Morgunblaðið - 07.06.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998 35
helgu bók. Það fólk hefur verið
nefnt fjallræðufólkið. Það vinnur
störf sín í kyrrþey og ætlast ekki til
launa, umbunar eða umfjöllunar.
Engir á þessu landi eru betur að
þessari nafnbót komnir en St. Jós-
efssystur. Kærleikann, sem postul-
inn sagði mikilvægastan, sýndu
þær í verki með störfum sínum.
Þær St. Jósefssystur eru nú fáar
eftir á íslandi og eru raunar að
hvei-fa á brott. Eftir langt og fórn-
fúst ævistarf hér átti systir Ga-
briella þá ósk eina að fara hvergi en
fá að lokum að hvíla í íslenskri
mold. Bænir hennar voru heyrðar
og Guð gaf henni friðsælt ævikvöld.
Guðjón Lárusson.
Fyrir 25 árum kom ég sem nýr
starfsmaður á Landakotsspítala.
Var ég ráðinn á svæfingardeild og
kveið ég talsvert fyrir að byrja að
vinna hjá nunnunum í Landakoti.
Bæði var þetta framandi staður og
ég hélt að þarna væru allir mjög al-
variegir og mjög strangur agi. Eg
var iljótur að finna út að þetta var
allt öðruvísi. Systumar vom léttar
og kátar, með bros á vör og unnu
langan vinnudag.
Eg veit ekki hvernig systur Ga-
briellu leist á þennan karlkyns
hjúkrunarfræðing, en fljótt urðum
við hinir mestu mátar. Eftir svolít-
inn tíma kallaði hún mig „min
skurk“ og hélt því alla tíð síðan.
Þetta heiti gaf hún karlkyns vinnu-
félögum sem henni féll við. Á þess-
um tíma var spítalareksturinn á
fullu og allir unnu mikið, ekki síst
St. Jósefssystur. Systir Gabriella
var ekki harður húsbóndi á skurð-
stofunni, en átti það til að kalla
„Eraus“ ef henni þótti við sitja of
lengi í kaffistofunni og breytti þá
aðeins um tón. Fóra þá allir strax
að vinna aftur. Systurnar áttu
heimili sitt á spítalanum og var
andinn þar eftir því. Þær hlúðu
mjög vel að sínu starfsfólki alla tíð
og voru mjög hjúasælar. Hélst
þeim á sama starfsfólkinu áram
saman, og sumir vora hjá þeim í
áratugi. Man ég eftir því, þegar
unnið var á skurðstofunni á nótt-
unni að þær fóru á fætur og elduðu
handa okkur mat, okkur sem höfð-
um verið á fótum alla nóttina. Oft
var þetta súpa, brauð og þýskar
pylsur. Bænatíma sína stunduðu
systurnar eftir sínum reglum og
var það hluti af starfi þe'irra.
Þegar systurnar hættu rekstri
spítalans störfuðu nokkrar áfram
þar, þar á meðal systir Gabriella.
Sá hún um kaffistofuna á sjöttu
hæð og var hún þar í nokkur ár og
undi hag sínum vel. Hélt hún góðu
samandi við samstarfsfólkið og hitti
þar gamla vini og frétti af okkar
högum. Systir Gabriella vildi fylgj-
ast með lífi okkar áfram og fjöl-
skyldna okkar. Ellin var henni
frekar létt og hélt hún sæmilegri
heilsu lengi vel en auðvitað var hún
lúin eftir langt líf og mikla vinnu.
Oft á kvöldin fór hún í heimsókn á
barnadeildina. Hún hafði alltaf
mjög gaman að börnum og hænd-
ust þau fljótt að henni. Naut hún
þess alltaf að vera í fjörinu hjá
krökkunum á barnadeildinni. Systir
Gabriella var smávaxin og grönn,
en hún var stór kona í augum okkar
sem þekktum hana. Systir Ga-
briella hafði alltaf létta lund og sá
húmorinn í hlutunum. Oft gaf hún
góð ráð sem dugðu vel.
Síðustu árin bjó hún í systra-
heimilinu í Garðabæ. Allar reglu-
systur hennar hugsuðu mjög vel
um hana og hjálpuðu henni á alla
lund. Það gladdi hana mjög að fá
heimsóknir frá gömlum vinum sín-
um. Öll eram við börn okkar tíma.
Systir Gabriella vildi enda ævi sína
hér og fékk það. Hún hafði starfað
hér í rúm 60 ár og var orðin Islend-
ingur fyrir löngu. Eg veit nú að all-
ar óskir hennar hafa ræst. Um leið
og ég þakka systur Gabriellu vin-
semd við mig og fjölskyldu mína,
þakka ég henni löngu liðna daga.
Megi Guð vera þreyttu barni
sínu miskunnsamur. St. Jósefs-
systram óska ég alls góðs og votta
þeim samúð.
Jóhann Marínósson.
OSKARINGMAR
HUSBY JOHANNSSON
tOskar Ingmar
Husby Johanns-
son fæddist í Þránd-
heimi í Noregi 29.
október 1918. Hann
lést á Landspítalan-
um 1. júní síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Ragnhild og Jo-
hann Husby. Börn
þeirra voru tíu:
Reidar, látinn, Sol-
veig, Arvit, látinn,
Jenny, Oskar, As-
mund, Borghild, lát-
in, Erling, látinn,
Margit, Erling.
Oskar giftist 5. september 1943
Björgu Elísabetu Elísdóttur, fædd
23. mars 1910, frá Hólshúsum,
Húsavík, Borgarfirði eystra. For-
eldrar hennar voru Guðbjörg
Gísladóttir og Elís Guðjónsson.
Börn þeirra voru tíu, nú tvö á lífi,
Björg og Lukka, sem er á Sjúkra-
húsinu á Seyðisfirði. Oskar og
Björg eignuðust þijú börn: 1)
Reidar Jóhannes, f. 5.3. 1944, í
sambúð með Kristínu Maríu
Baggviey, f. 12.12. 1950. 2) Þórdís
Sigríður, f. 20.5. 1946, gift Örlygi
Rúdolf Þorkelssyni, f. 15.4. 1943.
3) Ragnar Marteinn, f. 7.10. 1949,
giftur Eddu Baldvinsdóttur, f.
22.6. 1951. Barna-
börn: Óskar Ingimar,
f. 7.11. 1969, Björg-
vin Elís, f. 7.12. 1970,
Jóhann Pétur, f. 26.7.
1972, óskírð, f. 28.11.
1975, dáin sama dag,
Örlygur Örn, f.
12.10. 1977, í sambúð
með Eli'nu Maríu
Óladóttur, f. 9.12.
1978, Jón Ingi, f.
8.12. 1981. Guðrún
Björg, f. 18.12. 1970,
Baldvin Davíð, f. 2.5.
1974, Linda Kristín,
f. 24.8. 1979. Bama-
barnabarn: Arnar Már Örlygsson,
f. 18.9. 1995.
Oskar starfaði á fraktskipi sem
háseti í Noregi þar til hann var
kallaður í herinn 1939 þá staddur
í Englandi, hann kemur til Is-
iands 1941-1942 og starfar í
Fiskhöilinni sem kokkur hjá
hernum, eftir stríð fer hann að
starfa hjá vélsmiðjunni Hamri og
er þar í 18 ár, síðan um tíma í
byggingarvinnu en fer svo að
vinna hjá Loftleiðum, si'ðan Flug-
leiðum.
títför Oskars fer fram frá Ás-
kirkju mánudaginn 8. júm' og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Elsku afi okkar, mikið er erfitt að
kveðja þig, söknuðurinn er mikill,
en minningarnar eru margar sem
við getum glaðst yfir. Alltaf varstu
tilbúinn til að hjálpa, alltaf brosandi
og hlæjandi, kvartaðir aldrei yfir
veikindum og varst ósérhlífinn í
vinnu. Gladdist alltaf ef vel gekk hjá
okkur. Og þegar langafabarnið Ai-n-
ar Már fæddist, gladdistu mjög því
þú hafðir alltaf gaman af bömum.
Reyndist okkur öllum vel.
Og Seyðisfjarðarferðimar, hvað
þær voru skemmtilegar, spiluð
harmonikkumúsík og hlegið, stopp-
að á Akureyri, einnig fleiri stöðum,
og borðað, vinafólk ykkar ömmu
heimsótt og allar skemmtilegu ferð-
irnar. Takk kærlega fyrir.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guð gefi þér styrk í sorginni,
amma mín, svo og ættingjum og
vinum.
Þín barnaböm og langafabam,
Björgvin, Pétur, Jón, Örlygur,
Elín, og Arnar Már.
Afi minn, Oskar I. Johannsson,
lést á Landspítalanum 1. júní síðast-
liðinn. Rétt rúmri viku áður fékk ég
hringingu hingað til Spánar þar
sem ég er búsettur og foreldrar
mínir tjáðu mér hversu veikur hann
væri. Eg kom heim eins fljótt og ég
gat og var hjá afa mínum síðustu
vikuna sem hann lifði.
Eg á engin orð til að lýsa hversu
erfitt var að horfa á hann liggjandi í
rúminu fárveikan og sárþjáðan.
Þessi yndislegi og góði maður sem
aldrei hafði mátt neitt aumt sjá var
alltaf boðinn og búinn að aðstoða
alla svo lengi sem það var í hans
valdi. Þarna lá hann án þess að ég
gæti nokkuð gert til þess að hjálpa
honum. Sem betur fór var sjúkra-
húslegan ekki löng því það varð
strax augljóst hvert stefndi.
Elsku afi minn, fráfall þitt á eftir
að skilja eftir stórt og mikið tóm í
lífi mínu sem ekki verður fyllt, ekki
fyrr en einn góðan veðurdag að við
hittumst hinum megin. Eg vil þakka
Guði fyrir tilvist þína og þau for-
réttindi að hafa átt þig fyrir afa.
Betri afa er ekki hægt að hugsa sér.
Mig langar að nota þessi fallegu
orð til þess að kveðja þig.
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Því eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Eg harma það en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt."
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Elsku afi minn, sumarið leið svo
sannarlega alltof fljótt, en það skildi
líka eftir fullt af minningum sem
ekki verða teknar frá mér né öðram
sem auðnaðist sú gæfa að kynnast
þér. Hvíl í friði, elsku afi minn.
Góður Guð, gefðu okkur öllum
styrk til þess að takast á við þennan
mikla missi, og þá sérstaklega henni
ömmu minni.
Óskar Ingimar Örlygsson.
Stefánsblóm
Laugavegí 178
S: 561 0771
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast
við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÍSGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hrafnistu Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn
10. júní kl. 15.00.
Gunnar Ingi Þórðarson,
Sigrún Þórðardóttir, Gunnar Hans Helgason,
Ragnheiður Guðrún Þórðardóttir, Björn Björnsson
og barnabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, stjúpfaðir, sonur og
bróðir,
SIGURÐUR SIGURÐSSON,
Efstalundi 1,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju
mánudaginn 8. júní kl. 13.30.
Blóm afbeðin.
Lilja Hreinsdóttir,
Þóranna H. Þórsdóttir,
Sigurður Halldórsson,
Magnús Sigurðsson,
Haildór Sigurðsson,
Sigrún Sigurðardóttir,
Svava Sigurðardóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útfarir ástkærra
foreldra okkar,
VILBORGAR SIGURÐARDÓTTUR OG EINARS ÁRNASONAR,
Elliheimilinu Grund, áður Hólmgarði 1.
Sérstakar kveðjur og þakklæti til starfsfólks Elliheimilisins Grundar fyrir
yndislega umönnun.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Sigurður L. Einarsson,
Anna María E. Einarsdóttir,
Árni Einarsson,
Sigurbjörg Einarsdóttir,
Þórir Þórðarson,
Guðbjörg Friðriksdóttir,
Gústaf Guðmundsson,
Ragnhildur Nordgulen,
Eyþór Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem sýndu mér samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkæn-ar dóttur minnar,
SIGURBORGAR RÁNAR,
Pálmholti 7,
Þórshöfn.
Stefán J. Óskarsson,
Pálmholti 7,
Þórshöfn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu
ættingja og vina sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR INDRIÐADÓTTTUR
húsmóður og kennara,
Höfðabrekku,
Kelduhverfi.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Gunnlaugur Stefánsson,
Kristín Erla Jónsdóttir, Garðar Tyrfingsson,
Margrét Jónsdóttir, Kolbeinn Björgvinsson,
Ari Þór Jónsson, Ragnheiður Helgadóttir,
Sævar Garðarsson,
Grétar Már Garðarsson,
Jón Björgvin Kolbeinsson.