Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 14

Morgunblaðið - 07.06.1998, Side 14
14 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR Skotum hefur varið ört fjölgandi í íslensku knattspyrnunni Erlendir leikmenn hafa sett svip sinn á íslensku knattspyrn- una undanfarin ár. Mest hefur borið á leikmönnum frá Austur-Evrópu, en nú ber svo við að Skotar virðast eftir- sóttir hjá liðum efstu deildar. Einn þeirra er Leifturs- maðurinn Paul Kinniard. Björn Ingi Hrafnsson ræddi við hann á dögunum og kann- aði viðhorf hans til knattspyrnunnar hér á landi. SKOTINN Paul Kinniard hefur komið víða við á löng- um ferli sínum sem knatt- spyrnumaður á Bret- landseyjum. Hann hefur leikið bæði í skosku og ensku knattspyrnunni og státar af fjölmörgum titlum, bæði í deild og bikar. Kinniard, sem er á mála hjá 2. deildarmeisturum Stranraer í Skotlandi, lét sér ekki nægja að leika 47 leiki með liði sínu í vetur heldur ákvað að sleppa hinu hefðbundna sumarfríi með félögun- um. Ástæðan? - Jú, honum bauðst að Iengja tímabilið með því að leika knattspyrnu á íslandi og hann seg- ist hafa tekið því án þess að hika. „Margir héldu að nú væri ég endan- lega orðinn vitlaus,“ segir hann hlæjandi. „En ég er ekki að þessu peninganna vegna, enda er ég hvort eð er á launum hjá Stranrear. Ég er ekki heldur í sumarfríi á framandi slóðum, eins og margir félagar mín- ir vildu vera láta. Hingað er ég kominn til að leika knattspymu og það ætla ég mér að gera eftir bestu getu. Vonandi kemur reynsla mín að góðum notum og hjálpar Leiftri að vinna til einhverra verðlauna í sumar.“ íslensk knattspyrna kemur þægilega á óvart Paul segist hafa vitað ýmislegt um íslenska knattspymu, en hún hafí þó komið sér afar þægilega á óvart. „Hér eru margir góðir leik- menn, bæði leiknir og fljótir og fjöl- margir þeirra gætu vel sómt sér í skosku og ensku knattspyrnunni," segir hann. „Ég hef leikið sem at- vinnumaður í sautján ár og veit því hvað þarf til að hlutimir gangi upp. Leikmaður eins og nr. 11 hjá KR [Guðmundur Benediktsson] á heima í hvaða liði sem er í skosku úrvals- deildinni. Fleiri leikmenn mætti nefna í þessu sambandi. Ég verð í rauninni að játa, að ég átti alls ekki von á því að íslensku liðin væm eins sterk og raun ber vitni. Úthaldið, skipulagið og leikgleðin er til fyrir- myndar. Ég fullyrði að allir leik- Félagar hjá Ayr United KRISTJÁN Finnbogason, markvörður íslenska landsliðsins og KR, og Skotinn Paul Kinniard, til hægri, hafa báðir leikið með Ayr United í Skotlandi. Þeir höfðu því nóg að spjalla eftir viðureign liðanna á Ólafsfirði á dögunum. menn Leiftmsliðsins gætu komist að hjá skoskum liðum. Þar eru heil- miklir peningar í spilinu, lika í neðri deildunum og ég hef á tiífinningunni að íslenskum leikmönnum muni fara fjölgandi á mínum heimaslóð- um á næstunni.“ Hefur leikið með íslenskum leikmönnum Kinnaird lék um fjögurra ára skeið með skoska liðinu St. Mirren, en á sama tíma lék Guðmundur Torfason með liðinu, sem þá var í úrvalsdeildinni. „Guðmundur skor- aði mikið af mörkum með okkur og var geysilega vinsæll af áhangend- um liðsins. Hann ræddi oft við okk- ur um íslenska knattspyrnu, sem á þeim tíma naut kannski ekki mikill- ar virðingar í Skotlandi. Sömuleiðis man ég eftir Sigurði Jónssyni, sem lék með Sheffield esday og Arsenal. Auk þess er James Bett auðvitað tengdur íslenskri knattspyrnu og lék með íslenskum liðum. Hann var þegar orðinn frægur knattspyrnu- maður þegar ég var að hefja minn feril. Bett er afar mikils metinn í Skotlandi, enda margreyndur landsliðsmaður.“ A löngum ferli atvinnumannsins hefur margt drifið á dagana. Kinna- ird varð skoskur bikarmeistari með Dundee United og þegar hann lék með Aberdeen, tapaði liðið úrslita- leik Evrópukeppni félagsliða gegn sænska liðinu Gautaborg. Það má því með sanni segja, að hér sé margreyndur leikmaður á ferð. Fleiri Skotar á ferð Athygli hefur vakið, að augu for- ráðamanna íslenskra knattspyrnu- liða virðast í auknum mæli vera far- in að beinast til Skotlands. Þar er að finna líkamlega sterka leikmenn, sem virðast falla vel að íslenskri knattspyrnu. Tveir skotar leika með Grindvíkingum og nýlega gekk mið- vörðurinn David Winnie frá eins árs samningi við KR. „Ég kannast vel við Scott Ramsay hjá Grindavík og Winnie, sem nýkominn er til KR, segir Kinniard. Við Winnie lékum saman með St. Mirren og hann mun eflaust standa sig vel. Eg er ekki undrandi á þessari fjölgun skoskra leikmanna hér á landi. íslensku lið- in eru að gera tilraun með þessu og við leikmennirnir í rauninni líka. Við erum allir samningsbundnir at- vinnumannaliðum en fáum þama tækifæri til að lengja tímabil okkar og kanna heiminn í leiðinni. Leik- menn í skosku deildunum eru lík- amlega sterkir, talsvert sterkari en flestir íslensku leikmannanna og þess vegna tel ég okkur eiga góða möguleika hér, svo fremi sem við sleppum við leikbönn. Síðan skiptir öllu máli að falla vel inn í hópinn, sýna að menn séu tilbúnir til að leggja á sig mikla vinnu. Hér hjá Leiftri hafa allir tekið mér af hlý- hug og vilja allt fyrir mig gera. Ég get aðeins svarað með því að leggja mig hundrað prósent fram á knatt- spyrnuvellinum, enda er til þess ætlast. Með því móti nýtist ég Leift- ursliðinu best og þannig ættu auð- vitað allir leikmenn að hugsa.“ Myndi jafnvel tækla ömmu mína Það er kannski engin tilviljun að Kinnaird minnist á leikbönn. í fyrstu fjórum leikjum deildarinnar, hefur hann hlotið þrjár áminningar og fer í leikbann, hljóti hann þá fjórðu. Er hann svona grófur? „Nei, það held ég ekki,“ svarar hann, afar sakleysislegur á svip. „Málið er að munurinn á skosku og íslensku knattspyrnunni liggur einmitt í þessu. Heima er miklu meira um harðar tæklingai’ og líkamleg návígi og það er íslenskum dómurum lík- lega ekki að skapi. Við erlendu leik- mennirnir verðum bara að laga okk- ur að þeim áherslum, sem tíðkast hér á landi en það tekur auðvitað tíma. Ég vil því nota þetta tækifæri og biðla til íslenskra dómara um að hafa þetta í huga. Ég er ekki grófur leikmaður, ég legg hins vegar allt mitt í leikinn og gef aldrei eftir í návígjum. Jafnvel á æfingum læt ég finna fyrir mér. Sumir segja mig brjálaðan vegna þessa, en ég er aðeins að vinna mína vinnu og brýt aldrei viljandi af mér. Fyrst hugsa ég um að ná boltanum og koma honum fram, séum við í sókn en frá, séum við í vörn. Ég myndi jafnvel tækla ömmu mína, þyrfti ég þess með.“ Fjölmargir Islendingar eiga erindi í atvinnumennsku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.