Morgunblaðið - 07.06.1998, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiW kf. 20.00:
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
Aukasyning fim. 11/6, allra síðasta sýning.
ÓSKASTJARNAN — Birgir Sigurðsson
Fös. 12/6 síðasta sýning á þessu leikári.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Lau. 13/6 síðasta sýning.
Áhugateiksýninq ársins 1998: FREýf/ANGSLEIKHÚSIB sýnir
VELKOMIN I' VILLTA VESTRIÐ eftir Ingibjörgu Hjartardóttur.
Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir.
í kvöld sun. 7/6. Aðeins þessi eina sýning.
TÓNLEIKAR Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar
Þri. 9/6 kl. 20.30.
SmíÍaOerkstœiii kt. 20.00:
POPPKORN - Ben Elton
I kvöld sun. — fös. 12/6. Síöustu sýningar. Ath. sýningin er ekki við hæfi bama
Litla sóiiii kt. 20.30:
GAMANSAMI HARMLEIKURINN - Eve Bonfanti og Yves Hundstad.
I kvöld sun. nokkur sæti laus — fim. 11/6 — fös. 12/6. Ósóttar pantanir sekfar daglega
Sýnt i Loftkastatanum kt. 21:
LISTAVERKIÐ — Yasmina Reza
I kvöld sun. — lau. 13/6 — lau. 20/6. Aðeins þessar þrjár sýningar.
Mðasalan er opin mánud—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud. —sunnud. 13—20.
Srnapantanir frá kl. 10 virka daga.
áy*LEI KFÉLAG liaé
©^REYKJAVÍKURjSy
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið Id. 20.00
n í 5 ven
eftir Marc Camoletti.
I kvöld 7/6, uppselt,
fim. 11/6, uppselt,
fös. 12/6, uppselt,
lau. 13/6, uppselt,
sun. 14/6 örfá sæti laus.
Munið ósóttar pantanir.
Síðustu sýningar leikársins.
Sýningar hefjast á rtý í september.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Simapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi 568 8000 fax 568 0383.
SEIÐUR INDLANDS. Indverskir
dans- og tónlistarmenn í Iðnó í kvöld kl.
20, uppselt.
CARMEN NEGRA
(sjá sérauglýsingar).
KLÚBBUR LISTAHÁTIÐAR í
IÐNÓ
Lokahóf Listahátíðar í kvöld.
Allir velkomnir. Hljómsveitin Casino leikur
fyrir gesti frá kl. 23.
MIÐASALA
i Upplýsingamiðstöð
ferðamála í Reykjavík,
Bankastræti 2, simi 552 8588.
Opið alla daga frá kl. 830 -19.00
og á sýningarstað klukkutíma fyrir
sýningu. Greiðslukortaþjónusta.
Tónlistarskóli
Garðabæjar
Operan
Brúdkaup Figaros
í Kirkjuhvoli, Garðabæ
Aukasýn. í kvöld kl. 20.00.
Miðapantanir í síma 898 9618.
liaífiieihiiúsift
Vesturgötu 3
I HLADVARPANUM
Annað fólk
Nýtt íslenskt leikrit
eftir Hallgrím H. Helgason
fös. 12/6 kl. 21 taus sæti
Sumartónleikar
fim 11/6 kl. 21.00 laus sæti
Sumarmatseðill
Sjávarréttafantasía úr róðri dagsins
Hunangshjúpaðir ávextir
& fs Grand marnier
Grænmetisréttir einnig í boði y
Miðasalan opin alla virka daga kl. 15-
18. Miðap. allan sólarhringinn i s.
551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is
fimmtudag 11. júní uppselt föstudag 19. júní uppselt lós. 26. júní örfá sæti laus
föstudag 12. júní uppselt aukasýn. fös. 19. júní kl. 23 lau. 27. jún( kl. 20
laugardag 13. júní uppselt laugardag 20. júni uppselt lau. 27. júnl kl. 23.
fimmtudag 18. júní uppselt fim. 25. júnl örfá sæti laus
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sími 551 1475.
Opin olla daga kl. 15-19. Símapanlanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
www.mbl.is
ERLENDAR
OOOQQ
Sveinn Guðjónsson
skrifar um hljómleikaplötu
bandaríska rokkarans Johns
Fogertys, Premonition, sem
kemur út hér á landi á þriðju-
dag.
★★★
Myljandi stuð!
UNDIRRITUÐUM er enn
í fersku minni er hann
heyrði íyrst í bandarísku
rokksveitinni Creedence
Clearwater Revival. Man
meira að segja hvar hann
var staddur, rétt eins og
þegar Kennedy var myrt-
ur hér um árið. Þetta var
reyndar nokkrum árum
eftir morðið í Dallas, á
ofanverðum sjöunda
áratugnum, í Polar-
klúbbnum á Keflavíkur-
flugvelli, innan um
óbreytta bandaríska
hermenn, sem þama
voru að reyna að
skemmta sér, kven-
mannslausir í kulda og
trekld. Og þegar þessi
fyrsta hljómplata
Creedence Clearwa-
ter Revival var sett á
fóninn umtumuðust
blessaðir „verndar-
amir“ okkar, þessh-
komungu dátar,
sem skildu ekkert í
því hvers þeir áttu
að gjalda að vera
sendir til þessa
guðs volaða lands.
En það létti þeim greinilega vistina
að hlusta á þessa sérstæðu, hressi-
legu rokkhljómsveit, sem þá var að
koma fram á sjónarsviðið í Banda-
ríkjunum. Og það var ekki annað
hægt en að hrífast með.
Fljótlega varð manni ljóst að
Creedence Clearwater Revival stóð
og féll með einum manni,
gítarleikaranum, söngvar-
anum og lagasmiðnum
John Fogerty. En það var
líka alveg nóg. Framlag
hans eins dugði til að skipa
CCR í fremstu röð
rokksveita í heiminum og
hver perlan af annarri
hraut af nægtaborði sköp-
unargáfu hans og yljaði
milljónum aðdáenda um
hjartarætur um gjörvalla
heimsbyggðina. Samt var
þetta allt svo sára einfalt, “““““
takturinn, tónninn og textarnir, en
um leið svo skemmtilega hrátt og
frumlegt. Og liðu nú svo tímar fram
að allir undu glaðir við sitt, liðs-
menn CCR og aðdáendur þeirra.
A þessum árum hljóðrituðu þeir
John Fogerty og félagar í
Creedence Clearwater Revival
ódauðleg lög á borð við Proud
Mary, Bad Moon Rising, Green Ri-
ver, Born On The Bayou, Susie Q, I
Put A Spell On You, Down On The
Corner, Who’ll Stop The Rain,
Fortunate Son og Travelin’ Band,
svo aðeins örfá séu nefnd, en því eru
einmitt þessi lög tilgreind hér að
þau hljóma nú á nýrri hljómleika-
-------- plötu Johns Fogertys,
Premonition, sem um
þessar mundir er að koma
út í Bandaríkjunum og
Evrópu. „Tími til kominn!“
segja eflaust einhverjir að-
dáendur hans því þetta er
fyrsta hljómleikaplata
kappans, en hann hefur
látið svo um mælt að hefði
hann vitað hversu gaman
er að vinna slíka plötu
hefði hann gert það fyrir
20 árum. En þá voru aðrir
tímar og Fogerty ef til vill
ekki upp á sitt besta, því hann lenti í
útistöðum við fyrrverandi félaga
sína í CCR-sveitinni, sem enduðu í
málaferlum. Að sögn kunnugra fór
þetta andstreymi illa í Fogerty og
stóð honum fyrir þrifum um árabil.
Hér verður ekki farið nánar út í þá
sálma, enda þekkir undirritaður
málavexti ekki svo gjörla.
Satt að segja hafði ég ekki heyrt
af honum um árabil þegar þau und-
í rauninni er
engu iíkara
en að maður
sé kominn á
tónleika hjá
Creedence
Clearwater
Revival á
mektardög-
um þeirrar
sveitar
ur og stórmerki gerðust í upphafi
þessa árs, að John Fogerty stökk
alskapaður fram á sjónarsviðið sem
Grammy-verðlaunahafi, en platan
hans Blue Moon Swamp var valin
besta rokkplata ársins í Bandaríkj-
unum á síðasta ári. Þessi tíðindi
komu vissulega þægilega á óvart,
en eftir að hafa hlustað á plötuna
er afstaða dómnefndar skiljanleg,
enda er hér um að ræða eina bestu
rokkplötu sem komið hefur út um
árabil. Mér finnst því tilvalið að
koma því á framfæri hér, að ég hef
verið hálf fúll út í dagskrárgerðar-
menn íslenskra ljósvakamiðla fyrir
það hversu lítið þeir hafa sinnt
þessari frábæru plötu í þáttum sín-
um, og satt að segja hef ég ekki
heyrt eitt einasta lag af henni í út-
varpi hér á landi. Ef til vill stafar
þetta af því að umsjónarmenn þátt-
anna eru svo bernsk-
ir að þeir vita hrein-
lega ekki hver John
Fogerty er og því síð-
ur að hér er um að
ræða sama manninn
og skóp Creedence
Clearwater Revival,
því flestir hljóta nú að
af heyrt þeirrar sveitar
getið, - eða hvað?
Dagskrárgerðar-
mönnum íslenskra út-
varpsstöðva gefst nú
tækifæri til að bæta ráð
sitt því að á hinni nýju
hljómleikaplötu Johns
Fogertys eru þrjú lög af
Grammy-verðlaunaplöt-
unni: Joy of My Life,
Swamp River Days og
Hot Rod Heart, auk fyrr-
greindra laga frá dýrðar-
dögum Creedence Cle-
arwater Revival. Þá má
þar heyra eitt splunkunýtt
lag, titillag plötunnar
Premonition, sem sver sig
mjög í ætt og anda við þá
tónlist, sem Fogerty hefur
tileinkað sér frá upphafi.
Hið sama gildir um lög af
fyrri sólóplötum hans, svo
sem Rockin’ All Over The
World, Almost Saturday
Night, Centerfield og The Old Man
Down The Road. Lögin bera flest
með sér þetta sérstæða svipmót
tónlistar Fogertys, enda eru öll
lögin á plötunni eftir hann að und-
anskildum Susie Q (Hawkins/Lew-
is) og I Put A Spell On You (Hawk-
ins), og hún hefur því vissulega yfir
sér heildstætt yfirbragð. I rauninni
er engu líkara en að maður sé kom-
inn á tónleika hjá Creedence Cle-
arwater Revival á mektardögum
þeirrar sveitar, enda ekki hægt að
heyra betur en að þarna ríki mylj-
andi stuð, eins og við var að búast
þegar rokkarinn síungi, John
Fogerty, er annars vegar. Röddin
hefur lítið sem ekkert breyst,
þroskast örlítið ef eitthvað er og í
gítarleik hefur Fogerty engu
gleymt, og kannski heldur ekkert
lært. En það kemur ekki að sök því
Fogerty spilar hér á gítarinn ná-
kvæmlega eins og honum er eðli-
legt og einmitt þannig vill maður
hafa það. Þetta er dæmigerð
hljómleikaplata, sem allir sannir
rokkunnendur hljóta að hafa gam-
an af, og fyrir aðdáendur
Creedence Clearwater Revival er
það náttúrlega ekki spurning: Þeir
verða að fá sér eintak!
MIKIING Árangursrík gagnagreining
Námskeið á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 9. júní kl. 9 til 18,
ætlað stjórnendum, markaðsfólki og tölvunarfræðingum.
Leiðbeinendur: Michael J. A. Berry og Gordon Linoff.
Markvissari og arðbærari markaðsaðgerðir
Hvernig greinum við betur góðu viðskiptavinina?
Hvernig nýtum við betur þau verðmæti sem felast
í tölvugögnum fyrirtækisins?
f Styrktaraðilar:
• BREYTA ehf
Skráning og nánari upplýsingar í síma 552 83711 tölvupósti: atli@breyta.is
LANDS SÍMINN
EIMSKIP