í þessum
lögum. Sagði hann að eitt þeirra
ákvæða sem hvað best hefðu reynst
við takmarkaðar veiðiheimildir ís-
lenska fiskiskipaflotans væri sveigj-
anleikinn sem fælist í því að geta flutt
veiðiréttindin með aflaheimildir á
milli skipa, á milli útgerðaríyrirtækja.
„Með þessu framvarpi ef það verður
óbreytt að lögum eru þær heimildir
stórlega takmarkaðar," sagði hann. —
„Það er alveg ljóst að stór og mikil-
væg útgerð við sunnanvert landið, allt
frá austurlandi, suður um og á vestur-
landi mun eftir það búa við stórskerta
möguleika," sagði hann m.a.
Fleiri þingmenn, bæði í stjóm og
stjórnarandstöðu, tóku til máls í þess-
um umræðum sem stóðu fram á tólfta
tímann í gærkvöldi.