Morgunblaðið - 07.06.1998, Page 1
104 SIÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
126. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Deila franskra flugmanna
Jospin fliug’-
ar flilutun
París. Reuters.
LIONEL Jospin, forsætisráðherra Frakklands,
sagði í gær að stjórn hans væri reiðubúin að
grípa inn í verkfall flugmanna flugfélagsins Air
France. Flugmennirnir hafa verið í verkfalli frá
því á mánudaginn, annan í hvítasunnu, en það
stefnir skipulagi heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu í hættu, þar sem Air France hafði
tekið að sér að flytja öll keppnisliðin 32 og
áhorfendur milli borga. Keppnin hefst á mið-
vikudag.
Síðustu lotu samningaviðræðna fulltrúa flug-
manna og stjórnar Air France lauk aðfaranótt
laugardags, án niðurstöðu. Enginn nýr fundur
var boðaður.
Jospin sagði heimsmeistarakeppnina ekki
vera aðaláhyggjuefnið, heldur rekstrarleg
framtíð Air France. Það sem flugmennirnir eru
að mótmæla með verkfallinu eru áform félags-
ins um að skerða laun þeirra í þágu áætlunar
sem gengur út á enduifjármögnun rekstrarins,
sem hefur verið erfíður. Air France er enn að
meirihluta í ríkiseigu.
„Heimsmeistarakeppnin mun fara fram með
eðlilegum hætti. Frakkar þurfa ekki nauðsyn-
lega að ferðast með flugi milli keppnisstaða og
aðrir Evrópubúar ekki heldur, auk þess sem
það eru næg flugfélög önnur sem geta flutt fólk
hingað, önnur en Air France,“ sagði Jospin, en
gaf til kynna vilja ríkisstjórnarinnar til að láta
til sín taka „á komandi klukkustundum" ef ekki
rofaði til í déilunni.
Fiskur í stað
viagra
Dubai. Reuters.
FJÖRUTÍU og átta barna faðir í Samein-
uðu arabísku furstadæmunum ráðleggur
landsmönnum sínum að gleyma frjósem-
islyfinu viagra og borða þess í stað mikið
af fiski. Frá þessu var greint í dagblaðinu
Emirate News í gær.
Ahmed Rashid biu Aboud, sem er 48
ára og býr í furstadæminu Fujairah við
austurströnd Sameinuðu fursta-
dæmanna, sagðist eiga 23 syni og 23 dæt-
ur með 8 eiginkonum, þar af hefði ein
þeirra getið honum 17 börn. „Borðið fisk,
og ennþá rneiri fisk,“ var haft eftir
Aboud í blaðinu. „Ég eyði 200 dirhömum
[um 3.800 kr.] dag hvern í fisk,“ sagði
hinn stolti faðir.
Aboud býr nú með þremur konum af
átta barnsmæðrum sínum en er skilinn
við hinar fimm. Sagði í frétt blaðsins að
maðurinn væri á höttunum eftir fjórðu
konunni, á aldrinum 15-20 ára, og fýsti
að eignast fleiri afkvæmi.
Samkvæmt lögum í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum er viagra-lyfið
bannað, en mönnum leyfist að eiga allt að
fjórar eiginkonur samtimis.
A íslenzkri sólarströnd
ÞAÐ er víðar en við Miðjarðarhafið sem gylltar strendur freista sól- frá Búðum á Snæfellsnesi. í heiðríkjunni á dögunum gátu menn sem
skinssólginna ferðalanga. Þessa íogru sandströnd er að fiima skammt áttu leið um notið veðurblíðunnar og víðáttunnar f flæðai-málinu.
Atök Afrikurfkj anna Eþíópíu og Eritreu
Gagnkvæmar árás-
ir halda áfram
Asmara í Eritreu. Reuters.
ISAYAS Afewerki, forseti Eritreu, sagðist í
gær vonlítill um að friður komist á milli íands
hans og nágrannaríkisins Eþíópíu. Herir
beggja landa, sem eru meðal þeirra fátæk-
ustu í Afríku, héldu í gær áfram gagnkvæm-
um árásum á landi og í lofti.
„Við viljum friðsamlega lausn (...) en í
augnablikinu sé ég ekki ljós við enda gang-
anna,“ sagði Afewerki á blaðamannafundi í
Asmara, höfuðborg Eritreu.
Orð hans féllu skömmu eftir að stórskotalið
Eritreuhers skaut niður þriðju herþotu
Eþíópíumanna, sem flaug yfír Asmara til að
varpa sprengjum. Flugmaðurinn komst lífs af
og var tekinn höndum.
Eþíópíumenn handsömuðu aftur á móti
flugmann eritrískrar herþotu eftir að hann
varpaði sér út úr henni laskaðri, nærri borg-
inni Mekele í norðanverðri Eþíópíu. Einnig
fréttist af nýjum átökum á landamærunum, en
landamerkjadeila ríkjanna óx í síðasta mánuði
í hörð átök sem nú jafnast á við óyfirlýst stríð.
Ofriðurinn hélt áfram í gærmorgun með
árás eþíópískra MiG 23-þotna á herflugvöll-
inn við Asmara, en henni var svarað með
skothríð úr loftvarnafallbyssum. Ein þota var
skotin niður. Skammt frá Mekele í Norður-
Eþíópíu, þar sem 44 óbreyttir borgarar féllu í
sprengjuárás Eritreumanna, skaut stór-
skotalið Eþíópíumanna niður eina flugvél
Eritreumanna.
Erlendir ríkisborgarar í hættu
Bandaríkjastjórn mótmælti árásunum
harðlega; árásin á flugvöllinn við eritrísku
höfuðborgina stefndi lífi erlendra borgara í
hættu, sem freistuðu þess að flýja átökin.
Nærri 200 útlendingar yfirgáfu Asmara síðla
á föstudag með Airbus-leiguflugvél á vegum
Bandaríkjamanna, en fjöldi annarra erlendra
ríkisborgara komst ekki brott þar sem yfir-
völd í Eritreu synjuðu Bretum leyfis um að
senda aðra flugvél eftir fólkinu.
Rússnesk stjórnvöld lýstu því yfir í gær að
þau hefðu miklar áhyggjur af átökunum á
svæðinu, en Eþíópía var á árum áður dyggur
bandamaður Sovétríkjanna. Eritrea var lýst
sjálfstæð frá Eþíópíu 1993.
Reuters
Stórabeltis-
brúin opnuð
FRIÐRIK krónprins af Danmörku hleypir
af stað fyrstu dúfunum af 500, sem var
sleppt lausum við hátíðlega athöfn á nýju
brúnni yfir Stórabelti á föstudag. Um
100.000 manns, fótgangandi og á reiðhjól-
um, voru viðstödd athöfnina, en brúin
verður opnuð fyrir bflaumferð 14. júní.
Leiðandi
uppeldishættir
vænlegastir
til árangurs
Ágóðinn fer
til líknarmála
Sigldi
ómönnuð
út á haf
Heimur án
fíkniefna