Morgunblaðið - 07.06.1998, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Shirov mætir
Kasparov í einvígi
SKAK
Cazorle, Spáni,
23. maf—5. júnf
EINVÍGI UM
ÁSKORUNARRÉTTINN Á
KASPAROV
ALEKSEI Shirov, Spáni, sigraði
Viadímir Kramnik, Rússlandi,
5'A-3'A í einvígi um áskorunar-
réttinn á Kasparov.
19. - e4! 20. Rxf6+
Eftir 20. d7 - exf3+! 21.
dxe8D+ - Dxe8+ 22. De3 -
Rg4! 23. Re7+ - Kf8 24. Dc5 -
b6 25. Db4 - Hc8 fær svartur
einnig afar hættulega gagn-
sókn.
SHIROV tók forystuna er
hann sneri á Kramnik í enda-
tafli í fjórðu skákinni. Næstu
fjórar urðu fremur dauf jafn-
tefli og á föstudaginn lagði
Kramnik allt í sölurnar til að
sigra í níundu og næstsíðustu
skákinni. Frumleg byrjun
Rússans heppnaðist nokkuð
vel allt þangað til að honum
láðist að taka glæsilega gagn-
sóknarleið Shirovs með í reikn-
inginn. Á einu augabragði
sneri Shirov skákinni við með
hróksfórn og fékk upp afar
hagstætt endatafl, sem hann
vann örugglega.
Shirov er 26 ára gamall, af
rússnesku bergi brotinn, en
uppalinn í Lettlandi og tefldi
undir merki Lettlands þar til
honum sinnaðist við lettneska
skáksambandið og flutti síðan
alfarinn til Spánar þar sem
skákunnendur tóku honum
opnum örmum. Shirov var því
á heimavelli í Cazorle og verð-
ur það væntanlega líka þegar
hann mætir Kasparov; langlík-
legast er að það einvígi verði
líka á Spáni.
Sigur Shirovs kom nokkuð á
óvart, þar sem hann var tölu-
vert stigalægri en Kramnik,
sem Kasparov hefur spáð að
muni taka við af sér sem stiga-
hæsti skákmaður heims. Þrátt
fyrir þennan ágæta sigur getur
Shirov ekki talist hafa miklar
vinningslíkur gegn Kasparov.
Úrslitaskákin
Níunda og síðasta skákin
gekk þannig fyrir sig:
Hvítt: Kramnik
Svart: Shirov
Griinfeldsvörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. f3
Afar fáséð afbrigði, en fyrr í
einvíginu hafði Kramnik beitt
hefðbundu uppskiptaafbrigði,
3. Rc3 - d5 4. cxd5 - Rxd5 5.
e4, en ekkert komist áfram.
3. - d5 4. cxd5 - Rxd5 5. e4 -
Rb6 6. Rc3 - Bg7 7. Be3 - 0-0
8. Dd2 - e5 9. d5 - c6 10. h4 -
h5 11. Be2 - cxd5 12. exd5 -
R8d7 13. d6 - Rf6 14. Bg5 -
He8 15. Hdl
Kramnik bíður ærið lengi
með að þróa kóngsvænginn og
það kemur honum í koll síðar.
Hér kom vel til greina að
leika strax 15. Rh3 og láta
reyna á það hvort Shirov sé
tilbúinn að drepa riddarann
og láta hvítreitabiskup sinn af
hendi.
15. - Be6 16. Rh3 - Rc4 - 17.
Bxc4 - Bxc4 18. b3 - Ba6 19.
Rd5?
Kramnik vanmetur svarta
mótspilið. Rétt var 19. Rf2 og
hvítur hefur ágæt færi eftir
t.d. 19. - Da5?! 20. Bxf6 - Bxf6
21. Rd5 - Dxd2+ 22. Hxd2 -
Bd8 23. Re4 með vænlegri
stöðu á hvítt.
20. - Bxf6 21. d7
21. - Db6! 22. dxe8D+ - Hxe8
23. De3 - Bxg5! 24. Dxb6 -
Bxh4+ 25. Kd2 - axb6 26. fxe4
- Hxe4 27. Kc2 - Hg4 28. Hd2
- Be7 29. Hgl - Kg7 30. Rf2 -
Hf4 31. Rd3 - He4 32. Hgdl -
Bb5 33. a4 - Bc6
Shirov hefur fengið alltof
góðar bætur fyrir skiptamun-
inn. Eftir næsta leik hvíts eru
úrslitin ráðin, því eftir hann
fellur peðið á g2:
34. Hel - Hxel 35. Rxel - Bb4
36. He2 - Bxel 37. Hxel -
Bxg2 38. Kd2 - h4 39. Ke3 -
Bd5 40. b4 - h3 41. He2 - f5
42. Hd2 - Be4 43. Kf4 - Bg2
44. Hd7+ - Kf6 45. Hh7 - g5+
46. Kg3 - f4+ 47. Kg4 - Ke5
48. b5 og Kramnik gaf skákina
og einvígið, því svartur leikur
48. - Kd4 og veður síðan áfram
með kónginn til aðstoðar
svörtu frípeðunum.
Atkvöld Hellis
Taflfélagið Hellir heldur eitt
af sínum vinsælu atkvöldum
mánudaginn 8. júní. Fyrst eru
tefldar 3 hraðskákir þar sem
hvor keppandi hefur 5 mínútur
til að ljúka skákinni og síðan
þrjár atskákir, með tuttugu
mínútna umhugsunartíma.
Mótið fer fram í Hellisheimilinu
í Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu
hæð. Sami inngangur og hjá
Bridgesambandinu og Keilu í
Mjódd.
Mótið hefst kl. 20. Þátttöku-
gjald er kr. 300 fyrir félags-
menn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri), en kr. 500 fyrir aðra (kr.
300 fyrir 15 ára og yngri).
Rétt er að vekja athygli á
skemmtilegri nýbreytni í verð-
launaveitingu á atkvöldunum.
Sigurvegarinn fær máltíð fyrir
tvo hjá Pizzahúsinu. Þá hefur
einnig verið tekinn upp sá siður
að draga út af handahófí annan
keppanda, sem einnig fær mál-
tíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu.
Þar eiga allir jafna möguleika,
án tillits tii árangurs á mótinu.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kannast einhver
við þessi börn?
EF einhver kannast við
þessi börn á myndinni þá
vinsamlega hafið sam-
band við Elínu í síma
557 1118 eftir klukkan 17
á daginn.
Þakkir
ÉG VIL koma á framfæri
þökkum til þeirra sem
fundu seðlaveski sem ég
gleymdi í innkaupakerru
við Bónus í Holtagörðum
og kom því í hendur versl-
unarstjórans í Bónus. Það
er gott að vita að ennþá er
til heiðarlegt fólk.
Edda.
Athugasemd
HELGI hafði samband
við Velvakanda og sagðist
hann hafa lesið Víkverja sl.
fóstudag. Þar er fjallað um
Arnór Guðjónsson og son
hans, Eið Smára. Segir
Helgi að þeir hafi fyrir
nokkrum árum verið báðir
í landsliðinu, feðgarnir, en
ekki saman á vellinum því
þá var öðrum skipt inná og
hinum útaf í stað þess að
leyfa þeim að spila saman.
Þetta hafi verið fyrir ca.
tveimur árum þegar Logi
var landsliðsþjálfari.
Helgi.
Tapað/fundið
Barnareiðhjól hvarf
LÍTIÐ ljósblátt bam-
areiðhjól hvarf frá Vest-
urbæjarsundlaug fóstu-
daginn 5 júní um ellefu-
leytið. Þess er sárt sakn-
að. Ef einhver hefur orðið
var við hjólið vinsmlegast
látið vita í síma 551-0563
Regngalli fannst
í Öskjuhlíð
GRÆNN barnaregngalli,
buxur og jakki, ásamt
nestisboxi og Godda-bak-
poka, fannst í Öskjuhlíð sl.
miðvikudagskvöld. Upp-
lýsingar í síma 562 6727.
Kristjana.
Dýrahald
Bi'anda er týnd
BRANDA hvarf frá
heimili sínu í miðbæn-
um fyrir rúmri viku.
Hún er grábröndótt
læða með hvítar loppur
og smávaxin. Hún er
með fjólubláa ól og
eymamerkt. Þeir sem
hafa séð hana eða geta
gefið einhverjar upplýs-
ingar vinsamlega hring-
ið í síma 551 2946 eða
551 2915.
Skógarkettlingar
fást gefins
SKÓGARKETTLINGAR
fást gefins. Upplýsingar í
síma 586 1485.
ÉG get fært fundinn til
22:30 á aðfangadags
kvöld. Þá ættu bömin að
vera sofnuð.
ÞETTA var sjúkdóms
greiningin mín, má ég
heyra þína?
SkAK
Dm.sjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
öflugu skákmóti sem
nú stendur yfir í Sara-
jevo í Bosníu. Ivan
Sokolov (2.625), Bosn-
íu, hafði hvítt og átti
leik gegn Zdenko
Kozul (2.585), Króatíu.
31. Rc6! - Dal (Reynir
að flækja taflið, því
hvítur fær
unnið
endatafl
eftir 31. -
Hxc6 32.
Re7+ -
Kh8 33.
Rxc6 -
Df6 34.
Db2
o.s.frv.)
32. Df2! -
Bf3 33.
Rce7+
Kh8 34.
gxf3
Hf8 35. f4
- e3 36.
Db2+ -
Dxb2 37. Hxb2 - Kg7
38. Kg2 - Hf7 39. Kf3 -
g5 40. Hb7 - gxf4 41.
Rf5+ - Kg8 42. Rde7+
og nú loksins gafst
svartur upp.
Að loknum þremur
umferðum á mótinu var
staðan þessi: 1.-2.
Barejev, Rússlandi og
Kortsnoj, Sviss 2!4 v.,
3.-4. Ivan Sokolov og
Kiril Georgiev, Búlgar-
íu 2 v., 5.-6. Dizdarevic,
Bosníu og Lputjan, Ar-
meníu VA v., 7.-8. Pre-
drag Nikolic, Bosníu og
Kozul, Króatíu 1 v.
9.-10. Kurajica, Bosníu
og Piket, Hollandi lA v.
Fjöldi skákviðburða
fór fram í Sarajevo á
árum áður, en þetta er
fyrsta stórmótið sem
þar er haldið eftir að
borgarastyrjöldinni í
Bosníu lauk.
ÞETTA er einmitt það
sem er að pípunni, tjaran
spýtist úr henni.
HVERSU margar tölvur
get ég fengið fyrir 12
gler?
Yíkverji skrifar...
JÚNÍMÁNUÐUR er tími birtu og
gróanda, útivistar og náttúruskoð-
unar. Við sjáum þennan mánuð gjam-
an fyrir okkur sem náttlausa vorald-
arveröld: fugla í trjám og blóm í haga.
En náttúra lands okkar á til fleiri hlið-
ar. Það var 8. dag júnímánaður árið
1783 sem Skaftáreldar [móðuharð-
indi] hófust með eldgosi úr Lakagíg-
um á Síðuafrétti. Gosið stóð óslitáð
fram í október og slitrótt fram í febrú-
ar 1784. Eldflóðið rann austur með
Síðu en stöðvaðist við Systrastapa,
vestan Kirkjubæjarklausturs. Önnur
kvísl rann vestur Skaftártungu og hin
þriðja í Meðalland.
Það var ekki náttlaus voraraldar-
veröld sem blasti við landsmönnum
þessa júnídaga árið 1783, heldur mist-
ur og öskufall.
xxx
MÓÐUHARÐINDI heitir sá kap-
ítuli í þjóðarsögunni, sem í hönd
fór, hörmungarárið 1783 og hin næstu
á eftir. Hvað íylgdi í kjölfar Skaftár-
elda? Trúlega dimmustu dagar i sögu
þjóðarinnar. Grasbrestur varð sumar-
ið það. Búpeningur týndi hratt töl-
unni: 11 þúsund nautgripir, 28 þúsund
hross og 190 þúsund kindur, segja
samtímaheimildir. Fólk féll og úr
hungri og fylgikvillum bjargarskorts-
ins. Tæplega 20% þjóðarinnar lá í val
Móðuharðindanna.
Og sjaldan er ein báran stök. í
ágústmánuði 1784 sagði náttúra
landsins enn til sín með miklum jarð-
skjálftum á Suðurlandi. Fjöldi bæja
hrundi, m.a. frægur Skálholtsstaður.
í hagsæld okkar daga er hollt að
huga að baklandi okkar, sögu okkar,
samansafnaðri reynslu kynslóðanna.
Njótum samt Ijúfra stunda vors og
varma. Við erum og betur undir það
búin nú að mæta náttúruhamfórum en
áar okkar, ef þær beija að durum.
NÚ ER öldin önnur hjá íslending-
um en í Móðuharðindum fyrr á
tíð. Segja má að smjör dijúpi af
hverju strái í þjóðarbúskap okkar,
enda vandamálin af öðrum og nútíma-
legri toga. Tímaritið Frjáls verzlun
segir svo frá í grein fyrir skemmstu:
.Árshátíðarferðir tíl útlanda verða
sífellt vinsælli og og hefur hver flug-
vélarfarmurinn á fætur öðrum af Is-
lendingum með árshátíðarkjólinn og
sparijakkafótin í ferðatöskunni farið
að undanfomu." Þar segir og: „Oft
styrkja fyrirtækin þessar hátíðir,
enda þjappa þær starfsmönnum sam-
an. En hvað má styrkurinn verða hár
gagnvart skattayfirvöldum? Það er á
reiki.“
í greininni segir að samkvæmt
reglugerð um frádrátt frá tekjum af
atvinnurekstri teljist kostnaður við
árshátíð, jólagleði eða sambærilegar
samkomur starfsmanna frádi'áttar-
bær frá skatti enda sé kostnaður
hæfilegur miðað við einstök tileíhi og
heildstætt á árinu. „StaiTsmannaferð-
ir eru því að einhveiju leyti frádrátt-
arbærar frá skattí... Gera má ráð fyr-
ir að í meðalstóru fyrirtæki gætí 5
þús. króna framlag fyrirtækis fyrir
hvem starfsmann þótt eðlilegt en 20
þús. króna framlag þætti líkast til
meira en skattayfirvöld gætu sam-
þykkt athugasemdalaust."
SIMAKOSTNAÐUR er hluti af
heimilisútgjöldum okkar. Hvemig
hefur verðskrá símans þróast síðustu
tíu árin? í einni af mörgum greinar-
gerðum Ríkisendurskoðunar segir:
„Ljóst er að veralegar breytingar
hafa orðið á gjaldskrá símans á und-
anfómum tíu áram. Þannig hefur
mínútugjald vegna útlandasímtala
lækkað um rúm 60% á fóstu verðlagi.
Þá hefur mínútugjald í langlínusímtöl-
um lækkað um 88%. Á hinn bóginn
hafa staðarsímtöl hækkað um 136% á
föstu verðlagi."
Það er nú svo og svo er nú það.
Staðarsímtöl eiga greinilega ekki upp
á pallborðið hjá verðleggjendum sím-
ans. Það væri ekki amalegt að fá ein-
hverja marktæka samkeppni á mark-
að staðarsímtalanna!