Morgunblaðið - 26.03.1998, Side 42
J*42 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Áfram með
smjörið, Gunni!
IÞROTTAAHUGAMENN um
land allt lyftust úr sætum sínum,
þegar Vala Flosadóttir sveif yfír
rána hærra en nokkur önnur
stúlka í heimi, líkast
því sem þeir héngu
með henni á stönginni.
Þannig fór ég líka í
loftköstum heima hjá
mér, þó að hnén séu
^ orðin fúin. Ég var þó
'Varla lentur og búinn
að jafna mig, þegar
næstu stórtíðindi bár-
ust heim í kotið. Nem-
andi minn, Gúnnar
Guðbjörnsson tenór-
söngvari, háfði unnið
listsigur á sviði eins af
frægustu óperuhúsum
heims, Wiener Staats-
oper, aðeins 32 ára
gamall.
En hvernig mátti
það vera að gamli söngkennarinn
hans vissi ekki að til stæði að hann
syngi við slíkt hús? Hvemig stóð á
því að Gunnar færi leynt með allar
^þær löngu og ströngu æfíngar sem
hann hlaut að hafa stundað af
kappi áður en hann kæmi fram fyr-
ir einhverja gagnrýnustu óperu-
gesti álfunnar?
Sigurður Demetz
Franzson
Svarið er ósköp einfalt: Gunnar
hljóp í skai’ðið fyrir forfallaðan
söngvara fyrirvaralaust og söng
aðalhlutverkið í Töfraflautu Moz-
arts í fæðingarlandi
tónskáldsins án nokk-
urra æfínga! Og
hvemig gekk honum?
Alveg skínandi. Ahorf-
endur fógnuðu honum
vel og innilega eftir
sýninguna.
Þetta gera ekki
nema vitleysingar eða
stórsöngvarar. Og
Gunnar Guðbjömsson
hefur löngu sýnt lönd-
um sínum með söng-
túlkun sinni að hann
er enginn vitleysingur.
Það rifjaðist upp
fyrir mér hve brátt
það bar að, þegar ég
fékk tækifæri til að
syngja í Tosca í Þjóðleikhúsinu fyr-
ir langalöngu og varð að vera án
æfínga. Nógu var það strembið, en
í samanburði við afrek Gunnars er
það nánast eins og Islandsmet við
hliðina á Ólympíumeti (þótt ég ætli
ekki að fara að stæra mig af Is-
landsmeti í öðm en stærðinni á
nýrnasteinum).
ÖLL HREINSIEFNI
íbesta!
Urvalið er hjá okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Þegar kallið kom var Gunnar ný-
kominn úr söngferðalagi til Japans
með Barenboim og Berlínaróper-
unni, þar sem hann var varasöngv-
ari fyrir heimsfrægan tenór. En í
þetta sinn skyldi hann heldur betur
fá að spreyta sig og sýna hvað í
honum býr. Vínaróperan ætlaði sér
að ná í Gunnar hvað sem tautaði og
raulaði og leitaði hann uppi á flug-
vellinum í Billund í Danmörku, þar
sem hann hafði viðkomu á leið á
tónleika. Og Gunnar bilaði ekki á
taugum heldur greip stóra tæki-
Vínaróperan, segir
Sigurður Demetz
Franzson, ætlaði sér að
ná í Gunnar hvað sem
tautaði og raulaði.
færið þegar það gafst, skilaði sínu
með prýði og er án vafa kominn á
beinu brautina. Svona frammistöðu
ungra söngvara er tekið eftir.
Vinur minn, Jónas Ingimundar-
son píanóleikari, flutti mér gleði-
fréttimar og um mig fór sigur-
hrollur eins og ætti ég pínulítið
sjálfur í velgengni þessa unga ís-
lenska listamanns. Stoltur og
ánægður sagði ég vinum og kunn-
ingjum fréttirnar, Guðbjörgu Sig-
urjónsdóttur, sem vann svo mikið
með Gunnari á námsárum hans, og
Ragnari Bjömssyni, skólameist-
ara, því að það er vissulega heiður
fyrir Nýja tónlistarskólann að
nemandi úr honum skuli hafa náð
slíkum árangri.
Það fer vel á því að Ijúka þessu
greinarkomi með bravóhrópum og
hvatningunni, sem söngnemendur
mínir kannast svo vel við frá gamla
manninum: Bravó bravissímó. Og
áfram með smjörið!
Höfundur er söngkennari.
Langlundargeð
sálfræðinga á
SHR á þrotum
SALFRÆÐINGAR
á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur (SHR) eru að-
eins fimm en hafa
engu að síður mjög
fjölbreytta sérþekk-
ingu. Eins og á Ríkis-
spítölum starfa sál-
fræðingar á legudeild
geðdeildar SHR og
veita einnig þjónustu
þaðan á almennar
deildir. Þá starfa sál-
fræðingar geðdeildar á
neyðarmóttöku fyrir
fómarlömb nauðgana.
Á SHR er eina dag-
deild landsins fyrir
einstaklinga með geð-
ræn vandamál og þar starfar sál-
fræðingur með sérþekkingu á því
sviði. Sálfræðingar með sérhæfða
menntun hafa ennfremur verið
ráðnir á aðrar deildir en geðdeildir
til að sinna sérhæfðum störfum
(s.s. öldrunarsálfræðingur og
taugasálfræðingur).
Þó að sálfræðingar á SHR hafi
margt fram að færa og gegni sífellt
fjölbreyttari störfum innan stofn-
unarinnar hafa viðsemjendur okk-
ar í núverandi kjaradeilu hinsvegar
ekki talið ástæðu til að meta þessa
sérþekkingu og ábyrgð til launa.
Launakjör sálfræðinga á SHR hafa
lengi verið lakari en launakjör sál-
fræðinga við aðrar stofnanir þó því
hafí þráfaldlega verið neitað. Nú
hefur dregið enn meir í sundur því
-sll
E
3
C
Q.
3
<0
3
tn
<
kjaradeilu sálfræðinga
á SHR hefur verið vís-
að til ríkissáttasemj-
ara. Á sama tíma hafa
nokkrar aðrar stofnan-
ir samið við sína sál-
fræðinga eftir nýju
launakerfí og launa-
hækkanir hafa verið
umtalsverðar.
Viðsemjendur okkar
vísa gjarnan til þess að
sálfræðingar vinni
ekki sjálfstætt þar
sem læknar beri
ábyrgð á störfum
María K. þeirra og því beri okk-
Jónsdóttir ur ekki hærri laun.
Það er vissulega rétt
að stjórnunarlegir yfirmenn sál-
fræðinga á SHR em læknar en
ekki má horfa framhjá því að sál-
fræðingar em faglega sjálfstæðir
Viðsemjendur halda
dauðahaldi í láglauna-
stefnu, segir María K.
Jónsdóttir, og það
stefnir í atgervisflótta.
og faglegt sjálfstæði skyldi líka
meta. Það er algerlega háð okkar
faglega mati hverju sinni hvernig
við högum greiningu og meðferð á
þeim sjúklingum sem er vísað til
okkar.
Gagnstætt því sem margir halda
nægir B.A. gráða í sálfræði ekki til
að öðlast starfsleyfi sem sálfræð-
ingur. Til þess þarf frekara há-
skólanám erlendis og flestir sál-
fræðingar eiga 6-10 ára nám að
baki. Að þessu leyti eru sálfræð-
ingar ólíkir mörgum öðmm
heibrigðisstéttum sem nægir B.S.
gráða til starfsréttinda. Menntun
sálfræðinga, mæld í áram, er því
umtalsvert meiri en menntun
flestra annarra heilbrigðisstétta.
Sálfræðingar geta því helst borið
sig saman við lækna hvað þetta
varðar. Nýlega var samið við
unglækna á sjúkrahúsum og þeir
em vel að því komnir. Þeir hafa að
baki langt og strangt háskólanám.
En það hafa sálfræðingar líka og
þrátt fyrir það er þeim gert að taka
laun samkvæmt mun lægri taxta.
Við slíkan ójöfnuð verður ekki un-
að og ef viðsemjendur okkar halda
áfram dauðahaldi í láglaunastefnu
sína gagnvart sálfræðingum má
búast við atgervisflótta úr röðum
sálfræðinga á SHR.
Höfundur er doktor íklínískrí
taugasálfræði.
ö)
c
c
>
cn
Nú gefst tækifæri tii að skoða búnað þremenninganna sem gengu á Suðurpólinn,
á sýnlngu sem sett hefur verið upp í anddyri Morgunblaðshússins í Kringlunnl 1.
Ólafur Örn Haraldsson alþingismaður, sonur hans Haraldur Örn Ólafsson lögfræðingur og Ingþór
Bjarnason sálfræðingur gengu á skíðum í 51 dag á Suðurskautslandinu og drógu á eftir sér þunga
sleða með öllum búnaði og nauðsynjum.
Göngugarparnir náðu takmarki sínu á nýársdag og voru þá búnir að leggja að baki 1.100 kilómetra
í 20-30 gráðu frosti.
Á sýnlngunni má sjá tjald þelrra félaga, sleða, fatnað, mataráhöld og ýmsa
persónulega muni og á Ijósmyndum má skyggnast Inn í baráttu suðurskautsfaranna
við óblfða náttúru.
Sýningin er öllum opin og stendur til föstudagsins 27. mars.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8:00-18:00 virka
daga og kl. 8:00-12:00 laugardaga.
fltagtfiifMfaMfr
flísar
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433