Morgunblaðið - 07.06.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 11
Hlutfall 14 ára unglinga
sem reykja og eiga ...
afskiptalausa foreldra
leiðandi
Hlutfall 14 ára
unglinga sem
reykja
og eiga...
foreldra sem reykja
I
36%
foreldra sem
reykja ekki
I
13%
I 7%
□
r vini sem reykja
73%
Hlutfall
14ára
unglinga
sem
reykja
og eiga.
vim sem
reykja ekki
8%
Hlutfall unglinga sem
reyktu ekki 14 ára en
reykja 17 ára og eiga.
afskiptalausa foreldra
skipandi
35% 35%
eftiriáta
I
19%
leiðandi
I
12%
Hlutfall unglinga
sem reyktu ekki
14 ára en reykja
17 ára og eiga ..
foreldra sem reykja
33%
foreldra sem
reykja ekki
I
13%
Við sautján ára aldur er ekki lengur hægt
að greina mun á reykingum unglinga
sem búa við afskiptalausa og skipandi
uppeldishætti. Sú spurning vaknar hvort
sautján ára unglingar skipandi foreldra
sýni með reykingum sínum ákveðinn
mótþróa gegn ráðríki foreldra sinna
reykti við 17 ára aldur (af þeim
unglingum sem ekki reyktu 14 ára)
var 12%, á móti 35% unglinga af-
skiptalausra og skipandi foreldra
og 18% unglinga eftirlátra foreldra.
►Hlutfallslega fleiri unglingar
reyktu 17 ára ef foreldrar þeirra
reyktu við 14 ára aldur ungling-
anna. Um 33% unglinga sem áttu
foreldra sem reyktu þegar ung-
lingarnir voru 14 ára voru byrjuð
að reykja 17 ára, en aðeins 13%
unglinga sem áttu foreldra sem
ekki reyktu.
►Ekki komu fram tengsl á milli
reykinga vina við 14 ára aldur ung-
linganna og þess hvort þeir reyktu
eða ekki við 17 ára aldur.
Unglingar leiðandi foreldra
ólíklegastir til að reykja
Sigrún og Leifur Geir vekja at-
hygli á því að unglingar sem búa
við leiðandi uppeldishætti við 14
ára aldur eru ólíklegri til að reykja
en unglingar afskiptalausra, skip-
andi og eftirlátra foreldra. í hópi
þeirra unglinga sem ekki reykja 14
ára gamhr voru þeir einnig ólík-
legri til að vera byrjaðir að reykja
við 17 ára aidur sem töldu foreldra
sína leiðandi en þeir sem töldu for-
eldra sína afskiptalausa eða skip-
andi. Þau segja að niðurstaðan um
tengsl á milli uppeldishátta for-
eldra við 14 ára aldur unghnganna
og reykingar þeirra tæpum þrem-
ur árum síðar sé afar athyglisverð,
ekki síst fyrir það að þeir ungling-
ar sem eru verst staddir í þessu
samhengi, þ.e. reykja 14 ára, séu
ekki hafðir með í tölfræðilegri úr-
vinnslu.
Mótþrói unglinga
skipandi foreldra?
Sigrún og Leifur Geir vekja jafn-
framt athygli á því að ekki er við 17
ára aldur lengur hægt í rannsókn-
inni að greina mun á reykingum
unghnga sem búa við afskiptalausa
og skipandi uppeldishætti. Sú
spurning vaknar, segja þau, hvort
17 ára unglingar skipandi foreldra
sýni með reykingum sínum ákveð-
inn mótþróa gegn ráðríki foreldra
sinna, mótþróa gegn lítt rökstudd-
um boðum og bönnum þeirra.
Reykingar foreldra
og vina
í skýrslunni segir að þrátt fyrir
sterk tengsl reykinga vina við
reykinga unglinga á hverjum tíma
gefa reykingar vina við 14 ára ald-
ur ekki vísbendingu um hvort ung-
lingur hafi byrjað að reykja eftir 14
ára aldur. „Hins vegar er sá
reyklausi unglingur, sem á foreldri
sem reykir líklegri til að vera byrj-
aður að reykja við 17 ára aldur en
sá sem á foreldri sem ekki reykir.
Þannig spá reykingar foreldra bet-
ur fram í tímann um reykingar
unglings en reykingar vina,“ segir í
niðurstöðu Sigrúnar og Leifs
Geirs.
Áhrif vinahópsins
fljótvirk
Þau ræða hvað ofangreindar
upplýsingar geta gefið fyrir for-
varnastai-f. Þau segja að svo virðist
sem áhrif vinahópsins séu bæði
mikil og fljótvirk. Ef reyklaus ung-
lingur tengist hópi sem reykir séu
miklar líkur á því að hann byrji
sjálfur að reykja og það mjög fljót-
lega. „Sú staðreynd að mjög erfitt
er fyrir foreldra að spyrna við fót-
um ef unghngur þeirra er kominn í
hóp unglinga sem reykir ætti að
vera hvatning til foreldra um að
sinna forvarnastarfi með tilteknum
uppeldisháttum og hefja það
snemma. Niðurstöður okkar benda
til þess að það geri þeir m.a. með
því að tileinka sér leiðandi uppeld-
ishætti."
Þá segir í skýrslunni, að vegna
þess hve fljótt reykingar virðast
breiðast út í vinahópum hafi upp-
lýsingar um að vinir unghngs reyki
ekki takmarkað gildi. „Þótt ung-
lingurinn sé í reyklausum félags-
skap getur það breyst með skömm-
um fyrirvara og segir því ekkert
um stöðuna síðar. „Af þessum sök-
um eru upplýsingar um reykingar
vina ekki vel til þess fallnar að
greina áhættuhópa fram í tímann
hjá þeim unghngum sem eru í
reykiausum félagsskap. Uppeldis-
hættir og reykingar foreldra eru
hins vegar þættir sem eru líklegri
til að vera stöðugir um langa hríð
en reykingar vina. Upplýsingar um
fyrrnefndu þættina hafa því meira
gildi í forvarnavinnu en upplýsing-
ar um reykingar vina.“
I lok skýrslu sinnar segja Sigrún
Aðalbjarnardóttir og Leifur Geir
Hafsteinsson að í forvarnastarfi
þurfi að sjálfsögðu að vinna á ýms-
um vettvangi að margvíslegum úr-
ræðum. „Þau sterku tengsl, sem
fram koma í rannsókninni milli
reykinga unglinga annars vegar og
uppeldishátta og reykinga foreldra
hins vegar, minna á hve brýnt er
að leita leiða til að upplýsa foreldra
um eðli og gildi leiðandi uppeldis-
hátta og horfa ekki fram hjá líkum
á því að bam þeirra fari að reykja
ef þeir reykja sjálfir. Varla þarf að
taka fram að ekki er tryggt að
barnið byrji ekki að reykja þótt
það búi við ieiðandi uppeldishætti
og foreldri reyki ekki. Tóbaksreyk-
ingar og önnur áhættuhegðun ung-
linga er afleiðing flókins samspils
margra þátta sem sumum hverjum
er erfitt að stjórna. Rannsókn okk-
ar sýnir aðeins að líkurnar eru
minni á því að unghngurinn byrji
að reykja ef hann býr við ofan-
greindar aðstæður.“
Afmælisdagar
Bjóðum frábær afmælistilboð á vinsælum vörum
SUNDBOLUR
MARINE U-BAK
Litir: Dökkblátt.
Stærðir: 30-38
SUNDBOLUR
MAX-BAK
Litir: Grænt, svart, blátt,
vínrautt
Stærðir: 30-42
Verð kr.
veiðivestí
+30%
Tæknileqir
Bakpokar
+20%
AVIA
Sportskór
2.990,-
Vferðáðurkr4990,-
MonteVferde - OmniTech
Vatns- og vindheldar m/ öndun
-20%
<<& Prestiqe4/\<xid(tré)
'V
Golfkyltur
20%
13-17 HREYSTI
— sportvomik
Komiö og gerið gúö kaup • tilboöin gilda Irá 6.-16. iúní
spartvöMihus
Fosshálsi 1 - S. 577-5858
Skeifunni 19-S. 568-1717
Fosshótel
Kea - Harpa
Stærsta hótel Norðurlands
staósett í hjarta Akureyrar.
Glæsileg og notaleg
herbergi meö baöi, sima,
sjónvarpi og minibar
Fallegur veitingasalur er i
hótelinu með fyrsta flokks
þjónustu.
Fosshótel
Harpa
Kjarnarlundi
Fallegt sumarhótel í friösælu
umhverfi Kjarnarlundar.
Herbergin eru góð
og öll með baði.
Góð aðstaða til gönguferðar
er í nágrenninu.
Verið velkomin
FOttHOTFL
Afþreying þín - okkar ánægja
FOSSHÓTEL KEA - HARPA
Sími: 460 2000 • Fax: 460 2060
FOSSHÓTEL HARPA KJARNALUNDUR
Sími: 46I I400 • Fax: 462 7795