Morgunblaðið - 07.06.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 H
ÆGIR gamli (1929-1969) og Ægir hinn nýi (tekinn í notk-
un 1968). Sigurður Jónsson smíðaði Iíkönin.
HELGA EA 2. Vinstra megin í upprunalegri mynd
hægra megin eftir að henni var breytt.
og HAFRANNSÓKNASKIPIÐ Árni Friðriksson og vinnulíkan
af hinu nýja skipi Hafrannsóknastofnunar.
„Hér er Kútter Sophie Wheatly 81
rúmlest, sem fórst ásamt tveimur
öðrum kútterum í ofsaveðri 7. apríl
1906 í Faxaflóa. Með þeim fórust 68
sjómenn. Kútter Sophie fórst við
Mýrar með 24 manna óhöfn, Kútter
Ingvar, 77 rúmlestir, fórst á skerj-
unum milli Viðeyjar og lands, rétt
við hafnarmynnið í Reykjavík. Á
Ingvari voru 20 manns í áhöfn sem
allir fórust. Þriðja skipið var Kútter
Emilie, 85 rúmlestir, en það fórst
líka við Mýrar með 24 manna
áhöfn,“ segir Hannes og bætir við
að á þessum tíma hafi ekki verið
nein tæki til björgunar.
Þarna má einnig sjá togaranna
Víði GK, sem vélstjóri bátsins dund-
aði sér við að smíða niðri í vél og gaf
skipstjóranum loks að gjöf, en er
þetta líkan úr málmi. Einnig eru
hlið við hlið Guðmundur Þórðarson
og Víðir II í Garði. „Víðir annar er
merkilegur að því leyti, að Eggert
Gíslason fiskaði nærri 20.000 mál á
honum á síldveiðinni 1959. Þetta er
stöngin af asdic-tækjum til að finna
torfurnar," segir Hannes og bendir
á stöng sem liggur á borðinu til hlið-
ar við skipin. „Eggert var fyrsti
maðurinn í heiminum sem kastaði á
sfld með asdic-tæki um borð. Nojar-
arnir fóru á sínum bátum með asdic,
fundu torfuna og lágu jÆr. Síðan
kom hitt skipið og kastaði í kringum
torfuna. Eggert notaði aftur á móti
asdic-tækið til leitar og kastaði
beint frá borði.
Með Guðmundi Þórðarsyni verð-
ur bylting. Eigandinn Baldur Guð-
mundsson í Reykjavík var svo hepp-
inn að hann fékk til liðs við sig in-
dælis mann, sem nú er látinn, Har-
ald Ágústsson skipstjóra. Hann var
fyrstur til að ná tökum á notkun
kraftblakkarinnar við veiðar á
torfufiski í Atlantshafi."
Þegar Hannes er að lokum spurð-
ur hvaða líkans honum þyki mest til
koma hlær hann íbygginn og kveðst
ekki vilja segja frá því, en blaða-
mann gi-unar að það sé fjarstýrði
báturinn Hannes Þ. Hafstein, sem
Sigurður H. Þorláksson smíðaði.
Þegar horft er á líkanið lætur það
ekki mikið yfir sér - þannig séð - en
í bátnum eru þrjár skrúfur og þrjár
vélar, lítill mótor um hverja vél sem
nær inn á stýrið og mótor sem stýr-
ir radarnum. Hægt er að renna
skutnum niður til að renna út litlum
skutbáti. Sigurði fannst vandamál
að alltaf lak með öxlinum og því
smíðaði hann agnarsmáa lensidælu
úr silfri sem þurrkar bátinn. „Nei,
ég held annars að ég sé sammála
Grími Karlssyni, um að Sigurbjörg-
in sé langflottasta líkanið. I það fóru
2.500 klukkústundir, enda er það
meistarasmíð. Líkanið var gefið til
minningar um þá, sem fórust þegar
Hellisey VE 503 fórst austur af
Vestmannaeyjum 11. mars 1984.
Aðeins einn skipverja, Guðlaugur
Friðþórsson, komst af og vann það
afrek að synda 6 km til lands.“
HANNES Þ. Hafstein við björgunarskipið Hannes Þ. Haf-
stein, sem Sigurður H. Þorláksson smíðaði. Báturinn er
rafstýrður og drifinn af fjölda mótora, auk þess sem lítil
lensidæla úr silfri þurrkar kjöl bátsins.
INGÓLFUR Arnarson, fyrsti nýsköpunartogarinn sem
kom til íslands, árið 1947. Hann var búinn radar en talið
er að skipið hafi verið fyrsta fiskiskipið í heimi, sem bú-
ið var slíku tæki.
FREMST er áraskip, áttæringur, með Engeyjarlagi. Hægra megin er Sigurbjörg ÓF
1, eitt glæsilegasta iíkanið á sýningunni. Það tók Hjálmar Pétursson úrsmið um
2.500 klukkustundir að vinna við skipið.
FAXABORGIN var bæði fiskiskip og varðskip. Hún varð fræg sumarið 1949 en þá
lenti skipið í miklum Rússaslag og tók tólf skip í landhelgi í sömu ferðinni. Skipin
voru breskur togari við Stokksnes, þrjú norsk og þrjú sænsk síldveiðiskip við Aust-
firði, eitt rússneskt móðurskip við Langanes og fjögur rússnesk síldveiðiskip við
Bakkaflóa. Skipið sökk eftir bruna út frá Jökli 1968. Áhöfnin, fimm menn, bjargaðist
í gúmmíbát og áhöfnin á Gísla lóðs GK 130 bjargaði mönnunum til lands.
IÐNAÐARHURÐIR
FEILIHURÐIR LYFTIHURÐIR
GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR
i rpi « ■■'• -J
íí ? ; i ^ 1 ■ | |i|| : i
í r í 11 i # PiQjl f 1 r*
14 J rlnwll' ‘iiili 4 u
ISVA\L-ÖOÍ<GA\ Erlr.
HÖFÐABAKKA 9. 1 12 RFYKJAVÍK
SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751
BHHI
20%
afsláttur af öllum glerjum
dagana 4. t /■#/ 7. j ú n i
Smáratorgi • Hamraborg 10