Morgunblaðið - 07.06.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 25
annan hátt en með skrapdögum
og lokunum svæða tímabundið.
Varð þetta til þess að komið var á
kvóta í þorskveiðunum og ýmsum
fleiri tegundum 1984.
Til þess að styrkja hefðbundið
stofnmat okkar á þorski tókum
við upp stofnmælingu með botn-
vörpu og var fyrsti leiðangurinn
farinn árið 1982 í því skyni. Farið
var að haustlagi á Bjama Sæ-
mundssyni og Hafþóri og teknar
um 200 stöðvar. Þessar rann-
sóknir voru svo efldar, stöðvum
fjölgað í 600 og verkefnið unnið í
samvinnu við sjómenn á fimm
togurum. Þetta verkefni gengur
undir nafninu togararallið og var
dr. Ólafi Karvel falin verkefnis-
stjóm, en um sama leyti var sett
upp önnur verkefnisstjórn á Ha-
fró um fiskveiðiráðgjöf. Þar var
ég í forsvari, enda búinn að vera ýmist vara-
eða aðalfulltrúi íslands á móti Jakobi Jakobs-
syni í ráðgjafarnefnd Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins um stjóm fiskveiða frá því að sú nefnd
var sett á laggirnar 1978. Þessi verkefnis-
stjóm hefur á sinni könnu að meta ástand
nytjastofna í samvinnu við viðkomandi sér-
íræðinga og gera tillögur um hámarksafla, og
gefa út ástandsskýrslu stofnunarinnar. Eg
stýrði þessu starfi til 1991 og hefi alltaf haldið
utan um árlega úttekt á þorskstofninum, og
er nú jafnframt verkefnisstjóri togararalls-
ins.“
Ekki má slá slöku við
Ámi Friðriksson fiskifræðingur byrjaði að
safna gögnum úr þorskaflanum þegar hann
kom til starfa 1930 og síðan em til samfelld
gögn. „Fyrir nokkram árum fór ég í það að
skoða þessi gögn og bæta við gögnum frá
breskum og þýskum starfsbræðram, en til
era talsverð gögn um veiðar þessara þjóða
hér við land. Tilgangurinn var sá að bak-
reikna stofnstærð með aldurs-afla-aðferðinni
a.m.k. aftur til ársins 1930. Niðurstöður sýna
að stofninn var mjög stór á áranum kringum
1930 og komst veiðistofn yfir 3 milljónir
tonna. Og það þarf ekki að fara svo langt aft-
ur í tímann. A árunum 1953-1956 var veiði-
stofninn yfir 2 milljónum tonna, en þegar
svarta skýrslan var skrifuð 1975 var stofninn
kominn niður fyrh' 900 þúsund tonn.“
„Wilson bankaði úr pípu
sinni og sagði svo sallaró-
legur, að það væri nú bara
þannig, að ekki þýddi einu
sinni að bjóða kettinum
hans karfa, hvað þá bresku
þjóðinni!"
„Stefnan úti í hinum stóra
heimi snýst meira og
meira í þá átt að beina við-
skiptum til þeirra, sem
leggja áhersiu á auðlinda-
og umhverfisvernd, svo-
kallaða sjálfbæra nýtingu."
Sigfús segir að þrátt fyrir að kvótakerfi
hafi verið komið á 1984, hafi oftast verið veitt
umfram tillögur Hafró enda lausir endar í
kerfinu. „Þannig nýttust árgangarnir frá 1983
og 1984 verr en ella. Nýliðun næstu ár var lé-
leg og stofninum hrakaði stöðugt. Ég held að
innst inni hafi menn vonast til að stofninn
rétti við svona nokkum veginn
af sjálfu sér. Þegar það gekk
ekki eftir varð að taka á málinu
enda stofninn kominn í sögulegt
lágmark í aðeins 550 þúsund
tonn. Aflaregla sú sem kom til
framkvæmda 1995 hefúr sannað
gildi sitt að mínu mati. En sá ár-
angur sem náðst hefur í endur-
reisn þorskstofnsins er ekki ein-
göngu að þakka aflareglunni.
Eg tel ekki nokkum vafa leika á
því að þær miklu svæðalokanir
til verndar smáþorski eiga og
sinn þátt í viðreisninni.“
Líf utan Hafró
En hefur Sigfús haft nokkum
tíma í annað en fiskirannsóknir?
„Lífið er nú ekki bara saltfisk-
ur, maður getur alltaf fundið sér
einhverja stund til að sinna öðr-
um málum, sem maður hefur áhuga á. Ég er
reyndar þeirrar skoðunar, að það sé alveg
bráðnauðsynlegt að líta upp úr vinnunni og
festast ekki í einhverju hjólfari. Þess vegna
hef ég tekið þátt í félagsstörfum. Ég var hér á
áram áður í stjóm þýsk-íslenska menningar-
félagsins Germaníu og er nú formaður Alex-
anders von Humboldtfélagsins á Islandi. Þá
var ég beðinn um að gefa kost á mér í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í vetur vegna bæj-
arstjómarkosninganna og nú er ég kominn í
tölu varabæjarfulltrúa í Kópavogi.“
Þegar nánar er spurst fyrir um Humboldt-
félagið segir Sigfús félagið vera félag fyrrver-
andi íslenskra styrkþega Humboldt-stofnunar-
innar í Bonn. „Stoftiunin er kennd við þýska
náttúrufræðinginn og landkönnuðinn Alexand-
er von Humboldt og hlutverk hennar er að
styrkja unga vísindamenn með doktorsgráðu
til rannsóknastarfa eða framhaldsnáms í
Þýskalandi. Ég var styrkþegi stofnunarinnar
árið 1977 og vann þá við fiskirannsóknastofn-
animar í Bremerhaven og Hamborg. Frá því
stofnunin tók til starfa hafa 45 Islendingar not-
ið styrks frá henni, en þetta eru mjög ríflegir
styrkir til uppihalds í landinu. Það er ekki bara
að stofnunin styrki sína menn á meðan á dvöl
þeirra stendur í landinu, hún heldur einnig
uppi sambandi við fyrrverandi styrkþega sína
og býður þeim stundum aftur til dvalar í
Þýskalandi eða styi-ki til kaupa á vísindaritum
eða tækjum. Humboldt-félagið var stofnað
1979 og í því era allir núlifandi fyrrverandi
styrkþegar, 33 talsins. Markmið félagsins er að
efla tengsl milli félaganna, efla menningar- og
vísindaleg samskipti milli þjóðanna og svo er-
um við með skógræktarreit í Heiðmörk.“
Sigfús lumar á fleiri áhugamálum. „Ég er
safnari í mér og hef verið með annan fótinn
inni á fombókasölum í áratugi. Þetta era aðal-
lega náttúrafræðirit, sem ég hefi verið á hött-
unum eftir. Svo hef ég gaman af tónlist, sér-
staklega góðum djass. Mínir menn era Oscar
Peterson í heiðurssæti og gömlu meistararnir
Ellington, Basie, og Goodman. Þá er nú svo
einkennilegt með það, að þegar vinnunni
sleppir og ég fer í sumarfrí, fer ég úr sjávar-
fiskinum í vatnafiskinn. Ég á mér athvarf í
Stíflisdal í Þingvallasveit. í dalnum er Stíflis-
dalsvatn og þar hef ég stundað veiðar frá því
að ég var bam. Þegar ég kom frá námi í fiski-
fræði fór ég að taka urriðasýni en það er ein-
göngu urriði í vatninu. Börnin hjálpuðu mér
hér áður fyrr, meðan þau höfðu nennu til, við
sýnatöku, en duglegust hefur Helga Skúla-
dóttir, eiginkonan mín, verið í þessum vísind-
um. Þetta hefi ég nú aðallega gert mér til
fróðleiks og skemmtunar. Með tímanum hafa
safnast upp heilmikil gögn og vel má vera að
ég taki eitthvað saman um þessar athuganir í
góðu tómi. Af öðrum áhugamálum má segja
að ég reyni að rækta garðinn minn á öllum
sviðum, les mikið, aðallega þjóðlegan fróðleik,
og svo hef ég verið að dunda við að gróður-
setja tré í Stíflisdal."
Árangurinn til fyrirmyndar
Að lokum berst talið aftur að þorskinum
og Sigfús segir að árangur Islendinga hvað
varðar endurreisn stofnsins sé talinn til fyr-
irmyndar „og segja má að ímynd okkar út á
við, alþjóðlega, sé góð. En við verðum að
halda vel á málum til þess að þessi ímynd
skaðist ekki. Við þurfum að fylgjast vel með
þróun útbúnaðar til þess að sleppa smáfiski
því við eram með margs konar smáriðin veið-
arfæri í notkun. Hér á ég við fiskaskiljur ým-
iss konar. Við verðum að gera allt til að um-
gengni við auðlindir láðs og lagar verði sem
best verður á kosið. Það verður ekki horft
framhjá því að stefnan úti í hinum stóra
heimi snýst meira og meira í þá átt að beina
viðskiptum til þeirra, sem leggja áherslu á
auðlinda- og umhverfisvernd, svokallaða
sjálfbæra nýtingu. Þess vegna er stjórn veið-
anna .okkur svo nauðsynleg"
Góð loftræsting
léttir lífið!
Bjóðum mikið úrval aí viftum og loftræstibúnaði frá Xpelair.
Hönnun og framleiðsla Xpelair er þróuð eftir viðurkenndum
IS0 9001 staðli. Vanti þig loftræstibúnað fyrir heimilið,
sumarbústaðinn eða iðnaðar- og atvinnuhúsnæðið hefur
Xpelair örugglega lausnina.
.v _________
&
Xpelair DX100
glugga- og veggviftur.
Öflugarog öruggar viftur.
Ýmsar útfærslur. Tilvaldar í
bað- og snyrtiherbergi á heimilum,
sumarbústöðum og smærri
vinnustöðum.
Leitið nánari upplýsinga.
matm
Xpelair NWA og NWAN
spaðaviftur.
Fyrir þá sem hafa kynnst þessum
vinsælu spaðaviftum eru þær
algjörlega ómissandi þáttur í
tilverunni. Henta veláöllum
vinnustöðum.
Kynntu þér málið.
SMITH &
'Xpelair
Ferskur andblær.
J
10 tíma kort
kynningarverði kr. 3.700,-
Engar tímatakmarkanir
Jsbgóður
staðurjýrirþ^
| Jsb kort veitir
I 30% afslátt í Ijós
IBIÐÐBBh