Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 2
2 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
► 1-4
Costa Blanca
►Á bíl um spánsk sveitahéruð /2
Farið um Hettuveg
og Sveifluháls
►Um leiðina týndu Hettuveg. /4
D BÍLAR
Lífeyrissjóðurinn Framsýn sendir fjármálaráðuneytinu tilmæli
Aðildarskylda verkamanna
verði tekin fyrir að nýju
LÍFEYRISSJÓÐURINN Framsýn hefur óskað
eftir því að fjármálaráðuneytið taki á ný til með-
ferðar mál er varðar aðild verkamanna hjá Sam-
skipum að lífeyrissjóði, en samkvæmt úrskurði
ráðuneytisins þar um ber þeim að greiða iðgjöld
til Samvinnulífeyrissjóðsins. Telur lífeyrissjóður-
inn Framsýn að ákvörðun ráðuneytisins byggist
á ófullnægjandi og röngum upplýsingum og að
rökstuðningi sé ábótavant.
I bréfí lögmanns sjóðsins til fjármálaráðuneyt-
isins vegna þessa er bent á að í úrskurði ráðuneyt-
isins virðist byggt á því að félagsmenn Dagsbrún-
ar sem störfuðu hjá skipadeild Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga hafi átt sjóðsaðild að
Samvinnulífeyrissjóðnum eða kost á aðild. Nú hafí
komið í leitimar gögn sem sýni að iðgjöld vegna
verkamanna hjá Skipadeildinni hafí verið greidd
til Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar, fyr-
irrennara lífeyrissjóðsins Framsýnar, að minnsta
kosti allt til ársins 1986. Engin breyting hafi orðið
á ráðningarkjörum síðan þá og hugtaldð fastráðn-
ing verði ekld heimfært upp á verkamenn sem all-
flestir fái laun sín greidd vikulega.
í bréfí lögmannsins, Atla Gíslasonar hrl., er
einnig bent á það grundvallaratriði að fjrir-
tækjasjóðir hafi falið í sér undantekningu frá
meginreglu kjarasamningsins frá árinu 1969 þeg-
ar samið var um almenna lífeyrissjóðakerfíð og
hana beri að túlka þröngt. Sjóðsaðild að stéttar-
félagssjóði víki ekki nema aðild að fyrirtækja-
sjóði hafi verið virk og ótvíræð. Með túlkun ráðu-
neytisins sé undantekningarregla gerð að megin-
reglu.
Þá er því mótmælt að reglum í nýjum kjara-
samningum um réttarstöðu starfsmanna við eig-
endaskipti að fyrirtækjum hafi verið ætlað að
breyta grundvallarsamningi aðila vinnumarkað-
arins um aðild að lífeyrissjóðum frá árinu 1969.
Samskip hf. sé frjáls og óháður lögaðili sem hafi
engin bein eða óbein tengsl við svonefnd sam-
vinnufyrirtæki eða fyrirtækjasjóð þeirra sem sé
Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Stríðir gegn félagafrelsi
Þá er á það bent að félagsmenn Dagsbrúnar og
Framsóknar hafi kosið aðild að lífeyrissjóðnum
Framsýn, sem stéttarfélag þeirra standi að og
það stríði gegn félagafrelsisákvæðum stjórnar-
skrár og mannréttindayfirlýsingum sem ríkið sé
bundið af að meina þeim það. Samkvæmt 3. gr.
laga nr. 55/1980 um starfskjör launafólks og
skyldutryggingu lífeyrisréttinda eigi þessir
starfsmenn rétt á að velja sér lífeyrissjóð ef þeir
eigi ekki sjálfsagða aðild að öðrum sjóði. Orðalag
greinarinnar sýni glöggt að þessi valkostur sé
fyrir hendi ef minnsti vafi sé á aðild. Aðild verka-
manna að Samvinnulífeyrissjóðnum þurfi að vera
hafin yfir allan vafa ef skerða eigi félagafrelsi
þeirra eins og úrskurður ráðuneytisins hafi í fór
með sér. Niðurstaða ráðuneytisins sé andstæð
dómum Hæstaréttar og er vísað til dóms
1988:1532. „í dóminum bendir Hæstiréttur rétti-
lega á að mannréttindaákvæði séu sett til vernd-
ar einstaklingum en ekki stjómvöldum. Lagaá-
kvæði sem takmarki mannréttindi verði að vera
ótvíræð. Þessi niðurstaða á eðlilega að vera leið-
arljós fjármálaráðuneytisins við endurskoðun úr-
skurðarins," segir ennfremur í bréfi lögmanns
lífeyrissjóðsins til fjármálaráðuneytisins.
Hamraborg í Kópavogi
Grunur um
íkveikju í
stigagangi
TÖLUVERÐAJl reykskemmdir
urðu í stigagangi í Hamraborg í
Kópavogi eftir að eldur kviknaði í
gólfteppi neðst í stigaganginum
snemma í gærmorgun. Grunur
leikur á að um íkveikju hafi verið
að ræða og er málið í rannsókn hjá
lögreglunni í Kópavogi.
Slökkvilið var kaliað út skömmu
fyrir klukkan sex á laugardags-
morgun og var þá mikill reykur í
stigaganginum. Reykskemmdir
eru þó nokkrar en ekki urðu
skemmdir af eldi. Slökkvilið
reyklosaði stigaganginn og íbúðir á
efstu hæð hússins.
------------
► 1 — 16
Hjarta mitt verður
alltaf færeyskt
► Grímur Guttormsson Esteroy
hefur unnið mikið og erfitt starf
í þágu hafnargerðar landsmanna
sem kafari. /1&2-4
Sjerríið stendur
f yrir sínu
►Osbome fyrirtækið er eini stóri
sjerrí- og brandíframleiðandinn á
Spáni sem er enn í einkaeign. /6
Það er ævintýri
að búa í Peking
► Hjálmar W. Hannesson, fyrsti
íslenski sendiherrann með búsetu
í Kína, er snúinn heim. /8
C# FERÐALÖG
►l-4
Hvar setur maður
barnastólinn?
►Tekið í sportbílinn Dodge Viper
GTS Coupe. /2
Reynsluakstur
► Sæmilega röskur Galloper frá
Kóreu. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-24
Kvikmyndavinnustofa
fyrir ungt fólk
►Kvikmyndaskóli íslands í leit að
sköpunargleði og hæfileikafólki. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 44
Leiðari 28 Brids 44
Helgispjall 28 Stjömuspá 44
Reykjavíkurbréf 28 Skák 44
Skoðun 32 Fólk í fréttum 46
Minningar 34 Útv./sjónv. 42,54
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Mannl.str. lOb
Hugvekja 44 Dægurtónl. 14b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
Morgunblaðið/Golli
Menningarsjóður útvarpsstöðva
Attatíu milljón-
um úthlutað
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum
úr Menningarsjóði útvarpsstöðva.
Alls bárust umsóknir um styrki
til 264 verkefna og námu styrkum-
sóknir samtals 500 milljónum
króna. Heildarkostnaðaráætlanir
verkefnanna námu u.þ.b. 1.250
milljónum króna. Úthlutað var
80.195.000. Styrkir til framleiðslu
og undirbúnings dagskrárefnis fyrir
hljóðvarp nema 20.345.000 en
59.850.000 til dagskrárefnis fyrir
sjónvarp.
Af verkefnunum 264 hljóta 82
styrk. Þar af hljóta átta verkefni
tvær milljónir eða meira í styrk.
Hæsta styrkinn, fimm milljónir,
hlýtur RÚV til framleiðslu á „Heim-
ildarsápu". Skrípó ehf. hlýtur þrjár
milljónir til framleiðslu á „Litlu
lirfunni ljótu“. Kvikmyndafélagið
Umbi ehf. hlýtur einnig þrjár millj-
ónir til framleiðslu á verkefninu
„Glímt við heiminn". 2,2 milljónir
hlýtur Jón Karl Helgason til fram-
leiðslu á „Gísla“. Tvær milljónir
hljóta: Yrkja fyrir „Endurreisnina
og almúgann", Úlfar Þormóðsson
fyrir „Leitina að íslendingum í Bar-
beríinu, Álfasaga ehf. fyrir „Land
jólasveinanna" og Alvís kvikmynda-
gerð fyrir „Tuttugustu öldina".
Hæstan styrk til handritsgerðar
og undirbúnings dagskrárefnis fyrir
sjónvarp hlýtur verkefnið „Urðar-
máni“ hjá Túndru ehf. Hrafn Gunn-
laugsson hlýtur samtals tvær millj-
ónir fyrir „Glæpur skekur Húsnæð-
isstofnun" og „Innilokunarkennd í
Moskvu". Vinnubrögð hljóta eina
milljón fyrir verkefnið „Leifur".
Hæstu styrki til undirbúnings og
framleiðslu dagskrárefnis fyrir
hljóðvarp hljóta: Hljóðsetning ehf.
1.800.000 fyrir „Syndir feðranna",
Fínn miðill hf. 1.700.000 fyrir „Leik-
lestur" og Fínn miðill 1.500.000 fyr-
ir. ;,Útvarpsleikhús Tvíhöfða".
I fréttatilkynningu frá Menning-
arsjóði útvarpsstöðva segir að
styrkir verði greiddir út í byrjun
júlí. Jafnframt kemur þar fram að
úthlutun hafi dregist þar sem stjóm
var ekki fullskipuð fyrr en í maí.
► 1-56
Uppeldi og forvarnir
gegn reykingum
► Leiðandi uppeldishættir vænleg-
astir til árangurs. /10
Klifrað upp kjarn-
orkustigann
►Tilraunasprengingar Indveija
og Pakistana vekja ótta um um
stórfellda kjarnorkuvígvæðingu.
/12
Sigldi ómönnuð
út á haf
►í tilefni sjómannadagsins verður
opnuð sýning á nær 100 líkönum
af bátum og skipum í Sjómanna-
skólanum. /18
Horft til f ramtíðar
í höfuðborg
►Inga Jóna Þórðardóttir, hinn nýi
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
vík í viðtali. /20
Ágóðinn fer til
líknarmála
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við forsvarskon-
urThorvaldsensfélagsins. /30
B
Morgunblaðið/Þorkell
SLÖKKVILIÐSMENNIRNIR hjólandi höfðu að sjálfsögðu spennt á sig
hjálmana þegar þeir lögðu f ann úr Skógarhlíðinni f gærmorgun.
Hjólað í
góðgerðar-
skyni
VEÐRIÐ lék heldur betur við
slökkviliðsmennina sex sem lögðu
af stað frá Reykjavík í gærmorgun
í hringferð um landið á hjólhestum.
Tilgangur ferðarinnar er að
safna áheitum til styrktar krabba-
meinssjúkum bömum. Ef allt
gengur samkvæmt áætlun verða
slökkviliðsmennimir hjólandi
komnir aftur til Reykjavíkur á
þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Dramatík í
Hafnar-
stræti
ÞAÐ voru blendnar tilfinningar
sem ri'ktu á homi Hafnarstrætis og
Pósthússtrætis þegar Ijósmyndari
Morgunblaðsins átti leið þar hjá.
Uppábúin erlend brúðlijón virtust
þar eiga í einhveijum erfiðleikum
og ekki laust við að þau ættu samúð
vegfarenda. Ekki er þó víst að til-
vonandi brúðgumi hafi guggnað á
si'ðustu metrunum heldur er lík-
legra að brúðarmeyin eigi í vand-
ræðum með linsur sínar.