Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 62
82 FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A til Ö; Hvað er að gerast? Hverjir voru hvar? Hvað er í boði - á skemmtistöðum?
Þyrftu að vera
22 hæðir
Veitingastaðurinn 22 er þekktur fyrir
litríkt mannlíf og brjálaðan diskódans á
efri hæð hússins og dúar þá gólfíð hættu-
lega mikið. Hildur Loftsdóttir hætti sér út
á dansgólfið, fyrst á homma- og lesbíu-
kvöldi og síðan á almennum dansleik í
bland við grímuball. Skrautlegt var
það og skemmtilegt!
Á FIMMTUDAGSKVÖLDI mættu Auðunn Kristbjarnarson og Eyvind-
ur Eggertsson í sínu fínasta pússi.
MATTHÍAS og Haukur tóku
þátt í grímudansleiknum þrátt
fyrir skyldustörf hinum megin
við barinn.
VEITINGASTAÐURINN 22 að
Laugavegi 22 er orðinn rótgróinn í
skemmtanlífí Reykvíkinga, og
alltaf er það sama fólkið sem sækir
þennan stað, þ.e.a.s allskonar fólk!
Samkynhneigt fólk og listamenn
eru oftast í meirihluta, og segir
Ingi Rafn framkvæmdastjóri að
allt frá stofnun staðarins hafi verið
stflað inn á þann hóp. Inn á milli
skvettist samt diskópían, venjulegi
strákurinn, verkfræðingurinn,
hverfisróninn og þessvegna sauma-
klúbburinn.
A fimmtudagskvöldum koma
hommar og lesbíur sérstaklega
saman á 22, enda einn af fáum
föstum samastöðum sem þau eiga
sér í Reykjavík, og þangað læðast
einstaklingar sem vilja úr skápn-
,um. Þau kvöld dansa flestir á efri
hæðinni, og aðallega fastagestir og
nokkrir gangandi sötra bjór eða
kaffi á neðri hæðinni.
Reyndar eru hæðirnar núna
orðnar þrjár og efst uppi hefur lít-
illi koníaksstofu verið komið fyrir
og salemisaðstöðu. Til að rúma allt
það fólk sem vill inn á 22 um helgar
þyrftu hæðimar helst að vera 22.
Snemma upp úr miðnætti myndast
röð við útidyrnar, þannig að það er
eins gott að vera snemma í því. Til
er ljósmynd sem sýnir húsið árið
1943, þar sem samskonar biðröð
hefur myndast fyrir utan. Fólkið
þá var ekki að sækjast eftir snún-
ingi eða bjór, heldur var skóbúð á
staðnum og ný skósending virkaði
eins og hunang á býflugur.
22 verður 10 ára í endaðan aprfl
og er þá fyrirhugað vikulöng af-
mælisdagskrá sem verður nánar
auglýst síðar. Um páskana verður
annars konar hátíð í gangi, en þá
munu „hommar í leðri“ koma sam-
an á 22, og era um 50 manns vænt-
anlegir frá öllum Norðurlöndunum.
Þeir sem hafa meiri áhuga á kjöt-
kveðjuhátíð verða hins vegar að
bíða fram að menningamóttinni en
þá er mesta „húllumhæið" sem
haldið er á 22 með eldgleypum, fla-
menco dönsuram, götuleikhúsi og
ýmsu fleiru.
Húsið sjálft er mjög gamalt og
allt klædd panil að innan sem gerir
staðinn einstaklega hlýlegan og
skemmtilegan. Dúandi dansgólf og
brattir marrandi stigar gefa húsinu
sál. En húsið er ungt í anda, smitað
af gleði hins margslungna og lit-
ríka gestafjölda.
Æm
HH. IZ - 1998 - yerð br. 399
HEIOAR J0NSS0N snyrtlr fer
HEYRT
ANNA Katrín Kristjánsdóttir
þjónar ávallt viðskiptavinum
sínum vel.
KLARA og Guðný ræddu vin-
konumál í rólegheitum áður en
allt varð vitiaust!
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VEITINGASALURINN á neðstu hæð er látlaus og huggulegur,
og þar eru gjarna listsýningar.
KVENNAHLJÓMSVEITIN ÓE
er skipuð Ólöfu og Eddu sem
fengu verðlaun fyrir besta bún-
inginn - ekki að ástæðulausu.
GUÐNÝ tílfarsdóttir var í frum-
legasta búningnum sem betlari.
Með henni er Heimir Helgason
mun betur á sig kominn.
VEITINGAHÚSIÐ 22
LAUQAVEQI 22
►22 er opinn frá hádegi til kl. 01 á
virkum dögum. Um helgar frá kl.
18 til 03.
►Aldurstakmark er 22 ár og að-
gangur ókeypis.
► Stór bjór kostar 400 og lítill 300,
en eftir kl. 22 hækkar verðið um
100 krónur.
► Margarítakokteillinn er sérlega
ljúffengur og vel útilátinn.
► Viskítegundir era fjölmargar og
áhersla lögð á að úrvalið sé gott.
► 22 býður ekki upp á veitingar í
föstu formi.
► Avallt er einhver listsýning í
gangi á 22.
► Salernisaðstaða er á efstu og
neðstu hæð og virðist það nægja.